Tíminn - 28.04.1983, Qupperneq 12

Tíminn - 28.04.1983, Qupperneq 12
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 12 heimilistíminn umsjón: B.St. og K.L. ■ Sl. föstudag var saman kominn hópur fríðra og föngulegra kvenna í stöðvum Kennarasambands ís- lands við Grettisgötu í Reykjavík. Hér voru saman komnir félagar í Handavinnukennarafélagi íslands, en þennan dag héldu þeir svokall- aðan „Starfsdag“ ásamt félögum sínum öðrum í Sambandi hand- og myndmenntakennara. Innan sam- bandsins eru handavinnu-, smíða-, teikni- og vefnaðarkennarar. betta er í fyrsta sinn, sem slíkur „Starfsdagur" er haldinn, og að sögn Guðrúnar Þórsdóttur, for- manns Handavinnukennarafélags íslands, fer þaö eftir því, hvernig til tekst nú, hvort framhald veröur á starfsdagahaldi. Blm. Heimilistímans varð hugs- að til handavinnutímanna í barna- skóla fyrir allmörgum árum. Þá var ekki um auðugan garð að gresja í efnisvali til handavinnu (Tímamyndir GE) ■ Það var þröngt setinn bekkurinn á „Starfsdegi" handavinnukennara, en konurnar létu þaö ekki á sig fá. Starfsdagur handavinnukennara og aðaláherslan var lögð á aö koma ncmendum upp á lagið meö hagnýt vinnubrögð, t.d. að prjóna vettlinga og leista, sauma svuntur og blússur. Bæði efniviöurinn og vinnubrögðin höföuðu lítiö til allt of margra nemenda, sem stóðu í þeirri trú, að þeir ættu lítið gagn eftir að hafa af þessari kunnáttu. En greinilegt er, aö hér hefur mikil breyting orðið á. Guðrún Þórsdóttir segir, að markmiðið í handavinnukennslu nú sé að kenna aöferöir, fremuren að binda verkefnin aígerlega við ákveðin stykki, sem ekki má bregða út af, eins og áður var. - Frjálsræðið er nú allt annað en var. Nemendur ráða nú miklu meira hvaða verkefni þcir taka sér fyrir hendur, segir hún. En hún kvaö stöðugar brcytingar vera á handavinnukennslu.nú er t.d. unn- ið að því að tengja handavinnu- kcnnsluna meira ööru námi í skól- unum en verið hefur. Eitt atriði í þeim breytingum cr að leggja meira hópverkcfni fyrir nemendur en til þessa hefur tíðkast, þ.e.a.s að kenna þeim að vinna saman í hópum. Og það var einmitt það, sem handavinnukennararnir voru að fást við á áðurnefndum „Starfs- degi“ sínum sl. föstudag. Verkefn- in, sem þær voru að vinna við, voru 4, vetur, sumar, vor og haust. Konurnar drógu sér verkefni og skipuðu sér saman í hópa, en verkefnin unnu þær síðan frá eigin brjósti. Meðfylgjandi myndir sýna mis- munandi útfærslur þeirra á verk- efnum, en allar eiga það sameigin- legt að vera mjög skemmtilegar. ■ Hér virðisl uppskerutíminn vera að nálgast ■ Hér eru hendur svo sannarlega látnar standa fram úr ermum. Unniö er samtímis frá réttunni og röngunni, svo að enginn tími fari nú til spillis; ■ Þær höföu veg og vanda af þessum fyrsta „Starfsdegi“ handavinnukennara. Elísabet Magnúsdóttir (t.v.), formaður Starfsdagsnefndar, og Guðrún Þórsdóttir, formaður Handavinnukennarafélags íslands (t.h.) t. ■ Kappið var svo mikið, að konurnar gáfu sér ekki tíma til að færa sig um set til að njóta kaffisins. kalTibollarnir fá því að dvelja í góðum félagsskap efniviðarins, sem notaður var við handavinnuna. ■ Stundum var skotist frá öðrunt borðum í heimsókn til að kíkja á það sent hinar voru að gera

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.