Tíminn - 09.11.1962, Side 1
SJONVARPSflUEAl
SETT i VARDSKIP
BÓ—Eeykjavík, 8. nóv.
Landhelgisgæzlan boðaði
frétfamenn um borð í varð-
skipið Þór í dag til að kynna
neðansjávarsjónvarp, sem hef
ur verið sett upp í varðskip-
inu.
Pétur Sigurð'sson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar, sagði tækið
ætlað til að skoða það, sem er
fyrir neðan þau mörk, sem kafari
kemst að, 20—30 m. dýpi. Hér er
um venjulegt sjónvarpstæki að
ræða, en myndavélin er vatnsvar-
in og tengd sjónvarpstækinu með
kapli og búin ljóskösturum. Hægt
er að sökkva vélinni og skoða með
tækinu allt ag 300 feta dýpi.
Þetta tæki er ekki talið hag-
rýtt til fiskirannsókna. Sjónsvið
þess er aðeins tæpur hálfur metri
á kant neðansjávar og er breyti-
legt vegna gruggs. Tækið kemur
á engan hátt í stað radars, enda
ekki keypt til þess. Tilgangur-
inn er að nota sjónvarpig til að
athuga skipsflök, sem liggja dýpra
en kafari komizt að þeim, sagði
forstjóri Landhelgisgæzlunnar,
þó ekki í þeim tilgangi að ná skip-
unum upp, sagði forstjórinn að-
(Framhald á 8. 6Íðu).
tAt ÞESSI MYND birtist á sjónvarpsskermi Þórs, er tækinu var
h»int að höfn,r*nl 1 R»vkjavik. Ir rósu. • TÍMIMN-RT5)
LðGTÖK
IUNDAN-
ÞAGUFÉ
KH — Reykjavík, 8. nóv.
Mjöig hefur borið á því að
undanförnu að lögtaksmenn
frá Gýaldheimtunni hafi
birzt á heimilum fólks og
gert lögtak vegna vangold
ins almaniMtryiggingasjóð.s-
gjalds, sem nefnt fólk hef-
ur ekki talið sig eiga að
greiða.
Hefur þetta valdið tals-
verðum vandræðum og ring
u'lreið, en hér er aðeins um
ósamræmi að ræða í af-
greiðslu málanna. Þannig
er, að almannatrygginga
sjóðsgjiald er kr. 1425 fyrir
einhleypa konu, en 1900 kr.
fyrir einhleypan karlmann.
rig greiða það allir, sem
komnir eru yfir 16 ára ald
ur, en undanþágur eru þ'
' cittar þeim, sem hafa 110
hús, nettótekjur eða minni
Framh á 15 siðu
EMIL J0NSS0N, FORMAO'JR ALÞYÐUFLOKKSINS, LYSIR YFIR A ALÞINGI:
er nu
hlvnntur qerðardómum
TK—Reykjavík, 8. nóv.
í umræSum á Alþingi í gær
um gerðardómslögin illræmdu
gaf Emil Jónsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra og formað-
ur Alþýðuflokksins, athyglis-
verða yfirlýsingu. Sagði Emil,
að Alþýðuflokksmönnum
hefði snúizt hugur í afstöð-
unni til gerðardóma í vinnu-
deilum. Það væri rétt að Al-
þýðuflokkurinn hefði áður
verið eindregið á móti gerðar-
dómum, en nú væru Alþýðu-
flokksmenn hlynntir gerðar-
dómum til að koma í veg fyrir
mikið tjón af langvinnum verk
föllum.
Þá sagði ráðherrann, að hann
væri andvígur því, að ríkisvaldið
! hefði afskipti af vinnudeilum á
| frumstigi þeirre og ætti ekki að
grípa inn í fyrr en þrautreynt
væri að aðilar gætu ekki náð sam
komulagi, en Ólafur Jóhannesson
hafði áður lagt áherzlu á, að rík-
isvaldinu bæri að reyna ag liðka
fyrir lausn mála á frumstigi kjara
deilna og reyna að koma í veg
fyrir að málin reyrðust algerlega
í hnút.
Eftir þessa yfirlýsingu Emils
•fc í GÆRKVELDI voru talin atkvæói sjómanna og útgerðarmanna um
miólunartillöguna í síldveiðideilunni Tillagan hljóðaði upp á 1—2%
hærri skiptakjör en gerðardómurinn kvað á um, en 3—3,5% lægri en
síðusfu kröfur sjómanna. Tillagan var felid bæði af sjómönnum og út-
gerðermönnum. Frá útgerðarmönnum voru 120 á kjörskrá, og greiddu
allir atkvæði, 102 gegn tillögunni, 17 með henni, og einn seðill var auður.
Hjá sjómönnum voru 643 á kjörskrá, 486 greiddu atkvæði, þar af 478 gegn
tillögunni, 4 með henni, 3 seðlar voru auðir og einn ógildur.
Jónssonar tók Ólafur Jóhannesson
til máls og benti á að hér væri um
mjög athyglisverða stefnuyfirlýs-
ingu formanns Alþýð'uflokksins að
ræða. Stingi hún mjög í stúf við
fortíð flokksins í þessum málum.
Alþýðuflokkurinn væri nú almennt
inn á gerðardómsleið og ráðherr-
ann hefð'i einmitt sérstaklega tek-
ið fram, að Alþýðublaðið væri ekki
á móti gerðardómsleiðinni heldur
niðurstöðum gerðardómsins í
bessu sérstaka tilviki. — Er Ól-
afur Jóhannesson hafði á þetta
minnt, bað Emil um oðið aftur
cg reyndi að draga heldur í land
og sagði að hér væri ekki um al-
menna stefnuyfirlýsingu að ræða
fyrir Alþýðuflokkinn, en hins veg- 1
ar væri Aiþýðuflokkurinn ekki
dogmatískur flokkur, sem ekki
gæti skipt um stefnu í einstökum
málum og það væri rétt að af-
staða Alþýðuflokksins til gerðar-
dóma væri breytt og i þessu sér-
Framhald á 3. síðo.
RÚSSAR RÁDA
El VID CASTRO
NTB—Havana, New York,
8. nóvember.
FuIItrúi kúbö,nsku stjórnar-
innar sagði í dag, að viðræður
þeirra Anastas Mikojans og
Fiedels Castro væru nú komn-
ar í strand. Ekkert bendir til
þess að Mikojan hiafi, eftir 6
d.aga viðræðu.r, tekizt að finna
grundvöll að málamiðlun eða
tekizt að yfirvinna óstýrilæti
Castros. Castro er algjörlega
mótfallinn eftirliti með niður-
rifj sovézku eldfliaugastöðv-
anna á hvern hátt, sem það
eftirlit kynni að verffia fram
kvæmt.
Kúba er mótfallin sérhverju
samþykki, liggi ekki áður fyrir
fullkomin staðfesting frá
Bandaríkjunum, en það þýðir,
að Bandaríkin verffia að sani-
þykkja kröfu Castros, sem fram
hefur komið, o,g er í fimm hö
um. Ein höfuðkrafa Kúbu-
stjórnar er, að Bandaríkja-
menn yfirgefi flotastöð sína á
Guantanamo.
Afstaða Sovétríkjanna, eftir
því sem Mikojan er sagður
hafa skýrt hana, er ekki eins
einstrengimgsleg, og lætur Sov.
étstjórnin sér nægja, að Banda-
ríkin tryggi Kúbu, að ekki
verði gerð innrás á eyjunia.
Hina fimm liðina segir stjórn-
in að megi ræða síðar.
Andrúmsloftið umhverfis þá
Mikojan og Castro virðist vera
mjög þvimgað, og hvorugur að-
ili getur komizt hjá því að
Framhald á 3. síðu.