Tíminn - 12.07.1983, Side 3

Tíminn - 12.07.1983, Side 3
ÞRIÐJ UDAGUR 12. JÚLÍ1983 3 fréttir Sparnadarhugmyndir heilbrigðisráðuneytisins: „MUNUM HAMtA GEGN ÞESSUM HUGMYNDUM” segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Starfsmannafélgsins Sóknar ■ „Mér svnisl í fljótu bragði að við munum reyna að hamla gegn þessum hugmyndum ráðuneytisins eins og við getum,“ sagði Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, formaður Starfsmannafélagsins Sóknar, þegar hún var innt álits á sparnaðarhugmyndum hcilbrigðisráðu- neytisins, varðandi rekstur ríkisspítal- anna. I bréfi heilbrigðisráðherra til stjórnar og forstjóra ríkisspítalanna er sérstak- lega óskað eftir að könnuð verði hag- kvæmni þess að bjóða út ýmsa verkþætti í starfsemi spítalanna svo sem rekstur eldhúss og mötuneyta, rekstur þvotta- húss og ræstingu, en við þessa þætti spítalarekstursins, er meirihluti starfs- manna í Sókn. „Ég held að það gæti reynst erfiðara en margur hyggur að bjóða út rekstur mötuneyta og eldhúss. Á sjúkrahúsum er framreitt sérstakt fæði, sem sjaldnast er á boðstólum í mötuneytum annars staðar. Varðandi ræstingarnar tel ég ekki góða hugmynd að setja þær í bónus. Eins og er veit ég ekki um eina einustu Sóknarkonu sem hefur óskað eftir því að tekin verði upp bónusvinna í ræstingum, enda ræstingar á sjúkrahúsum að mörgu leyti annars eðlis en annars staðar. Á sjúkrahúsum er stöðugur umgangur. Eins er með þvottahúsið, ég hef ekki orðið vör við að neitt af því fólki sem þar vinnur óski eftir bónusvinnu og mér finnst ómannúðlegt að neyða henni á fólk,“ sagði Aðalheiður. - Sjó Eðvarð Sigurðsson látinn ■ Eðvarð Sigurðsson fyrrum alþing- ismaður og formaður Verkamanna- sambands íslands, lést í Reykjavík síðast liðinn laugardag tæplega 73 ára að aldri. Eðvarð var fæddur að Nýjabæ í Garði í Gullbringusýslu, sonur hjónanna Sig- urðar Eyjólfssonar sjómanns frá Litlu- Brekku í Reykjavík og Ingibjargar Jóns- dóttur frá Nýjabæ. Eðvarð vann ýmis almenn verkamannastörf framan af ævi en tók jafnframt þátt í verkalýðsbarátt- unni og málefnum sem snertu verkafólk og kjör þess. Árið 1944 gerðist hann starfsmaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar en hafði áður verið í stjórn þess, eða frá því í janúar 1942. Þá var hann fulltrúi á þingum ASÍ frá 1942, í miðstjórn þess frá 1954 og formaður Verkamannasambands íslandsfrá 1964. Eðvarð átti sæti í fjölda nefnda sem fjölluðu um kjör og aðbúnað verkafólks. Hann átti m.a. sæti í nefnd sem undirbjó lög um atvinnuleysistryggingar 1956 og í stjórn Atvinnuleysistryggingarsjóðs var hann frá stofnun hans. Þá átti hann sæti í nefndum sem endurskoðuðu lög um slysatryggingar og var fulltrúi ASÍ í íslensku sendinefndinni á ársfundum Alþjóðavinnumálaskrifstofunnar í Genf 1955 og 1957. Eðvarð átti sæti í miðstjórn Sósíal- istaflokksins frá stofnun hans 1938 og svo Alþýðubandalagsins frá stofnun þess. - ÞB Blöndudeilan: Ætti að skýrast í næstu viku ■ „Við munum halda viðræðum áfram á morgun, en síðan er ætlunin að gefa aðilum umþóttunartíma fram að helgi. Á fundum í næstu viku ættu þessi mál því að skýrast," sagði Guðlaugur Þor- valdsson, ríkissáttasemjari, í samtali við Tímann. Sáttasemjari hefur nú til meðferðar ágreiningsmál vegna kjarasamninga starfsmanna við Blönduvirkjun. Full- trúar verkalýðsfélaga er hagsmuna hafa að gæta ræddu við sáttasemjara fyrir helgi, en í dag var sameiginlegur fundur með fulltrúum verkalýðsfélaga og sam- taka vinnuveitenda. Guðlaugur Þorvaldsson sagði að að svo stöddu væri ekki unnt að segja hvort um alvarleg ágreiningsefni væri að ræða, en hugmyndir væru uppi um að gera heild- arsamninga um virkjunarvinnuna líkt og á Tungnaársvæðinu, og væri því um talsvert verk að ræða. GM astur látinn ■ Þorgrímur V. Sigurðsson frá Staða- stað, fyrrum prófastur fyrir Snæfellsnes og Hnappadalssýslu er látinn. •^réorgrímur var fæddur að Hvítárbakka þann 19. nóvember 1905 sonur hjónanna Sigurðar Þóroddssonar og Ásdísar Þor- björnsdóttur. Hann var prestur að Grenjaðastað árið 1931 allt til ársins 1944 er hann varð prestur að Staðastað. Þar var hann prestur til ársins 1973 er hann lét af störfum en með preststarfinu rak hann skóla á staðnum. Hann varð prófastur síðusu ár starfsævi sinnar. Eftirlifandi ekkja hans er Áslaug Guð- mundsdóttir. ■ Frá keppni í unglingaflokki 13-15 ára. Hinrik Bragason á Erli t.v. sigraði í þeim flokki. ■ Stórmót hestamanna var haldið í Víðidal nú um helgina. Keppt var í brokki, skeiði og stökki auk þess sem keppt var í flokki eldri og yngri unglinga. Veður var mjög gott og verður árangur hestamanna að teljast nokkuð góður miðað við fyrri keppnir. f 800 metra stökki sigraði Örvar á 59,6 sek. en þar var eigandi og knapi Róbert Jónsson. Annar varð Tvistur á 60,2 sek., þriðji Snarfari á 62,5. í 350 metra stökki varð fyrst. Spóla á 24,6 sek. Eigandi og knapi á Spólu var Hörður Þ. Harðarson. Annar var Reykur á 24,9 sek, þriðji var Trilla á 25,4 sek. í 250 metra stökki var fyrstur Hrappur á 18,6 sek, og knapi Kristín Sigurfinnsdóttir. Annar varð Eron á 18,7 sek, þriðji Örn á 18,8 sek. f 300 metra brokki varð fyrstur Álfur Gísla B. Björnssonar á 37,3 sek, knapi Þórður Jónsson, Trítill annar á 38 sek og Brimur varð þriðji á 44,9 sek. f 250 metra skeiði sigraði Villingur Harðar G. Albertssonar á 22 sek, knapi Aðalsteinn Aðalsteinsson, annar Sproti á 22,2 sek, þriðji Hjörtur á 22,3 sek. í 150 metra skeiði sigraði Júpíter á 14,8 sek, eigandi og knapi var Sigurbjörn Bárðarson. Annar varð Torfi á 15,2 sek, og þriðji varð Ásaþór á 15,4 sek. I A-flokki gæðinga varð efstur Glæsir með einkunnina 8,52, en eigandi hans er Jón Ingi Baldursson en knapi var Gunn- ar Arnarson. Annar varð Sókron, þriðji Rekkur, fjórði Laski, fimmti Erpur. í B-flokki gæðinga varð efstur Krummi, annar Haki, þriðji Dýrlingur, fjórði Bliki og fimmti Nökkur. f unglingaflokki 13-15 ára sigraði Hinrik Bragason á Eril, önnur Sólveig Ásgeirsdóttir á Neista, þriðji Sigurður Kolbeinsson á Flugari og fjórða María Magnúsdóttir á Tígli og fimmti Sigur- oddur Pétursson á Gjafari. f flokki 12 ára og yngri sigraði Sigrún Erlingsdóttir á Hrönn, annar Bogi Hólmar Viðarsson á Blesa og þriðja Anna B. Níelsdóttir á Drottningu. Á mótinu var valinn glæsilegasti hest- ur mótsins, en þann titil vann Glæsir Jóns Inga Baldurssonar sem einnig varð efstur í A-flokki gæðinga. Knapi á Glæsi var Gunnar Arnarson. Þá var einnig valinn knapi mótsins, en þann titil hlaut Sigurbjörn Bárðarson sem einnig sigraði í 150 metra skeiði á hestinum Júpíter. - ÞB Þorgrímur V. Sigurðsson fyrrum próf- Stórmót hestamanna í Víðidal Lestunar- áætlun Hull/Goole: Jan ........ Jan ........ Jan ........ 25/7 8/8 22/8 Rotterdam: Jan........ Jan ....... Jan ....... Jan ....... . 12/7 26/7 9/8 23/8 Antwerpen: Jan......... Jan ........ Jan......... Jan ........ . 13/7 . 27/7 10/8 24/8 Hamborg: Jan ...... Jan ...... Jan....... Jan....... Helsinki: Helgafell .. Helgafell .. 15/7 29/7 12/8 26/8 15/7 9/8 Larvik: Hvassafell Hvassafell Hvassafell 18/7 1/8 15/8 Gautaborg: Hvassafell...................19/7 Hvassafell................... 2/8 Hvassafell...................16/8 Hvassafell...................30/8 Kaupmannahöfn: Hvassafell...................20/7 Hvassafell................... 3/8 Hvassafell...................17/8 Hvassafell...................31/8 Svendborg: Helgafell....................13/7 Hvassafell................. 21/7 Dísarfell ...................22/7 Hvassafell................... 4/8 Helgafell....................12/8 Árhus: Helgafell....................13/7 Hvassafell...................21/7 Dísafell.....................22/7 Hvassafell................... 4/8 Helgafell....................12/8 Gloucester, Mass: Jökulfell.....................15/7 Skaftafel!...................22/7 Skaftafell...................19/8 Halifax, Canada: Skaftafell...................23/7 Skafíafell...................20/8 u SKIPADEILD SAMBANDSINS SambandshLlsinu1,'■ Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.