Tíminn - 12.07.1983, Síða 16

Tíminn - 12.07.1983, Síða 16
20 im ÞRIDJUDAGUR 12. JÚLÍ1983 dagbók | tímarit ASKEU LÓVE ,,, FLORA OF ICELAND íslensk ferðaflóra eftir Áskel Löve komin út á ensku undir nafninu Flora Of Iceland ■ Almenna bókafélagiö hcfur sent frá sér íslenska feröaflóru eftir Áskel Löve í cnskri þýöingu höfundarins undir nafninu FLORA OF ICELAND. Myndirnar í bókinni eru eftir Dagny Tande Lid. íslensk ferðaflóra kom fyrst út áriö 1970 og síðan í annarri útgáfu endurskoðuð 1977 og var sú útgáfa endurprentuð 1981. Enska þýðingin cr gerö eftir hinni endurskoðuðu útgáfu bókarinnar. I þcssari bók er lýst öllurn þeim tegundum æöri jurta scm vitaðer að vaxi villtar á fslandi og auk þess þeim slæðingum sem örugglega hafa numið hér land. íslensk ferðaflóra er mikil bók, hin enska útgáfa 403 bls. aö stærð og er meö mynd af sérhverri plöntu sem nefnd er. Auk þess cru fremst í þókinni litmyndir af nokkrum al- gengustu íslensku jurtunum. Nákvæmurætt- arlykill er framan við megintextann og er auövelt að greina plöntunar með hjálp hans og myndanna í bókinni. í lok bókarinnar eru skrár yfir latnesk ensk og íslensk heiti plantnanna og vt'sað til blaðsíðna þar sem um þær er ritaö. Bókin er gefin út á ensku vegna hinna mörgu ferðamanna sem hingað koma og áhuga hafa á að kynna sér gróðurríki landsins. LYGN STREYMIR DON Lygn streymir Don eftir rússneska nóbelsverðlaunahöfundinn Mikhail Sjolokhov komin út hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélagsins. ■ Bókaklúbbur Almenna bókafélagsins hefur sent frá sér hið víökunna listaverk LYGN STREYMIR DON eftir rússneska nóbelsverölaunahöfundinn Mikhail Sjolok- hov í 2. útgáfu. Þýðandinn er Helgi Sæ- mundsson. Þetta er fyrra bindi verksins en síðara bindið kemur út í næsta mánuði. Lygn streymir Don er ein af frægustu skáldsögum Rússlands á þessari öld og fyrir hana hlaut höfundurinn Sjolokhov nóbels- verðlaunin árið 1965. Hún fjallar um Rúss- land byltingarinnar, eins konar ættarkrónika er segir frá landi og þjóð á veðrasömum örlagatímum, en er jafnframt ógleymanleg ástarsaga, djúptæk baráttusaga og tilkomu- mikil þjóðlífssaga, eins og þýðandinn, Hclgi Sæmundsson, kemst að orðið í grein um söguna sent hann ritar í Fréttabréf bóka- klúbbsins. Aðalpersóna sögunnar er Gregor Mele- koff. Hann liftr í æsku að gömlum og hefðbundnum kósakkasið, stritar, elskar, gleðst og hatar. Svo hefst hcimsstyrjöldin fyrri, Síðan skellur yfir bylting og þorgara- styrjold og hinn glæsilegi Gregor berst fyrir þungum straumi atburða og örlaga uns hann stendur uppi ráðlaus og vonlaus. Þetta er saga um mikilhæfan einstakling í óstjórn- legum hamförum lands og þjóðar. Þetta fyrra bindi er 375 bls. að stærð og unnið í Prentsmiðjunni Odda. Tímarit Máls og menningar ■ Nýlega er komið út þriðja heftið af Tímariti Máls og menningar á þessu ári. Þar er haldið upp á aldarafmæli tékkneska rit- höfundarins Franz Kafka og birtar fimm smásögur eftir hann í þýðingu Ástráðs Ey- steinssonar og Eysteins Þorvaldssonar. Sög- unum fylgir grein eftir Ástráð um þennan sérkennilega og mikilvæga höfund í bók- menntasögu þessarar aldar. I þessu hefti birtist líka bráðskemmtileg grein um söguna af henni Rauðhettu litlu eins og hún hefur varðveist í munnlegri geymd í heimalandi sínu, Frakklandi, eftir franska mannfræðinginn Yvonne Verdier. Guðrún Bjartmarsdóttir þýddi. Guðbergur Bergsson skrifar um þjóðareinkenni í myndlist, og Keld Jorgensen á grein sem hann nefnir Tákneðlisfræði og bókmenntir, um nýstárlegar leiðir í könnun bókmennta sem á erlendum málum eru kenndar við semiotik. Ádrepa er cftir Gunnar Karlsson á greinar um Karl Marx í síðasta hefti. Að venju eru Ijóð í heftinu að þessu sinni eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, Isak Harðar- son, Lindu Vilhjálmsdóttur, Walt Whitman DENNIDÆMALAUSI „Sjáðu, enn eitt dæmið um hvað það er and - styggilegt að verða fullorðinn, jafnvel það sem maður gerir sér til skemmtunar er ekkert skemmtilegt." og Leandro Urbina, hinir tveir síðastnefndu í þýðingum Sigurðar A. Magnússonar og Vésteins Lúðvíkssonar. Þorvaldur Kristinsson skrifar ritdóm um Hjartað býr enn í helli sínum eftir Guðberg Bergsson, Helga Kress skrifar um Svartan hest í myrkrinu eftir Nínu Björk Árnadóttur, Vésteinn Ólason skrifar um Veginn heim eftir Olgu Guðrúnu og Silja Aðalsteinsdóttir um Nýgræðinga í Ijóðagerð, rit í samantekt Eysteins Þorvaldssonar. Tímarit Máls og menningar er 120 bls. að stærð, unnið í prentsmiðjunni Odda, og því fylgir að þessu sinni bókaskrá Máls og menningar 1983. Þjóðmálaritið SÝN ■ Þjóðmálaritið SÝN 2. tbl. 1. árg. er nýkomið út. Ritið er gefið út af Sambandi ungra framsóknarmanna, en ritstjóri og ábyrgðarmaður er Helga Jónsdóttir. Rit- apótek Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í Reykjavik vikuna 8.-14. júlí er í Lyfjabúð Breiöholts. Elnnig er opið i Apótek Austur- bæjar til kl. 22 öll kvöld vikunnar nema sunnudag. Mafnarfjöröur: Hafnarfjaröar apótek og Noröurbæjar apótek eru opin á virkum dögum trá kl. 9-18.30 og til skiptis annan hvern laugardag kl. 10-13 og sunnudag kl. 10-12. Uppfýsingar i simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrarapótek og Stjörnuapó- tek eru opin virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin er opiö i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19. Á helgidögum er opið írá kl. 11-12, og 20-21. Á öðrum timum er lyfjafræðingur á bakvakl. Upplýsingar eru gefnar í sima 22445. Apótek Keflavíkur: Opið virka daga kl. 9-19. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12. Apötek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl. 8-18. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30 og 14. löggæsla Reykjavík: Lögregla simi 11166. Slökkvilið og sjúkrabill sími 11100. Seltjarnarnes: Lögregla simi 18455. Sjúkrabíll og slökkvilið 11100. Kópavogur: Lögregla sími 41200. Slökkvi- lið og sjúkrabill 11100. Hafnarfjörður: Lögregla simi 51166. Slökkvilið og sjúkrabill 51100. Garðakaupstaður: Lögregla 51166. Slökkvilið og sjúkrabill 51100. Keflavfk: Lögregla og sjúkrabíll í sima 3333 og i símum sjúkrahússins 1400, 1401 og 1138. Slókkvilið simi 2222. Grindavík: Sjúkrabill og lögregla sími 8444. Slökkvilið 8380. Vestmannaeyjar: Lögregla og sjúkrabil! simi 1666. Slökkvilið 2222. Sjúkrahúsið simi 1955. Selfoss: Lögregla 1154. Slökkvilið og sjúkrabíll 1220. Höfn í Hornafirði: Lögregla 8282. Sjúkrabill 8226. Slökkvilið 8222. Egilsstaðir: Lögregla 1223. Sjúkrabíll 1400. Slökkvilið 1222. Seyðisfjörður: Lögregla og sjúkrabíll 2334. Slökkvilið 2222. Neskaupstaður: Lögregla sími 7332. Eskifjörður: Lögregla og sjúkrabill 6215. Slökkvilið 6222. Húsavfk: Lögregla41303,41630. Sjúkrabíll 41385. Slökkvilið 41441. Sjúkrahúslð Akureyri: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 19 til kl. 19.30. Akureyri: Lögregla 23222, 22323. Slökkvil- ið og sjúkrabíll 22222. Dalvik: Lögregla 61222. Sjúkrabíll 61123 á vinnustað, heima: 61442. Ólafsfjörður: Lögregla og sjúkrabill 62222. Slökkvilið 62115. Siglufjörður: Lögregla og sjúkrabill 71170. Slökkvilið 71102 og 71496. Sauðárkrókur: Lögregla 5282 Slökkvilið 5550. Blönduós: Lögregla simi 4377. ísafjörður: Lögregla og sjúkrabíll 4222. Slökkvilið 3333. Bolungarvik: Lögregla og sjúkrabíll 7310. Slökkvilið 7261. Þatreksfjörður: Lögregla 1277. Slökkvilið 1250, 1367, 1221. Borgarnes: Lögregla 7166. Slökkvilið 7365. Akranes: Lögregla og sjúkrabill 1166 og 2266. Slökkvilið 2222. Hvolsvöllur: Lögreglan á Hvolsvelli hefur simanúmer 8227 (svæðisnúmer 99) og slökkviliðið á staönum sima 8425. heimsóknartím Heimsóknartimar sjúkrahúsa eru sem hér segir: Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 19 til kl. 19.30. Kvennadelld: Alla daga frá kl. 15 til kl. 16 og kl. 19,30 til kl. 20. Sængurkvennadelld: Kl. 15 til ki. 16. Heimsóknarlími fyrir feður kl. 19.30 til kl. 20.30. Barnaspítali Hringsins: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 19 til kl. 19.30. Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 19.30. Borgarspítalinn Fossvogi: Mánudaga til föstudagkl. 18.30 til kl. 19.30. Álaugardögum og sunnudögum kl. 15-18eðaeftirsamkomu- lagi. Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17 og kl. 19 til kl. 20. Grensásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16 til kl. 19.30. Laugardaga og sunnudaga kl. 14 til kl. 19.30. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 tilkl. 16.30. Kleppsspitali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 ogkl. 18.30 til kl. 19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Hvitabandið - hjúkrunaraeuo Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til ki. 17 á helgidögum. Vifilsstaðir: Daglega kl. 15.15 til kl. 16.15 og kl. 19.30 til kl. 20. Visthelmillð Vífilsstöðum: Mánudaga til laugardaga frá k!.20 til kl. 23. Sunnudaga frá kl. 14 til kl. 18 og kl. 20 til kl. 23. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánudaga til laug- ardaga kl. 15 til kl. 16 og kl. 19.30 til kl. 20. Sjúkrahúslð Vestmannaeyjum: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til 19.30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15.30 til 16 og kl. 19 til 19.30. heilsugæsla Slysavarðstofan i Borgarspitaianum. Sími 81200. Allan sólarhrinyínn. Læknastofur eru lokaðar á laugardögum og helgidögum, en hægt er að ná sambandi viö lækna á Göngudeild Landspitalans alla virka daga kl. 20-21 og á laugardögum frá kl. 14-16. Simi: 29000. Göngudeild er lokuð á helgidögum. Á virkum dögum kl. 8-17er hægt að ná sambandi við lækni í sima Læknafélags Reykjavíkur 11510, en þvi aðeins að ekki náist i heimilislækni.Eftir kl. 17 virka daga lil kl. 8 að morgni og frá kl. 17 á föstudögum til kl. 8 árd. á mánudogum er læknavakt í sima 21230. Nánari upplýsingar um fyfjabúðir og læknaþjónustu eru gefnar i símsvara 13888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er í Heilsuverndarstöðinni á laugardögum og helgidögum kl. 10-11. fh Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð Reykjavikur á mánudögum kl, 16.30-17.30. Fólk hafi með sér ónæmisskirleini. SÁA. Fræðslu- og leiðbeiningarstöð Siðu- múla 3-5, Reykjavík. Upplýsingar veittar i sima 82399. — Kvöldsímaþjónusta SÁÁ alla daga ársins frá kl. 17-23 i síma 81515. Athugið nýtt heimilisfang SÁÁ, Siðumúli 3-5, Reykjavík. Hjálparstöð dýra við skeiðvöllinn i Víðidal. Sími 76620. Opið er milli kl. 14-18 virka daga. bilanatilkynningar Rafmagn: Reykjavik, Kópavogur og Sel- tjarnarnes, simi 18230, Hafnarfjörður, sími 51336, Akureyri simi 11414, Keflavik simi 2039, Vestmannaeyjar, sími 1321. Hitaveitubilanir: Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður, simi 25520, Seltjarnarnes, sími 15766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík og Seltjarn- arnes, sími 85477, Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og um helgar sími 41575, Akureyri, simi 11414. Keflavík, símar 1550, eftir lokun 1552. Vestmannaeyjar, simar 1088 og 1533, Hafnarfjörður sími 53445. Símabilanir: i Reykjavik, Kópavogi, Sel- tjarnarnesi, Hafnarfirði, Akureyri, Keflavik og Vestmannaeyjum, tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana: Sími 27311. Svarar alla virka daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og i öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa á aðstoð borgarstofnana að halda. gengi íslensku krónunnar Gengisskráning nr. 125 - 11. júlí 1983 kl.09.15 Kaup Sala 01-Bandaríkjadollar 27.660 02-Sterlingspund 42.476 03—Kanadadollar 22 411 04-Dönsk króna 2.9826 05-Norsk króna 3 7688 3 7797 06-Sænsk króna 3 6025 07-Finnskt mark 4.9570 08-Franskur franki 3.5621 09-Belgískur franki BEC 0.5340 10-Svissneskur franki 12.9344 12 9719 11-Hollensk gyllini 9.5643 12-Vestur-þýskt mark 10.6672 10 6981 13-ítölsk líra 0.01808 14--Austurrískur sch 1 5150 1 5294 15-Portúg. Escudo 0,2336 16-Spánskur peseti 0.1871 17-Japanskt yen 0.11446 18-írskt pund 33.755 20-SDR (Sérstök dráttarréttindi) 30/06 . 29.3077 29.3930 -Belgískur franki BEL 0.5405 0.54209 Aðalsafn - leslrarsalur'- Lokað í júnl-ágúst (Notendum er bent á að snúa sér til útlánsdeild- ar) SÉRÚTLÁN - Afgreiðsia i Þingholtsstræti 29a, simi 27155. Bókakassar lánaðir skipum, heilsu- hælum og stofnunum. SOLHEIMASAFN - Sólheimum 27, simi 36814. Opið mánud.-föstud. kl. 9-21. Frá 1. sept. -30. apríl er einnig opið á laugard. kl. 13-16. Sögustund fyrir 3-6 ára börn á miðvikudögum kl. 11-12. Sólheimasafn: Lokað frá 4. júli i 5-6 vikur. BÓKIN HEIM - Sólheimum 27, sími 83780 Heimsendingaþjónusta á bókum fyrir fatlaða og aldraða. Simatimi: mánud. og fimmtudaga kl. 10-12. HOFSVALLASAFN - Hofsvallagótu 16, sími 27640. Opið mánud.-föstud. kl. 16,-19. Hofsvallasafn: Lokað i júli. BÚSTAÐASAFN - Bústaðakirkju, simi 36270. Opið mánud.-föstud. kl. 9-21. Frá 1. sept.-30. april er einnig opið á laugard. kl. 13-16. Sögustund fyrir 3-6 ára böm á miðvikudögum kl. 10-11. Bústaðasafn: Lokað frá 18. júli 14-5 vikur. BÓKABÍLAR - Bækistöð I Bústaðasafni, s.36270. Viðkomustaðirviðsvegarumborgina. Bökabilar: Ganga ekki frá 18. júli -29. ágúst. söfn ÁRBÆJARSAFN - Safnið er opið frá kl. 13.30- 18, alla daga nema mánudaga. Stræt- isvagn nr. 10 frá Hlemmi. ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastræti 74, er opið daglega nema laugardaga kl. 13.30 til kl. 16. ÁSMUNDARSAFN við Sigtún er opið dag- lega, nema mánudaga, frá kl. 14-17. LISTASAFN EINARS JONSSONAR - Frá og með l.júni er ListasafnEinarsJónssonar opið daglega, nema mánudaga frá kl. 13.30- 16.00. Borgarbókasafnið AÐALSAFN - Útlansdeild, Þingholtsstræti 29a, simi 27155. Opið mánud. -föstud. kl. 9-21. Frá 1. sept.-30. april et einnig opið á laugard. kl. 13-16. Sögustund fyrir 3-6 ára börn á þriðjud. ki. 10.30- 11.30. Aðalsafn - útlánsdeild lokar ekki. AÐALSAFN - Lestrarsalur, Þingholtsstræti 27, sími 27029. Opiðalla daga kl. 13-19.1. maí-31. ágúst er lokað um helgar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.