Tíminn - 22.07.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 22.07.1983, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ1983 Sfmi 44566 RAFLAGMR Nýlagnir - Breytingar - Viöhald JHHW Æj samvirki JS%/ Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur. GRJOTGRINDUR Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA KVORT KÝST I»Ú GATEÐA GRIND? Eigum á lager sérhannaðar grjót- grindur á yfir 50 tegundir bifreiða! Ásetníng á staðnum BIFREIÐAL gVERKSTÆÐIÐ SKEMMUVEGI4 | KOPAVOGI h SIMI 77840 I’ ■nastðs ÞÚ FINN IUR F/0# ÚR TOSHIBA Ferðagræjunum Kannaðu kjörin verð kr. 5.480.- EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADAST RÆTI I0A - SlMI 16995 f réttir i Veiðileyf i í Veiðivötnum eftirsótt í sumar Tjöld fuku ofan af fólki um síðustu helgi Landsvcit: Veiðileyfi í Veiðivötnum hafa verið mjög eftirsótt í sumar en veiðin hins vegar ákaflega misjöfn, að sögn Sigríðar Theódóru, húsfreyju í Skarði á Landi, en þar eru veiðileyfi seld. Hún kvað nú öllum veiðileyfum ráðstafað þar til 28. júlí og helgarnar jafnframt búnar það sem eftir er sumarsins. Aðeins væru því eftir veiði- leyfi á virkum dögum framan af ágúst- mánuði. Eftir miðjan ágúst hefst síðan netaveiði í Veiðivötunum, sem tölu- vert er stunduð af heimamönnum. Við Veiðivötn eru nú komin veiði- hús sem Theódóra kvað mjög vinsæl af þeim er þangað halda í veiðiferðir. Líklegt taldi hún að það sé veðrið sem mest áhrif hefur varðandi misjafnan árangur veiðimanna, en alltaf væru þó einhverjir heppnir og veiði vel og séu þeir auðvitað ánægðir. Aðrir treysti því að betur gangi næst. Theódóra kvað hafa verið afar kalt við Veiðivötn, sérstaklega undanfarn- ar nætur. Aðfaranótt s.l. sunnudags var þar líka mikið hvassviðri svo tjöld fuku þar ofan af fólki. Ekki hafi þó verið þar fleiri en svo að allir gátu leitað sér svefnstaðar í skálanum. Þessa sömu nótt kvað The- ódóra hitann hafa verið kominn niður í tvö stig þegar hún síðast leit á hitamælinn. En frá öðrum bæ í grennd- inni hafði hún spurnir af hitastigi um frostmark um eittleytið um nóttina. -HEI Ræktað land stækkaði um 30% á síðasta áratug — Svipuð aukn- ing varð á ný- byggingum úti- húsa í sveitum ■ Ræktuö tún á Islandi munu nú samtals vera orðin 127,5 þús. hektarar og talið er að um 30% af þeim túnum hafi verið ræktuð á síðasta áratug, að því er fram kemur hjá Fasteigna- mati ríkisins. Meðalstærð hinna 6.058 túna í landinu telst því vera um 21,1 hektari. En þar sem tún á eyðibýlum eru þar meðtalin, og þau munu yfirleitt vera meðal þeirra minnstu, munu tún á byggðum býlum vera þó nokkru stærri að með- altali. Stærð túnanna er ákaflega breytileg og mikill munur á meðalstærð milli landshluta. Rösklega fjórðungur allra túna eru minni en 10 hektarar (eyðibýli sjálfsagt flest þar innifalin) og annar röskur fjórðungur með 10-20 hektara tún. Tæpur fjórðungur túnanna er hins vegar yfir 30 hektara að stærð, þar af eru tún á 260 stöðum stærri en 50 hektarar. Þessi tæpi fjórðungur (23%) túnanna að fjölda til er samtals rúm- lega helmingur allrar ræktunar í land- inu. Ræktaða landið skiptist mjög mis- jafnt eftir landshlutum. Á Suðurlands- undirlendinu, þ.e. Árnes- og Rangár- vallasýslum er liðlega fjórðungur alls ræktaðs lands, en hins vegar ekki nema liðlega tuttugasti hluti þess á Vestfjörðum. Meðalstærð túna er lang minnst á Vestfjörðum, 11,3 hektarar, en mest í Suðurlandskjördæmi 26,6 hektarar. í öðrum landshlutum eru tún yfirleitt um 20-21 hektarar að stærð að meðaltali. Hjá Fasteignamatinu kemur og fram að nýbyggingar útihúsa virðist svara til þeirrar stækkunar er varð á túnunum á síðasta áratug. „Vísitölubúið" virðist því hafa stækkað mikið á þeim tíma. - HEI Krísuvíkurberg. Fuglaskoðunarferð á Krísuvíkurberg ■ Fjórða ferð Náttúruverndarfélags Suðvesturlands til kynningar á fyrir- huguðu Náttúrugripasafni íslands verður farin n.k. laugardag undir leið- sögn Árna Waag, líffræðikennara. Helsta fræðsluefnið að þessu sinni verður um sjófugla við fslandsstrend- ur. Ferðin hefst á sýningu á uppstopp- uðum sjófuglum sem nú stendur yfir í Norræna húsinu, þar sem Árni Waag fer um sýninguna með þátttakendum á tímabilinu kl. 13,30 til 14.00. Klukk- an 14.00 verður síðan lagt af stað frá Norræna húsinu suður á Krísuvíkur- berg þar sem reynt verður að fræða fólk um sjófuglana okkar eins vel og kos'ur er. Ferðakostnaður er 150 krón- ur fyrir manninn en frítt fyrir börn sem eru í fylgd fullorðinna. - HEI Laugarlax h.f.: Byggir 200 þús. seiða laxeldis- stöð í Laugardal Árnessýsla: Hlutafélagið Laugarlax h.f. hefur að undanförnu unnið að undirbúningi byggingar laxeldisstöðv- ar í Laugardal, þar sem hægt ætti að vera að framleiða allt að 200 þús. Íaxaseiði. Gerðir hafa verið samningar um aðstöðu fyrir stöðina og undirbún- ingi undir framkvæmdir er að ljúka. Laugarlax h.f., sem er hlutafélag í eigu heimamanna í Laugardalshreppi ásamt nokkurra áhugamanna um fisk- eldi og Veiðifélags Árnesinga, hélt aðalfund sinn s.l. sunnudag. Á fundin- um var samþykkt tillaga stjórnar um að ráðist verði f byggingu laxeldis- stöðvarinnar, samkvæmt þeim áætlun- um sem lagðar voru fram á fundinum og stefnt að því að stöðin hefji rekstur fyrir næstu áramót. Á hluthafafundi sem fyrirhugaður er 28. júlí n.k. á að taka ákvörðun um hlutafjáraukningu og endanlega ákvörðun um fram- kvæmdir í haust, segir í frétt frá Laugarlaxi h.f. í stjórn félagsins voru kosnir: Eyjólf- ur Friðgeirsson og Kristján Kristjáns- son úr Reykjavík og Sigurður Sigurðs- son á Laugarvatni. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.