Tíminn - 22.07.1983, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.07.1983, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ1983 FjöHista- maourinn Tommy Svngur, dansar, leikstýrir, Syngur, málar, mótar myndir og skrifar bækur ■ Nú er mikid vatn runnið til sjávar síðan Tommy Steelc söng lagið sitt fræga „Water, Watcr Everywhere“ við dynjandi fagnaðarlæti um allan heim. Tommy var þá lítill og pervisa- legur, stráklingur með „coc- kney“-hreim og flestir þóttust þess fullvissir, að hcr væri um hrcina dægurflugu að ræða. En Tommy hefur sýnt fram á, að ekki einungis býr hann yfír mörgum og margvíslcgum hæfíleikum, lieldur er hann líka þrautseigur og skynsamur. Nú er Tommy orðinn 46 ára, en lítur þó ekki út fyrir að vera deginum eldri en fertugur. A þeim 27 árum, sem liðin eru síðan hann kom opinberlega fram í fyrsta skipti, höfum við hér á skerinu kannski ekki mikið orðið vör við hann, en það er síður en svo að hann hafi setið auðum höndum. Síð- asta afrek hans er að setja á svið í London söngleikinn, sem Gene Kelly gerði frægan á sínum tíma, „Singing In The Rain.“ Sjálfur fer Tommy með aðalhlutverkið. Að vonum liggur mikil vinna að baki þessu öllu saman og Tommy lýsir dagskrá sinni þannig: - Þegar ég vinn að svona stórum sýningum, fer ég á fætur rétt fyrir hádegið, tek mér skokktúr og geri leikfim- isæfingar til kl.2. l'á fer ég að athuga póstinn, sæki dóttur mína Emmu í skólann, vinn á skrifstofu minni í u.þ.b. tvær klst. og fer síðan í leikhúsið. Á sviðið er ég mættur kl. 7 til upphitunar, en sýningin hefst kl. 7.30. Heim er ég svo kom- inn um miðnættið og í rúmið um 3 leytið. Tommy fannst því ekki frá- leitt að búa sig undir erfiðið með því að dvcljast í tvær vikur á lystisnekkju sinni við Marbclla áður en púlið hófst. Úr því fríi kom hann sólbrúnn og sællegur, en hafði við orð, að það væri eiginlega hálfgerð tímasóun að eltast við að ná sér í sólbrúnku. - Hún er farin aftur eftir 5 mínútur, ekki satt? segir hann. Tommy Steele hefur haft fleiri járn í eldinum en að stunda söng og dans. Hann málar myndir og mótar í leir, og hann skrifar bækur, helst leynilögreglusögur. Eitt mál- verka hans hefur orðið þess heiðurs aönjótandi að vera hengt upp á konunglega lista- safninu (The Royal Academy). Ein höggmynda hans, sem hann skírði Eleanor Rigby í höfuðið á Bítlalaginu,stendur í Liverpool og önnur mynd, The Bermondsey Boy, stendur í samnefndri borg, sem er fæð- ingarstaður Tommys. Tommy segir sjálfur, að það sé alveg áreiðanlegt, að honum hefði ekki tekist að ná svo langt, sem raun ber vitni, e( hann ætti ekki góða konu og fjölskyldu. Tommy og kona hans Anne hafa verið gift í 24 ár og eiga saman 14 ára dóttur. Hann hefur oft sagt, að hann hefði alveg getað orðið jafn ánægður með lífiö í einhverju öðru starfi, svo framarlega sem hann hefði verið giftur sömu konunni. Sem dæmi um, hversu mikils Tommy metur konu sina og heimili má nefna, að sé hann beöinn um að taka að sér starf, sem hefur í för með sér fjarveru frá heimilinu, þó að ekki sé nema einum degi fram yfir 3 vikur, slær hann því hiklaust frá sér. ■ Steven Spielberg er að verða 35 ára, og hann er nú ríkasti kvikmyndastjórnandi í heimi. Þegar hann var spurður, hvort E.T. hefði ekki kostað ofboðslega mikla peninga, svaraði hann: - Marlon Brando hefði kostað þrefalt meira, og ég hefði ekki grætt jafn mikið á honum. trúað fyrir öllu og látið sér þessari minningu vann ég þykja vænt um. - Út frá myndina, sagði hann. ■ Tommy Steele og fjölskylda hans hafa hreiðrað um sig í gömlum frægum kastala, sem er friðaður. Hann var í heldur óhrjálegu ástandi, þegar Tommy keypti hann, en ekki leið á löngu þar til hann var kominn í upprunalega mynd og Tommy segir það gleðja sig óumræðilega mikið að hugsa til þess, að húsið muni standa löngu eftir að hann sjálfur er horfinn héðan. , jtVÖUIVAKAN ER EISTA LEKFWM ÉIENDMGA" Rætt við Kristínu G. Magnús. um leiksýningar fyrir erlenda ferðamenn. ■ „Ég held að við íslendingar séum hcppnastir allra þjóða þeg- ar tekið er mið af því hvaða fólk sækir okkur heim. Hingað koma ferðamenn fyrst og fremst ti! að fræðast um menningu þjóðarinn- ar, ekki til að drekka eða skemmta sér. En þeir eru kröfu- harðir því ferðalagið cr dýrt. Þeim er ekki sama hvernig tím- anum er varið.“ Það er Kristín G. Magnús. leikkona sem hefur orðið. í sumar stendur hún ásamt fjórum öðrum að leiksýningum í kvöld- vökuformi fyrir erlenda ferða- menn á íslandi. Þessar sýningar ganga undir nafninu Light Nights, og efnið er allt íslenskt, en flutt á ensku. Þar eru fluttar þjóðsögur af huldufólki, tröllum og draugum, gamlar gamanfrá- sagnir og einnig er lesið úr Egils- sögu. Á milli atriða eru sýndar ■ Krístín G. Magnús. leikkona. Steven Spielberg, „pabbi“ E.T. „EGHEFVEHÐ 125 AR!“ ■ Steven Spielberg kvik- myndaframleiðandi sagðist ekki hafa getað ímyndað sér það fyrirfram, að myndin um E.T. yrði annað eins gróðafyr- irtæki og raun bar vitni. „Þetta varð til úr gömlum draumi frá því ég var 10 ára strákur", sagði Spielberg. Hann bætti því við, að eiginlcga hefði hann verið á því þroskastígi í 25 ár, a.m.k. gæti hann sett sig inn í draumaheima barnsins með lítilli fyrirhöfn. Þegar verið var að gera myndina var mikiö talað um þann gífurlega kostnað af „sköpun“ fyrirbærisins E.T., en í ísl. krónum reiknað í dag, kostaði E.T. 40 millj. króna. Tveim mánuðum eftir að myndin var frumsýnd höfðu tekjur af henni numið 5400 millj. ísl. kr. og E.T. heldur áfram að mala eigendum sínum gull. Þessi mynd hafði ótrúleg áhrif, bæði á börn og fullorðna. T.d. var þess getið í amerískum blöðum, að Nancy Reagan hefði hágrátið á sýningunni og forsetinn verið spenntur eins og 10 ára krakki. - Nei, satt að segja bjóst ég ekki við þessum ósköpum, sagði Spielberg þegar hann var spurður um hvernig myndin hefði orðið til. Hann sagðist hafa minnst þess, að þegar hann var 10 ára hefði hann stundum verið einmana og langað til að eiga sér einhverja draumapersónu, sem alltaf væri góð við hann og hann gæti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.