Tíminn - 22.07.1983, Page 12

Tíminn - 22.07.1983, Page 12
■ í miöri sumarsæluvikunni á Sauftár- króki var tekið í notkun á vegum Kaup- félags Skaglirðinga stærsta vöruhús norftanlands, efta um 3500 fm aft grunn- flatarmáli og hlaut það nafnið Skagfirð- ingabúð. Meft tilkomu hins nýja húss leggur K.S. jafnframt niftur sex cldri verslanir sem þaft haffti vífta í bænum, það eru Lagersalan á Eyri, Grána, ritfangadeild, vefnaftardeild, bygginga- deild og kjörbúftin á Smáragrund. „Á undanförnum árum höfum við haft smáar og litlar verslanir hér og þar í bænum, oft í ófullnægjandi húsnæði. Með þessu nýja vöruhúsi leggjum við þær niður og teljum jafnframt að með tilkomu þess batni reksturinn og þjón- ustan við félagsmenn okkarogviðskipta- vini," sagði Ólafur Friðriksson kaupfél- agsstjóri í samtali við Tímann er við ræddum við hann um hið nýja vöruhús og starfsemi kaupfélagsins á Sauðár- króki. Skagfirðingabúð,____.VJ_-------------- Tímamyndir FRI ■ Magnús Sigurjónsson vöruhússtjóri Skagfirðingabúð hin nýja Kaupfélag Skagfirðinga tekur í notkun stærsta vöruhús norðanlands Olafur Friðriksson kaupfélagsstjóri ■ Pétur Pétursson byggingameistarj ■ Guttormur Óskarsson gjaldkeri K.S. (t.h.) ræðir málin vift gesti, m.a. Stefán Guðmundsson þingmann. „Það gefur auga leið að með þessu vöruhúsi batnar vöruúrval og þess vegna ætti að vera auðveldara fyrir bæði bæjar- búa og fólk í nærliggjandi sveitum að fá flestar þær vörur sem það þarfnast hér í stað þess að þurfa að sækja þær út fyrir byggðalagið, jafnvel allt til Reykjavíkur. Ég vil taka það fram hér að við munum ekki leggja niður kjörbúð okkar á Skagfirðingabraut en álagið á henni var orðið mjög mikið. Hún mun halda áfram að þjóna viðskiptavinum okkar í miðbænum og útbænum fyrst og fremst en auðvitað verður svo framtíðin að skera úr um hver þróun þessa verður. En hvcrjir eru kostir Skagfirðingabúft- ar fyrir hinn almenna neytenda? „Þeir eru náttúrulega fyrst og fremst þeir að hann getur fengið svo til allt undir einu þaki. Húsið er enn ekki fullfrágengið, þannig munum við til dæmis opna kaffiteríu í húsinu í haust, auk þess sem skrifstofur okkar flytja einnig hér inn á efri hæðirnar. Einnig eins og ég gat um áðan þá hefur fólk mikið þurft að sækja út fyrir byggða- lagið, ekki hvað síst til Eyjafjarðar og svo Reykjavíkur en þær ferðir ættu að mestu að vera úr sögunni." Byggingin gengið mjög vel Það var árið 1976 sem bygging Skag- firðingabúðar hófst og hefur hún gengið vonum framar. „Það cr að stórum hluta að þakka frábæru starfsfólki sem við höfum haft svo og byggingameistaranum Pétri Pét- urssyni. Þetta hefur ekki bara gengið vel heldur er handbragðið allt með miklum ágætum að mínum dómi,“ sagði Ólafur. „Framreiknaður kostnaður við húsið stendur í dag í 54-55 milljónum króna og eru þar inn í innréttingar upp á um 10 milljónir en þetta tel ég síður en svo vera ■ Svipmynd úr matvörudeildinni ■ Barnahorn er til staftar í húsinu ■ Ungir sem aldnir komu að skoða húsift fyrsta daginn mikið verð fyrir bygginguna, raunar tel ég hana óvenjulega ódýra miðað við stærð. Sem dæmi til samanburðar vil ég nefna að einn af þremur togurum útgerð- arfélags Skagfirðinga, Hegranesið, var lengdur um 5 metra og kostaði það 40 milljónir kr.“ Fastráðnir starfsmenn Kaupfélagsins eru nú um 258 talsins og rekur það umfangsmikla starfsemi á Sauðárkróki óg í Skagafirði fyrir utan verslun. Sem dæmi stórt mjólkursamlag, hið þriðja eða fjórða stærsta á landinu, þekkt fyrir ostagerð enda hlaut maribo ostur frá því verðlaun á sýningu í Danmörku á síðasta ári. Þá rekur kaupfélagið stórt og fullkom- ið sláturhús á staðnum... „en það hefur valdið okkur nokkrum áhyggjum hve fé af svæðinu hefur fækkað undanfarin ár, eða um 13 þúsund frá 1977..“ segir Ólafur. Kaupfélagið á síðan Fiskiðju Sauðár- króks sem er fyrirtæki í mikilli uppbygg- ingu, bíla- og vélaverkstæði, plastverk- smiðju, saumastofu og rekur útibú í Varmahlíð, Hofsósi og Fljótum. Litamerkingar Vöruhússtjóri Skagfirðingabúðar er Magnús Sigurjónsson. Við fengum hann til að sýna okkur húsið og grcina frá starfseminni. „Við höfum hér 26-28 manns í fullu starfi cn erfitt er að segja fyrir nú um hvort sá fjöldi haldi sér í framtíðinni. Það verður reynslan að skera úr um. Þrír deildarstjórar eru hér, einn sér um vefnaðarvörudeild og undir hann heyra einnig snyrtivörur, skartgripir og sport- vörur þar með talið hestasportið sem er Skagfirðingum ómissandi hlutur. Annar sér um búsáhaldadeild og undir hann heyra einnig gjafavörur, leikföng, papp- írsvörur og ritföng og sá þriðji sér um matvörudeild. Við búumst við að salan hjá okkur aukist verulega frá því sem var í gömlu búðunum því með tilkomu þessa húss getum við pantað inn í stórum einingum og verið þar af leiðandi með alls konar tilboð. Sem dæmi um tilboð hjá okkur nú er kjúklingar á 115 kr, kílóið sem er langt undir almennu verði. Raunarerum við einnig með grillofn hér þar sem við grillum kjúklinga í og fær fólkið þá pakkaða inn í hitapoka þannig að þeir haldast heitir í nokkra tíma en þeir eru á sama verði og hinir. Við höfum í uppsetningu á innrétting- um prófað þá nýjung að hafa hér lita- merkingar, þ.e. ákveðinn litur á hillum fyrir ákveðna vöruflokka raftæki til dæmis í brúnum hillum og þar fram eftir götunum og við uppsetningu á deildun- um hér höfum við reynt að hafa hvern vöruflokk sem mest sér þannig að fólki finnist það vera í sérverslun hverju sinni,“ sagði Magnús. - FRI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.