Tíminn - 23.07.1983, Qupperneq 2
LAUGÁRDAGUR 23. JíÚLÍ 1983
RUSSNESKAR
VÖRUR
TII RAnc\/DDn
GRÆNAR BAUNIR
ALDRAÐIR
þurfa að
ferðast eins
og aðrir.
Sýnum þeim
tillitssemi.
yx™
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
Sérhæfó þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
r ^
RADIAL
stimpildælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRRANTANIR-ÞJÓNUSTA
Grunnskóli
Reyðarfjarðar
Kennara vantar fyrir næsta skólaár. Æskilegar
kennslugreinar.
Byrjendakennsla og líffræði.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í síma
97-4165.
■J
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar eftir tilboöum í flutning á strarfsmannaíbúðum frá
Hrauneyjafossvirkjun að Blönduvirkjun.
Um er að ræða að taka niður samtals 56 einingar úr húsasamstæðum
við Hrauneyjafossvirkjun, flytja þær að Blönduvirkjun og setja þar
upp, ásamt 5 viðbótarhúsum, á undirstöður sem Landsvirkjun hefur
látið gera. Húsunum skal skila tilbúnum fyrir notkun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut
68,108 Reykjavík frá og með mánudeginum 25. júlí, 1983 og kostar
hvert eintak 300.00 krónur.
Tilboðunum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl. 14.00
miðvikudaginn 3. ágúst, 1983.
Reykjavík, 22. júlí, 1983
Landsvirkjun.
^ Útboð
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í
byggingu gæsluskýlis á leikvöll við Bjarnhólastíg.
Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Kópavogs
Fannborg 2, 3. hæð gegn 500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
2. ágúst kl. 10 f.h. að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur.
Silunganet
Allar stærðir af silunganetum fyrirliggjandi, upp-
sett með flot og blýteini.
Jón Ásbjörnsson heildverslun
Grófin 1
Símar 11747 og 11748.
fréttir
■ Sjónvarpsbúðin við Lágmúla
Harðnandi samkeppni milli
myndbandaleiga:
VERÐSmfD ER
f DPPSKUNGD
Sjónvarpsbúdin leigir út
myndbönd á helmingi
lægra verði en aðrir
■ Verðstríð virðist vera í uppsiglingu á
markaði myndbandaleiga hér í bær, ef
marka má auglýsingar í dagblöðum
undanfarið og eftir að hafa talað við
ýmsa eigendur myndabandaleiga.
Flestar leigurnar eru með svipað eða
sama verða á útleigu á videóspólum og
tækjum. Þetta 70-90 krónur eftir því
hvort myndirnar eru te;;taðar eður eigi.
Þó sker ein myndbandaleigan sig alger-
lega úr. Er það Sjónvarpsbúðin í Lág-
múlanum. Auglýsir hún þessa dagana
mjög stíft undir kjörorðinu: „Beta býður
betri kjör.“ Þ.e.a.s. hjá Sjónvarpsbúð-
inni kostar aðeins 50 krónur að leigja
videóspólu í einn sólarhring og aðeins
150 krónur að leigja videótæki í einn
sólarhring á meðan það kostar 300-350
krónur á öðrum videóleigum.
Þarna munar hvorki meira né minna
en 30 krónum á spólunni, og 150 krónum
á videótækinu. Verðið á spólum hjá
Sjónvarpsbúðinni er því 40% lægra en
hjá vel flestum öðrum leigum og á
tækjum er það helmingi lægra. Það
munar ekki um það.
Þetta minnir óneitanlega á undirboð
ferðaskrifstofanna og ýmislegt í þeim
dúr. Það hlýtur því að vekja spurningar
hvað sé að gerast á markaði myndbanda-
leiganna.
„Gallinn er sá að það vantar alveg að
allar videóleigur taki sig saman um verð.
Það hefur verið reynt, en ekki tekist
ennþá. Það eru engin samtök, bara
samkeppni uppá lt'f og dauða,“ sagði
einn eigandi myndbandaleigu hér í bæ.
í fyrra má segja að allt hafi verið
vitlaust að gera á hinum ýmsu mynd-
bandaleigum, og þær spruttu upp eins og
gorkúlur. Þetta er nú liðin tíð og nú hafa
nokkrar fallið í valinn en aðrar standa
enn. Ölduna hefur lægt og meira jafn-
vægi virðist ríkja.
„Það er kominn viss stöðugleiki í
þetta eftir hina svokölluðu videó-
sprengju í fyrra," sagði Guðgeir Leifs-
son, hjá Myndbandaleigu kvikmynda-
húsanna.
Eins og fyrr sagði hafa nokkrar mynd-
bandaleigur horfið af sjónarsviðinu og
minna er um að nýjar séu settar á fót. Það
gerist þó auðvitað ennþá. Oft í tengslum
við annan rekstur, í sjoppum og svoleið-
is.
Sjónvarpsbúðin hefur verið með
myndbandaleigu sína í rúman mánuð og
býður langtum hagstæðara verð á spól-
um og tækjum en nokkur önnur mynd-
bandaleiga í bænum.
Blm. Tímans ræddi við nokkra eigend-
ur myndbandaleiga um þetta og þeim
bar saman um að þetta flokkaðist undir
hrein og bein undirboð. Einnig sögðust
þeir engan veginn skilja hvernig þetta
bæri sig.
„Ég botna ekkert í svona verslunar-
máta,“ sagði Guðgeir Leifsson. „í raun
og veru er leigan á spólum alltof lág því
það kostar 3-4000 krónur að kaupa eina
spólu. Við erum því á „nippinu" með að
láta dæmið ganga upp, því það eru svo
mikil afföll í þessum „bransa". Það má
kallast gott ef spólan endist í 50 útleigur.
Hann í Sjónvarpsbúðinni ætlar kannski
að auka söluna á tækjum sínum með
þessu móti, ég veit það ekki, en dæmið
getur hreinlega ekki gengið upp hjá
honum,“ sagði Guðgeir.
Ingimundur Jónsson, eigandi Videó-
spólunnar á Holtsgötu, hafði ákveðnar
skoðanir á þessu.
„Sjónvarpsbúðin er bara að klóra í
bakkann með þessu, því efnið á leigunni
er svo gamalt. Hvað tækjaleiguna
varðar, gengur það dæmi aldrei upp.
Hann er bara að auglýsa búðina með
þessu,“ sagði Ingimundur.
En hvað hafði Þóroddur Stefánsson
eigandi Sjónvarpsbúðarinnar að segja
um þetta?
„Þetta er ósköp einfalt mál. Við erum
að kynna BETA-kerfið sem hefur orðið
undir hér á landi, þó furðulegt megi
virðast, því það gefur á engan hátt eftir
:VHS-kerfinu hvað gæði eða úrval
snertir. Við seljum BETA-videótæki
hér og við erum auðvitað að auglýsa það
upp með því að bjóða þessa 7-800 titla
sem við höfum upp á að bjóða í
BETA-kerfinu. Einnig finnst okkur í
Sjónvarpsbúðinni 80-90 krónu leiga á
spólum og 3-350 krónur á tæki alltof dýrt
í alla staði. Fyrirtækið ætlar sér ekki að
lifa á videóleigu, það er öruggt, þannig
að þetta er fyrst og fremst til kynningar,"
sagði Þóroddur.
„Við kaupum spólurnar á sama verði
og aðrir en við borgum bara með þeim,
það er heila málið. Hvað tækin varðar
þá erum við innflytjendur að þeim og
því eru hæg heimatökin að fá þau ódýrt.
Þau eru síðan í leigu alla daga vikunnar,
ekki bara um helgar eins og á hinum
myndbandaleigunum, og á þennan hátt
getum við boðið þessi kjör. Það er alltaf
biðlisti með tækin hjá okkur og ég get
ekki betur séð en að fólki líki þetta lága
verð afar vel. Síðast en ekki síst væri
ekki úr vegi að bera saman t.d. Mynd-
bandaleiguna hjá Guðgeiri á Hverfis-
götu og hér í Sjónvarpsbúðinni. Hér er
ég með verslun og fyrirtæki með föstu
starfsfólki. Ég innréttaði ekki rándýrt
fýrirtæki með rándýrri tölvu eins og
Guðgeir og bætti ekki við neinu starfs-
fólki. Þess vegna er ekkert skrítið að
þetta skuli vera svona miklu dýrara hjá
honum en mér,“ sagði Þóroddur í
Sjónvarpsbúðinni.
Já, það er nokkuð heitt í kolunum á
markaði myndbandaleiga og vegna til-
boðs Sjónvarpsbúðarinnar mun hafa
verið boðað til fundar á Hótel Esju þar
sem margir eigendur myndbandaleiga
mættu og var þar samþykkt að hækka
leiguna upp í 90 krónur svo og að skora
á Sjónvarpsbúðina að hækka leigu sína
og vinna á sama grundvelli og aðrir
myndbandaleigur.
„Já, ég hef fengið áskorun frá nokkr-
um mönnum en er ákveðinn í að halda
mínu striki og stefni að því að hækka
ekki leiguna þó aðrir geri það e.t.v.,“
sagði Þóroddur að lokum. - Jól.
■ í þessari myndbandaleigu er hægt að fá leigt myndband á aðeins 150 kr. Helmingi
lægiæen víðast hvar annars staðar. Tímamyndir: Ámi Sæberg