Tíminn - 23.07.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.07.1983, Blaðsíða 4
■ Hollenska hstakonan Marleen Buys opnar sýningu á verkum sínum ■ fremri sal Nýiistasafnsins, föstudaginn 22. júlí kl. 21.00. Marleen býr og starfar í Amsterdam. Vinnur hún verk sín aðallega í gips, plast, vatn og pappír. Verkin á sýningunni mynda heild í tengslum við umhveifi sitt, en einnig er hægt að skoða hvert verk fyrir sig sem sjálfstæða einingu. Sýningin stendur til 31. júlí og verður opin frá 16-22 virka daga og 14-22 um helgar. ■ Finnski áhugamannaleikhópurinn „Amatörteatorgruppen frán Jonesuu“, sýnir laugardaginn 23. júlí klukkan 20.30 í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut, Söng Marjöttu, eftir Pirrko Jaakola, sem kemur með hópnum. Leikhópurinn er hér á vegum Stúdentaleikhússins. Söngur Marjöttu verður aðeins sýndur í þetta eina sinn í Reykjavík. _ jói. Verslunar- mannahelgin: Bindindis- mótið í Galtalæk ■ Bindindismótið í Galtalæk verður haldið nú um verslunarmannahelgina eins og s.l. 20 ár. Pað eru íslenskir ungtemplarar og Umdæmisstúka Suður- lands sem annast hafa undirbúning og framkvæmd þessara bindindismóta. Að þessu sinni stendur það frá föstudeginum 29. júlí til mánudagsins 1. ágúst. Fjöl- breytt dagskrá verður og miðar að því að hún sé við hæfi allra aldurshópa. Hljóm- sveitin Dansbandið og plötutekið DEVO leika fyrir dansi. Jörundur og Laddi stjórna barnatíma og sýndur verð- ur Þórskabarett. Margt, margt fleira verður á dagskrá. Aðgöngumiðaverð er kr. 450 fyrir fullorðna en börn 12 ára og yngri fá frftt inn. Aðstaða til dvalar er góð og tjaldsvæði skjólgóð og umhverfið er fagurt. Hreinlætisaðstaða er með besta móti og löggæsla og sjúkrahjálp verða á mótsstað. Allir þeir sem ekki nota áfengi á þessum stað eru hjartan- lega velkomnir í Galtalækjarskóg um verslunarmannahelgina. - Jól. ■ Magnús V. Guðlaugsson opar sýn- ingu í stærri sal Nýlistasafnsins við Vatnsstíg föstudaginn 22. júlí Id. 21.00. Er þetta sjöunda einkasýning Magnúsar en hann hefur áður sýnt og starfað að myndlist bæði hér heima og erlendis. Öll málverk Magnúsar sem á sýningunni eru hafa verið unnin á þessu ári. Sýningin stendur til 31. júlí og verður opin frá kl. 16-22 virka daga, en kl. 14-22 um helgar. ■ Það er fagurt í Galtalæk og fínt að vera. ■ Unnið að uppsetningu sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. Tímamynd: Róbert. 80 listaverk Reykja- víkurborgar til sýnis Feikifjör í Eddunni ■ Farþegaferjan EDDA er nú í sinni áttundu ferð með íslenska og erlenda ferðamenn til Newcastle í Bretlandi og| Brimahöfn í V-Þýskalandi. Uppselt var í ferðina og bókanir í nærri átta ferðir, sem eftir eru, eru mjöggóðar, en síðasta ferðin verður í byrjun september n.k. Það eru Stuðmenn sem nú eru í ferðinni með skipinu og skemmta þeir farþegum og kynna nýjustu plötu sína. „Gráa fiðringinn" þegar'pólska stórband- ið er ekki að leika. í næstu ferðum verður boðið upp á úrval þekktra skemmtikrafta og má þar nefna t.d. Róbert Arnfinnsson og Bubba Morthens sem dæmi. Ýmsir þjóðkunnir menn fara sem fararstjórar, eins og t.d. Guðni Guðmundsson rektor og Bryndís Schram ritstjóri. Boðið er upp á ýmsar sérferðir, eins og t.d. rokkferð til Eng- lands með Bubba Morthens og fleira. Verðlag um borð er nokkuð hagstætt, t.d. kostar bjórinn ekki nema 28 kr. -Jól. Frægur kirkjukór sækir ísland heim ■ Kór St. Nikolaikirkjunnar í Ham- borg kom í tónleikaferð til íslands í gær. Stjórnandi kórsins er hinn þekkti orgel- leikari í Hamborg, Ekkehard Richter, en þetta er í annað sinn sem hann kemur til landsins með kór. Nú eru í för með kórnum strengjakvartett og tveir ein- söngvarar, þau Angelika Henschen sópran, og Meta Richter, alt. Efnisskrá kórsins er mjög fjölbreytt og verða fluttar margar sígildar perlur tónbókmenntanna. Þar á meðal verk eftir Vivaldi, Bach, Reger, David, Heinrich Schútz og Kuhnau. Tón- leikarnir verða ókeypis en efnisskráin verður til sölu við innganginn. Fyrstu tónleikar kórsins verða í tengsl- um við Skálholtshátíð og syngur kórinn í Skálholtsdómkirkju sunnudaginn 24. júlí kl. 16:15. Næstu tónleikar kórsins verða svo í Landakirkju í Vestmannaeyj- um 25. júlí kl. 20:30. Fimmtudaginn 28. júlí verða svo tónleikar í Reykjahlíðar- kirkju í Mývatnssveit og verða þeir kl. 21:30. Laugardaginn 30. júlí verða tón- leikar í Egilsstaðakirkju og hefjast þeir kl. 21:00. Sunnudagskvöldið 31, júlí verða tónleikar í Hafnarkirkju í Horna- firði og munu þeir haldnir sem fjáröflun- artónleikar fyrir orgelsjóð Hafnarkirkju. Síðustu tónleikar kórsins verða svo í Háteigskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 2. ágúst kl. 20:30. Það eru Biskup íslands og Söngmála-. stjóri þjóðkirkjunnar sem annast hafa fyrirgreiðslu kórsins hér, en kórinn er hér í boði biskupsembættisins. Kórinn er aðeins þriggja ára og skipaður úrvals söngvurum, en við Nikolaikirkjuna er jafnframt annar kór, en í þeim kór eru 100 félagar. Þess má að lokum geta að íslenskir kórar hafa sótt Nikolaikirkjuna heim. Meðal annars söng Kirkjukór Akraness þar 1980 og fyrirhugað er að barnakór Akraness haldi þar tónleika sumarið 1984. -ÞB Orgeltónleikar í Skálholtskirkju ■ Svisslendingurinn Júrg Brunner heldur í dag, laugardaginn 23. júlí, orgeltónleika í Skálholtskirkju. Efnis- skráin er orgelverk eftir Bruns, Clér- ambult og Alain, auk þess leikur hann af fingrum fram íslenskt sálmalag. Daginn eftir, sunnudaginn 24. júlí, flytur Brunn- er sömu efnisskrá í Háteigskirkju í Reykjavík. -Jöl. Norskur kór í heimsókn. ■ Sunnudaginn 24. júlí n.k. kl. 17.00 heldur blandaður kór frá Stavanger í Noregi, tónleika í Norræna húsinu. Flytur kórinn baráttusöngva víðsvegar að úr heiminum. Kórinn kemur hingað í samvinnu við tónlistarsamband alþýðu, TÓNAL. Stjómandi kórsins er Geirtrud Odden. -Jól ■ Laugardagin 23. júlí verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum á listaverkum í eigu Reykjavíkurborgar. Verk þessi voru keypt á árunum 1980-1983, og eru samtals 80. Árið 1980 var borgarfulltrúum í stjórn Kjarvalsstaða falið að annast innkaup listaverka fyrir Reykjavíkurborg, og var samtímis farið að veita ákveðna upphæð til listaverkakaupa. Listráðunaut Kjarvalsstaða var falin framkvæmdin, svo og skraning og umsjá listaverkanna. 80 verk hafa verið keypt á þessu tímabili. í stjórn Kjarvalsstaða 1980 voru Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Guð- ■ „Mig langar til þess að segja frá því hvernig nafn félagsins varð til. Það var með þeim hætti að ég þurfti að fara að standa í bílakaupum og í mér börðust tveir ólíkir menn. Annars vegar sá sem sagði mér að ég ætti að láta stöðu mína í þjóðfélaginu ráða ferðinni og bíla- snobbið, eða hinn sem sagði að ég yrði að láta pyngjuna ráða ferðinni og kaupa bíl eftir því sem laun leyfðu, þ.e. að láta skynsemina ráða“, sagði Gunnar Bjarnason formaður félags Trabanteig- enda sem ber heitið „Skynsemin ræður“, á aðalfundi félagsins sem var haldinn s.l. laugardag. „Niðurstaða þessarar innri baráttu og sálarstríðs míns varð sú að skynsemin varð ofan á og var þar með látin ráða, og þess vegna hlaut félagið seinna meir nafnið „Skynsemin ræður", sagði Gunn- ar enn fremur. Á fundinn var mættur sérfræðingur frá Trabantverksmiðjunum í Þýskalandi Knöchel að nafni, og hélt hann fyrirlest- ra og sýndi myndir um hvernig bílamir eru framleiddir og um viðhald og við- gerðir á Trabantbifreiðum. Á eftir urðu nokkrar umræður meðal fundarmanna og fyrirspurnum var beint til þýska sérfræðingsins um eitt og annað sem oft hrjáir íslenska bílaeigendur eins og bensíneyðslu, kulda og og vonda vegi. Fram kom að verksmiðjurnar hafa nú látið hanna nýjan blöndung sem er mun vandaðri og fullkomnari en sá fyrri og hefur bensíneyðsla náðst verulega niður eftir að hann kom. Daginn eftir fundinn gafst Trabanteigendum kostur á að koma með bíla sína til skoðunar hjá sérfræðingnum og lagfærði hann eftir föngum og gaf mönnum ráðleggingar. rún Helgadóttir og Davíð Oddsson. Þau keyptu helming verkanna á sýningunni, þ.e. nr. 1-41 á skrá. Á miðju ári 1982 tóku við stjórn Einar Hákonarson, Hulda Valtýsdóttir og Guðrún Erla Geirsdóttir. Þau keyptu verk nr. 42-80. Á sýningunni eru málverk, teikningar, grafíkverk, vefnaður og skúlptúr. Guð- mundur Benediktsson og Stefán Hall- dórsson undirbjuggu og settu sýninguna upp í samráði við listráðunaut Kjarvals- staða. Sýningin verður opnuð kl. 14 á laugar- dag og verður síðan opin daglega frá kl. 14-22 fram til 21. ágúst. Hann færði síðan félaginu að gjöf skraut- ritað leðurskjal frá Trabantverksmiðjun- um, en að hans sögn hefur félagsskapur þessi vakið mikla athygli í Þýskalandi. Að sögn Júlíusar Ingvarssonar hjá Trabantumboðinu munu nýjarTrabant- bifreiðar nú kosta um 90 þúsund krónur sem er verulega lægra verð en á öðrum smábílum af svipaðri stærð. Félagar í „Skynsemin ræður“ eru um 70 talsins núna. -ÞB Skyndihjálparpúdar ■ Rauði kross íslands hefur látið útbúa skyndihjálparpúða sem innihalda allra nauðsynlegustu gögn til skyndihjálpar s.s. sáraböggla, teygjubindi, grisjur, skæri, plástra o.fl. og ættu svona skyndi-- hjálpargögn að vera sjálfsögð í hverjum einasta bíl, hverjum bústað og hverjum bakpoka. Þá eru og í púðunum bæk- lingurinn SKYNDIHJÁLP sem notaður er á skyndihjálparnámskeiðunum um land allt. Deildir Rauða krossins geta útvegað púðana með stuttum fyrirvara en auk þess fást þeir í OLÍS-búðunum. -Jól. ■ Hér eru þeir Gunnar Bjamason, formaður félags Trabanteigenda, og Þjóðverjinn Knöchel með heiðursskjalið sem Trabantverksmiðjumar heiðruðu hinn nýja félagsskap með. Tímamynd Árni Sæberg Aðalfundur Trabanteigenda: Fengu heiðursskjal frá verksmiðjunum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.