Tíminn - 23.07.1983, Síða 3
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1983
■ „Það er heilmikið af laxi hér fyrir
framan og hann hefur undanfarna daga
verið að flengjast fram og aftur - greini-
lega að leita að staðnum þar sem hann á
að ganga. Mér sýnist hann rólegri núna
og það bendir til að hann hafi áttað sig
á hvar hann á að fara inn - þótt enn sé
enginn genginn,“ sagði Sveinbjöm
Oddsson, starfsmaður hafbeitarstöðvar
Fjárfestingafélagsins í Vogum á Vatns-
leysuströnd, þegar Tíminn var þar á ferð
í gær.
Sveinbjörn taldi líklegt að ekki væri
nógu mikill kraftur á vatnsdælum, sem
dæla fersku vatni í sjóinn um skurð sem
liggur frá lóninu, sem fiskurinn á að
ganga upp í. Nú um helgina er ætlunin
að útvega kraftmeiri dælur og kvaðst
Sveinbjörn bjartsýnn á að þá myndi
fiskurinn ganga.
„Við dælum vatninu um ker með
nokkrum Iaxaseiðum og við vonum að
laxinn hérna fyrir framan renni á lykt-
ina,“ sagði Sveinbjörn.
Hann sagði ennfremur að sleppt hefði
verið um 18.000 seiðum frá stöðinni í
fyrra. Um skilaprósentu væri erfitt að
spá, en þó myndu menn gera sig ánægða
með 5% - þótt ekki væri útilokað að yfir
10% skiluðu sér. „Þetta er ótrúlega
spennandi akkúrat núna. Hér fyrir fram-
an horfum við á seiðin sem við slepptum
í fyrra og eru nú orðin að 5-6 punda
löxum. Næstu vikur skera úr um hvernig
til tekst,“ sagði Sveinbjörn.
■ Sveinbjörn Oddsson, laxeldismaður, við lónið. Þegar laxinn hefur gengið inn er grindin sett fyrir og lóninu lokað.
Tímamyndir Róbert
.HEILMIKIÐ
AF LAXI
HÉR FYRIR
FRAMAN”
segir Sveinbjörn Oddsson,
starfsmaður hafbeitar-
stöðvarinnar íVogum
Aðspurður um framtíðinasagði Svein- áhuginn í Vogum er mikill.“
björn: „Þetta er bara tilraun. Aðeins Tilraunirnar á Vatnsleysuströndinni
dropi í hafið miðað við það sem koma fara fram á vcgum Fjárfestingafélagsins
skal. Það hefur verið talað um að reisa og bandarísks fyrirtækis, sem er mjög
hér stóra hafbeitarstöð, með allt að 30 stórt á þessu sviði.
manns t' vinnu. Enda finnur maður að -Sjó.
Nýr vígslubiskup vígd-
ur á Skálholtshátídinni
— 20 ÁR FRÁ VÍGSLU SKÁLHOLTSKIRKJ U
«
■ Á Skálholtshátíð á morgun verður
hinn nýi vígslubiskup í Skalholtsstifti,
séra Olafur Skúlason dómprófastur,
vigður. Biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, annast vígsluna en vígslu-
vottar verða prófastamir sr. Sigmar
Torfason á Skeggjastöðum í Bakkafirði,
sr. Jón Einarsson á Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd, sr. Þórarinn Þór á Patreksfirði
og sr. Jón Bjarman fangaprestur
Reykjavík. Sr. Bjöm Jónsson á Akra-
nesi lýsir vígslu, en Skálholtsprestur, sr.
Guðmundur Óli Ólafsson og prófastur
Arnesinga, sr. Sveinbjörn Svcinbjöms-
son í Hmna þjóna fyrir altari ásamt
biskupum.
Að lokinni vígslu sr. Ólafs verða fimm
menn með biskupsvígslu innan þjóð-
kirkjunnar og munu hinir fjórir taka þátt
í athöfninni, þeir dr. Sigurbjörn Einars-
son, sr. Sigurður Guðmundsson á Grenj-
aðarstað vígslubiskup í Hólastifti og dr.
Sigurður Pálsson sem verið hefur vígslu-
biskup í Skálholtsstifti og lætur nú af
kirkjulegu embætti eftir hálfrar aldar
þjónustu, auk biskups fslands. Er það
fátítt í síðari tíma kirkjusögu.
Skálholtskórinn undir stjórn Glúms
Gylfasonar syngur við athöfnina m.a.
nýja þýðingu dr. Sigurðar Pálssonar úr
latínu á lofsöngnum Te Deum. Biskups-
vígslan hefst kl. 13.30.
Á Skálholtshátíð verður þess einnig
minnst að Skálholtskirkja var vígð fyrir
20 árum. Arkítekt hennar er Hörður
Bjamason húsameistari.
Samkoma verður í kirkjunni síðdegis
og mun dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
verða það aðalræðumaður. Mattías Jó-
hannessen skáld mun flytja hátíðarljóð
sitt sem hann flutti við vígslu kirkjunnar
en hefur nú endurort. Frægur þýskur kór
frá Nikolaikirkjunni í Hamborg mun
flytja tvö kirkjuleg tónverk.
Samkoman hefst kl. 16.30.
20 ár eru liðin frá vígslu Skálholts-
kirkju um þessar mundir. Bygging henn-
ar var fyrsta skrefið í endurreisn Skál-
holtsstaðar en staðurinn var kominn í
mikla niðurlægingu og bar þess lítil
merki að þar hefði verið sá stóri staður
kirkjusögunnar.
Eftir heimsstyrjöldina síðari hófust
nokkrir áhugamenn handa um eflingu
staðarins og var Skálholtsfélagið stofnað
1948. Formaður þess var dr. Sigurbjörn
Einarsson, þá dósent við Háskóiann.
Félaginu tókst að vekja áhuga almenn-
ings og stjórnvalda og brátt hófst upp-
bygging Skálholtsstaðar.
Hornsteinn Skálholtskirkju var lagður
24. júní 1956 og lagði hann Ásgeir
Ásgeirsson forseti íslands. Kirkjan var
síðan vígð sunnudaginn 21. júlí 1963 af
biskup íslands, herra Sigurbirni Einars-
syni. Vígsluathöfnina sóttu um 6000
manns, og 8 biskupvígðir menn aðstoð-
uðu við vígsluna. Það voru fyrrverandi
biskup fslands, herra Ásmundur Guð-
mundsson, vígslubiskupamir Bjarni
Jónsson og Sigurður Stefánsson og einn
biskup frá hverju hinna Norðurland-
anna.
Dr. Páll ísólfsson lék á nýtt pípuorgel
kirkjunnar en dr. Róbert A. Ottósson
söngmálastjóri stýrði söngsveit sem hlot-
ið hafði nafnið „Skálholtskórinn."
Að vígsluathöfninni lokinni flutti dr.
Bjarni Benediktsson, dóms- og kirkju-
málaráðherra, ræðu og afhenti Þjóð-
kirkju ísiands, fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar, Skálholtsstað til eignar og um-
ráða. I ávarpi sínu við vígsluathöfnina
mæltist Bjarna Benediktssyni m.a. á
þessa leið:
„Vonandi verður gifturíkur árangur
af þessu frumkvæði á tímum sívaxandi
alþjóðlegs samstarfs, þegar meira liggur
við en nokkru sinni fyrr, að bræðralags-
hugsjónir kristindómsins verði öllum
öflum ófriðar og gereyðingar yfirsterk-
ari...“
Þjófnaður
úr bifreid:
Þrír piltar
voru staðn-
iraðverki
■ Lögreglan í Reykjavík stóð í fyrri-
nótt 3 pilta að verki þar sem þeir voru
að skrúfa elektróníska kveikju úr bil
sem stóð við Höfðatún. Piltarnir, voru
á aldrinum 18—22ja ára. Áður hafði
verið stolið vélarhlutum úr þessum
sama bíl, m.a. blöndungnum o.fl.
Lögreglan handtók einnig tvo pilta
við Flúðasel í fyrrinótt þar sem þeir
voru að dæla bensíni af bíl sem þar
stóð. Bifreið piltanna mun hafa orðið
bensínlaus þama í nágrenninu og,þeir
voru greinilega þeirrar skoðunar að í
þannig tilfellum bryti nauð$yn lög!
- GSH
Léleg
spretta
í Þing-
eyjarsýslu
Suður-Þingeyjarsýsla: „Það er lítið að
frétta - menn bt'ða hér yfirleitt eftir
grassprettunni til þess að geta farið að
slá,“ sagði Vigfús Jónsson bóndi á
Laxamýri, spurður tíðinda úr sveitinni.
Hann kvað sprettu hafa verið hæga
það sem af er og ekki komna slægju á
tún. Vorið hafi farið framhjá á þessum
slóðum og tíðarfarið misjafnt það sem
,af er sumri. Kuldakast gekk yfir um
síðustu helgi, en hlýindi undanfarna
daga þó sólin hafi lítið látið sjá sig. „Ég
hugsa nú samt að ef það kemur
þurrkur þá fari nú einhverjir að slá,
a.m.k. einhverja bletti,“ sagði Vigfús.
- HEI
„Útlaginn”
sýndur með
enskum
texta
■ Kvikmyndin „Utlaginn" verður
sýnd með enskum texta f Nýja bíói í
sumar. Fyrsti sýningardagur er á
mánudag og er fyrirhugað að myndin
verði sýnd á einni sýningu daglega.
Að sögn Jóns Hermannssonar fram-
leiðanda mun þetta vera í fyrsta skipti
sem íslensk kvikmynd er sýnd hérlend-
is með enskum skýringartexta. Þessar
sýningar eru eðlilega miðaðar við er-
lenda ferðamenn en sjálfsagt munu
íslendingar einnig nota sér þetta tæki-
færi til að sjá myndina. Jón sagði aö
eintakið sem sýnt verður sé annað
tveggja sem var notað erlendis og sýnt
á kvikmyndahátíðum. - GSH
Bergþóra,
Pálmi
og Tryggvi:
Með þriðju
tónleika sfna
í Norræna
húsinu
■ Vegna fjölda áskorana hafa þau
Bergþóra Ámadóttir, Pálmi Gunnars-
son og Tryggvi Hiibner ákveðið að
endurtaka öðru sinni tónieika sína í
Norræna húsinu, og verða því þriðju
tónleikar tríósins nú á þriðjudaginn,
þann 26. júlí kl. 21.00.
Gísli Helgason verður sérstakur
gestur á þessum tónleikum og mun
hann leika á blokkflautur með tríóinu.
Þar að auki kemur Sveinbjöm Bein-
teinsson allsherjargoði í heimsókn og
kveður rímur.
Forsala aðgöngumiða verður í Norr-
æna húsinu mánudagíhn 25.' júlí kl.
17-19 og sömuleiðis þriðjudaginn 26.
frá sama tíma.