Tíminn - 23.07.1983, Blaðsíða 13
Klemens Vilhjálmsson
Brekku, Svarfaðardal
Fæddur 3. nóvembcr 1910
Dáinn 19. júlí 1983
Klemens Vilhjálmsson var fæddur 3.
nóv. 1910 að Bakka í Svarfaðardal. Hann
var sonur hjónanna Kristínar Jónsdóttur
og Vilhjálms Einarssonar. Árið 1904
fluttu þau hjón að Bakka í Svarfaðardal
og bjuggu þar til æviloka.
Klemens var yngstur átta barna þeirra
hjóna, en eftirlifandi systkini hans eru
Helga kennari búsett á Sauðárkróki og
Gestur búsettur á Dalbæ á Dalvík, áður
bóndi að Bakkagerði í Svarfaðardal.
Bakkahjónin voru greinilega ákveðin
í að koma upp dreng sem héti Klemens,
vegna þess að sá Klemens er við kveðj um
í dag er þriðji drengurinn, sem þau
skírðu þessu nafni, en hinir dóu í
frumbernsku. En það var í höfuðið á
Klemensi Jónssyni, sýslumanni, sem
drengirnir voru skírðir.
En í bókinni „Svarfdælingar“ er m.a.
svo sagt frá afa og kann það að skýra
nafngiftina:
„f fyrstu vildu efnabændur sveitarinn-
ar koma í veg fyrir að Vilhjálmur fengi
staðfestu í dalnum og seinna átti að
hindra hann í því að fá ábúðarréttinn á
Bakka. Þetta mistókst þó og naut Vil-
hjálmur þar stuðnings Klemensar Jóns-
sonar sýslumanns. Pessi óvild gegn Vil-
hjálmi mun hafa sprottið af því að hann
þótti heldur óvæginn og stórorður, ef
svo bar undir. Með aldrinum náði hann
valdi á heitum skapsmunum sínum og
varð brátt vel metinn og vinsæll. Hann
var vel gefinn maður og átti ýmiss konar
hugðarefni, sem hann ræddi gjarnan á
man nfundum, stundum af mikilli ákefð.
Hann var raungóður og hjálpsamur við
smælingja, en þoldi stórbokkum engan
yfirgang".
Klemens ólst upp á mannmörgu
sveitaheimili, þar sem mikið var um að
vera og börn voru snemma látin taka
þátt í störfunum.
Skólaganga Klemensar var ekki löng
frekar en almennt var á þessum árum.
Hann stundaði sitt barnaskólanám og
fór síðan einn vetur að Laugum í Þingeyj-
arsýslu. En víst er um það að félagslíf
stóð með miklum blóma í Svarfaðardal
á uppvaxtarárum hans og á heimili afa
og ömmu var mjög gestkvæmt og margir
sem dvöldu þar langdvölum, t.d. Jóhann
beri. Einnig veit ég til þess að stundum
var ungu fólki safnað saman úr dalnum
og slegið upp balli á Bakka. Þannig var
æskuheimili hans ein allsherjar félags-
og þjónustumiðstöð á nútímamæli-
kvarða. Vissulega eru slík heimili besta
veganesti sem hægt er að fá fyrir lífið.
Klemens var alla tíð afburða gestrisinn
og greiðvikinn maður, einnig var hann
mikill félagshyggjumaður og starfaði
meðal annars mikið innan ungmennafé-
lagsins, tók þátt í leiksýningum með
félaginu og stjórnaði dansi t.d. marsi af
miklum skörungsskap.
21. apríl 1933 kvæntist hann Sigur-
laugu Halldórsdóttur frá Brekku, mikilli
sómakonu, sem hefur staðið við hlið
mannsins síns í blíðu og stríðu í rúma
hálfa öld en þau hjón áttu gullbrúðkaup
s.l. vor. Þau hófu búskap sinn í Brekku
í tvíbýli við foreldra Sigurlaugar, heið-
urshjónin Þorlaugu Oddsdóttur og Hall-
dór Jónsson, dýralækni.
Klemens og Sigurlaug eignuðust tvær
dætur: Guðrúnu Elínu, kennara á Dal-
vík og Kristínu Sigríði, húsmóður í
Brekku, sem gift er Gunnari Jónssyni,
bónda þar. Dreng misstu þau nýfæddan.
Fyrir hjónaband átti Klemens dóttur,
Ingunni, hjúkrunarkonu í Reykjavík,
gift Ólafi Sigfússyni, vélsmið. Þá ólu þau
einnig upp frá tæplega fimm ára aldri
Sigurð Guðjón Marinósson, trésmið.
Klemens var bóndi í Brekku til 1966
er dóttir hans og tengdasonur tóku við,
en skömmu áður en hann brá búi, eða
26. apríl 1966, brann Brekkubærinn og
mestallt innbúið, allt lítt vátryggt. Varð
það mikill skaði og reyndust sveitungar
Klemensar honum vel í þeim vanda, og
komu þá greinilega í ljós vinsældir hans.
Helgina 21. og 22. ágúst í fyrra var
haldið niðjamót Kristínar og Vilhjálms
frá Bakka. Tóku ættingjarnir í dalnum á
móti okkur hinum af miklum rausnar-
skap og verður okkur þessi helgi ó-
gleymanleg. Klemens hafði orð fyrir
heimamönnum og bauð fólkið velkomið,
síðan á kvöldskemmtuninni fram á
Þinghúsi safnaði hann að sér öllum
börnunum og sagði þeim sögur frá
sínum uppvaxtarárum á Bakka. En það
var eitt aðaleinkenni hans hversu barn-
góður hann var og var þá gjarnan með
smáglettur við þau.
Undirrituð mun seint gleyma glettun-
um við frænda. Stundum held ég að
frænda hafi þótt ég ósköp mikið borgar-
barn eins og t.d. að vilja ekki volga
kúamjólk. Atti hann þá til með að
sprauta á mig þegar hann var að mjólka
eða þá að kalla stelpuna apakött, apa-
spil... en það styrkti bara kærleikann.
Já þau kunnu að meta það börnin,
sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að
dvelja í Brekku og voru mörg þeirra þar
sumar eftir sumar, enda sérstök sam-
staða á heimilinu en það er ekki alls
staðar þegar þrír ættliðir búa saman. En
þarna var samvinna og samhjálp sett
ofar öðru. Ég mun vera þakklát alla ævi
fyrir að hafa fengið að skjóta rótum sem
barn í dalnum - í Brekku - hjá frænda.
Við skiljum það oft ekki fyrr en seinna
hversu mikilvægt það er að finna sig
bundin ákveðnum stað og ættinni sinni,
' síst af öllu vildi ég hafa misst af dvölinni
í Brekku, enda finnst mér hvergi fegurra
á íslandi en í hlaðinu á Brekku.
Eins og fram hefur komið bjó Klem-
ens alla sína ævi í Svarfaðardal, enda var
honum sveitin afar kær.
Klemens var nýkominn heim eftir
tveggja vikna sjúkrahúsvist í Reykjavík
er hann lést. Ég veit að ekkert hefur
verið honum kærara en mega kveðja
heiminn frá Brekku en þar var hugur
hans allur.
Okkur sem eftir stöndum finnst hann
hafa verið kallaður of fljótt frá okkur, en
heilsa hans var biluð, og þess vegna
eigum við ef til vill að vera forsjóninni
þakklát að láta hann ekki líða meira.
Minningin um góðan dreng mun lifa.
Sigrún Magnúsdóttir
Mikið brá mér þegar systir mín hringdi
og sagði mér að Klemens í Brekku væri
dáinn. En strax á eftir þegar ég fór að
átta mig og hugsa, þá lofaði ég guð fyrir
þessa gæsku hans, því við sem vissum
hvernig heilsu hans var háttað, kviðum
svo fyrir, að hann ætti eftir að líða mikið *
veikindastríð.
Ein áhrifamesta minning mín úr æsku
er þegar Klemens fótbrotnaði. Það var
haustkvöld, hann hafð farið með snæris-
spotta til að hnýta upp í Rauð sinn suður
á túni, svo stökk hann á bak og kom í
einum spretti heim, því hesturinn var
eldfjörugur, og ekki gott að stoppa
hann, enda blautt á. Þeir komu í sveig
rétt framan við hlaðið, þar sem var lítil
aflíðandi brekka, og þar rann hesturinn
snögglega á hliðina og fóturinn á Klem-
ens lenti undir honum og brotnaði mjög
illa. Blessuð skepnan gerði sér auðsjáan-
lega grein fyrir hvað hafði skeð því hann
stóð þarna grafkyrr yfir honum með
hangandi haus.
Öllum fannst undravert hversu Sigur-
jóni lækni tókst að græða þessi kurluðu
brot saman, við þær erfiðu aðstæður eins
og þá var. En Klemens varð aldrei alveg-
góður í fætinum, stakk aðeins við. Vel
man ég þegar Rauður hans var að koma
heim að glugganum, þar sem Klemens
lá fyrir innan, og stóð þar og hneggjaði.
Svona var, tryggðin og kærleikurinn á
milli þeirra.
Ég man Klemens alltaf svo glaðan og
hressan. Komst hann oft hnyttilega að
orði og sagði manni gjarnan spaugilegar
sögur. Marga glaða daga man ég þegar
við vorum í heyskap saman t.d. þegar
hann var að binda með okkur. Mér
fannst heil unun að horfa á hann vinna.
Það sveif allt áfram eins og í léttum leik,
og spaugsyrðin fuku jafnframt.
Já mikið þótti mér alltaf vænt um
þennan frænda, alveg frá því ég var lítil
stelpa og æ síðan. Hann var líka góður
huggari ef eitthvað bjátaði á.
Alltaf hefur mér fundist sjálfsagt að
koma við í Brekku þegar við höfum
komið í dalinn. því alltaf mætti okkur
vinsemd og hlýja hjá öllum. Ég veit að
þannig verður það áfram þó nú sé komið
skarð í vinahópinn.
Svo bið ég guð að styrkja þig Sigurlaug
mín og ykkur öll í Brekku.
Frænka
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
býður ferðafólk velkomið í þjónustustöðvar sínar
á fegurstu áningarstöðum landsins
Þjónustumiðstöðina l Skaftafclli: Verslun - Veitingar - Bensín, olíur o.fl.
Fagurhólsmýri: Alhliða verslun - Bensín, olíur o.fl.
Nesjum: Alhliða verslun - Bensín, olíur o.fl.
Verið velkomin í Austur-Skaftafellssýslu
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Höfn - SkaftafeUi - Fagurhólsmýri - Nesjum