Tíminn - 23.07.1983, Page 15
LAUGARÐAGUR 23. JÚLÍ 1983
115
krossgáta
No.4129
Lárétt
1) Líflát. 5) Brjálaða. 7) Úrskurð. 9)
Lausung. 11( Þófi. 12) Rör. 13) Egg. 15)
Óhreinki.16) Málms. 18) Yfirhöfn.
Lóðrétt
1) Gamall. 2) Auð. 3) Fors. 4) Sár. 6)
Kærleikann. 8) Strákur. 10) Mjólkur-
mat. 14) Dropi. 15) Dall. 17) Tónn.
Ráðning á gátu No. 4128
Lárétt
1) Öskulag. 6) Api. 7) Dá. 9) He. 10)
Ungling. 11) Efni. 12) Eg. 13) Áta. 15)
Siðsamt.
Lóðrétt
1) Öldungs. 2) KA. 3) Upplits. 4) LI. 5)
Gleggst. 8) Ána. 9) Hné. 13) Áð. 14)
AA.
bridge
■ írarnir Mesbur og Fitz Gibbon eru
ungir menn en hafa samt spilað á einum
þrem Evrópumótum. Þeir eru núna
aðalparið í írska liðinu, eftir að gömlu
jaxlarnir, Pigot og McHale hafa dregið
sig í hlé. Þeir voru þó ekki í essinu sínu
í þessu spili úr leiknum við ísland; það
má eiginlega segja að vörnin hjá þeim
hafi verið frekar óhöndugleg:
Norður
S. D108743
H. G65
T, -
L. KG75
Austur
S. 62
H. D73
T. K62
L. AD842
Suður
S. K9
H. AK982
T. A1094
L. 103
Við annað borðið spiluðu írarnir 4
spaða í NS en Jón og Símon áttu ekki í
erfiðleikum með að fá 2 slagi á lauf og 2
á spaða svo það spil var einn niður.
Við hitt borðið spiluðu Jón og Sævar
4 hjörtu og Fitzgibbon í vestur spilaði út
laufaníu. Einfaldasta leiðin til að
hnekkja spilinu er auðvitað sú að taka
tvo laufslagi og spila þriðja laufinu því
þá fær vörnin örugglega hjartaslag til
viðbótar við spaðaásinn. En Mesbur
leist ekki á þetta. Svo eftir að hafa fengið
fyrsta slaginn á laufadrottningu, (Sævar
lét lítið í borði,) skipti hann í lítið hjarta.
Sævar hleypti því auðvitað á gosann í
borði og þegar hann fékk slaginn spilaði
hann spaða á kónginn heima. Enn gat
vörnin hnekkt spilinu ef vestur drepur á
ás og spilar laufi þvf þá fær vörnin
trompslag þegar þriðja laufinu er spilað.
En Vestri leist ekki á spaða litinn í
blindum og til að halda valdi á honum
gaf vestur Sævari spaðakónginn.
Og nú fékk vörnin ekki fleiri tækifæri.
Sævar spilaði laufatíunni sem austur tók
á ás og nú kom loks þriðja laufið. En þá
gat Sævar hent spaðataparanum heima
og vestur trompaði og spilaði tígli.
Sævar trompaði í borði, henti tígli í
laufkónginn, trompaði spaða heim og
trompaði tígul í borði. Þá átti hann eftir
AK9 í hjarta og A í tígli og eftir að hafa
trompað spaða heim gat Sævar lagt upp
afganginn.
Vestur
S. AG5
H. 104
T. DG8753
L. 96
myndasögur!