Tíminn - 25.09.1983, Side 5
SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983
■ Dýrasta úrið á landinu? Demöntum sett Jaeger-úr á 114.652 krónur hjá
Franch Michelsen. (Tímamynd Róbert)
„Talsvert um að meiui
skjóti saman í
til afmætisgjafa”
segir Franch Michelsen,úrsmíðameistari
■ „Ég tók við umboðinu fyrir
„Rolex“ fyrir tveimur og hálfu ári,“
segir Franch Michelsen, úrsmíða-
meistari, að Laugavegi 39. „Því
miður stendur svo á að ég hef
aðeins eitt úr hérna i versluninni að
sýna þér, því það er ákaflega dýrt að
liggja með slíka vöru. Þess vegna
geymi ég þau í Tollvörugeymslunni
og leysi þau út í smáskömmtum
öðru hverju.
Já, það er alltaf keypt nokkuð af
þessum úrum, þótt þau séu ákaflega dýr,
en „Rolex“ stendur líka fyrir þessu
verði. Það er talsvert um það að menn
kaupi „Rolex“ til afmælisgjafa og þá
skjóta margir sér saman um gjöfina.
Stundum verður maður var við að fólk
heldur að það sé ómögulegt að Islending-
ar geti keypt þetta. Einu sinni kom til
mín maður og sagði: „Aldrei hefði ég
trúað því að ég sæi „Rolex" til sölu í
verslun á þessu útskeri." En raunin er sú
að kaupendur má jafnan finna.
Þetta úr sem við höfum hér inni núna
kostar 81.000.00 og það leynir sér ekki
að þetta er glæsilegur gripur. En eins og
ég sagði tekur enga stund að útvega
aðrar gerðir, - aðeins að skjótast í
Tollvörugeymsluna og bjarga málinu.
Já, það eru fleiri úr dýr en þetta. Við
eigum hér „Jaeger"-úr sem er sett dem-
öntum og er ótrúlegur kjörgripur, enda
kostar það 114.652.00 krónur. Líklega
er það dýrasta úr í íslertskri verslun í
dag. Slíkt úr má ætla að einkum yrði
keypt sem stórgjöf á merkisafmæli. Ég
hef verið með „Jaeger" úrin í 25 ár og
þau hafa afar gott orð á sér, þótt ekki
séu öll á slíku verði sem þetta.“
Við þökkum Franch Michelsen fyrir
spjallið. Á þessu ári verður fyrirtæki
hans 75 ára, en það starfaði upphaflega
á Sauðárkróki og fyrir 40 árum hófst
starfsemi þess í Reykjavík. Við óskum
Franch Michelsen til hamingju með
afmælið. - AM
■ Franch Michelsen. Fyrirtæki
hans er 75 ára á þessu ári.
(Tímamynd Róbert).
■ „Rolex“-úr á 82 þúsund. „Það er ákaflega dýrt að liggja með slíka vöru,“
segir Franch Michelsen. (Tímamynd Róbert)
Haustlauka
SOstt**®
kynning
nar V-
Komið á haustlaukakynninguna i Blómaval um
helgina. Gífurlegt úrval haustlauka.
Yfir 120tegundirtúlípana.
Garðyrkjufræðingarnir Hafsteinn Hafliðason
og Kristinn Guðsteinsson verða til skrafs
og ráðagerða og leiðbeina fólki um val og meðferð
haustlauka.
Landsbyggðaþjónusta/póstkröfuþjónusta.
Fagmenn verða við símann í dag kl. 2-6 til
__________________________ráðlegginga.
Stofulyng (Erikur)
Tilboðsverð: Áður kr. 220.- nú 149.-
áður kr. 285.-nú 198.-
PottahlífarfyrirErikurmeð 15-20% afslætti.
fs
Allir sem vettlingi '
valdið prjóna með
MILWARD prjónum
enda er heilnæmt að hafa ávallt eitthvað á prjónunum.
MILWARD býður uppá hringprjóna, fimmprjóna, tvíprjóna, heklunálar
og margt, margt annað.
Og nú er einmitt rétti tíminn að hafa eitthvað á prjónunum með
MILWARD.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
ítölsk sófasett
Margar gerdir. — Leður- og tauáklæði. —
Ótrúlega lágt verd.
Frá kr. 32.800
Húsgögn og
. , ... Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900