Tíminn - 25.09.1983, Qupperneq 6

Tíminn - 25.09.1983, Qupperneq 6
&_________ laf og list mmm SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983 „Guðfræðin er ættgeng í minni fjölskyldu” — segir danska þingkonan Dorte Bennedsen guðfræðingur, fyrrum menntamálaráð- herra- og kirkjumálaráðherra ■ Um miðjan mánuðinn var haldin ráðstefna hér i bæ, samnorræn,og fjallaði hún um tölvumál og menntun. Veitir ekki af að ræða aðeins um tölvur og hvernig beri að bregðast við þeim því að þær eru bæði það sem koma skal og það sem er víða þegar komið. Ráðstefn- una sátu 120 manns frá fimm Norðurlöndum og voru tíu norrænir fyrirlesarar en einn kom frá Eng- landi. Meðal fyrirlesaranna var Dorte Bennedsen guðfræðingur, en hún er þingmaður sósíaldemókrata í Danmörku og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sinn fiokk, innan þings og utan, var t.d. kirkju- málaráðherra og menntamála- ráðherra. Það má geta þess til gam- ans að móðir Dorte Bennedsen var einnig þingmaður fyrir sósíaldemó- krataflokkinn danska um nær þrjá- tíu ára skeið og gegndi þá um hríð embætti menntamálaráðherra. Undirrituð hitti Dorte Bennedsen að máli úti á Hótel Loftleiðum um það bil sem ráðstefnunni var að ljúka og byrjaði á því að spyrja hana hvort hún hafi verið alin upp til að verða stjórnmálakona. „Nei,“ sagði Dorte og hló við, „ekki beinlínis, en ég var alin upp á pólitísku heimili og þegar maður er alin upp við að hlusta á pólitískar umræður allan daginn fer ekki hjá því að maður fari að fá áhuga á því sem um er rætt og taka þátt í því. Og reyndar var einn af bræðrum mínum líka þingmaður sós- íaldemókrata um nokkurra ára skeið.“ - Hver eru helstu áhugamál þín innan stjórnmálanna? „Ég var menntamálaráðherra í nær fjögur ár - frá því í janúar'79 þangað til í september'82 - og þau ár fór allur minn tími í menntamál. Nú er ég í þingnefnd sem fjallar um menntamál en reyndar er ég líka í þingnefnd sem fjallar um umhverfismál og annarri um Efnahags- bandalag Evrópu. En ég hef svosem gert ýmislegt annað um ævina, var t.d. prest- ur í þrjú ár, þá var ég aðalritari danska æskulýðsráðsins, formaður dönsku neyt- endasamtakanna o.fl. Einnig var ég kirkjumálaráðherra um skeið, reyndar án þess að vera þingmaður en í dönskum lögum eru sérstök ákvæði sem heimila það. En ég er ennþá á kafi í menntamálun- um. Nú er hægri stjórn við völd í Danmörku og það er mikill munur á því sem sú stjórn gerir og á því sem við gerðum. En ég reyni að fá núverandi menntamálaráðherra til þess að taka á málum á skynsamlegan og sanngjarnan hátt. í Danmörku er mikið atvinnuleysi á meðal ungs fólks og nú eru á milli áttatíu og hundrað þúsund atvinnuleysingjar á aldrinum 16-24ra ára. Á meðan ég var menntamálaráðherra gerði ég sérstakar ráðstafanir, í samvinnu við atvinnu- málaráðherrann, til þess að gefa ungu fólki - sérstaklega á aldrinum 16-19 ára - tækifæri til þess að afla sér menntunar, einkum iðn- og tæknimenntunar - menntaskólarnir standa jú opnir þeim sem kjósa bóklegt nám. Við reyndum sérstaklega að hvetja ungar stúlkur til þess að afla sér menntunar. Það er algengt að þær fái ekki vinnu þegar þær koma út úr skólun- um 16 eða 17 ára gamlar. Margar þeirra fara að eignast börn, eignast kannski eitt eða tvö og þá eiga þær mjög erfitt með að komast aftur inn í skólakerfið. En við reyndum að gera sérstakar ráðstafanir til þess að auðvelda þeim það. Við komum einnig á fót sérstökum starfsþjálfunarnámskeiðum fyrir ungt fólk, því að margt af því unga fólki sem nú er atvinnulaust hefur aldrei unnið. Pessu fólki getur maður ekki bara sagt að fara að vinna á morgun, maður verður að kenna því svo einfalda hluti sem það að fara á fætur á morgnana og í vinnuna á ákveðnum tíma vegna þess að þau hafa aldrei kynnst atvinnulífinu og þeim reglum sem þar gilda. En sú | ríkisstjórn sem nú situr að völdum í Danmörku hefur lítinn skilning á þessu, hún hefur dregið úr, eða hreinlega strikað yfir ýmsar ráðstafanir okkar. Nú er til að mynda verið að hætta þessum þjálfunarnámskeiðum og sum eru þegar hætt. „Stef num ad 35 stunda vinnuviku" Atvinnuleysið er mikið vandamál í Danmörku, nú eru 320 þúsund Danir atvinnulausir. Á aðalfundi sósíaldemó- krata um síðustu mánaðamót var sér- staklega fjallað um þennan vanda og sett fram áætlun um styttingu vinnutímans í því skyni að gefa fleirum möguleika á vinnu. Þá var ákveðið að stefna að því að stytta vinnuvikuna um fimm stundir, niður í 35 stundir, í áföngum héðan í frá og fram til ársins 1990.“ - Hvernig standa konur að vígi í danskri pólitík? „Við erum alltof fáar, ekki nema 25% þingmanna og það gengur hægt að fjölga konum á þingi. En á fyrrnefndum aðal- fundi sósíaldemókrataflokksins voru settar reglur um að gætt yrði jafnréttis í nefndum á vegum flokksins, svonefnd 40:60% regla. Hún gengur út á það að í þeim ncfndum sem flestir karlmenn skipa, svo sem eins og um alþjóðamál, verði að minnsta kosti 40% nefndar- manna að vera konur. Og í þeim nefnd- um sem konur eru í meirihluta verða karlar að vera að minnsta kosti 40%. Sjálf hef ég aldrei fundið fyrir því að mér hafi verið mismunað kynsins vegna, enda er ég alin upp á heimili sem hafði jafnrétti kynjanna að leiðarljósi. Það er heldur ekkert vandamál að vera kona á þinginu loksins þegar maður er komin þangað en leiðin inn í pólitíska lífið er hins vegar þyrnum stráð. Og auðvitað fylgja þessu mörg vandamál, fólk sem er á kafi í pólitísku starfi hefur minni tíma til að sinna fjölskyldunni en ella og konur finna meira fyrir því en karlar vegna þess að þær hafa meiri áhyggjur af fjölskyldunni, í hvaða vinnu sem þær eru. Það er líka ennþá litið svo á að konan beri endanlega ábyrgð á fjölskyld- unni.“ - Nú eru íslenskar konur farnar að bjóða fram upp á eigin spýtur - hafa danskar konur rætt þann möguleika? „Já, ég veit allt um það, ég hef fylgst vel með því framtaki íslenskra kvenna," segir Dorte og brosir áhugasöm, „en ég held ekki að það muni gerast í Dan- mörku. Ég held að flestar konur, svona 45 ára og þaðan af yngri séu sammála þeirri hugmyndafræði sem kvennahreyf- ingin setur á oddinn þó þær greini á um leiðir. Ég kýs frekar að vera áfram í mínum flokki og berjast þar fyrir sömu málefnunum. „Ekki mitt að hafa áhyggjur af því...“ Ég held að það muni taka margar kynslóðir að breyta ríkjandi viðhorfi til hefðbundinna kynhlutverka og ég held líka að það sé að einhverju leyti sök kvennanna sjálfra. Oft eru konur til að mynda ekki nógu fúsar til þess að losa sig við ábyrgðina á heimilinu. Ef eigin- maðurinn hefur átt að skúra í dag fer konan kannski yfir verkið, þegar hann hefur lokið því, gáir að því hvort hann hafi hreinsað nógu vel úr öllum hornum o.s.frv. Við skiptum með okkur verkum á mínu heimili og ég læt hina fjölskyldu- meðlimina alveg um ábyrgðina á sínum hluta. Ef ég á ekki sjálf að elda á miðvikudögum þá dettur mér ekki í hug að fara að hugsa um hvað eigi að vera í matinn eða hvort það sé nú búið að kaupa í matinn og þess háttar - það er ekki mitt að hafa áhyggjur af því.“ - Hvað viltu segja okkur um tölvuráð- stefnuna? „Þetta er mjög góð ráðstefna og ég hef lært margt hér. Við höfum rætt um nauðsyn þess að fólk verði frætt um tölvur og möguleikana á því að hefja fræðsluna strax í grunnskólunum. Þá er ekki nóg að kenna bara tæknilegu hliðina heldur verður einnig að upplýsa um félagslegar afleiðingar aukinnar tölvu- væðingar. Stærsta vandamálið sem við er að etja í því sambandi er það að til þess þarf að kenna kennurunum á mjög skömmum tíma. Nú fer tölvukennsla einungis fram á háskólastiginu og í Vi hlutum menntaskólanna í tilrauna- skyni." - Hvert var inntakið í þínum fyrir- lestri? „Ég talaði um það hvers eðlis tölvu- menntun á grunnskólastigi ætti að vera. Ýmsum finnst að hún eigi að vera valgrein en mér finrst að hún eigi að vera skyldunámsgrein fyrir öll börn. Þeim börnum sem nú eru að alast upp er brýn nauðsyn að vita sem mest um tölvunotk- un og afleiðingar hennar og því tel ég ákaflega mikilvægt að veita öllum börn- um þessa fræðslu." - Hverjar heldurðu að vérði helstu afleiðingarnar? „Ég held að ef við höfumst ekkert að muni kerfið þróast og verða að sínum eigin herra. Að mínum dómi eigum við að kenna börnunum að líta ekki á tölvur sem einshvers konar valdhafa heldur tæki sem opnar ýmsa möguleika og veitir upplýsingar og tækifæri til að taka ákvarðanir á upplýstari hátt en áður. Það sem ég á við er að við eigum að kenna börnunum jákvætt en gagnrýnið viðhorf til tölva - gera þeim Ijósa hættúna á því að þær verði misnotaðar og kenna þeim að treysta ekki sérfræð- ingunum í blindni. Almenningur á rétt á öllum þeim upplýsingum sem við höfum yfir að ráða, það á ekki að vera hægt að velja úr einhverjar upplýsingar til að skammta almenningi. „Verðum að bregðast við tölvuvæðingunni" Þá er einnig hætta á auknu atvinnu- leysi ef ekki verður gripið í taumana. Það er Ijóst að fjöldinn allur af störfum verður lagður niður í kjölfar tölvuvæð- ingar, t.d. í bankaheiminum, verksmiðj- um og víðar. Kosturinn við það er sá að fólk losnar þannig við ýmis einhæf og leiðinleg störf en ef við bregðumst ekki við í tíma mun atvinnuleysið skella yfir okkur. Við verðum að bregðast við með því að stytta vinnutímann og eins og ég sagði áðan hefur sósíaldemókrataflokk- urinn lagt fram áætlun þar að lútandi.“ - Gerið þið ráð fyrir einhverjum breytingum á launum í kjölfar styttri vinnutíma? „Danska alþýðusambandið hefur lagt til að þeim launalægstu verði greiddar bætur en þeir launahæstu ættu á hinn bóginn að komast af með 35 stunda laun. Það yrði hræðilegt ef lægst launaða fólkið fengi ekki bætur en aftur á móti er óraunhæft að fara fram á að allir haldi sínum launum. En atvinnuleysið er þeg- ar orðið það mikið að eitthvað verður að gera og 35 stunda vinnuvika myndi skapa fleirum atvinnu. Frakkar hafa þegar stytt vinnuvikuna hjá sér um tvo tíma.“ - Heldurðu að tölvuvæðingin geti orðið konum skeinuhættari en körlum? „Já, hún gæti komið illilega niður á konum ef ekkert verður að gert. f Danmörku eru ófaglærðar konur í mikl- um meirihluta og þessar vélar taka einmitt yfir þau störf sem ekki krefjast neinnar sérstakrar menntunar. Við sós- íaldemókratar erum á þeirri skoðun að unnt sé að fjölga fólki í opinberri þjónustu, t.d. í þeim störfum sem lúta að menningar-, menntunar- og félags- málum, svo sem aðstoð við aldraða og þess háttar, en hægri stjórnin sem nú er við völd í Danmörku er á öðru máli hún ætlar því miður að skera niður útgjöld til þessara mála“. „Síðan geri ég engar langtímaáætlanir...“ - Svo við víkjum aftur að sjálfri þér - hefurðu nokkuð hugsað þér að gerast prestur aftur? „Ó“, segir Dorte, fórnar höndum og hlær, „Ég hef einu sinni á ævinni ráðgert að hætta að vinna í eitt ár, vegna þess að mig langaði til að gera dálítið annað, en daginn eftir hringdi forsætisráðherr- ann í mig og bað mig um að koma inn í ríkisstjórnina. Þetta var þegar Ritt Bjærregárd skrapp til Parísar með þeim afleiðingum að hún varð að segja af sér. Nú, ég sló til og síðan geri ég engar langtímaáætlanir. Reyndar vinn ég stundum einstaka prestsstarf, messa, gifti eða jarða, en raunar hafði ég alltaf mestan áhuga á kirkjusögu. Annars er guðfræðin ættgeng í minni fjölskyldu, pabbi, afi og langafar mínir í föðurætt voru prestar hver af öðrum, ég er sjöunda kynslóðin og auk þess er móðir mín einnig guðfræðingur." Dorte Bennedsen sneri aftur til Dan- merkur á sunnudaginn var en áður ætlaði hún að. fara til Gullfoss og Geysis. Þessi ferð var reyndar sjötta íslandsferð Dorte, svo að hún er íslandi ekki með öllu ókunn. „í hvert sinn sem ég kem heim frá íslandi segi ég fjölskyldu minni að Island sé besta land í heimi. Hvers vegna getum við þá ekki farið þangað spyrja bömin ogég svara: Það er svo hryllilega dýrt.“ -Sbj. ■ Áslaug Olaf sdóttir, höfundur Litla rauða rúmsins. yyÞetta er bók handa yngstu bömuuum” — segir Áslaug Ólafsdóttir um sína fyrstu bók: Litla rauða rúmlð ■ Á Islandi eru bækur - svo sem kunnugt er-gefnar út á haustin og fram að jólum. Og nú er komið haust þó að sumir segi að sumarið hafi ekki ratað hingað norðureftir þetta árið. Meðal þeirra höfunda sem senda sína fyrstu bók frá sér á þessu hausti er Áslaug Ólafsdóttir sem annars er kennari á Kirkjubæjarklaustri. Við slógum á þráð- inn til Áslaugar og spurðum hana nánar um bókina. „Þetta er lítið kver,“ sagði Áslaug," hugsað fyrir börn á þeim aldri að farið er að lesa fyrir þau og þangað til þau geta farið að lesa sjálf. Bókin er prýdd blýantsteikningum eftir samkennara minn, Ragnhildi Ragnarsdóttur, og er prentuð í tveimur litum - það er sem sagt settur inn í einn litur sem tengist heiti bókarinnar „Litla rauða rúmið“. - Um hvað fjallar bókin? Sagan segir frá því hvernig lítil stúlka er vanin af því að sofa hjá foreldrum sínum, en það er sígilt vandamál sem margir þekkja eflaust af eigin raun. Auk þess koma foreldrar og þrír bræður litlu stúlkunnar einnig við sögu ásamt hjálp- arkokk sem er dúkka.“ Bók Áslaugar, Litla rauða rúmið, sem gefin er út af Máli og menningu er væntaleg í bókaverslanirnar í október. ■ Ragnhildur Ragnarsdóttir myndskreytti bókina.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.