Tíminn - 25.09.1983, Side 8

Tíminn - 25.09.1983, Side 8
8 SUNNUDAGUR 25. SEPTF.MBER 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiöslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaöur Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friörik Indriöason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guömundur Magnússon, Heiöur Helgadóttir, Jón Guöni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnssson. i Ljósmyndlr: Guðjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttír, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verö i lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Blaöaprent hf. Verulegt átak í húsnæðis- málunum ■ Ríkisstjórnin hefur samþykkt tiliögur Alexanders Stefánsson- ar, félagsmálaráðherra, um verulegt átak í húsnæðismálum. Þar var samþykkt að eftirfarandi breytingar verði á útlánum Byggingarsjóðs ríkisins, sem veitir almenn íbúðalán, frá og með næstu áramótum: - Öll lán hækki um 50%. - Nýbyggingarlán til þeirra, sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn, skuli greidd í tveimur hlutum, þ.e. fyrri hlutinn mánuði eftir fokheldisstig og seinni hlutinn sex mánuðum frá útborgun fyrri hlutans. Útborgun annarra-verði óbreytt frá því sem nú er. - Lánstími nýbyggingarlána lengist úr 26 árum í allt að 31 ár, eða um allt að fimm ár. - Lánstími lána til kaupa á eldra húsnæði lengist líka um sama árafjölda, eða úr 16 árum í allt að 21 ár. - Öll lán verði afborgunarlaus fyrstu tvö árin. - Gjalddögum húsnæðislána verði fjölgað í 4 á ári. Þá lagði félagsmálaráðherra fram sérstakar tillögur um lausn á vandá þeirra húsbyggjenda, sem fengu frumlán til nýbygginga og lán til kaupa á eldra húsnæði á árunum 1982 og 1983 úr Byggingarsjóði ríkisins, og voru þær einnig samþykktar. Sam- kvæmt þeim verður þessum aðilum gefinn kostur á viðbótarláni allt að 50% af upphaflegu láni þeirra. Einnig hefur samkomulag verið gert við innlánsstofnanir um skuldbreytingu til 8 ára. Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, sagði um þessa samþykkt ríkisstjórnarinnar í viðtali við Tímann: „Aðalávinningurinn með þessum breytingum er sá, að þrátt fyrir allan þennan samdrátt í þjóðfélaginu og niðurskurð á fjárlögum og víðar, þá hefur tekist samstaða um það í ríkisstjórn- inni að auka verulega hlut húsbygginganna, því það er gert ráð fyrir sama byggingarmagni en hækkandi lánum. Það má því gera því skóna að byggingariðnaðurinn muni ekki dragast saman að þessu leyti, og menn eiga nú möguleika á því að geta haldið áfram að eignast húsnæði. Ég er vissulega mjög hreykinn af því að okkur skyldi takast að ná samstöðu um að koma til móts við þetta fólk í þessum erfiðleikum, sem nú blasa við í fjármálum ríkisins. Það verður kannski ekki í þeim mæli, sem fólkið hefði kosið, en er samt sem áður gífurlega mikið átak. Nú, þegar ég les Þjóðviljaforsíðuna, þar sem yfirskriftin er „Loforðin svikin“, þá verður mér óneitan- lega hugsað til fyrrverandi félagsmálaráðherra. Það hefði kannski verið ástæða til þess að Þjóðviljinn og þeir, sem að honum standa, hefðu rekið upp svona kvein fyrir ári síðan eða rúmlega það. Vissulega þurfti að koma til móts við þetta fólk og skilja hversu vandamálið var stórt. Ég vona að þessi áfangi, sem við höfum nú ákveðið, komi þessu fólki að verulegum notum“. Um hækkun lánanna segir félagsmálaráðherra m.a. í viðtalinu: „ Auðvitað stefnum við að því að lánshlutfallið verði hærra - við höfum það sem markmið að hægt verði að lána 80% af byggingarkostnaði. En það verður að hafa það í huga, að þegar hvað mest var rætt um 50% staðalíbúðar, þá var eingöngu rætt um lán til þeirra sem væru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn. Þegar hins vegar ljóst var orðið, að vandi þeirra, sem voru ekki í þeirri stöðu, var svo mikill, að nauðsyn bar til þess að veita þeim einnig aukin lán, þá lá það að sjálfsögðu ljóst fyrir um leið, að minna kæmi í hlut hvers um sig. Ég vil hins vegar undirstrika að þessi áfangi, sem við náum núna 1. janúar næstkomandi, gerir það að verkum, að við getum lánað 50% af byggingarkostnaði miðað við vísitöluíbúð“. Ljóst er að með þessum ráðstöfunum er gert mikið átak til að bæta stöðu húsbyggjenda, og þar verulega bætt fyrir vanrækslu þeirra mála síðustu árin. - ESJ. horft T strauminn ■ Á síðustu vikum og mánuðum hafa orku- og stóriðjumál Islendinga átt hug manna og umræðu öðru fremur. Til þess eru ærnar ástæður. Fyrir tveimur eða þremur áratugum - á morgni nýs dags sem risinn var úr sorta heimsstyrjaldarinnar var þetta vaxtarbroddurinn í íslensku atvinnu- og efnahagslífi að talið var. Þá áttum við ódýrustu orku í heimi og ætluðum að beita henni til þess að knýja aflvél auðs og hamingju. Þá var allt stórt - stórvirkjanir, stóriðnaður - og þó stórhugurinn mestur. Nú blasir við okkur önnur mynd. Þetta er orðið líkast krabbameini í þjóðarlíkamanum. Geislun hefur verið reynd síðustu missiri en ekkert áunnist. Nú virðist holskurðurinn einn eftir - líklega upp á líf og dauða. Fyrsta stórskrefið á stóriðjuvorinu var álsamningurinn frægi - þessi sem „gaf“ okkur stórvirkjanirnar að sagt er! Það var nú gjöf sem sagði sex. Þar gengum við til glímu við heimsrisann hvergi hræddir hjörs í þrá, töldum okkur fullfæra að kljást við nýlenduherra samtímans. Að vísu voru þeir til sem vildu skyggnast um gættir áður en gengið væri fram, en þeir fengu kaldar kveðjur hinna gunnreifu og voru taldir úrtölumenn og dragbítar á framförum og reisn þjóðar sinnar. Að selja ófædda kynslóð Samningar gengu greiðlega. Þúsund ára Alþingi var ekki að tvínóna við þá. Engin uppsagnarákvæði - hvaða gagn gerðu nú heim í sama haftinu en hefur tínt skásta vopninu sem hún hafði að heiman - skattsverðinu. Og enn bætist á Það verður veðrahlé í álmálinu næstu mánuðina. Skattmats- nefndin fer vafalaust að meta skattskuld Álfélagsins, og ef til vill aurast okkur þar eitthvað. En þetta er engin ákæra lengur, enginn mun tala um skattsvik eða samningsrof. Álfurstarnir eru hvítþvegnir af slíku athæfi. En skyldi ekki einhverjum íslenskum skattsakamanni koma í hug að gott væri að eiga slíku að mæta í stað ákæru og dóms sem yfir vofir, af því að samningur hans við ríkið er ekki eins vel gerður? Lái honum hver sem vill. En álsamninganefndin hafði ekki notið sigurlauna marga daga þegar nýja bliku dró á loft. Minnt var á, að næsta óskabarn stóriðjumanna, Járnblendiverksmiðjan, malaði eitthvað annað en gull sem hún átti þó að gera samkvæmt öllum fæðingarvottorðum innlendum og erlendum - einkum erlendum, enda var þeim einum trúað eins og vant er. Tapið á henni var 400 millj. í fyrra og verður víst 150 í ár. Þó borgar þjóðin risafjárhæðir með rafmagninu til hennar - eins og álversins. Hvað munar hana um það, þegar hún á gnægðir ódýrustu orku í heimi, sem þó er allt í einu, eiginlega án þess að nokkur hafi getað áttað sig á því hvernig slík firn gerðust, ÞETTA ERU VEISLUFOWGIN A FERTU GS AFMÆLI LÝÐVELDISINS þau? Látum krakkana á 21. öldinni um það mál. Ografmagnið - auðvitað það ódýrasta í heimi - gefum þessum stóra bróður algert sjálfdæmi um það. Skattar? Já, við ákveðum skatta, vanir að hafa allt á hreinu með þá - en frjáls viðskipti eru kjörorðið, því er allt sem rúmast til þess að hagræða þeim svo skattstofn verði haganlegur, og breiðir eru íslands álar svo að margt getur gerst til hagræðis „í hafi“. Og verði eitthvert múður skal um það dæmt í útlöndum - íslendinga varðar ekkert um það. Að slepptu öllu gálgagaspri blasir það nú við okkur, að álsamningurinn er plagg af því tagi, sem ekki aðeins er vansæmd fyrir sjálfstæða þjóð að gera, heldur beinlínis hengingaról, og væri nokkur manndáð í okkur ættum við að hafa þau ákvæði í stjórnarskránni sem banna ríkisstjórn og íslenskum þegnum að gera samninga við erlend ríki eða erlenda stórkarla um íslensk málefni án uppsagnarákvæða, og fleiri skorður mætti reisa þar við því, að við seldum þannig ófædda kynslóð fslendinga eða veltum byrðum okkar á herðar hennar eins og gert var í álsamningnum, - eða seldum undan okkur sjálfstæðið að einhverju leyti. Sáuð þið hvernig ég tók hann? Nú hefur verið gert samkomulag við auðrisann suður í Sviss. Hann stakk nokkrum aurum að bandingja sínum af náð og miskunn, án þess að honum bæri þó til þess nokkur samningsskylda, en hann hefur auðvitað framhaldið alveg í hendi sér samkvæmt samningi sínum, lofar þó að tala við fangann af lítillæti sínu um endurskoðun samninga en heitir engu, lætur skína í ýmislegt ef hann fái að stækka nýlendu sína um helming - vafalítið án uppsagnarákvæða ef hann nýtur sömu gestrisni og fyrr. Út á þessi hálfyrði fær hann síðan hjá íslensku samninganefndinni bréf upp á það, að smáræði, sem sumir kalla því ljóta nafni skattsvik, megi fara í einfalda matsgerð nefndar, þar sem hann skipar sjálfur matsmann. Þar með hefur hann bjargað málinu úr dómi og engin hætta lengur á því að þetta fjármáladund „í hafi“ verði talið brot á álsamningnum. Það er auðvitað miklu þægilegra að hafa engan dóm um samningsrof yfir höfði sér lengur, því að slíkt mætti e.t.v. nota í stað uppsagnarákvæða. Og þar að auki kostaði þessi hagræðing eiginlega ekkert - aðeins ádrátt um að skeggræða svolítið við íslendinga um samninginn síðar yfir kaffibolla eða glasi. En íslendingar hafa týnt skásta vopninu sínu áður en aðal orrustan hefst. Það er hálfskondið að heyra samningamenn og ráðherra lýsa herfangi sínu eftir þessa Bjarmalandsför. Sumir eru hógværir sigurvegarar, telja niðurstöðu viðunandi - eins og á stóð. Öðrum lætur ekki slík hæverska - þetta er stórsigur, segir iðnaðarráðherrann. Hann situr nú suður í Sviss, hvílist eftir Heljarslóðarorrustuna og undirritar samninginn um uppgjöf Álhringsins! Það er auðvitað kvikindisháttur af versta tagi að láta sér renna í hug sigurorð Jóns sterka úr Skugga-Sveini þegar hann reis upp úr byltunni: „Sáuð þið hvernig ég tók hann?“. Sannleikurinn er auðvitað sá, að það er hárétt sem skynugur og glöggur sjálfstæðisþingmaður sagði ( grein í Mogga fyrir nokkrum dögum, að árangurinn væri viðunandi eftir því sem búast mátti við. Þannig hafa margir dæmt frammistöðuna og niðurstöðuna með réttu - það var ekki við betra að búast, því að samninganefnd okkar var í hafti álsamningsins og kemur orðin almenningi sú dýrasta sem þekkist á byggðu bóli í okkar heimshluta. Stóriðjan átti að borga orkuna fyrir okkur, en sá greiði hefur snúist við. Sitjum í feninu Og þannig sitjum við í feninu þessa stund eilífðarinnar.' Óskabörn og fyrirhugaðir gullgróttar okkar eru reknir með stórtapi ár eftir ár eða hafa af okkur skyldur og skatta svo að nemur milljörðum, en við höldum áfram að borga fyrir þá orkuna ár og dag með neyslusköttum. Til þess að geta gegnt þessu mannúðarhlutverki og beislað ódýru orkuna fyrir þessa höfðingja höfum við hlaðið á okkur erlendum skuldum sem allir sanntrúaðir stóriðjumenn býsnast yftr dag hvern og segja að við séum að glata sjálfstæðinu eða drukkna í skuldasúpunni og höfum auk þess hengt þennan myllustein á háls bama okkar. Já, mikið rétt. En það er auðvitað ekki okkur að kenna, segja stóriðjumenn - þessi lán voru öll tekin til arðbærra framkvæmda, vinir mínir! Og þetta verða nú veisluföngin í afmælisveislu okkar fslendinga á fertugsafmæli lýðveldisins á næsta ári. Skyldi setja að nokkrum klígju yfir tertunni? Sem betur fer eru þetta ekki einu afrekin sem við getum minnst á þessu stórafmæli. Við höfum þokað ýmsu á betri veg, sem kemur okkur vel. Við höfum eflt íslenska atvinnuvegi, bætt samgöngur.Iagt orkulín- ur, eflt menningu og þjónað bókmenntum og listum. En þetta er allt af öðrum toga - íslenskum framfaratoga sem gerst hefur þrátt fyrir hrakfarirnar í stóriðjunni. Því getum við fagnað. Jafnframt hljótum við að hugleiða, hvort ekki er kominn tími til að láta sér verða það sem gerst hefur víti til varnaðar og hætta að fara að ráðum þeirra sem halda það gullinn veg að þægjast erlendum auðhringum og þeirri afturgengnu nýlendu- stefnu sem felst í landvinningum þeirra. Illvíg krabbamein senda meinvörp sfn um öll nálæg líffæri ef varnir eru ekki nægar. Nýlenduherrar stóriðjunnar eru sama eðlis. Líklega sitjum við uppi með þessi meinvörp og eigum þungan róður fyrir hendi. Við skulum þó vona að úr rætist. Við þessar villur höfum við tafist við þjóðnýt verk. Við erum og verðum matvælaframleiðsluþjóð og eigum land sem við getum leyft erlendum góðvinum að njóta með okkur. Við skulum snúa okkur betur að þessu, og ef við eigum skipti við erlenda stóriðjuhölda hér, sem auðvitað þarf ekki að vera með öllu útilokað eða sjálfgefmn gapastokkur, þá skulum við muna það sem gerst hefur og láta þau spor hræða nægilega til þess að halda heilu skinni í þeim viðskiptum. En sagan mun dæma þá hart sem ekki sáu fótum sínum forráð á bemskuárum lýðveldisins. Og þeir munu varla fá að eiga fulltrúa í þeirri matsnefnd. Andrés Kristjánsson Andrés Kristjánsson skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.