Tíminn - 25.09.1983, Side 9

Tíminn - 25.09.1983, Side 9
SUNNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1983 9 menn og málefni Herleiðangrar og vopnaskak heyra ekki undir þróunarhjálp ■ Hinn 15. september s.l. birtist í Tímanum greinarkorn sem undirritað- ur setti saman undir fyrirsögninni „Vopn og hugmyndafræði er aðstoðin sem öreigarnir fá“. Grcinin var undir dálkaheitinu „Erlent yfirlit", sem les- endur blaðsins kannast vel við. Þessi umræddu skriffjallaum að sú aðstoð sem Sovétríkin veita þróunarþjóðum sé aðallega fólgin í vopnum og hug- myndfræði, en minna séu um beina aðstoð til þeirra sem mest eru þurf- andi. En sjálfsagt leggja menn misjafn- an skilning á með hvers konar aðstoð er vænlegast að koma fátækum þjóð- um til hjálpar. Tíminn er víðlesnari en maður hugði, því svo brá við að svargrein barst frá Moskvu þar sem meintar missagnir eru leiðréttar. Fer sú grein hér á eftir: Grein Kozlovs Til ritstjóra Tímans. Virðulegi herra ritstjóri, Eg get ekki fallist á nokkur atriði, sem koma fram í skrifum Odds Ólafs- sonar í blaði yðar þann 15.9.1983, sem bera fyrirsögnina „Vopn og hug- myndafræði er aðstoðin, sem öreigarn- ir fá.“ Oddur Ólafsson telur t.d. að eftir byltinguna árið 1917 hafi fyrrum ný- lendur keisaradæmisins verið inn- limaðar í Sovétríkin og þeim hafi ekki vcrið veittur réttur til sjálfsákvörðun- ar. En það er auðvelt að sanna hið gagnstæða. Þann 15. nóvember 1917 gafsovéska ríkisstjórnin út yfirlýsingu um rétt þjóða Rússlands, þar sem lýst var yfir jafnrétti og fullveldi allra þjóða lands- ins og rétti þeirra til frjálsrar sjálfs- ákvörðunar, allt að aðskilnaði og stofnun frjálsra ríkja, þarsem þjóðem- isleg og trúarleg forréttindi yrðu af- numin og minnihlutahópar gætu skap- að sér framtíð. Þann 31. desember viðurkenndi rík- isstjórn Rússlands rétt Finnlands til sjálfsákvörðunar. Þann 29. ágúst 1918 gaf sovéska ríkisstjórnin út tilskipun, þar sem kveðið var á um afnám samninga rússneska keisaradæmisins í lok 18. aldar við Austurríki og Þýska- land um skiptingu Póllands og réttur pólsku þjóðarinnar til óháðrar og sjálf- stæðrar tilveru viðurkenndur. Og þess- ar yfirlýsingar voru ekki orðin tóm. Eins og kunnugt er létu Finnland og Pólland í Ijós óskir um að fara eigin leið og Sovét-Rússland stóð á engan hátt í vegi þeirra. En meiri hluti þjóðanna taldi sér henta betur að ganga í bandalag við Rússland, sem varð til þess að félagsleg og efnahags- leg þróun þeirra tók stórt stökk fram á við. Hvað varðar staðhæfingar Odds Ólafssonar þess efnis, að Afganistan sé sönnun þess að Sovétríkin séu að færa út áhrifasvæöi sitt í Asíu, þá eru þær langt frá sannleikanum. Á fyrsta stigi varði afganska bylting- in sig sjálf fyrir óvinveittum öflum. En þegar Vesturlönd með Bandaríkin í broddi fylkingar fóru að heyja óyfir- lýsta styrjöld gegn lýðveldinu, þegar vopnaðir hópar voru sendir inn á landsvæði Alþýðulýðveldisins Afgan- istan, sneri ríkisstjórn landsins, undir forystu Amins, sér til Sovétríkjanna með hjálparbeiðni, þar með beiðni um hernaðaraðstoð. Samkvæmt samningi um vináttu, góða nágrannasambúð og samstarf, sendu Sovétríkin herlið til Aganistan. Sovétríkin þurfa ekki á löndum annarra að halda. Aðstoð Sovétríkjanna við Aganistan er ein- göngu í því skyni að koma í veg fyrir vopnuð afskipti af byltingunni í Afgan- istan og öll afskipti af málefnum Af- ganistan. Hvað snertir hið sovéska herlið, þá erum við reiöubúnir til að kalla það heim samkvæmt samningi við afgönsku ríkisstjórnina. Þá vcröur að taka fyrir það að andbyltingarhópar séu sendir inn í Afganistan. Það verður að gera með samningi milli Afganistan og nágranna þess. Það verður að tryggja örugglega, að ekki verði um ný afskipti að ræða. Þetta er afstaða Sovétríkjanna. En aðstoð Sovétríkjanna takmark- ast ekki aðeins við veru sovéskra hermanna í landinu. I sextíu ára sam- skiptasögu landanna tveggja hafa í Afganistan verið reist, eða er verið að reisa, yfir 150 mannvirki, sem eru grunnurinn að nútímaatvinnugreinum þess ríkis, sem eitt sinn var vanþróað. Efnahagsaðstoð Sovétríkjanna við Af- ganistan hefur aldrei verið háð því að fyrrnefnda landið fengi einhver póli- tísk forréttindi eða önnur forréttindi. Öll fyrirtæki og mannvirki, sem eru reist fyrir sovésk lán og með tæknilegri aðstoð Sovétríkjanna, tilheyra afganska ríkinu, sem notar hagnaðinn af þeim eins og það álítur best. Þetta er í raun það, sem kallað er „bein áhrif Sovétríkjanna í Asíu.“ Oddur Ólafsson telur að Sovétríkin sjái þróunarlöndunum aðeins fyrir vopnum og hugmyndafræði. Þetta er ekkert nýtt og á ekki við rök að styðjast. Þegar Sovétríkin bregðast við beiðn- um frá ríkisstjórnum, taka þau þátt í uppbyggingu ríkisgeirans, en hlutverk hans er almennt viðurkennt í aðgerð- um nýfrjálsu landanna, sem miða að því að byggja upp sjálfstæðan efnahag og varpa burt nýlenduokinu. Atvinnu- fyrirtæki, sem byggð hafa verið með aðstoð Sovétríkjanna gefa um 35% af heildarstálbræðslunni í Indlandi, 70% í Iran og allt að 95% í Egyptalandi. Fram til upphafs níunda áratugsins voru með aðstoð Sovétríkjanna reist um 1700 iðnaðarfyrirtæki, raforkuver og önnur mannvirki í þróunarlöndun- um. Nú eru um 1400 í byggingu eða í bígerð. Auk efnahagslegrar og vísinda- og tæknilegrar aðstoðar veita Sovétríkin þróunarlöndunum aðstoð við menntun innlendra sérfræðinga í ýmsum grein- um: Sérhæföra verkamanna, verk- fræðinga, lækna og kennara, svo eitthvað sé nefnt. T.d. var komið á fót tæknistofnun í Bombay með aðstoð Sovétríkjanna fyrir Málmiðnaðarverið í Bhilai. í Egvptalandi var settur á stofn Iðntækniskóli til að mennta bygg- ingaverkamenn og starfsmenn við Asuan-raforkuveríð við Níl. Samskon- ar menntastofnun hefur tekið til starfa í Sýrlandi í sambandi við Efrat-verið. í fyrstu voru það sovéskir sérfræðingar, sem sáu um að miðla af reynslu sinni. Mikill fjöldi sérfræðinga frá þróunar- löndunum stundar nám við æðrí skóla í Sovétríkjunum. Nú eru yfir 60.000 stúdentar og nemendur í æðra háskóla- námi við nám í 150 greinum í sovéskum menntastofnunum. Af ofansögðu verður Ijóst, að þær tölur, sem Oddur Ólafsson tilfærir um aðstoð Sovétríkjanna við þróunarlönd- in, eru verulegar lækkaðar. Hann segir, að vestrænir sérfræðingar telji, að þetta framlag sé um það bil tvö prómill af þjóðarframleiðslu. Það er ekki Ijóst hvaða heimildir blaðamaður- inn notar. En það er einfaldast að nota hinar opinberu tölur frá Sameinuðu þjóðunum. t.d. voru á fundi Fjárhags- og félagsmálaráðs SÞ, sem haldinn var í júlí á síðast liðnu ári, birtar eftirfar- andi tölur. Sé talin með sú aðstoð, sem Sovétríkin veittu Víetnam, Kúbu og nokkrum öðrum ungum ríkjum, sem stefna að nýju lífi, var aðstoð Sovét- ríkjanna við lönd Asíu, Afríku og Rómönsku Ameríku um 40 milljarðar dollara á tímabilinu 1976-1980. Þetta er yfir 1% af brúttó þjóðartekjum landsins. Hvað varðar aðstoðina við lönd þriðja heimsins af hálfu þróaðra vestrænna ríkja, þá mætti minna á, að árið 1981 var aðstoð 17 auðugustu ríkjanna á Vesturlöndum í formi þró- unarhjálpar alls 0.35% brúttó þjóðar- framleiðslu á móti 0.38% árið 1980. Á þessum tíma minnkuðu Bandaríkin aðstoð sína við þróunarlöndin, sem nam 26% og lækkuðu hana niður í 0.2% af brúttó þjóðarframleiðslunni. Oleg Kozlov, APN. Skilgreining hugtaka Kæri Oleg Kozlov. Þótt tilskrif þitt til Tímans sé ekki stílað á mig er eðlilegt að ég svari því, þar sem umrædd grein er birt undir mínu nafni. Það er margt sem okkur greinir á um og líklega einna mest um skilgreiningu hugtaka, svo sem jafnrétti og fullrétti þjóða, rétti til frjálsrar sjálfsákvörðun- ar og jafnvel þróunarhjálp. Það eru mörg íleiri hugtök sem við leggjum- ekki sama skilning í, en það á ekki að koma í veg fyrir að við skiptumst á skoðunum, ekki til að þröngva hug- myndum hver upp á annann heldur til að komast að því hvað okkur greinir raunverulega á um. Það er fyrsta skrefið til gagnkvæms skilnings. Svar þitt við fullyrðingu minni um að Sovétríkin hafi innlimað nýlendur keisaradæmisins í ríkjasambandið sannfæra mig ekki um að þar hafi verið staðið þannig að verki að þar hafi ráðið lýðræðisleg ákvörðun allra þeirra þjóða í Asíu sem nú tilheyra Sovétríkj- unum. En þetta er viðameira mál en svo að það verði sannað eða hrakið í örstuttum blaðaskrifum. Það er ekki úr vegi að segja þér ofurlítið brot af sögu þeirrar fámennu þjóðar sem ísland byggir, og laut útlendu valdi í 700 ár. Sá stjórnmála- maður sem við teljum fremstu þjóð- frelsishetju okkar hét Jón Sigurðsson. Hann barðist fyrir fullveldi og sjálfs- ákvörðunarrétti þjóðar sinnar sem þá var hluti dönsku ríkisheildarinnar og laut konungi hennar. Við teljum að ferill hans hafi risið hæst þegar hann um miðbik síðustu aldar, reis upp á Alþingi og mótmælti þeirri ákvörðun dönsku stjórnarinnar að ísland yrði innlimað að fullu í danska ríkið. Hann stappaði stálinu í samþingsmenn sína og þeir sem áður voru deigir risu upp og komu í veg fyrir þá ógæfu að íslenska þjóðin glutraði niður mögu- leikum sínum til að öðlast fullt sjálf- stæði, sem góðu heilli rættist um öld síðar. Vegna sögu sinnar eru íslendingar viðkvæmir gagnvart hugtökum eins og fullveldi, sjálfstæði og sjálfsákvörðun- arrétt, og fellur miður þegar þau eru notuð gáleysislega. Danir sem réðu íslandi í 500 ár voru skilningsgóðir þegar sá tími rann upp að smáþjóðin norður í hafi krafðist þess réttar síns að lifa við sjálfstæði og óskoraðan sjálfsákvörðunarrétt. Enda er raunin sú að fáar þjóðir virða Islendingar meira en hina dönsku og er vináttan gagnkvæm og gætir einskis kala á milli þeirra þótt önnur hafi lifað undir áþján hinnar í aldaraðir. Þetta er dæmi um að það treystir og styrkir vináttubönd þjóða að virða rétt hvor annarrar. Réttur þjóða til sjálfsákvörðunar Þú eyðir góðum hluta af grein þinni til að svara litlum þrem setningum úr minni grein. Þær eru svona: „Engri af fyrrum nýlendum keisaradæmisins hef- ur verið gefið sjálfstæði. Hér er auðvit- að átt við þann hluta Asíu sem innlim- aður er í Sovétríkin. Og áfram er haldið að færa út áhrifasvæðið með svokallaðri aðstoð við leppstjórnina í Afganistan." Vestur-Evrópumenn hafa ekki litið á Finnland og Pólland sem nýlendur, hvorki rússneska keisaradæmisins né annarra stjórvelda. Þótt Finnland hafi legið undir umráðasvæði Rússa þegar byltingin var gerð 1917 og nýir tímar gengu í garð átti finnska þjóðin fullan rétt á sjálfstæði, en söm er gerð bolsivíkastjórnarinnar að bjóða Finn- landi og Póllandi að ráða hvaða fram- tíð þjóðirnar kysu sér. En Finnland til- heyrði ekki Rússlandi fremur en Pólland. Minna má á að Finnland hafði áður verið t.d. undir stjórn Svía, og aldrei dettur þeim í hug að gera neinar kröfur sem kynnu að brjóta í bága við fullveldi Finna né fara á hendur þeim með landakröfur. Saga Póllands hefur verið linnulítil sjálf- stæðisbarátta í þúsund ár og gengið á ýmsu. Ríkið hefur verið fært fram og til baka á landakorti voldugra ná- granna.En Pólland hefur líka verið öflugt og eitt sinn tilheyrði hluti af Úkraínu Póllandi, og hafa Pólverjar litla tilburði til að endurheimta þær lendur. Um sjálfsákvörðunarrétt Pólverja í dag erum við áreiðanlega ekki sam- mála. Þar er ekki leyfður nema einn stjórnmálaflokkur, frjáls verkalýðs- hreyfing hefur verið barin þar niður með valdi og herlög gilda í landinu. Svo á að heita að búið sé að afnema þau en lýðréttindi eru fótum troðin og pólska þjóðin er ekki spurð hver á að stjórna henni eða hvernig. í landinu ríkir hvorki lýðræði né lýðréttindi samkvæmt þeim skilningi sem ég legg í þau hugtök. Þótt sovétstjórnin hafi veitt Pólverjum sjálfsákvörðunarrétt um framtíð sína 1917, var sá réttur tekinn af þjóðinni af sömu stjórn síðar. Þær aðferðir sem beitt var við inn- limun Eistlands, Lettlands og Litháen í Sovétríkin samrýmast heldur engan veginn þeim hugmyndum er ég og íslendingar yfirleitt gera sér um sjálfs- ákvörðunarrétt þjóða. Afganistan Það er greinilegt að við höfum ekki við sömu heimildir að styðjast og kemur mjög á óvart sú söguskoðun þín, að styrjöldin í Afganistan hafi hafist með því 'að Vesturlönd með Bandaríkin í broddi fylkingar hafi farið að heyja óyfirlýsta styrjöld gegn lýðveldinu. Við hér á Vesturlöndum Oddur Ólafs- son, skrifar höfum aldrei heyrt um þessa innrás eða að Vesturlönd standi að baki hernaðinum í landinu. Það er rétt að Amin forseti bað um sovéska hernað- araðstoð, en ekki til að berjast við innrásarlið, heldur eigin þegna sem ekki sættu sig við stjórn hans. Ef það er til að efla góða nágrannasambúð að senda 100 þúsund manna herlið til að berjast árum saman við innfædda, hvað mundir þú þá kalla erfiða nág- rannasambúð, Oleg Kozlov? Við hér á Vesturlöndum höfum fremur litlar og sjálfsagt ónákvæmar upplýsingar um átökin.í Afganistan. Fréttamönnum er ekki hleypt inn í landið og hvorki ríkisstjórnin né sov- éska herstjórnin eru útbær um fréttir þaðan. En nokkrar heimildir fáum við þó. Til að mynda fara þar um stríðs- hrjáð svæði nokkrir, hugrakkir fransk- ir læknar, sem hjúkra særðum og lina þjáningar örfárra þeirra sem ótrauðir gerjast gegn stjórnarhernum og hjálp- arliði þeirra. Þessir læknar taka ekki afstöðu til stjórnmálabaráttu í landinu en þeir segja ófagrar sögur af hvernig landsfólkið er leikið. Og svo eru um þrjár milljónir flótta- manna sem hrakist hafa frá ættlandi sínu sem eru til frásagnar um hvernig sovéska hernaðaraðstoðin leikur land þeirra. Þú segir að aðstoð Sovétrikjanna takmarkist ekki aðeins við veru sov- éskra hermanna í landinu, heldurefna- hagsaðstoð og hjálp til uppbyggingar fyrirtækja. Ekki skal það dregið í efa að hún sé veruleg. En að efnahagsað- stoðin sé hið eina sem kallað er „bein áhrif Sovétríkjanna í Asíu“, hljóta skoðanir að vera skiptar um. Hvað er til að mynda með landa- kröfur sem Japanir og Kínverjar gera á hendur Sovétríkjunum? Og hvaða áhrif voru Kínverjar að frábiðja þegar sambúð ríkjanna kólnaði svo að lá við stríðsástandi? Þróunaraðstoð Þá er komið að aðstoð við önnur ríki. Það er vitað mál að Indland hefur þegið mikla aðstoð frá Sovétríkjunum, sama er að segja um Egyptaland og Iran cins og þú tilgreinir. En bæði síðarnefndu ríkin hafa frábeðið sér mikla áframhaldandi aðstoð þar sem þau sættu sig ekki við þau skilyrði sem henni fylgdu. Þú segir að þær tölur sem ég tilfæri um aðstoð Sovétríkjanna við þróunar- löndin séu verulega lækkaðar, en viðurkcnnir um leið, að getið sé rétt til um útreikninginn. I þeirri grein sem þú ert að svara segir: „í þeirri tölu sem Sovétríkin gefa upp sem þróunarhjálp, felast að öllum líkindum hin miklu framlög þeirra til Kúbu, Vietnam, . Ytri-Mongólíu og Laos og aðstoðin við vietnamska herliðið í Kambútseu." Hér greinir ekki eins mikið á og þú vilt láta vera. Þú nefnir tölur sem gefnar voru upp á fundi Fjárhags- og fjármálaráðs SÞ., um heildarframlög til þróunarhálpar. Þær tölur sem byggt er á í mínu skrifi eru úr ársskýrslu Barnahjálpar SÞ, og þær eru ekki hraktar. Ég sagði hér í upphafi að meðal þeirra hugtaka sem við skilgrcinum ckki á sama hátt er þróunarhjálp. Ég tel herleiðangra og vopnasendingar ekki til þróunarhjálpar. Það er ekki þróunarhjálp að þjálfa og vopna kúb- anska pilta til að fara mcð ófrið á hendur innfæddum í nýfrjálsum Afríku- ríkjum, fremur en það var þróunar- hjálp þegar Bandaríkjamenn sendu ógrynni liðs og vopna til að hjálpa vinum sínum í Vietnam. Samkvæmt mínum skilningi er þró- unarhjálp að leggja sitt af mörkum til að forða fátæku og fákunnandi fólki frá örbirgð og gera- það sem í valdi þeirra, sem aflögufærir eru, stendur til að aðstoða það til sjálfshjálpar og sjálfsforræðis. Kveðjur. Oddur Ólafsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.