Tíminn - 25.09.1983, Qupperneq 25

Tíminn - 25.09.1983, Qupperneq 25
 Er feitt frábært? — þyngdarkenningar endurskoðaðar ■ Er Rubenska fegurðin það sem koma skal? ■ Á meðan dapurlegar fréttir berast oss hingað upp á klakann af baráttu sænskra við megrunarsýkina sem gjarnan hrjáir ungar nútíma stúlkur berast gleðilegri fregnir að vestan. Nú er því nefnilega spáð að senn verði stórt álitið stórkostlegt og feitt frábært. Þá muni horrenglur ekki höfða til hins kynsins heldur verði sæmilega holdugt fólk vinsælast. Arthur Harkins prófessor við háskólann í Minnesóta segir að Ungfrú Alheimur árið 2000 verði þrifleg kona og heldur hann því fram, - eins og aðrir vísindamenn sem hafa verið að rannsaka vesturlandabúa og komist að raun um að þeir sem eru að verða einu númeri stærri,- að um það leyti verði sæmileg hold álitin merki sannrar fegurðar og fólk verði hreikið af undirhökum sínum. Feitt fólk er þegar farið að skipa sér í sveitir undir merkinu: Feitt er fallegt. í Ameríku er búið að stofna ýmiss konar frelsishreyfingar feitra og einnig er þar til Landssamband til aðstoðar feitum Ameríkönum. Þar hefur bókin "Feitt getur verið fallegt" verið metsölubók nú um skeið en þá bók ritaði dr. Abraham Friedman frá Miami - tággrannur maðurinn. Læknisfræðilegar niðurstöður hans eru þær að feitt fólk sé oft betur í stakk búið til þess að takast á við ýmis líkamleg fár heldur en þeir sem eru eins grannir og núverandi tíska segir fyrir um. Japanskar fitubollur hafa einnig stofnað með sér félagsskap þar sem þeim er m.a. boðið upp á tískusýningar fyrir feita og geta tekið þátt í íþróttum fyrir feita, en félagarnir í þessum samtökum panta ævinlega tvö sæti í flugvélinni þegar þeir bregða sér bæjarleið. Bretar hafa komið sér upp keppni sem er nokkurs konar fegurðarsamkeppni í þungavigt og talsmenn þarlendra fataverslana segja að nú sé mikilfenglegt fólk að verða mikill bísness. Þá herma fregnir ennfremur að síðast liðin tvö ár hafi sýningarbrúður tískuverslananna fitnað talsvert og talsmenn fataiðnaðarins eru farnir að láta hafa það eftir sér að ekki sé ómögulegt að fólk sem notar föt í stærri númerunt geti samsvarað sér vel. Og síðast en ekki síst sýna nú sífellt fleiri læknisfræðilegar rannsóknir fram á að nokkur aukakíló þurfi alls ekkert endilega að stytta lífið. Nú segir til að mynda dr. Ancel Keys prófessor í lífeðlisfræði að „þrátt fyrir það að árum saman hafi allir trúað þeim áróðri að heilsunni stafi hætta af aukakílóunum er það að mestu leyti ósatt." Hann segist hafa komist að því, ásamt kollegum sínum, að ef fólk þjáist ekki af of háum blóðþrýstingi sé þyngdin alls enginn áhættuþáttur nema um geysilega offitu sé að ræða. Reyndar komst hann að þeirri niðurstöðu að vilji fólk forðast „ótímabæran" dauða sé besta leiðin sú að vera aðeins feitari en meðaljóninn. Þá hefur dr, Williant Bennett í Harward læknaskólanum komist að þcirri niðurstöðu að feitt fólk borði ekkert meira en grannt fólk, feitt fólk lifi ekkert skemur en þau mjóslcgnu og að fitan sem slík orsaki hvorki of háan blóðþrýsting né sykursýki - hafi tilhneigingin til þessara sjúkdóma ekki vcrið til staðar áður. Ennfremur má geta þess að það cr einfaldlega ekki rétt að nær allir geti, með hæfilegum viljastyrk, stjórnað þyngd sinni. Breska heilbrigðisráðuncytið hefur nteira að segja gagnrýnt „harðstjórn almenningsálitsins" sem krcfst þess að allir séu meðalþungir miðað við kyn og hæð, en bætti því þó við að sé fólk tuttugu prósentum þyngra en kjörþyngd segir fyrir um minnki líkamshreysti þess. En sem sagt: Nú er vaxandi tilhneiging til þess í hinum vestræna heirni að álíta það hreint ekkert ægilegt þó fólk sé í þyngra lagi. Og Ameríkanar scm eiga sinn skerf ríflegan af fitubollum hregðast skjótt við að vcnju mcð ýmsu móti, t.d. sérstökum stefnumótamiðlunum fyrir þungavigtarfólkið og sérstökum sjónvarpsþáttum fyrir búttað fólk, að ógleyntdri baráttunni fyrir rúmbetri sætum í flugvélum. CLhRK micHiGnn HUGTAK FYRIR AFKÖST OG ÖRYGGI Hjólaskóflur í stærðum frá 1 rúmm. til 18 rúmm. AFL — AFKÖST ARÐSEMI HAMARHF Velacteild Sími 22123. Pósthólf 1444 Tryggvagötu, Reykjavík. Við erum ódýrari! Póstsendum um land allt Smiöjuvegj 14, sfmi 77152

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.