Tíminn - 01.10.1983, Qupperneq 3

Tíminn - 01.10.1983, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 3 Verkfall mjólkurfræd- inga sfóð stutt í gærmorgun: DEILUNNIVISAD UL FÉLAOS- DÖMS EFTIR FIMM TfMA B „Það segir sig sjálft að hér hefur átt sér stað röskun. Venjulega er byrjað að vinna klukkan sex á föstudugunf, sem eru ukkar mestu annadagar, en nú var ekki byrjað fyrr en um ellefu“ sagði Oddur Magnússun, stöðvarstjnri Mjóik- ursamsölunnar í Keykjavík, þegar hann var spurður um áhrif vinnustöðvunar mjnlkurfræðinga í stöðinni. Mjólkurfræðingar boðuðu sem kunn- ugt er verkfall vegna deilna um afleysing- ar í stöðu forstöðumanns á rannsóknar- stofu Mjólkursamsölunnar. Telja þeir að til afleysinga skuli ráðast mjólkur- fræðingur, sem forráðamenn fyrirtækis- ins telja óþarft. Eftir að verkfall vegna þessa hafði staðið í um 5 klukkustundir í gærmorgun var deilunni vísað til félags- dóms fyrir tilstilli lögfræðinga ASÍ og VSÍ. „Við teljum þessar aðgerðir ólöglegar, „sagði Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar, í samtali við Tímann." Rannsóknarstofan er vel mönnuð og fyrir utan gott starfsfólk með margra ára þjálfun er þar starfandi matvælaverkfræðingur, sem verður að teljast fullnægjandi. Núverandi for- stöðumaður hefur verjð þarna í þrjú ár. Hann er mjólkurfræðingur, en sá sem var á undan honum er dýralæknir. Af því sést, að ekki er sérstaklega þörf fyrir mjólkurfræðing," sagði GuðlaugurBjör- gvinsson. „Þessar aðgerðir eru alls ekki ólögleg- ar. Það er hins vegar alveg rétt að það eru ekki nema fá ár síðan mjólkurfræð- ingur var ráðinn þarna til starfa, en það var hreint og klárt brot á samningi við — Koma þurfti út 200 þús. lítrum af mjólk í verslanir á helmingi skemmri tíma en venja er okkur," sagði Guðmundur Sigurgeirs-, son, formaður Mjólkurfræðingafélags- íns. við Tímann. - En er ekki fulllangt gengið að fara í verkfall vegna þessa þegar menn telja að rannsóknarstofan komist af án mjólkur- fræðings? „Stáðreyndin er sú, að ekki er um að ræða hvort menn geta innt þessi störf af hendi því þau er hægt að kenna hverjum sem er. Hins vegar er þetta réttindamál. Þarna á að starfa mjólkurfræðingur sam- kvæmt samningi og samkvæmt iðnlög- gjöf. Mjólkurfræði er fag og Mjólkur- fræðingafélaginu ber að standa vörð um að ófaglærðir gangi ekki í störf ntjólkurfræðinga. Svo einfalt er málið," sagði Guðntundur. - Sió B 1. Það var handagangur hjá starfs- mönnum Mjólkurstöðvarinnar í gær. Þurftu þeir að koma 200 þúsund lítrum af mjólk í verslanir á helmingi skemmri tíma en venja er. Tímamyndir Róbert

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.