Tíminn - 01.10.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 01.10.1983, Blaðsíða 12
Aðalfundur blakdeildar HK ■ AðalfundUr Blakdeildar HK, i Handknattleiksfélags Kópavogs, verð- ur haldinn nú á mánudagskvöld, -3. október að Hamraborg 1, niðri, Kópa- vori. Fundurinn hefst klukkan 19.30. Á dagskránni eru venjuleg aðalfundar- störf. - SÖE Blakið byrjar á morgun ■ Blakið byrjar á morgun hér á landi, þá verður Reykjavíkurmótinu blakað af stað. Þrír leikir eru þá á dagskrá, í íþróttahúsi Hagaskóla. Klukkan 19.10 hefst aðalviðureign mótsins, að því er talið er, Þróttur og fS í kvennaflokki klukkan 21.50. Næst er svo leikið á sunn udag eftir viku. -SÖE El 1 1 H Valur sigradi KA verdskuldað á Akureyri ■ KA-menn fengu Val í heimsókn í annan leik sinn í 1. deildar-keppninni í handknattleik í gxrkvöldi. Lokatöiur leiksins urðu 23:18 Val í vil og þóttu þau úrslit eðlileg miðað við gang leiksins. KA hafði forystu fram í miðjan fyrri hálfleik en þá tóku Valsmenn mikinn kipp og höfðu yfir í hálfleik, 14:9. Síðari hálfleikur var jafn, þótt Valsmenn hefðu undirtökin og KA náði að minnka mun- inn undir lok leiksins í 23:18. Öruggur sigur Valsmanna í prúðmannlega leiknum og fremur tíðindalitlum leik, að sögn Magnúsar Gauta Magnússonar, markvarðar KA. Magnús Gauti má hins vegar minnast þessa leiks sem merkra tímamóta því hann var að leika sinn þrjúhundruðasta leik með meistara- flokki KA á fimmtán ára ferli sínum. Var honum færður minjagripur frá félaginu í upphafi leiks. Magnús taldi ekki ástæðu til þess að nefna einn leikmann öðrum fremur - liðin hefðu verið jöfn. Næsta leik eiga þeir norðan- menn á heimavelli eftir hálfan mánuð. Körfubolti um helgina Helgarskákmót r a Fáskrúðsfirði ■ Næsta helgarskákmót verður hald- ið á Fáskrúðsfirði um komandi helgi. Hefst mótið á föstudaginn og lýkur á sunnudag. Þetta verður 20. helgar- skákmótið en þau hafa notið mikilla vinsælda og eru orðinn fastur liður í skáklífi íslendinga. Með tilkomu þeirra hefur skákmönnum um allt land gefist kostur á að etja kappi við færustu skákmenn landsins og margir ungir og efnilegir skákmenn hafa þar komið fram á sjónarsviðið. Það er tímaritið Skák sem gengst fyrir helgarskákmótunum og þátttöku ber að tilkynna þangað í síma 31391 og 31975. -JGK ■ Um helgina lýkur Reykjavíkur- mótinu í körfuknattleik. Tveir leikir eru í Meistaraflokki karla í dag og einn í meistaraflokki kvenna, annar skammtur eins á morgun. Að sjálf- sögðu leikið í íþróttahúsi Hagaskóla. í dag klukkan 14.00 keppa ÍR og KR í karlaflokki, þá Valur og ÍS. Að lokum klukkan 17.00 í kvennafloki, ÍR og ÍS. - Á morgun klukkan 14.00 KR og Fram í karlaflokki, þá ÍR og Valur, sem verður að öllum líkindum úrslita- leikur mótsins, þau lið eru fyrir helgina ein taplaus. Sá hefst klukkan 15.30. Að lokum klukkan 17 í kvennaflokki, ÍR og KR. - SÖE Hornamennirnir Hættu lega st i r í liði Kolbotn,sem leikur gegn Víkingi á morgun I í liði Kolbotn, norsku meistaranna í 108 landsleiki fvrir Nnrömenn no hefitr haWi SO lanrlílpiti fvrir Nnrri ÍTiði Kolbotn, norsku meistaranna í handknattleik, sem Ieika gegn Víkingi á morgun klukkan 20.00 í Laugardalshöll í Evrópukeppni Meistaraliða í hand- knattleik, eru hornamennirnirtveir tald- ir hættulegastir. Þeir skora flest mörk liðsins, og eru báðir lykilmen í norska landsliðinu. Þar fer framar í flokki hinn skotfasti Vidar Bauer, sem leikið hefur 108 landsleiki fyrir Norðmenn, og hefur sjaldan verið betri en nú. í hinu horninu er hinn ljóshærði Svein Storkaas, upp- rennandi stjama norskra, hann hefur leikið 13 landsleiki. Kolbotn hefur spilandi þjálfara. Sá heitir Gunnar Helgevold, og flokkast undir einn þeirra „gömlu“. Hann þykir meinseigur refur á velli, enda á hann að baki 50 landsleiki fyrir Noreg. Annar gamall, en þó í fullu fjöri og aðalmaður í landsliðinu er markvörðurinn Björn Steive, á að baki 117 landsleiki. Þá er varamarkvörðurinn ungur og upprenn- andi, Halvor Dahl með 14 landsleiki að baki. Þá leika í liðinu landsliðsmennirnir Tom Staberg með 5 landsleiki, Runar Bauer með 4 landsleiki og hínn ungi Geir Brekke, sem á að baki 4 unglinga- landsleiki. Ekki má heldur gleyma aðal- skyttu liðsins, Lars Christian Haneborg, sem hefur yfir ótrúlegum skotkrafti að ráða, segja fróðir, og á að baki 31 landsleik fyrir Noreg. - Það fer ekki milli mála að hér fer besta félagslið Norðmanna, og mega víkingar aldeilis spila út ásunum sinum ámorgun... -SÖE Steinar Birgisson í kröppum slag. Nær hann ásamt félögum sinum að stöðva hina illvígu hornamenn Kolbotn, ásamt stórskyttunni Haneborg? ,Norömennirnir höfðu heima- dómara með sér” ■ - Norðmennirnir höfðu dæmigerða heimadómara með sér í leiknum í Kolbotn", sagði Hörður Harðarson, Víkingur er rætt var við hann um leik Víkings og Kolbotn á morgun. „Þeir unnu okkur á þessu þar, en hér eigum við alla möguleika á að taka þá“ sagði Hörður, en hann er nú fyrst að vinna sér fast sæti í Víkingsliðinu, eftir rúmlega tveggja ára dvöl. Hörður lék áður í Haukum í Hafnarfirði við góðan orðstír, og lék m.a. landsleiki fyrir þeirra hönd. Hörður var einn aðalmanna Víkinga í leiknum úti, skoraði tvö mörk í lokin og fiskaði tvö vítaköst, eftir að skyttumar Sigurður Gunnarsson og Viggó Sigurðsson voru teknar úr umferð. „Ég tel að við eigum alla möguleika gegn þessu norska liði. Staðreynd málsins er, að þeir höfðu dæmigerða heimadómara í Kolbotn. Það kom berlega í ljós þegar ég komst í hraðaupphlaup í lok fyrri hálfleik, stökk upp við punktalínu, og markið blasti við mér. Þá reif sænski leikmaðurinn í liði Kolbotns í hendi mér og ég skall með hnakkann í gólfið. Þetta var óvenju ruddalegt brot og sá brotlegi verðskuldaði útilokað og við víti. En því var ekki að heilsa - þeir létu sér nægja að dæma aðeins fríkast," sagði Hörður. „Þessi leikur endurtók sig í lok leiksins. Þá komst ég í gegn um vörn Kolbotns og aftur var rifið aftan í hendina. Þeir eru miklir klaufar í brotum og ég reikna með að tekið verði harðar á brotum þeirra í Höllinni. Við höfum æft vel stöndum nær góðum leik en í Noregi - erum reiðubúnir að taka á móti þessu norska liði.“ - SÖE Norsk blöð — með leikinn, en óttuðust að forystán væri ekki nóg ■ Norsk blöð hrósuðu mjög Kolbotnlið- inu lyrir fyrri leik þess gegn Víkingi í Evrópukeppni-meistaraliða í handknattleik sem leikinn var í Kolbotn. Blöðin sögðu, að Koibotn hefði leikið sinn langbesta leik í vetur, og að sigur vxri frábxr árangur gegn íslensku liði. Helst skammast norskir blaðamenn yfir því í skrifum sínum um leikinn, að Norðmennirnir bafi sofnað á verðinum, þegar þeir höfðu náð 5 marka forystu í leiknum, því tveggja raarka for- skot sé hxttulega lítið í veganesti fyrir leikinn í Rcykjavík. „Gífurlegur hraði - návígi þar sem ekkert var gefið eftir - slagsmál og munn- söfnuður. Viðureign Víkings frá íslandi og Kolbotn var hrein orusta. Kolbotn notfærði sér slæman kafla íslenska liðsins í lok fyrri hálfleiks og náði forustu, sem hefði átt að nægja í 2 umferð. En þeir náðu ekki að halda hinu góða forskoti og ferðast til Islands með tvö vesæl mörk til að reiða sig á,“ skrifaði norska Dagbladet. „Kolbotn lék sinn besta leik - en reynist það nóg,“ skrifaði norska Arbeiderbladet. Blaðið heldur áfram: „Möguleikar Kol- botns á að komast í 2. umferð Evrópu- keppni meistaraliða urðu ef til vill að engu á þremur síðustu mínútum leiksins. Einum víkinganna var vísað af leikvelli en Kolbotn náði þrátt fyrir það ekki að auka við forustu sína. Það var ánægjulegt að Kolbotn vann með tveimur mörkum, 20-18 og það var ánægjulegt að liðið lék sin besta leiki vetur - en verður það nóg þegar liðin mætast í Reykjavík? _ söE Forsala á leik Víkings og Kolbotn ■ Forsala aðgöngumiða fyrir leik Víkings og Kolbotn verður frá Idukkan 13-16 í dag ■ LaugardaLshölIinni, og miðasala hefst klukkan 17.00 á morgun. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 20.00. - SÖE Þór vann Breiða- blik lettilega! ■ Þór Vestmannaeyjum vann mikilvægan sigur á liði Breiðabliks í 2. deildarkeppninni í handknattleik er leikið var í íþróttahúsinu ad Varmá í Mosfellssveit í gærkvöldi. Leikslok urðu 24-18 fyrir Vestmannaeyingana. í hálflcik var staðan 10-8 fyrir Þorberg Aðal- steinsson og félaga og var fyrri hálfleikurinn tiltölulega jafn. I síöari hálfleik meiddist svo besti maöur Breidabliks, Kristján Gunnarsson og var borinn af velli. Eftir þaö var ekki spurning um hvort liðiö sigraöi. Þrátt fyrir að Blikar tækju atkvæðamestu menn Þórs, þá Þorberg og Gylfa Birgisson, nægöi þad ekki og lokatöiur uröu sem fyrr segir 24-18. Gylfi skoraöi 8 og Þorbergur 7 fyrir Þór en Kristján var markahæstur Blika med 7 mörk. _Jó|. Handbolti um ■ f dag eru tveir leikir í annarri deild karla í handbolta, og fjórir í þriðju deild karla. Þá er fyrsti leikurinn í kvennaflokki í dag á fslandsmótinu. 1 ídagleikaÍRogÞórfráVestmanna- eyjum í Höllinni í Laugardal klukkan 14.00 í 2 deild karla, og strax á eftir Frám og Reynir f sömu deild. Að þeim leik loknum taka við í Höllinni, klukk- an 16.30, Ármann og f A. Að auki eru í þriðju deild karla auk þess leiks Týr og Ögri í Eyjum klukkan 14.00, helgina Skallagrímur og Keflavík'í Borgamesi ,á sama tíma, og Selfoss og Afturelding á Selfossi. - I annarri deild kvenna keppa á Selfossi Selfoss og Keflavík strax á eftir karlaleiknum, klukkan 15.15. Á morgun er svo miðdepill íþrótta- viðburða helgarinnar hérlendis, Evrópuslagur Víkings og Kolbotn. Hann hcfst í Hollinni klukkan 20.00 annað kvöld. -SÖE <wmm . . . af ylvolgu þríggja koma körfubrauðunum frá Samsölubrauðum Omlssandí brauð til morgunverðar - jafrit og í nestíspakkann. Hollusta og grófleíkí eínkenna nÝju þríggja koma körfubrauðín.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.