Tíminn - 01.10.1983, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
9
á vettvangi dagsins
Stjórnmálaályktun framkvæmdastjórnar SUF:
Vara við öllum útboðs- og
söluhugmyndum í heilbrigð-
iskerfinu
■ Stjórnmálaályktun sjöunda fundar
framkvæmdastjórnar Sambands ungra
Framsóknarmanna. Fundurinn var hald-
inn að Rauðarárstíg 18 þann 17. sept.
Framkvæmdastjórn Sambands ungra
framsóknarmanna lýsir vfir stuðningi
við ríkisstjórn Steingríms Hermannsson-
ar.
Framkvæmdastjórn SUF lýsir yfir
ánægju sinni, með þann árangur sem
náðst hefur í niðurtalningu verðbólgunn-
ar undir forystu forsætisráðherra,
Steingríms Hermannssonar, en minnir
iafnframt á að forsenda þess árangurs
sem náðst hefur er m.a. skilningur
almennings á þeim aðgerðum sem grípa
þurfti til. Þennan skilning'verður ríkis-
stjórnin að meta, og má því ekki að
óbreyttu ganga nær fjárhag heimilanna
en orðið er. í þess stað á ríkisstjórnin að
ganga á undan með góðu fordæmi og
draga saman í ríkisgeiranum. Fram-
kvæmdastjórn SUF leggur á það áherslu,
að næstu árin verði sýnd festa í stjórn
landsmála, svo að unnt verði að hefja
nýja sókn til betri framtíðar. Þar verði
lögð áhersla á eftirfarandi:
- Hjöðnun verðbólgu.
- Viðunandi jafnvægi í viðskiptum við
önnur lönd.
- Verndun kaupmáttar lægstu launa
og. iífskjara þeirra sem þyngst fram-
færi hafa
- Atvinnuöryggi
Framkvæmdastjórn SUF vill minna á
að hlutverk Framsóknarflokksins í þess-
ari ríkisstjórn er að standa vörð um
velferðarþjóðfélagið, það þjóðfélag sem
Framsóknarflokkurinn hefur byggt upp.
Því vill framkvæmdastjórn SUF vara við
öllum útboðs- og söluhugmyndum f
heilbrigðisþjónustunni og annarri félags-
legri þjónustu.
Framkvæmdastjórn SUF lýsir yfir
ánægju sinni með að tekist hafi að ná
bráðabirgðasamkomulagi við Alusuisse
um hækkun á raforkuverði til ÍSAL.
Framkvæmdastjórnin telur að sam-
komulagið sé mikilvægur áfangi til frek-
ara samkomulags um verulega hækkun
á raforkuverði til ÍSAL. Framkvæmda-
stjórnin telur að þetta bráðabirgðasam-
komulag sýni ótvírætt að málstaður
framsóknarmanna í fyrri ríkisstjórn var
réttur og sanni að unnt hcfði verið að ná
samkomulagi um hækkun raforkuverðs
fyrr, gagnstætt því sem fyrrverandi iön-
aðarráðherra, Hjörlejfur Guttormsson,
heldur fram.
Mistök Hjörleifs Guttormssonar í
álmálinu ættu því að vera íslensku
þjóðinni víti til varnaðar.
Framkvæmdastjórn SUF lýsir yfir
ánægju sinni með nýstofnuð samtök
húsbyggjenda. Framkvæmdastjórnin
telur að slík samtök undirstriki það
aðgerðarleysi, sem ríkti í húsnæðismál-
um undir forstöðu Svavars Gestssonar,
formanns Alþýðubandalagsins.
Framkvæmdastjórn SUF skorar á
félagsmálaráðherra og ríkisstjórn að
gera nú þegar verulegar úrbætur í
málefnúm þeirra sem eru að byggja eða
ka.upa húsnæði. Þörfin fyrir umbætur
eru ekki síst hjá því fólki sem var að
eignast húsnæði á meðan húsnæðismálin
voru í heljargreipum Alþýðubandalags-
ins.
Frantkvæmdastjórn SUF ítrekar fyrri
samþykktir sínar um stighækkandi
lánshlutfall í 80% af byggingarkostnaði,
léngingu lánstíma í 42 ár og að ián verði
greidd út til lántakenda í einu lagi.
Framkvæmdastjórn SUF skorar á ríkis-
stjórnina að ná þessum markmiðum á
kjörtímabilinu.
Framkvæmdastjórn SUF telur brýnt
að tekin vcrði upp öflug barátta til
verndunarnáttúru landsins. Þaðerveru-
legur þáttur í lífskjörum manna, að eiga ’
kost á því að búa í ómenguðu umhvcrfi
og hafa aðgang að óspilltu landi.
„Stjórnmálaflokkar
aðeins tæki til að ná
settum markmiðum“
viðtal við Bolla
Héðinsson
formann
Þjóðmálanefndar
SUF
■ Meðal þeirra félagasamtaka sem tví-
eflast og kveðja fjöldann til starfa með
haustinu er Samband ungra framsóknar-
manna. Hyggst sambandið halda mið-
stjómarfund 8. og 9. október n.k. og hafa
hópar til undirbúnings þeim fundi þegar
tekið til starfa. Stjóm S.U.F. setti á
síðasta fundi sínum á stofn allljölmenna
nefnd „Þjóórnálanefnd" og var formaður
hennar skipaður Bolli Héðinsson.
„Þjóðmálanefndin hefur þegar komið
saman og rætt um með hvaða hætti búast
megi við árangri af starfi hennar,“ sagði
Bolli í samtali við Tímann. „Var þar
drepið á ótal málaflokkum sem áhugi er
fyrir innan nefndarinnar að teknir verði
fyrir svo ég geri ráð fyrir að nefndinni
verði skipt upp í smærri hópa enda gefur
nafn nefndarinnar til kynna næsta víðfemt
svið.
Má búast við að Þjóömálanefndin eigi
eftir að koma fram með tillögur og
hugmyndir sem síðar meir geta orðið
stefnumið Framsóknarflokksins?
„Ég held að í gegnum árin hafi það
alltaf verið svo að eitthvað af starfi
ungliðahreyfinga flokkanna hafi náð áð
verða að stefnu þeirra. Ýmist með tiltölu-
lega skjótum hætti eða með þeim hætti
sem gefur auga leið, þ. e. þegar ungliðamir
verða eldri og það fólk sem ber uppi
flokksstarfið.“
Heldur þú að nýjar hugmyndir og
tiUöguflutningur eigi erflðara upp á paU-
borðið í Framsóknarflokknum heldur en
öðrum flokkum?
„Hvað aðra flokka varðar þekki ég það
ekki, en hinsvegar hefur mér virst sem
svo, þann tíma sem ég hef starfað í
S.U.F., að tillögur okkar eigi býsna greiða
leið í gegnum flokksapparatið, allt eftir
því hvaða þunga við sjálf leggjum í þann
tillöguflutning.“
■ Verðlaunahafarnir f.v. Tómas Gíslason, Helgi Haraldsson og Eyjólfur Sturlaugsson
Ritgerðasamkeppni Menningarsjóðs SÍS
Þrír fengu verðlaun
■ Stjóm Menningarsjóðs Sambands
íslenskra samvinnufélaga ákvað á
fundi sínum 8.júní 1982 að veita verð-
laun fyrir ritgerðir í 9. bekkjum grunn-
skóla og framhaldsskólunum. Dóm-
nefnd hefur nú lokið störfum en þátt-
taka var mjög góð.
Fyrstu verðlaun kr. 20.000 hlaut
Helgi Haraldsson, Jaðri í Reykjadal.
Önnur verðlaun kr. 15.000 hlaut
Tómas Gíslason Stuðlaseli 29 í Reykja-
vík.
Þriðju verðlaun hlaut Eyjólfur Stur-
laugsson Hrísateigi 9 Reykjavík.
Dómnefnd skipuðu Finnur Krist-
jánsson fyrrum kaupfélagsstjóri á
Húsavík, Andrés Kristjánsson rithöf-
undur og Gylfi Gröndal ritstjóri. Rit-
gerðirnar munu birtast í næstu heftum
Samvinnunnar.
- JGK
■ Bolli Héðinsson formaður Þjóðmála-
nefndar ungra framsóknarmanna.
Virðist þér sem svo að hin félagslega
deyfð sem sögð er ríkjandi á flestum
sviðum þjóðlífsins teygi sig inn í raöir
ungra framsóknarmanna?
„Vafalaust er það svo að þau samtök
fara ekki varhluta af neikvæðri afstöðu
margra til stjómmálaflokka og félagslegri
deyfð. Ég held þó að S.U.F. geti vel við
unað og virðist mér sem svo að þar sé að
koma til starfa mikið af nýju fólki með
ferskar hugmyndir og haldið baráttugleði.
Það er hinsvegar Ijóst að ungliðasamtök
flokka sem lenda á milli öfgaflokkanna í
þjóðfélaginu eiga oft örðugra uppdráttar
heldur en samtök flokka yst á hvorum
kanti. Ungt fólk vill oft á fíðum ekki þær
málamiðlanir sem verða hlutskipti milli-
flokka.“
Þú getur um neikvæða afstöðu til
stjómmálaflokka hvað áttu við með því?
„Það virðist ljóst að viðkvæði margra er
þegar stjórnmál og stjómmálamenn ber á
góma, að þá sé þetta að meira eða minna
leyti allt saman sama tóbakið. Vissulega
er það svo, að oft á tíðum er það aðeins
stigs munur á baráttu flokka sem skilur þá
að en ekki eðlismunur. Stöðugt úrræða-
leysi og bráðabirgðaráðstafanir eru heldur
ekki til þess fallnar að auka tiltrú manna
á stjórnmálaflokkunum, en það er nú einu
sinni svo að við eigum víst ekki skilið betri
stjórn en við kjósum yfir okkur hverju
sinni. Það gleymist líka allt of oft í
umræðunni um stjórnmálaflokkana að
flokkarnir sem slíkir em ekki markmið í
sjálfu sér, þeir eiga í raun að koma og
fara. Sú þjóðfélagsgerð sem við keppum
að, að ná, það er markmiðið, en stjórn-
málaflokkarnir aðeins tæki til að ná þeim
markmiðum.
Ætlar Þjóðmálanefnd S.U.F. sér þá að
setja sér þau markmið sem hún telur rétt
að Framsóknarflokkurinn eigi að stefna
að?
Já, ég vonast til að við eigum eftir að
skilgreina betur þau markmið sem sam-
eina okkur sem styðjum Framsóknar- •
flokkinn en auðvitað er hugmyndin einnig
sú að Ieita að leiðum til að ná þeim
markmiðum. Til að starfa að þessu þá er
rétt að geta þess að Þjóðmálanefnd S.U.F.
er opin öllum