Tíminn - 01.10.1983, Blaðsíða 24

Tíminn - 01.10.1983, Blaðsíða 24
Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD” Skemnuvegi 20 Kopívogi , Simar (91)7 75 51 4 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 T» abriel HÖGGDEYFAR tíQJvarahlutir EZSST' HTtTOÍTTO Ritstjom 86300 - Auglysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóldsimar 86387 og 86306 Laugardagur 1. oktober 1983 Forráðamenn ENTEKS hf. á íslandi hefja framkvæmdir á lód í Hveragerdi: TEUfl SIG Nll HAFA FENGIÐ GRÆNT UÓS A BANKAflBYRGD — þótt Utvegsbankinn hafi ekki afgreitt málið formlega ■ í gær hófust framkvæmdir á lóð „ENTEKS h/f á íslandi“ í Hveragerði. Þar með er Ijóst að forsvarsmenn fyrirtækisins telja sig hafa fengið g/ænt Ijós hjá Útvegsbankanum varðandi öflun á erlendu láni og bankaá- byrgð. Þetta staðfesti einn af væntanlegum hluthöfum í sam- tali við Tímann, en gat þess jafnframt að ekkert formlegt væri komið frá bankanum. Eins og fram kemur í Tíman- um í gær er hugmyndin að reisa verksmiðju í Hveragerði til framleiðslu á áveiturörum og hefur fyrirtækið einkaleyfi á sölu vörunnar til Afríku, Asíu og Evrópu, með smá undantekning- um þó. Framleiðsluna ætla þeir að hefja eins fljótt og mögulegt er og alls ekki seinna en í desember. Að sögn Karls Guðmundsson- ar sveitastjóra í Hveragerði hef- ur fyrirtækið fullnægt öllum formskilyrðum gagnvart hreppnum, en lóðasamningurinn verður væntanlega staðfestur í hreppsnefnd Hveragerðis nk. þriðjudag. „Við erum ánægðir að fá þetta nýja fyrirtæki hingað“, sagði Karl, „ og þó þau verði fleiri og við vonum að þetta verði hreppnum til fram- dráttar. í frétt Tímans í gær misritað- ist nafnið á fyrirtækinu í Hafnar- firði sem byggir húsin. Það er Börkur h/f í Hafnarfirði. Þá segja forsvarsmenn fyrirtækisins það ekki rétt að gerður hafi verið sölusamningur uppá áttatíu og fjórar milljónir íslenskra króna. Hið rétta sé að gerður hafi verið sölusamningur á framleiðslu fyrstu átta mánaðanna. Ekki vildu þeir nefna tölur í því sambandi. -BK ekki hægt að keyra þær á fullum afköstum ■ Kéttarhöld voru haldin á Akrancsi og i Kcflavík vcgna tveggja skipa scm Eandhclgis- gæslan tók að incintum ólög- legum veiðum skammt norður af Reykjanesi á flmmtudag. Þarna var um að ræða Haförninn GK- 90 og Skipaskaga Ak 102 cn samkvæmt skirtcini l'rá Sigling- armálastofnun cru liæði þcssi skip ineð 1200 hestafla vcl og því óhcimilt að veiða innan 12 mílna lögsögunnar. Vclum bcggja skipanna niun síðan liafa verið breytt og þær færðar niður þann- ig að skipstjórarnir töldu sig vcra í rétti við veiðarnar. Réttarhöld vcgna Hafarnar voru i Keflavík og að sögn Valtýs Sigurðssonar héraðsdómara er Ijóst að vél skipsins hefur verið færð niður. Valtýr sagði að ekki hefði enn verið tckin ákvörðun af hálfu Ríkissaksóknara hvort kært yrði í málinu en bjóst við henni fljótlega. HÆKKUN BÚVÖRUVERDS VARD 4% ■ Verðlagsgrundvöllur bú- vöruverðs hækkar um 4% í dag, og verður því markmiði náð, að hækka búvöruverð ekki meira cn þetta með niðurgreiðslu á áburðarlið vcrðlagsgrundvallar- ins, endurgreiðslu söluskatts á vélum og fleiri ráðstöfunum, samkvæmt því sem Jón Helga- son, landbúnaðarráðherra upp- lýsti blaðið í gær. „Niðurgreiðslan á áburði gengur því til þeirra bænda,“ sagði Jón, „sem framleiða þær vörur sem koma inn í vísitöluna, þannig að áburðarverð á sl. sumri lækkar sem þessu nemur og dregst þetta frá lokauppgjöri bænda við Áburðarverksmiðj- una eða endurgreiðist. Jón sagði jafnframt að aðeins yrði niðurgreiðslur á mjólkur- vörum auknar nú, og í því skyni yrðu 4.7 milljónum króna varið, en það væri gert til þess að útsöluverð mjólkurvara hækkaði ekki meira en 4%. Landbúnaðarráðherra sagði jafnframt að endanleg verð- hækkun á nýslátruðu lægi ekki enn fyrir, en þó lægi það fyrir að ekki yrði um jafnmikla hækkun að ræða og er í bráðabirgðaverð- ákvörðuninni. -AB Mál Skipaskaga var rannsakað á Ákranesi en þar lauk rannsókn ckki í gær. Að sögn Björgvins Bjarnasonar bæjarfógeta var ckki enn búið að ganga úr skugga um hvort vél skipsins hefði verið breytt. Björgvin sagði að niöur- stöðu rannsóknarinnar yröi að vænta í dag. - GSH ■ Þráinn Bertelsson, leikstjóri myndarinnar, býður einn aðalleikarann, Eggert Þorleifsson, velkominn á frumsýn- inguna. Jón Hermannsson, framleiðandi, séstá milli þeirra. Tímamynd Árni Sæberg Réttað á Akranesi og f Keflavík í meintum landhelgisbrotum: VÉLAR BEGGJfl SKIPANNA INNSIGLAÐAR! „NÝTT LÍF” FRUMSÝND í NÝJA BÍÓI í Vestmannaeyjum fá þeir starf hjá Víglundi „Lunda“ verkstjóra með því að segjast vera alvanir menn. Fjallar myndin svo um samskipti þeirra og eyjaskeggja sem munu vera nokkuð skrautleg á köflum. Með aðalhlutverk í mynd- inni fara þeir Eggert Þorieifs- son og Karl Ágúst Úifsson. -FRI ■ Kvikmynd Þráins Bertels- sonar „Nýtt ltf“ var frumsýnd í Nýja bíói rneð po'mp og prakt síðdegis í gær en áður hafði hún verið frumsýnd í Vest- mannaeyjum á fimmtudag. Myndin fjallar um tvo kump- ána sem hyggjast hefja nýtt líf í fiskvinnu í Vestmannaeyjum en báðir hafa þeir verið reknir úr starfi sfnu á Hótel Sögu, annar var matsveinn þar en hinn þjónn. dropar „Kjötkrókur44 í heimsókn ■ „Jú, ég fékk „kjötkrók" í heimsókn, en mér fannst sú heimsókn koma óeðlilega sncmma“, segir einn viðmæl- andi Dags á Akureyri í frétta- viðtaii í nýjasta tölublaði. For- saga þcssa máls er sú að við- mælandinn eldaði lambalæri eitt mikið á sunnudagskvöldi fyrir nokkru og snæddi af því ásamf sonum sínum tveim. Af- gangurinn var settur inn í ísskáp og er í sjálfu sér ekki fréttnæmt, en öðru máli gegnir um áframhaldið og afdrif læris- ins. Eða eins og viðmælandinn segir: „Eg fór svo úr bænum snemma á mánudagsmorgun- inn og yngri sonur minn í skólann. Eldri sonurinn sem er 15 ára var hins vegar heima. Hann vaknaði við umgang í íbúðinni, hélt að ég væri kom- inn aftur og fór fram. Þá mætir hann ókunnugum manni í eld- húsinu sem er með poka í hcndinni. Spurði sonur minn hvað hann væri með í pokanum og sagðist maðurinn ekki vera með neitt og hljóp út og niður stigann. Sonur minn fór því næst út í glugga og sá þá manninn koma út úr húsinu og fara inn í Range Rover jeppa með S-númeri. Um kvöldið þegar ég kom heim sagði sonur minn mér frá þessari heimsókn. Rétt á eftir þegar átti að fara að hita upp lærið kom hins vegar í Ijós að það var horfið úr ísskápnum. Sonur minn náði númerinu á bílnum og ég lét lögregluna vita um málið. Ég kærði þetta hins vegar ekki, því undir niðri fannst mér þetta mjög sniðugt því „Kjötkrókur“ tók ekkert annað úr íbúðinni en lærið, hefur greinilega verið svangur greyið." Póstmenn skapheitir?? ■ Það er ekki alltaf tckið út með sældinni að veita verka- lýðsfélögum forystu. Slíkt mátti formaður póstmannafé- lagsins reyna nýiega, þegar haldinn var félagsfundur vegna undirskriftarherferðarinnar sem verkalýðshreyfingin stendur nú fyrir gegn efnahags- ráðstöfunum ríkisstjórnarinn- ar. Eftir að hafa kynnt málið stóð einn fundarmanna upp og sté í pontu og gagnrýndi for- manninn, stjórnina o.fl., og hafði yfirleitt allt á hornum sér, hvort sem undirskriftar- söfnunina eða annað varðaði. Er reiðilestrinum lauk reyndi formaðurinn að svara fyrir sig, en þá skipti engum togum, að reiði fundarmaður- inn greip nærstatt drykkjarglas traustataki og lét það vaða í átt að formanninum. Sem betur fer geigaði skotið, því annars hefði allt endað með ósköpum, og hafnaði í hljóðnemanum. Við það leystist glasið upp í frumeindir sínar, og rigndi glerbrotunum yfir formanninn, þannig að hann átti fótum sínum fjör að launa. Fundar- maðurinn reiði hafði sig hins vegar á brott við svo búið, og sást ekki meira til hans það sem eftir lifði fundar. Krummi . . . ...sér að fréttirnar af útsölu- kjötinu hafa enn ekki borist til Seyðisfjarðar...?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.