Tíminn - 13.10.1983, Side 12
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1983
ALLIROESri^VEPm
ADVERAÍSUW, #
þiá skilur.,lofmer_
AL WALRAtóLi...
■ Þeir, sem eiga erindi í vinnusali sláturhúss eða frystigeymslur, skulu klæðast sams konar hlífðarfötum og skófatnaði og
starfsfólk hússins.
4uE>vna&> Wttu
iEYMA riJOUÖ ÞlTT
riLf^NA iNNl.
EKKÍ VANURAE> "
SEYMA iNN 1
EU>HUsi HEv/riA
HJÁ
■ Halda skal húsakynnum þessum vel hreinum og ekki má nota þau til annars en
þess sem þau eru ætluð til.
r
Abendingar um
hreinlæti í
sláturhúsum og
vinnslustöðvum
■ Auglýsingadeild Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga hefur gert
og sent frá sér bækling með ábend-
ingum um hreinlæti og þrifnað
starfsfólks í sláturhúsum og
vinnslustöðvum á vegum Rann-
sóknarstofu Búvörudeildar.
í inngangi bæklingsins, sem gef-
ið hefur verið heitið „Hreint og
beint“ segir „Til matvæla, þ.á.m.
kjötvara eru gerðar miklar kröfur
um að þau séu holl og heilnæm en
einnig að þau hafi sem mest
geymsluþol.
Af þessum sökum eru settar
mjög strangar reglur um alla
meðferð, húsakynni og útbúnað
við framleiðslu þeirra.
En skki er nóg að húsnæði og
tæki séu sem best, starfsfólkið
verður einnig að þekkja þær
reglur, sem settar eru, og virða
þær.
Hér eru dregnar fram nokkrar
af þeim meginreglum, sem snerta
starfsfólk við matvælaframleiðslu.
Þessar reglur er að finna í lögum
og reglugerðum um matvælafram-
leiðslu, en hér er reynt að gera þær
aðgengilegri, ekki síst fyrir nýtt
starfsfólk.“
í bæklingnum eru síðan tíndar
til greinar úr reglugerðum, sem
varða hreinlæti og aðbúnað í slát-
urhúsum og vinnslustöðvum. Til
áréttingar þeim eru svo birtar gam-
ansamar teikningar, sem í sumum
tilfellum segja meira en mörg orð,
en vekja vissulega til umhugsunar.
KÆFU-
TRÍÓ
■ í nýjasta tölublaði hins glæsilega tímarits
Gestgjafans er að venju að finna margar girnilegar
uppskriftir að hinum og þessum réttum. Meðal
annars vakti athygli okkar nýstárlegur forréttur
sem gefið hefur verið nafnið „Kæfu-tríó“. Upp-
skriftin er fyrir 8-10 manns.
Tómatlag
1 kg. ds. niðursoðnir tómatur,
skinnlausir
safi úr Vi sítrónu
1 msk. sykur
cayennepipar á hnífsoddi
salt
2 dl. kjöthlaup (ylvolgt)
1 Vi dl. þeyttur rjómi
Sigtið allan safa vandlega af tómötum
og merjið þá í gegnum sigti eða setjið í
blandara. Kryddið og smakkið til.
Hellið kjöthlaupinu út í og strax á eftir
er þreytta rjómanum blandað vandlega
saman við. Sett í glerskál og kælt.
Spínatlag
400 g. spínat (frosið eða nýtt)
40 g. smjör
2 dl. kjöthlaup
salt/pipar
safi ur Vz sítónu
IV2 dl. þeyttur rjómi
Bræðið smjörið á pönnu og kraumið
spínatið í smjörinu í 5-7 mín. Kryddið
og merjið í gegnum sigti eða hrærið í
blandara. Kælið.
Blandið ylvolgu kjöthlaupinu út í. Að
síðustu er þeytta rjómanum blandað
varlega saman við. Hellið þessari blöndu
ofan á tómatblönduna í skálinni og látið
stífna í kæli.
Kjúklingalag
600 gr. kjúklingabrjóst (beinlaust kjöt)
2 dl. kjöthlaup
2Vi dl. þeyttur rjómi
salt/pipar
Kryddið kjúklingabrjóstin og steikið í
eldfastri skál með loki í 160°C heitum
ofni í 40-60 mín. Fjarlægið síðan skinn
og bein og hakkið kjötið í gegnum fínt
sigti í hakkavél, 2svar og 3svar sinnum.
Hrærið síðan ylvolgu kjöthlaupinu út í.
Að síðustu er þeytta rjómanum blandað
varlega saman við.
Hellið þessu hlaupi ofan á hin 2 í
skálinni og kælið.
Að síðustu er kjöthlaupi hellt ofan á
kjúklingalagið, þannig að um 'h cm
þykkt kjöthlaup sé yfir alla skálina.
Borið fram með t.d. ristuðu brauði.
Kjöthlaup
1.1 kjötsoð (t.d. Klara Brúhe)
16-18 blöð matarlím
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
Hitið kjötsoðið að suðu. Kreistið vatnið
úr matarlíminu og setjið blöðin út í
soðið. Hrærið vandlega í sundur og
sigtið soðið. Kælið síðan við herbergis-
hita og notið það ylvolgt við blönduna í
þykknin. (Soðið má vera við það að
byrja að þykkna)