Tíminn - 01.11.1983, Side 1
Síðumúla 15—Postholf 370Reykjavik—Rítstiom86300—Augtysingar 18300— Afgreidsía og áskrift 86300 — Kvöidsímar 86387 og 86306
Allt um íþróttir helgarinnar. Sjá bls. 11-14
■ ■
FJ( )U BR EYl m HRA
OG B 0 KA B LAÐ!
Þriðjudagur 1 253. tölublað nóvember 1983 - 67. árgangur
■ HérsjástskipsbrotsmennirnirþríráflugvellinumáStykkishólmieftiraðþyrlalandhelgisgæslunnarTF-Ránhafðibjargaðþeimágiftusamleganhátt. Annar frá vinstri, í svartri peysu, er Pétur
Sigurðsson vélstjóri. í Ijósu skyrtunni er Gunnar Víkingsson skipstjóri og lengst til hægri er Ragnar Berg Gíslason stýrimaður. Maðurinn á milli þeirra Péturs og Gunnars er fulitrúi
sýslumanns. Timamynd: Árni Sæberg
Áhöfnin á Haferninum var í talsambandi við hafnarvörð rétt áður en báturinn sökk:
ÞRIGGJA INANNA ENN SAKNAD
HINIIM ÞREMUR LfDUR VEL
■ Þriggja manna er saknað en
þrír menn komust af þegar vél-
báturinn Haförninn SH 122 sökk
við Bjarnareyjar á Breiðafirði í
gær. Mönnunum sem af komust
var bjargað í þyrlu Landhelgis-
gæslunnar en tveir þeirra höfðu
komist á sker og einn var í
gúmbjörgunarbát sem rak á land
á eynni Lón. Leitað var á svæð-
inu fram í myrkur að hinum
skipverjunum en án árangurs.
Mjög slænit veður var á þess-
um slóðum þegar slysið varð, um
7-8 vindstig og brim við eyjarnar.
Haförninn var í sambandi við
hafnarvörðinn í Stykkishólmi
skö'mmu áður en slysið varð en
þá var skipið nálægt Bjarnarcyj
um. Litlu seinna sást til gúm-
björgunarbáts á rcki og tilkynnti
skip, sem statt var á þessum
slóðum, þegar um bátinn til
Stykkishólms og hafnarvöröur
hafði strax samband við Slysa-
Fundur norsk-íslensku fiskveiðinefndarinnar um loðnuveiðar:
JSYNIIM AB FÁAllAN KVðlANN
segir Jón L. Arnalds, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu
■ „Við eigum inni hjá Norð-
mönnum 156 þúsund tonn þann-
ig að við getum veitt þau án þess
að skulda þeim neitt. Hins vegar
ættu þeir að fá 15% af því sem
veitt verður umfram, en hvort
það verður get ég ekki sagt fyrr
en eftir fundinn," sagði Jón L.
Arnalds, ráðuncytisstjóri í sjáv-
arútvegsráðuneytinu, en hann á
sæti í norsk-íslensku fiskveiði-
nefndinni, sem kcmur saman í
Oslo á morgun til að semja um
þann kvóta sem heimilað verður
að veiða á komandi loðnuvertíð.
Jón sagði, að ef miðað væri við
375 þúsund tonna veiði, serti er
tillaga vinnunefndar Alþjóða-
fiskveiðiráðsins, þá ættu Norð-
menn að fá 33 þúsund tonn, sem
eru 15% af því sem eru umfram
156 þúsund tonn.
„Spurningin er, vegna þess að
útlit er fyrir að þetta veiðist allt
innan okkar landhelgi, hvort
ekki er hægt að versla við þá
þannig, að þeir eigi þessi 33
þúsund tonn inni þangað til næst.
Við munum að minnsta kosti
reyna að fá allan kvótann núna,"
sagði Jón. -Sjó.
Sjá nánar bls. 4
- -• •
varnafélag Islands. Þá varklukk-
an 14.40.
Slysavarnafélagið gerði þegar
ráðstafanir til leitar og hafði
samband við Landhelgisgæsluna
sem sendi TF Rán af stað og
einnig var send þyrla frá varnar-
liðinu TF Rán bjargaði mönnun-
um þrem klukkan rúmlega
fjögur og voru þeir fluttir á
sjúkrahúsið í Stykkishólmi þar
scm þeir dvöldu í nótt. Þeir voru
sæmilega á sig komnir en einn
mun hafa sopið eitthvað af sjó.
Leit verður haldið áfram í dag
að þeim sem enn er saknað og
mun þyrla koma á staðinn til
hjálpar í birtingu.
Nöfn þeirra sem enn er saknað
eru: Pétur Jack, Kristrún Ósk-
arsdóttir, matsveinn og Ingólfur
Kristinsson. Þeirsembjörguðust
heita Gunnar Víkingsson skip-
stjóri, Pétur Sigurðsson vélstjóri
og Ragnar Berg Gíslason stýri-
maður. -GSH/BK
Sjá nánar bls 4-5