Tíminn - 01.11.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 01.11.1983, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 ■ Pönnukökur hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi, en oftast nær eru þær bornar fram á annan veg af tveim, annað hvort upprúllaðar með sykri innan í eða brotnar saman, fylltar með þeyttum rjóma og góðri sultu. En pönnukökur' geta tekið á sig ýmsar myndir, og m.a. cru ósætar pönnukökur með margvíslegum fyllingum hreint hnossgæti. Hér á eftir skýrum við frá nokkrum afbrigðum. Grunndeigið Þessi uppskrift nægir í 8-10 pönnukökur. 120 g hveiti salt á milli fingurgóma 1 egg 1/4 1 mjólk, eða sama magn af blöndu af mjók og vatni 15 g smjör, bráðið Sigtið saman hveitið og saltið. Gerið holu í miðju hrúgunnar og bætið þar út í egginu, ofurlitlu af vökvanum og smjörinu. Hrærið nú hægt og rólega í mcð trésleif og hrærið hveitið smám saman saman við. Hrærið, þar til soppan er orðin samfelld. Bætið þá afganginum af vökvanum saman við. Hitið nú pönnuna og smyrjið þunnu lagi af olíu, ef hún hefur orðið of mikil, skuluð þið hella umfram magninu af. Hellið nú nógu mikilli soppu á pönnuna til að hylja botn pönnunnar þunnu lagi. Látið stikna þar til orðin er gullin (í 1-2 mín.) Snúið pönnukökunni við og látið stikna hinum megin. Takið af pönnunni og leggið á rakan eldhúspapp- ír. Leggið síðan alltaf eldhúspappír á milli pönnukakanna. Þessar pönnukökur geymast í allt að því viku í ísskáp, vel innpakkaðar í smjörpappír eða vaxpappír. Tilbrigði Heilhveiti Hafið heilhveiti í stað hvíts hveitis og steikið ívið lengur. Sítrus. Bætið út í fínt rifnu ysta laginu á sítrónu-, appelsínu eða limebcrki. Hafrar. Notið valsaða hafra í stað 1/4 hveitisins. Súkkulaði. Sctjið kakó í stað 1/8 hveitisins. Bætið 2 tsk. af sykri út í. Bragðgott ofanálag Stráið yfir sykri. Strjúkið yfir mcð ■ Sjávarréttur í sérflokki er upplagður sem kvöldsnarl eða sem forréttur. ■ Krydduð chilirúlla er matarmikil og krassandi. ■ Banana — ananas pönnukökur eru góður eftirréttur Pönnukökurog aftur pönnukökur eldheitri skeið og gerið munstur. Þá myndast karamcllulík skán. Stráið sykri yfir og setjið undir grillið, þar til hann er bráðnaður. Stráið stökkum, steiktum lauk yfir og hakkaðri steinselju.. Crépe Su/.ette 1/4 1 af pönnukökusoppu, þar ineð talið fínt rifið ysta lagið af appelsínuberki. 90 g sykur 90 g smjör börkur af einni appelsínu börkur af einni sítrónu 3-4 insk. Cointreau líkjör börkur og kjöt úr anarrri appelsínu 2-3 msk. koníak. Stcikið pönnukökurnar, stallið þeim upp og haldið hcitum. Hrærið saman sykurinn, smjörið, niðurskorinn appel- sínubörkinn og sítrónubörkinn og Coin- treau líkjörinn. Smyrjið þessu appel- sínusmjöri á ncðri hlið kakanna (þá hlið, sem fyrr var stcikt), en skiljið eftir a.m.k. 2 msk. Staflið kökunum upp og hafið nú engan pappír á milli. Breiðið yfir. Skerið nú börkinn af hinni appelsínuni í þunnar ræmur takið kjötið frá og deilið í báta. Hitið appelsínubátana á steikar- pönnunni í 2 msk., af appelsínusmjör- inu. Brjótið nú hverja köku saman í fernt og leggið 3-4 þeirra í steikarpönn- una, úti við kantana. Stráið appclsínu- berkinum yfir. Hitið koníakið. Hellið svolitlu af því yfir kökurnr. Berið nú eld að, en sýnið fulla varúð. Farið eins að með kökurnar, sem eftir eru. Ef áætlað koníak reynist ekki nóg, bætið þá við. Krydduð Chilirúlla 1/4 1 soppa 60 g niðursneitt beikon 1 laukur, flysjaöur og smátt skorinn 1 stöngull sellerí, niðursneiddur 15 g smjör 240 g hakkaö nautakjöt 2 msk. tómatmauk 1/2-1 tsk. Chiliduft 280 g ds. nýrnabaunir, saflnn síaður frá 1/4 1 nautakjötskraftur salt og pipar 50-60 g mjókurostur, niður riflnn Bakið kökurnar, staflið þeim upp og haldið hcitum. Steikið beikonið, laukinn og sellcríið í smjörinu. Bætið nautakjöt- inu, tómatamaUkinu. ehiliduftinu. baun- unum og nautakjötskraftinum út í. Látið krauma undir loki þar til kjötið er orðið meyrt og vökvinn hefur að miklu leyti soðið upp. Kryddið. Skiptið þessu nú niður á pönnukökurnar og rúllið þær utan um. Bakið í 190 C heitum ofni í 15 mín. Stráið ostinum yfir. Sjávarréttur í sérflokki 1/4 1 soppa 280 g ds. af túnfiski, síiö soðið frá 120 g rækjur 180 g baunaspírur 120 g niðursoðinn máis, síið soðið frá 3 msk. smátt niöurskorin græn papríka 150 g krukka af sætri og súrri sósu 150 g sýrður rjómi 2 msk. niðursneiddur graslaukur Bakið kökurnar, staflið þeim upp og haldið heitum. Hrærið saman túnfiski. rækjum, baunaspírum. maís, papriku og sósu. Deilið niöur á kökurnar, sem eru vafðar utan um fyllinguna eins og myndin sýnir. Banana — ananas pönnukökur 1/4 1 soppa 1/2 tsk. kanill eða blandað krydd 210 g ds. ananasbitar 60 g sykur rifínn börkur af einni sítrónu 1 banani, sneiddur niöur Bakið pönnukökurnar, staflið þeim upp og haldið heitum. Sjóðið ananassaf- ann og sykur, þar til verður karamellu- kent. Bætið út í ananasbitunum, 1 tsk. sítrónuberki og banananum. Deilið niður á pönnukökurnar. Leggið þær saman eins og venjulegar rjómapönnu- kökur. Stráið því sem eftir er af sítrónu- berkinum yfir. ■ Pönnukökur, hvort heldur er sætar eða ósætar, er fljótlegt og auðvelt að gera og yfirleitt er efni- viðurinn alltaf til á sérhverju heimili. Siðan er það fyllingin, sem gefur tilbreytinguna í pönnukökugerðinni. Það er sama hvort pönnukökurnar eru borðaðar kaldar með rjóma og sultu á milli eða hitaðar upp með beikoni og eggjum, eða jafnvel skornar niður í ræmur og notaðar til skrauts i súpur og á kjötrétti, alltaf smakkast þær vel. Þaér má auðveldlega geyma i frysti, en þá má ekki gleymast að leggja vax- pappir á milli þeirra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.