Tíminn - 01.11.1983, Page 2
I'RIÐJUDAGUR l. NÓVKMBER 19ÍÍ3
fréttir
Framsóknarkonur:
VIUA Nll HELMINGASKIPI11 NEFND-
UM OG RÁOUM FRAMSÓKNARFLOKKSINS
— íhuga sérframboð verði hlutur kvenna óbreyttur þegar líður að næstu kosningum
■ l>ing Landssambands framsóknar-
kvenna sem lialdió var á Húsavík nú um
lielgina og sótt af á milli 60 og 70 konum
beinir þeirri áskorun til forystu Fram-
sóknarflokksins að lneta hlut kvenna í
ábjrgðarstöóum innan (lokksins þannig
að lilutur þeirra verði jafn á við hlut
karlanna.
„I’essi ályktun er auðvitáð fyrst og
fremst tilkomin vcgna þess að lilutur
kvenna í Framsóknarflokknum er allt of
lítill. Framsóknarflokkurinn á fterri kon-
ur í nefndum og ráðum en aðrir flokkar,”
sagði Sigrún Sturludóttir nýkjörinn
formaður Lándssambands framsóknar-
kvenna i samtali við Tímann, en Sigrún
var kjörinn formaður á þinginu nú, mcð
29 atkvæöum. en Unnur Stefánsdóttir,
Kópavogi, sem einnig var í framboði til
formanns hlaut 19 atkvæöi. Gerður
Steinþórsdóttir, frúfarandi formaður gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Konurnar gera það að kröfu sinni að
stjórnir blandaðra flokksfélaga, fulltrúa-
ráða og kjördæmissambanda verði aö
helmingi skipaðar konum og að a.m.k.
4 konur verði í 9 ntanna framkvæmdti-
stjórn flokksins. auk þess sem þær vilja
að lormaður L.F.K. fái nú þegarseturétt
ú fundum framkvæmdastjórnar og þing-
flokks með ntúlfrelsi og tillögurétt, en
þann rétt Itefur forntaður S.U.F.
í ályktun kvennanna segir jafnframt:
„Verði hlutur kvenna innan flokksins
óbreyttur þegar líður að næstu kosning-
■ Sigrún Slurludóttir, nýkjurinn for-
maöur Landssambands framsóknar-
kvenna
um, hljóta framsóknarkonur að íltuga
;iö bjóða fram kvennalista innan flokks-
ins við hæstu kosningar."
Vegna þessa og kröíunnar um helm-
ingaskipti spurði Tíminn Sigrúnu hvort
konur í L.F.K. teldu sig ráða yfir
helmingi atkvæða Framsóknarflokksins:
„Konur í Frantsóknarflkokknum eru
ekki helmingur flokksmanna, en stað-
reyndin er cinu sinni sú, með því aðgera
svo róttæk.i breytingu og við gcrum
kröfu um, þú fúum við konur til starfa í
flokknum og nýjar konur inn í flokkinn.
Það vcröur bókstaflcga að auka hlut
kvenna í flokknum frá því sem nú er."
Sigrún sagðist vonast til þess að þessi
ályktun yrði til þess að flokksfo'rystan
tæki nú við sér, svo það þyrfti aldrei aö
koma til að konurnar þyrftu að bjóða
fram sér.
Sigrún sagði um þingið að það hefði
vcrið gott þing og mörg góð múl hefðu
verið rædd þar. Sagði hún að stefnuskrú
flokksins, launamúl kvenna, friðarmúl
og fjölskyldupólitík heföu verið mikið
rædd ú þinginu, en óneitanlcga hefði
mcstur tíminn farið í að ræða liðinn
konur og stjórnmál.
Sigrún sagðist mjög ánægð með stjórn
þú scnt kosin var á þinginu en cftirfar-
andi konur skipa stjórnina:
Sigrún Sturludóttir, formaður. í fram-
kvæmdastjórn voru kosnar Drífa Sigfús-
dóttir Keflavík, Ragnheiður Svein-
björnsdóttir Hafnarfirði, UnnurStefáns-
dóttir Kópavogi, Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir Reykjavík. Aðrar í stjórn
eru: Ingibjörg Púlmadóttir Akranesi,
Magdalcna Sigurðardóttir Isafirði, Hall-
dóra Jónsdóttir Siglufirði, Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir Akureyri, Þórdís
Bergsdóttir Seyöisfirði, Ásdís Ágústs-
dóttir Selfossi. Varastjórn: Jónína Hall-
grímsdóttir Húsavík, Þrúður Héígadótt-
ir Mosfellssveit, Guðríöur Ólafsdóttir
Reykjavík.
-AB
Brutust inn íVíkurskála íVík í Mýrdal
og stálu 150 kg. peningaskáp:
Grófu skápinn niður
og merktu með röri
— Kaupfélagsstjórinn og gjaldkerinn fundu þýfið
■ Tveir pillar brutiist inn í Víkurskála
í Vík í Mýrdal, aðlarariiótl sunnudags,
og slálu þaðan 150 kg. peningaskáp sem
lelldur var inn í innréllingu á skrifslolu
verslunarstjórans.
Starfsfólk skálans uppgvötvaði þjófn-
aðinn á sunnudagsmorgúninn og liatði
þú stunband við kaupféhigsstjóra staðar-
ins, Matthías Gfslason og við lögregluna
í Vík sem þú var að vísu stödd í
erindagjörðunt austar í sýslunni. Einnig
var haft samband við lögrcgluna ú
Hvolsvelli og Selfossi ef hún kymii að
hafa orðið vör við grunsainlcgar manna-
ferðir.
Að sögn Matthíasar Gíslasonar kom
svo lögreglan og tók skýrslu af biIstjóra
hópferðarútu sem hafði scö til livíts
fólksbíls ú lcið austur Mýrdalssand um
kl. 5 um morguninn og fannst honum
skrýtiö að afturhurð bílsins var opin
þrátt fyrir rok og rigningu. Þessi bíll sást
svo aftur ú vesturleiö um 10 levtið um
inorguninn.
„Viö Símon Gunharsson gjaldkeri
ktiufélagsins úkvúðum að keyra austur
sandinn og atliuga hvort viö yrðum
einhvers vísari. Á afleggjaranum niður
á Hjörleifshöfða súum við nýleg hjólför
og fylgdum við þeim niður að jarðfalli
þarna fyrir neðan en þar voru fyrrum
itskuhaugíirbæjarins. Þar var talsvert
umrót ú barmi jaröfallsiits og upp úr ú
einum stað stóð ryögaö júrnrör. Eg
krafsaði með höndunum þar undir og
fann þar skápinn óopnaðan" sagði Matt-
hías í samtali við Tímann.
Lögrcglan ú Selfossi stöðvaði síðan
bíliiin sent lýst var eftir meö piltalta tvo
og játaði annar þeirra vcrknaðinn og var
rannsöknarlögreglunni þú fengið múlið í
hendurnar. Piltarnir voru yfirheyröir
þar en síöan slcppt um húdegisbilið í
gær. Þeir hafa úður komið'við sögu hjú
RLR.
Matthias sagði aö síðar hefði kontiö í
Ijós að einn úrrisull Víkurbúi hafi að-
stoðaö piltana þar sein þeir höfðu fest bíl
sinn í sandinum en þeir sögðu honum að
þeir væru feröamenn á leiö þarna unt og
sá Víkurbúinn ekki ástæðu til að rengja
það.
-FRI
Forystumerm Framsóknar-
flokksins vilja auka hlut
kvenna í flokknum en ...
hef þó
um
segir Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra
■ Forystuiinmn Framsóknarflokks-
ins viröast á einu ntáli um aö auka þurli
hlut kvcnna innan flokksins, en ekki
eru þeir hrifnir af þeirri hugmynd
kvennanna sem kom frant á þingi
Landssantbands framsóknarkvenna
nú utn helgina, aö helmingarcglan
vcrði látin gilda.
Aðspurður unt álit á ályktun frant-
söknarkvennanna sagöi Steingrímur
Hérmannsson formaður Framsóknar-
flokksins: „Ég fagna því mjög að það
virðist vera stóraukinn barúttuhugur
og kraftur í framsóknarkonum. Ég er
því aigjörlega satnntúla að þær eru
alltof fáarT okkar fremstu röðum, í
nefndum, stjórnum og þcss húttar.
Hins vcgar er það alls ekki svo vegna
þess aö við höfum Itafnaö þeim. heldur
vegna þess aö þær hafa ekki gefið kost
ú sér í sama mæli og kariarnir. Ég vona
að þessi ályktun þcirra verói til þess að
meira framboð verði ú konum í slik
störf innan flokksins. og tel ég þú
ðruggt að þeim mundi fjölga í forystu-
sveit flokksins. nefndunt og stjörnum.
Ég hef þó ákaflega miklar efasemdir
uni úkveðinn kvóta, og held að mettn
verði að veljast eftir úgæti í þcssi störf
eins og önnur. en ekki eftir því hvort
um karla eða konurer að ræða."
Varaformaður Framsóknarflokks-
ins. Halldór Ásgrímsson sagði er hann
var spurður sömu spurningar: „Ég tel
að Itlutur kvenna í Framsöknarflokkn-
um eigi að vcra meiri en hann er, og
það er tlokknum mikilvægt að svo
vcrði, en ég er á móti hclmingaskipta-
reglu. Forysta flokksgeturekki tryggt
það á einn cða annan hátt að konur séu
svo og svo margar í trúnaðarstörfum,
en flokkurinn í heild verður að taka á
því máli. nteð það að markmiöi að
auka hlut þeirra.
Steingrínjur og Halldór sögöust báð-
ir telja aö7 þegar líða tæki að næstu
kosningum. þá hefðu konur í Fram-
sóknarflokknum enga ústæðu til þess
að hugleiða sérframboð innan
flokksins. Staða þeirra færi batnandi.
og slik þróun myndi halda áfrant.
Halldór sagöi jafnframt að Itlutur
framsóknarkvenna tnyndi síst hatna,
ef þær færu út í slíkt framhoð. Sér-
framboð almennt leiddu ekkert af sér,
cnda væri miklu mikilvægara að berjast
til áhrifa innan flokkanna.
Haukur Ingibergsson framkvíemda-
stjóri Framsóknarflpkksitts sagði unt
þessa úlyktun framsóknarkvennanna:
„Áltugi kvenna á að taka þútt í
stjórnmáium fer ört vaxandi. Æ fleiri
sjá að sérstök. stjórnntúlasamtök
kvenna eru ekki lausnin á jafnrétt-
isvandamúlinu, heldur er samstarf
karla og kvenna ú jafnréttisgrundvelli
innan stjórnmálaflokkanna hin rétta
léið. Þess vcgna getur samþykkt
Landssambarids framsóknarkvcnria
ckki kotttið ú óvart, þótt menn geti ef
til vill greint eitthvað ú unt útfærslu
einstakra atriða. En alntennt séð held
ég að þarna hafi verið stigið stórt skref
í rétta útt, sem ætti að hvetja úhuga-
satrtar konur um stjórnmúl, til þess að
taka þútt í starfi Framsóknarflokksins
í auknum mæli."
-AB
Nöfn mannanna
sem fórust
meö Sandey
■ Mennirnir fjórir sem fórust þegar
Sandey II hvolfdi á Viðéy.jarsundi ú
föstudag hétu: EmH Púlsson. Gúðmund-
ur Jónsson, Kjartan Erlcndsson ogTorfi
Ólafur Sölv ason.
Emil var sextugur að aldri. búsettur
aðTorfufelli 13 í Reykjavík. Hann lætur
cftir sig eiginkonu og sex börn. G;
mundur var 31 úrs, búsettur að Nesh ila
8(1 ú Seltjarnarnesi. Hann var kvæntur
og þriggja barna faðir. Kjartan var 35
ára, búsettur að Kjartansgötu 5 í
Reykjavík. Hann var ókvæntur. Torfi
Ólafur var fimmtugur. búsettur að Sól-
hcintum 18 í Reykjavík. Hann lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn.
■ Emil Pálsson
■ Guðmundur Jónsson
■ Kjartan Erlendsson
■ Torfl Ólafur Sölvason