Tíminn - 01.11.1983, Síða 4
, ,ÞJÍJ€M.ljDA.<JUK 1. JNQVEMBER ’1»83
fréttir
ÞRIGGJA ER SAKNAD EN MtlR
KOMUST AF ER HAFÖRNINN
SÖKK A BREIÐAFIRÐI í GÆR
■ Mjög slæmt veður var á slysstaðnum í gær og aftakabrim við Bjarnareyjar,en hluti þeirra sést efst á myndinni.
Tímamyndir Ámi Sæberg
■ Þriggja manna er saknað, en þrír komust af
þegar vélbáturinn Haförninn SH 122 sökk á
Breiðafirði við Bjarnareyjar skömmu eftir hádegið
í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði mönn-
unum þrem, tveim af Lónsskeri og einum af
eyjunni Lón, sem er ein Bjarnareyja.
Slysavarnarfélag íslands fékk tilkynningu frá
hafnarverðinum í Stykkishólmi kl. 14.40 í gær um
að Haferninum hefði hlekkst á við Bjarnareyjar, en
hann var þá á heimleið úr skeljaróðri. Það var
vélbáturinn Þórsnes SH 108 sem lét vita af þessu.
Þá voru 7-8 vindstig af vestan og éljagangur á
köflum á þessum slóðum og foráttubrim við eyjar
og sker.
Strax var haft samband við aðra báta heimleið úr róðri. Þeir sáu neyðarljós,
á þessum slóðum, sem voru einnig á en gátu ekkert aðhafst til björgunar,
■ Vélbáturinn Haförninn SH 122 var 80 lesta stálbátur. Hann hét áður Ófeigur II
en var seldur til Stykkishóims fyrir tveimur árum.
Sjávarútvegs-
ráðherra:
Ætlar ad
athuga
gaumgæfi-
lega kvóta-
skiptinguna
■ „Við erum búnir að ákveða að
mæla með því á fundi norsk-íslensku
fiskveiðinefndarinnar í Osló á
miðvikudag að veidd verði 375 þúsund
tonn á vertíðinni eins og fiskifræðing-
arnir leggja til,“ sagði Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra, þegar
hann var spurður hvort ráðuneytið
hygðist fara að tillögum fiskifræðinga
um loðnuveiði á komandi vertíð.
Halldór var spurður um kvótaskipt-
inguna sem ákveðin var á fundi stjórn-
ar LÍÚ og útgerðarmanna loðnubáta í
gær. Hann kvaðst ekki hafa kynnst sér
hana nægilega til að tjá sig um hana
opinberlega. „Ég mun væntanlega fá
álit manna á þessu á morgun og athuga
þau gaumgæfilega,“ sagði Halldór.
-Sjó
Útvegsmenn leggja til kvóta á loðnuvertíðinni:
67% AF HEILDARKVOTANUM
SKIPT JAFNT MILLI ALLRA
— en afgánginum er úthlutad eftir stærð báta
■ Ákveðnar voru breytingar á kvóta loðnubáta á
komandi loðnuvertíð á fundi stjórnar LÍÚ með útgerðar-
mönnnm loðnubáta í gær. Verður m af heildarkvótan-
um skipt jafnt á milli bátanna, sem alls eru 51, og
afganginum, 33%, úthlutað eftir stærð bátanna.
66 Þa hefur
sjávarútvegsráðherra ákveðið að aðeins þeir bátar sem
sérstaklega eru útbúnir til loðnuveiða fái heimild til veiða
á vertíðinni. ^jnn|g er |j5st ag loónubátar missa að
einhverju leyti heimildir til annarra veiða en loðnuveiða.
„Þetta hefur verið þannig undanfarið
að helming heildarkvótans hefur verið
úthlutað jafnt milli báta en hinum helm-
ingnum eftir burðargetu þeirra. Síðan
hefur komið fram ósk frá eigendum
minni báta um að þessu verði jafnt skipt
og þetta er málamiðlun,“ sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í
samtali við Tímann í gær.
- Er ekki augljóst óhagræði af þessari
skiptingu. - Kallar hún ekki á aukin
útgjöld fyrir flotann í heild?
„Það er náttúrulega augljóst að í
þessu felst flutningur frá stærri bátunum
til þeirra minni. En meirihluti útgerð-
armanna er með minni skip og það eru
þeirra sjónarmið sem þarna ráða,“ sagði
Kristján.
Hann sagði ennfremur að ákveðið
hefði verið á fundinum að hefja ekki
loðnuveiðar fyrr en loðnuverð hefði
verið ákveðið. Fyrsti fundur í Verðlags-
ráði sjávarútvegsins var haldinn í gær og
var málinu vísað til yfirnefndar og verður
fundað í henni í dag. Taldi Kristján að
fljótlega myndi ganga að ákveða verðið
þar sem verð á loðnuafurðum væri hátt
á heimsmarkaði og þar af leiðandi mikið
svigrúm.
-Sjó
;
3
1
i