Tíminn - 01.11.1983, Síða 5
Lí
5
Ifréttir
„Gekk eins vel
og hugsast
— sagði Páll Halldðrsson, flugstjóri TF-RÁN,
sem bjargaði skipbrotsmönnunum þremur
hvorki látið björgunarbáta reka að eyj-
unum né skotið þangað línu. Þá var haft
samband við Landhelgisgæsluna, sem
undirbjó TF Rán til flugs vestur og
einnig var björgunarsveit Varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli beðin um aðstoð.
■ Áhöfn TF Rán við komuna til Reykjavíkurflugvallar. Frá vinstri eru Friðgeir
Olgeirsson stýrimaður, Kristján Jónsson stýrimaður, Benóný Ásgrímsson flugmaður
og Páll Halldórsson flugstjóri.
Tímamynd Róbert
■ „Þetta var ansi slæmt veður á köflum
og við sáum að vindstyrkurinn fór upp í
um 50 hnúta í verstu hviðunum sem er
um 9 vindstig, en þetta gekk eins vel og
hugsast gat og þyrlan sannaði enn einu
sinni ágæti sitt við björgunarstörf í þessu
veðri“ sagði Páll Halldórsson flugstjóri
á TF Rán í samtali við Tímann skömmu
eftir að þyrlan lenti á Reykjavíkurflug-
velli í gærkvöldi.
„Við Benóný Ásgeirsson flugmaður
vorum staddir í varðskipinu Óðni þegar
kallið kom og vorum komnir í loftið um
kl. 15.16. Við vorum klukkutíma á leið
á slysstað þar sem við þurftum að fara
fyrir Snæfellsnesið. Þegar við komum
þangað höfðum við samband við bát sem
sagði okkur að tveir menn væru á
svokölluðu Lónsskeri, rétt vestur af
Bjarnareyjum, og að það flæddi yfir
skerið. Við fundum mennina strax og
notuðum körfuna til að bjarga þeim í
þyrluna. Mennirnir voru svo hressir að
þeir komust hjálparlaust í körfuna. Síð-
an sáum við gúmmíbát uppi í fjöru á ey
þarna rétt við og gátum lent þar á móa.
Stýrimennirnir fóru út og fundu þar einn
mann í bátnum og hann virtist vera
einna þrekaðastur"
„Mennirnir voru þó ekki það illa
haldnir að við töldum í lagi að fara beint
í leit enda var tíminn dýrmætur. Við
fórum yfir eyjarnar og leituðum þar um
allt en þegar eldsneytið tók að minnka
fórum við með mennina til Stykkishólms
og tókum olíu. Þá var farið að skyggja
þannig að ekki þótti ráðlegt að fara út
aftur en þyrla varnarliðsins leitaði fram
í myrkur", sagði Páll Halldórsson að
lokum.
-GSH
Bjargað um borð í þyrlu
Vélbáturinn Sigurður Sveinsson fór
frá Stykkishólmi með lækni og björgun-
arsveitarmenn Slysavarnarfélagsins á
Stykkishólmi innanborðs á slysstaðinn.
Kl. 15.16 fórTF Rán í loftið og kl. 15.45
fór þyrla frá varnarliðinu af stað með
lækni innanborðs. Þá voru margir bátar
komnir á slysstaðinn, meðal annars flóa-
báturinn Baldur. Þá hafði sést til tveggja
manna á skeri og gúmbjörgunarbátur
sást í fjöruborði eyjarinnar Lóns.
TF Rán var við eyna um kl. 16.20 og
tók þá strax mennina þrjá um borð og
skömmu seinna kom varnarliðsþyrlan á
staðinn. Þyrlurnar leituðu báðar við
Bjarnareyjar, en um kl. 17.00 lenti RF
Rán við Stykkishólm með skipbrots-
mennina, en þyrla varnarliðsins leitaði
áfram á svæðinu fram í myrkur en án
árangurs.
Að sögn flugmanna á TF Rán var brak
úr Haferninum farið að reka á land við
eyna, þar sem einn maðurinn fannst. Þar
rak einnig gúmbjörgunarbát, en hann
reyndist vera mannlaus.
I dag verður leitað við slysstaðinn,
m.a. gengnar fjörur á eyjunum og einnig
leitað við sker í nágrenninu á skipum og
bátum.
Vélbáturinn Haförn SH 122 var 80
tonna stálbátur í eigu Rækjuness hf., á
Stykkishólmi. Hann var byggður árið
1959 og hét áður Ófeigur II ÁR 18 og
var gerður út frá Þorlákshöfn.
-GSH
■ Þyrla Landhelgisgæslunnar TF Rán, flýgur yfir eynni Lóni sem er ein Bjarnareyja en Haförninn SH 122 sökk rétt vestan við eyna.
sem einn skipverjinn komst í. Þyrlan bjargaði manninum af eynni.
Til vinstri sést gúmbjörgunarbáturinn
! ■ Halldór Asgrimsson, sjávarútvegsráðherra, á fundi með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi í gærmorgun.
Tímamynd GE
Vinnunefnd
alþjóðafisk- (
veiðiráðsins um
loðnuveiði:
Telur
375.000
tonn vid hæfi
■ „Tillaga vinnunefndarinnar er að
heimilað verði að veiða 375 þúsund tonn
á tímabilinu frá nóvember í ár fram í
mars á næsta ári. Þessi tiltaga á eftir að
fara fyrir fiskveiðinefnd ráðsins, en í
þessu tilfelli sé ég ekki ástæðu til að ætla
að henni verði breytt,“ sagði Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur, þegar
hann var spurður um tillögur vinnu-
nefndar Alþjóðafiskveiðiráðsins, sem
fundaði í Kaupmannahöfn í vikunni sem
ieið, um loðnuveiðar við strendur'
, íslands. „
Hjálmar sagði að í leiðangri þriggja
i skipa í byrjun október hefði loðnustofn-
;inn mælst um 970 þúsund tonn. í
tillögum vinnunefndarinnar er miöað
við að 400 þúsund tonn fái að hrygna
næsta vor, en talið er að af stofninum
drepist næstum 200 þúsund tonn náttúru-
legum dauðdaga í sjónum. -Sjó