Tíminn - 01.11.1983, Síða 10
ÞRIÐJUDAGUR t. NÓVEMBER 1983
10
[viðskiptalffið
umsjón: Skafti Jonsson
■ Þegar er afráðið að heimilissýningar verði haldnar þrjú næstu ár.
Heimilissýningar Kaupstefnunnar hf.:
Haldnar árlega
í framtíðinni
I stk.TÍVOLÍ
ZOl.'í tow Sl*r4:»S.Íi»>
(X} íKtwrtó «so«?oíc
.. R«tt ylií hafté tnti Hahk'tp
**HAPKK fP Wp"
■ „Við stefnum að því að halda stóra
Heimilissýningu á hverju ári héðan í frá
þannig að sýningarnar verði fastur við-
burður í þjóðlífinu. Slíkt tíðkast víða
erlendis og má í því sambandi nefna
Ideal Home sýninguna, sem haldin er í
London á hverju ári,“ sagði Páll Bragi
Kristjónsson, stjórnarmaður hjá Kaup-
stefnunni hf. í samtali við Tímann.
Páll Bragi sagði, að reglubundið sýn-
ingarhald auðveldaði fyrirtækjum að
ákveða, hvort og þá hvenær þátttaka
hentaði, en reynslan hefði sýnt að ef vel
væri að verki staðið, létu sýningargestir
sig ekki vanta. Hann sagði að sýningar-
haldið hefði tekið miklunt brcytingum I
áranna rás og stöðugt aukin fjölbreytni
hefði sett svip á sýningarnar, en Kaup-
stefnan hefur staðið fyrir 11 stórum
vörusýningum á þeim .. nær þremur
áratugum sem liðnir eru síðan fyrirtækið
var stofnað.
Næsta heimilissýningin „Heimilið ’84“
verður haldin í Laugardalshöll 24/8 til 9/9
1984. Sýningarnar 1985 og 1986 verða
einnig á svipuðum tíma, það er að segja
ágúst/septembcr, en endanlegar dag-
setningar liggja ekki fyrir.
■ Skipið er 11 ára gamalt, systurskip Suðuriands, sem fvrir er í eigu Nesskips hf.
Nesskip bætir við flotann:
FÆR 2.500 LESTA
SKIP í DESEMBER
■ Nesskip h.f. hefur fest kaup á þýska
skipinu „Estebogen" og verður þaö
afhent félaginu í desember næstkom-
andi. Skipið er byggt í Þýskalandi árið
1972 hjá Sietas skipasmíðastöðinni og
hefur 2500 tonna burðargetu. Kostnað-
arverð skipsins er 5 milljónir v.-þýsk
mörk. Skipið er systurskip m.s. Suður-
lands, sem fyrir er í eigu félagsins.
Lengd skipsins er 88,5 metrar og
breidd 13,80 metrar. Lestarrými er
164.01K) rúmfet. Það hefur eina lestarlúgu
51.00 metrar á lengd og 10.2 metrar á
breidd á veðurþilfari, og stórar þilfars-
lúgur sem fjarlægja má auðveldlega
þegar þeirra er ekki þörf.
Skipið er búið tveim 15 tonna þilfars-
krönum, sem sameiginlega geta lyft 30
tonnum. Er því ætlað að sinna alhliða
stórflutningum svo sem fyrir stóriðju svo
og ýmsum flutningum á sjávarafurðum
til útflutnings. Þá er skipið einnig vel
útbúið til gámaflutninga og getur flutt
142 gámaeiningar (20 fet). Skipið verður
sérstaklega útbúið til flutninga á kældum
farmi.
Aðalvél skipsins er af gerðinni MAK
2400 hestöfl og ganghraði skipsins er 14
sjómílur. Ljósavélar eru 4 af Deutz
gerð. Einnig hefur skipið bógskrúfu.
Skipið hefur einkum verið í flutning-
um á norðlægum slóðum og er styrkt til
siglinga í ís samkv. ströngustu kröfum
þýska Lloyds flokkunarfélagsins.
Norskur húsgagnaidnaður:
Minni hlutur á
heimamarkaðnum
■ Húsgagnainnflutningur Norð-
manna jókst um 16,9% fyrstu sjö
mánuði þessa árs miðað við sama
tímabil í fyrra. í allt var flutt inn fyrir
938 milijónir norskra króna, sem þýðir
yfir 1,5 milljarðar á ár>grundveili.
45% af húsgögnunum kom frá Svíþjóð
og.28% frá Danmörku.
Útflutningur norskra húsgagna jókst
unt 12,5% á þessu tímabili, en skilaði
þó aðeins 244 miiljónum norskra
króna. Svíþjóðarmarkaðurinn er
stærsti erjéndi markaðurinn fyrir norsk
húsgögní en nokkur fyrirtæki hafa
mjög aukið sölu sína til Bandaríkj-
anna. Reiknað er með að Norðmenn
flytji húsgögn fyrir um 105 milljónir
króna á þessu ári til Bandaríkjanna.
I fyrra áttu norskir húsgagnafram-
leiðendur 65% af heimamarkaðinum,
en yfir 70% næstu tvö árin þar á
undan. Útflutningur nemur aðeins 'A
af innflutningnum.
ÍOO þúsund gærur til Finnlands:
„Góð byrjun á
sölutímabilinu"
segir Jón Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar
Sambandsins
■ Iðnaðardeild Sambandsins á Akur-
eyri hefur gert samning við fmnska
fyrirtækið Friitala um sölu á 100.000
gærurn þangað. Gærurnar verða af-
grciddar á tímabilinu fram í september
á næsta ári, og verða þær á ýmsum
vinnslustigum, allt frá því að vera
pæklaðar og upp í fullsútaðar og
litaðar mokkagærur.
Að sögn Jóns Sigurðssonar, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Iðnaðardeildar,
cr þetta góð byrjun á sölutímabiiinu.
Vonaðist hann til að þrátt fyrir þröng-
an markað tækist á næstu mánuðum að
selja alla framleiðsluna frá því í haust.
Verslanir KRON:
„Afkoman heldur
lakari en í fyrra“
■ Vörusala KRON var eftir fyrstu 6
mánuði ársins komin í rúmlega 108
milljónir króna án söiuskatts og cr það
72% aukning frá sama tíma í fyrra.
Það ntun þó varla halda í við almennar
verðlagshækkanir þar eð almennt
ncysluvöruverðlag hefur hækkað um
77-78%. Afkoma verslananna er því
heldur lakari cn á sama tíma í fyrra.
Frá þessu er greint í nýjustu félags-
tíðindum KRON. Þarsegirennfremur
að útkoma verslana félagsins sé ærið
misjöfn. Mest söluaukning hafi orðið
hjá KRON við Snorrabraut 83%,
KRON við Langholtsvcg 80% og
Domus 80%.
Skipadeild Sambandsins:
Fjölgar vörumóttöku-
stöðvum í Bretlandi
■ Skipadeild Sambandsins hefur
komið sér upp fimm vörumóttöku-
stöðvum t Bretlandi. Skipdeildarinnar
sigla til Goole, í mynni Humberfljóts-
ins nálægt Hull, og er deildin búin að
konta sér upp vörumóttökustöðvum í
London, Erith í Kent, Bristol. Warr-
ington. milli Liverpool og Manchcster,
og í Glasgow. Á þessum stöðum er
þegar farið að taka á ihóti vörusending-
um til íslands, og frá þeim er vörunum
síðan ekið í flutningabíium eða gántum
til Goole.
5
Iðnaðardeild Sambandsins:
Um 150kmaf
ullaráklæðl
til Danmerkur
■ Iðnaðardeild Sambandsins á Akur-
eyri hefur flutt út til Danmerkur um
150 þúsund metra af húsgagnaáklæði
og gluggatjöldum það sem af er þessu
ári, ásantt nokkru af ullarteppum.
Sigurður Arnórsson, aðstoðarfram-
kvætndastjóri Iðnaðardelldar. taldi að
hjá deildinni hcfði orðið söluaukning í
magni bæði að því er varðaði útflutning
á garni og ullarfatnaði fyrstu sex mán-
uði ársins. Einnig hefði hlutdeild Iðn-
aðardeildar í útflutningi iandstnanna á
þessum vörum hækkað. Lopi hefði
selst vel að undanfbrnu, nteðal annars
í Bandaríkjunum og Englandi, og
ullarfatnaðurinn færi nú meðal annars
mikið til Ítalíu og Englands. Þá væri
verið, að vinna aÁ endurútgáfu á
sölubæklingum deildarinnar, bæði fyr-
ir handprjón, fatnað og ullartcppi.