Tíminn - 02.11.1983, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1983
Raunverð fasteigna: Afsláttur
HEFUR LÆKKAÐ UM TÆP a.
25% FRÁ SEPTEMBER1982 Ö£
■ Verð fasteigna lækkaði um tæplega
fjórðung, reiknað á föstu verðlagi, á
tímabilinu frá september i fyrra til sama
tírna á þessu ári að því er segir í
fréttabréfi frá Fasteignamati ríkisins.
Fastcignaverð hækkaði um tæplega
50%, á meðan lánskjaravísitala hækkaði
um 95%. Raunverð minni íbúða lækkaði
minna en hinna stærri, en lítið framboð
var á litlum íbúðum miðað við eftir-
spurn. í þriðja ársfjórðungi í ár hafði
verð á hverjunt fermetra í tveggja og
þriggja herbergja íbúðum hækkað um
48-52% en í stærri íbúðum ekki ncnia
um 38-42%. Litlar íbúðir eru því hlut-
fallslega dýrari en hinar stærri, þótt
hlutfall útborgunar í þcim sé hærra og
lánakjör verri.
í fréttabréfinu segir að verð á tveggja
herbergja íbúð, 52.5 m' hafi verið kr.
950 þúsund í ágúst s.l., eða 18.200 kr. á
hvern fermetra. Verð þriggja herbergja
íbúðar hafi verið 1200 þúsund krónur á
sama tíma. sem þýðir 16.000 kr. á hvern
fermetra og verð fjögurra herbergja
íbúðar. 94.7 m' að stærð hafi vcriö 1390
þúsund krónur cða 14.800 á hvern
fermetra. Mismunur á hlutfalli útborg-
unar frá tveggja til fjögurra herbcrgja
íbúðar er innan við 1%.
Þá kemur fram í fréttabrcfinu að
meðalstærð nýrra íbúða hefur stöðugt
verið að vaxa undanfarin ár. Meðalstærð
íbúða byggöra á síðustu þrem árum er
155 m'. Mest varð stærðaraukningin árið
1980. sem er öfugt viö þaö sem búast
heföi mátt viö. en það ár urðu flest lán
til byggingaframkvæmda fullverötryggö.
-JGK
■ I upplýsingabæklingi þeim. scm
Rauði krossinu gaf út og síðan var
endurbirtur í Tímanum, cru rangar
upplýsingar um afslátt til ellilífeyris-
jtega sem cru áskrifendur Tímans. Hið
rétta er að eingöngu þeir setn dvelja á
élli- og dvalarheimilum hafa rétt til
50% afsláttar. Rúöstafanir hafa verið
geröar til þess aö leiörétta þetta hjá
Rauða krossinum.
CHRYSLER
MEIRIHATTAR
VERÐLÆKKUN
Dodge picup 1980
379.500,-
Dodge van 1982
479J00,-
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
íslenska
hljómsveitin
ætlar að
hef ja vetrar-
■ Einsogkomiðhefurfram.þáerekki
gert ráð fyrir neinni fjárveitingu á
fjárlögum til íslensku hljómsveitarinnar,
en hljómsveitin fór fram á 800 þúsund
króna fjárveitingu, svo hún gæti staðið
undir eigin rekstri. Nú hefur hljómsveit-
in ákveðið að hefja vetrarstarfið, þótt
enn sé ckki Ijóst hvort hún hlýtur þann
stuðning sem hún þarf. „Er þetta gert í
trausti á velvilja ríkisvaldsins enda hafa
öll viðbrögð og undirtektir tónlistarunn-
enda verið á þann veg, að ástæða er að
halda starfinu áfram," segir m.a. í frétt
frá íslensku hljómsveitinni um þctta
mál.
Þar kemur fram að enn er unnt að fá
áskrift að tónleikum vetrarins, og er það
ítrekað að engir miðar verða seldir í
lausasölu í vetur. Fyrstu tónleikar
vetrarins verða fimmtudaginn 10. nóv-
ember í Neskirkju og hefjast þeir kl.
20.30. " -AB
Samsýning
í Lista-
safni ASÍ
■ Myndlistarmennirnir Gunnar Örn
Gunnarsson, Jón Axcl Björnsson og
Vignir Jóhannsson opnuðu samsýningu
í Listasafni ASI á laugardag. Sýningin
verðuropin daglega fram til I3. nóvem-
ber kl. 14.00-20.00 á virkum dögum og
14.00-22.00 laugardaga og sunnudaga.
Þeir félagar sýna samtals 24 myndir
unnar í akrýl. Þeir hafa allir sýnt áður.
bæði einir sér og með öðrum. Þeir
Gunnar Örn og Jón Axel eru búsettir
hérlendis, en Vignir starfar að list sinni
í Bandaríkjunum og kom heim gagngert
til að vera með á þessari sýningu.-JGK
Nú seljum við síðustu eintökin af þessum frábæru tækjum
á stórlækkuðu verði.
Hlutaf jársöfnun Tímans í fullum gangi:
ppVerðum öll að
leggjast á eitt”
— segir Hreinn Hjartarson, verkamaður
■ F.v. Vignir Jóhannsson, Jón Axel . Björnsson og Gunnar Örn Gunnarsson.
Tímamynd Árni Sæberg.
■ „Við verðum öll að leggjast á eitt ef
þaö á að takast að gcra Tímann að enn
öflugra blaði“,sagði Hreinn Hjartarson,
27 ára gamall Reykvíkingur. sem kom á
skrifstofu Framsóknarflokksins og
skráði sig fyrir I0 þúsund króna hlut í
nýja félaginu um Tímann. Hreinnstarfar
sem verkamaður í Alverinu cn var áður
sjómaöur.
„Eg er stuöningsmaður Framsóknar-
flokksins og það cr stjórnmálaflokkum
lífsnauösynlegt að ciga öflug og víðlcsin
málgögn. Framsóknarflokkurinn leggur
áherslu á heilbrigt atvinnulíf í landinu ,
og rödd flokksins verður að heyrast á
þeim vettvangi eins og öörum", sagöi
llreinn og bætti því viö. að Framsóknar-
flokkurinn - cinn flokka - styddi sam-
vinnuhugsjónina, sem væri svo sannar-
lcga mikils virði. „Ég vildi hvetja alla
frantsóknarmenn og velunnara Tímans
að kaupa hlutabréf í nýja félaginu. Ég
get ekki hugsaö þá hugsun til enda ef við
stöndum ekki saman og Tíminn hættir
að koma út í núverandi mynd. Þaögetur
varla vcriö að nokkur sannur framsókn-
■ Hreinn Hjartarsson
armaöur vilji t.d. aö Tíminn verði eins
og Alþýöublaöiö, sem ekki nokkur maö-
ur tekur eftir eða les."