Tíminn - 24.11.1983, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1983
TÖLVIIR__________________________________________________3
Tölvuskjár í síauknunm mæli á skrifstofum stjórnenda fyrirtækja:
„HÆTTAR AD VERA UIXUSTÆKI
OG ORÐNAR BRAONAUÐSYNLEGAR”
— segir Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands
■ Notkun tölva við stjórnun
fyrírtækja hefur farið hraðvax-
andi á síðustu árum, raunar hafa
þær verið notaðar árum saman
við verkefni sem krafist hafa
mikillar vinnu og tíma svo sem
bókhald o.fl. en á síðustu árum
hefur vél- og hugbúnaður þeirra
aukist í risaskrefum og þeim
sviðum sem þær koma að gagni
sömuleiðis fjölgað. Það færist
einnig mikið í vöxt að forstjórar
fyrirtækja komi sér upp tölvu-
skjá á skrifstofu sinni, með bein-
um aðgangi að aðaltölvu fyrir-
tækisins þannig að þeir geta á
auðveldan hátt fylgst með öllum
þáttum starfseminnar og tekið
síðan skjótar ákvarðanir án þess
að þurfa langar fundarsetur með
deildarstjórum svo dæmi séu
tekin.
„Það er Ijóst að tölvur eru hættar að
vera lúxustæki og orðnar bráðnauðsyn-
legar á þessum vettvangi einkum vegna
hins gífurlega tímasparnaðar sem þeim
fylgir" sagði Árni Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands í
samtali við Tímann er við ræddum við
hann um hagkvæmni tölvunnar sem
stjórntækis.
„Tölvan sparar stjórnendum einkum
tíma við að reikna út ýmsa hluti og að fá
sem skýrastar upplýsingar um mál.
Þannig getur stjórnandi til dæmis breytt
forsendum í einhverri áætlun og séð
niðurstöðurnar um leið á skjánum. Það
er að segja í tölvu er hægt að smíða
fyrirtækislíkan að hvaða fyrirtæki sem er
og síðan sjá samkvæmt því hver áhrifin
á fyrirtækið eru, af skulum við segja
verkfalli í maí, verðbólguhækkun eða
þá að markaðurinn í Nigeríu lokast, svo
dæmi séu tekin.“ sagði Árni.
Hraðinn verður sem sagt ailt annar,
áður tók það kannski tveggja daga vinnu
að fá ofangreindar upplýsingar. Árni tók
annað dæmi um áætlanaforrit þar sem
hægt væri að fara afturábak. Segjum að
samkvæmt því forriti komið fyrirtækið
út í mínus í desember. Þá getur forstjór-
inn spurt forritið hvað þurfi til þess að
fyrirtækið komi út í plús, salan þarf
kannski að aukast um þessar prósentur,
eða verð vörunnar að hækka um þessar
prósentur o.sv.frv.
Tengimöguleikar talva við önnur tæki
eru einnig miklir, þannig er Stjómunar-
félagið t.d. áskrifandi að einum stærsta
gagnabanka í heimi þar sem er að finna
upplýsingar á öllum sviðum en þeir nota
þetta mikið til að kenna mönnum að
leita í slíkum bönkum á námskeiðum
sínum.
■ Ámi Gunnarsson.
Tímamynd G.E.
iHíl'ís;® 'í*
lUHjli: ?!
11811 il
þurfti svo aftur kannski svolítinn tíma til
að taka þær saman."
Stjórnunarfélagið hefur haldið nám-
skeið á þessum vettvangi og hafa sótt
þau á milli 2-3000 manns fram að þessu.
Árni segir að það séu einkum yngri
mennirnir sem eigi auðveldara með að
hagnýta sér hina nýju tækni...„þarna
spilar inn í óttinn við lyklaborðið og það
að þurfa að læra stafasetninguna en
þróunin á þessum vettvangi verður ör-
ugglega sú að lyklaborðið hverfur og
menn tala einfaldlega við tölvuna."....
Breytast valdakerfin?
í ágústhefti International Manage-
ment tímaritsins er grein með fyrirsögn-
inni „Tölvur ráðast inn á forstjóraskrif-
stofurnar" þar sem ýtarlega er fjallað um
tölvuvæðinguna á þessu sviði og hvað
hún hefur hugsanlega í för með sér og
þar er m.a. varpað fram þeirri spurningu
hvort tölvuvæðing á toppnum komi til
með að breyta valdakerfunum innan
fyrirtækjanna.
John F. Rochart forstjóri hjá MIT
(Massachusetts Institute of Technology)
segir: „Alveg eins og iðnbyltingin breytti
framleiðsluháttum mun þessi bylting
breyta því hvernig fyrirtækjum/stofnun-
um er stjórnað"... „Sumir gömlu góðu
hættirnir munu leggjast niður.“ •
Sum fyrirtæki þrýsta á um tölvuvæð-
ingu á forstjóraskrifstofunum í þeirri trú
að sjálfvirknin á því sviði dragi úr
kostnaði með því að þá falli niður þörfin
á deildarstjórum og öðru starfsliði en
aðrir benda á að þetta hafi í rauninni þau
áhrif að skapa meiri eftirspurn eftir
þessu starfsliði til að annast viðhald
talvanna. Og allur árangur sem næst á
toppnum getur tapast á deildarstjóra-
sviðinu vegna þess að þeir þoli ekki að
yfirmenn þeirra séu að grafa í
upplýsingabanka þeirra, fara framhjá
hefðbundnum boðleiðum upplýsinga
innan fyrirtækisins og þannig ógna valda-
stöðum þeirra.
„Þegar þú breytir upplýsingaflæðinu,
breytir þú valdakerfinu í fyrirtækinu/
stofnuninni" segir Rochart hjá MIT.
Og það er ekki eina hættan við að
setja tölvur innan seilingar frá forstjór-
unum: „Það er hætta á að þú dragir
deildarstjóra/framkvæmdastjóra niður
af stefnumótandi sviði og á tæknilegt
svið eða það sem verra er, niður á
framkvæmdasvið“ segir Alan G. Merten
konrektor viðskiptadeildar Michigan
háskólans..." sumir „stjórar" vilja ekki
að yfirmenn þeirra líti á daglegan árang-
ur sinn“.
„Hver forstjóri ætti að
hafa eigin tölvu“
En hver er skoðun forstjóranna
sjálfra?. International Management
tímaritið ræddi við Ronald H.C. Ho
forstjóra ICBC bankans á Tapei á
Formósu og hann sagði m.a.: „Allir
forstjórar ættu að hafa sína cigin tölvu.
Þá er miklu auðveldara fyrir þá að skilja
sinn eigin rekstur."
Ho eyðir að meðaltali um einni
klukkustund fyrir framan tölvuskjáinn á
hverjum degi og ef hann fcngi að ráða
mundi verða setturskermurfyrirframan
hvcrn einasta mann sem mætir á stjórn-
arfundi hjá bankanum. Á þessum eina
tíma fer hann í gegnum starfsmanna-
skýrslur, fjárhagsskýrslur, láns-stöðu
viðskiptavina sem hjálpar honum að
taka ákvarðanir um lánveitingar svo og
að taka ákvarðanir um stöðuveitingar og
tilfærslur starfsfólks innan bankans.
Ho er ekki einn um sínar skoðanir.
Forstjórar og æðstu stjórnendur fyrir-
tækja víða um heim eru í síauknum mæli
að snúa sér að einkatölvum eða tölvu-
skjám tengdum við aðaltölvur fyrirtækja
sinna til að auka hæfileika sína til
sundurgreiningar og hjálpa þeim að taka
stjórnunarákvarðanir hraðar og ákveðn-
ara.
-FRl
VIÐ HÖNNUM, TÖLVUSETJUM OG PRENTUM
SKÝRSLU- OG REIKNINGSEYÐUBLÖÐ FYRIR TÖLVUR.
Forstjórinn hefur milli-
liðalausan aðgang að
öllum upplýsingum
Ef við komum aftur að forstjóranum
þá hefur hann, með tölvuskjánum, milli-
liðalausan aðgang að öllum upplýsingum
varðandi fyrirtækið og getur skoðað það
sem verið hefur að gerast hjá fyrirtækinu
án þess að nokkur viti það og í því
sambandi hefur vaknað sú spurning
hvort aukin tölvuvæðing á þessu sviði,
komi ekki til með að breyta valdakerfun-
um innan fyrirtækjanna. Um þetta eru
skiptar skoðanir en við komum að þessu
atriði seinna.
„Þarna er stærsti kosturinn að hann
getur fengið upplýsingarnar fljótt, með
því að kalla þær fram á skerminn, í stað
þess að þurfa að hringja í annan, til
dæmis, deildarstjóra/ framkvæmdastjóra
til að fá umræddar upplýsingar og sá
# TÖLVUPAPPÍR Á LAGER.
# NÝ, FULLKOMIN LEISER-LJÓSSETNINGARVÉL
" OG PRENTVÉLASAMSTÆÐA.
® REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
# Á//
PRENTSMIÐJAN d^CÍCÍCl H. F. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur, sími 45000