Tíminn - 30.12.1983, Síða 1
Dagskrá rskisf jölmiðlanna — Sjá bls. 13
FJ( OG ILEREYTTARA BETRA BIAÐ!
Fös 302 tudagur 30. desember 1983 tölublað 67. árgangur
Sidumuia 15 — Postholf 370 Reykjavik - Ritstjorn 86300—Auglysingar 18300- Atgreiösla og askríft 86300 — Kvöidsimar 86387 og 86306
Nýtt yfirlit Þjóðhagsstofnunar um efnahagsþróun og horfur:
VERÐ6ÚLGAN NÚINNAN VIÐ 20%
OG KAUPMATTARSKERÐINGIN12%
Horfur á ad viðskiptahallinn við útlönd verði ekki meiri en 2,5%
■ Á fundi ríkisstjórnarinnar í
gærmorgun lagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
m.a. fram yfirlit yfir efnahags-
þróun og horfur sem er nýjasta
mat Þjóðhagsstofnunar, byggt á
nýjustu upplýsingum, en þar
kemur m.a. fram að verðbólga
nú sé innan við 20% og að
kaupmáttur' ráðstöfunartekna
hafi ekki skerst um meira en
12%, sem er eins og spáð var við
upphaf efnahagssráðstafananna
um mánaðamótin maí-júní sl.
„Það er mjög ánægjulegt sem
kemur fram í þessu yfirliti,"
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í samtali við
Tímann í gær, „að allar þær spár
sem fylgdu efnahagsráðstöf-
unum í lok maí hafa staðið og
betur en það, því verðbólgan er
talin vera nú um 20%, en ríkis-
stjórnin setti markið á 30%.
Jafnframt er talið að kaupmáttur
ráðstöfunartekna hafi ekki
skerst um meira en 12%, eins og
spáð var. Þá kemur þar fram að
þrátt fyrir minni afla, þá eru
horfur á því að viðskiptahalli við
útlönd verði ekki meiri en 2.5%
á árinu. Það virðist því sem
meginmarkmiðin hafi náðst á
þessu ári, og það er mjög
ánægjulegt."
Forsætisráðherra sagðist þrátt
fyrir þetta gera sér fulla grein
fyrir því að framundan væru
miklir erfiðleikar og sumir miklu
meiri en ráð hefði verið fyrir
gert, svo sem rekstrarerfiðleikar
útgerðarinnar.
„Það er auðvitað mjög
ánægjulegt að verðbólguhraðinn
sé kominn niður fyrir 20%,“
sagði Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra er Tíminn
ræddi við hann í gær. „Við
megum öll fagna því að áætlanir
hafa staðist, og vel það,“ sagði
fjármálaráðherra, „þetta er ár-
angur fólksins í landinu, en ekki
ríkisstjórnarinnar eða einstakl-
ings. Sameiginlegt átak lands-
manna allra hefur skilað sér í
þessum góða árangri. Horfur
næsta árs eru góðar ef fólk
stendur saman á sama hátt, og
ekki verður rokið í að brjóta
niður þennan árangur með ein-
hverri hörku og vitleysu.“
- AB
■ Vélin sem hlekktist á í lendingu í Stykkishólmi. Hún er af
gerðinni Cessna 402, ber einkennisstafina TF-VLO og tekur
9 farþcga í sæti.
Tímamynd Árni Sæberg
Arnarflugsvél hlekkist á
í lendingu
á Stykkishólmsflugvelli:
LENTI í SNJÚRUDN-
INGI SEM VAR SJÖ
MEIRAINNABRAUT
■ Lítilli flugvél frá Arnar-
flugi af gerðinni Cessna 402
hlekktist á t'lendingu í Stykkis-
hólmi kl. 17.00 í gær. Vinstri
vængur vélarinnar lenti í snjó-
ruðningi á brautinni með þejm
afleiðingum að vinstra aðalhjól
hennarbrotnaðiundanvélinni.
Fimm farþegar voru í vélinni
auk flugmanns en engan sakaði
og vélin skemmdist tiltölulega
lítið. Gert verður við vélina á
staðnum ogstóðtilaðreynaað
fljúga henni til Rcykjavi'kur í
dag.
Að sögn Birgis Sumarliða-
sonar flugmannsá vclinni voru
skilyrði á flugbrautinni slæm
og brautin iila rudd. Snjóruðn-
ingurinn sem vélin lenti í var
þannig eina 7 metra inni á
braut. Vélin hafði lagt að baki
um helming brautarinnar þeg-
ar óhappið varð og sagði Birgir
að hún hefði sigið hægt og
rólcga niður á brautina. Við
það rákust skrúfublöð vinstra
hreyfilsins niður og bognuðu.
Birgir sagði að hjólið hefði
brotnað af en hjólastellið virt-
ist vera óskemmt. Verið var að
rannsaka vélina í gær og reikn-
aði Birgir með því að hægt væri
að framkvæma bráðabirgða-
viðgerð á staðnum og fljúga
vélinni til Reykjavíkur í dag.
Málið er í rannsókn hjá
rannsóknardeild loftferðaeftir-
lits Flugmálastjórnar.
- GSH
■ Þessir strákar voru að leggja síðustu hönd á að reisa stæðilegan áramótaköst við Æsufell í
Breiðholti í gær þegar Ijósmyndara Tímans, bar að garði. Veitt hefur verið leyfi fyrir 30
áramótabrennum í borginni í ár. Tímamynd Ari (sjá bls. 4)
LÖGREGLUMENN
KREFJAST OP-
INBERRAR
RANNSOKNAR
— á skrifum
Þorgeirs
Þorgeirssonar
■ Stjórn Lögreglufélags
Reykjavíkur hefur farið fram á
það við Ríkissaksóknara að fram
fari opinber rannsókn vegna
tveggja greina sem Þorgeir Þor-
geirsson rithöfundur skrifaði í
Morgunblaðið fyrir stuttu, þar
sem í þessum greinum hafi lög-
reglan verið borin mjög alvar-
legum ásökunum.
Greinar Þorgeirs birtust í
Morgunblaðinu 7. desember og
20. desember. í bréfi sem Svala
Thorlacius hdl. skrifaði Ríkis-
saksóknara fyrir hönd stjórnar
Lögreglufélags Reykjavíkur 27.
desember sl., segir að í greinum
þessum báðum, einkum þeirri
fyrri, komi fram grófur áburður,
dylgjur og ærumeiðandi aðdrótt-
anir í garð lögreglumanna. Al-
varlegasti áburður greinarhöf-
undar er sá að ungur maður hafi
slasast svo af völdum lögreglu að
hann hafi hlotið af mikla og
varanlega örorku.
f bréfinu segir ennfremur að
stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur telji að hér sé um svo
alvarlegar ásakanir að ræða í
einu víðlesnasta blaði landsins
að nauðsyn beri til að mál þetta
verði rannskað til hlýtar svo að
stétt lögreglumanna verði
hreinsað af áburði þessum.
Stjórn Lögreglufélags Reykja-
víkur leggi einnig þunga áherslu
á það, að leiði rannsókn í ljós að
’ ásakanir þessar séu réttmætar,
verði þeim seka eða þeim seku
stefnt til fullrar ábyrgðar á verk-
um sínum.
- GSH