Tíminn - 30.12.1983, Page 4
4______
fréttir
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
SAMKEPPNI MILU HVERFA UM AÐ
HAFA SEM VEGLEGASTAR BRENNUR
■ „Þetlu eru heldur ileiri brennur en í
fyrra, mig minnir að þá hafi þær verið
24, en nú hefur verið gefíð leyfi fyrir 30
brcnnum,“ sagði Iljarki Klíasson yfirlög-
regluþjónn í samtali viö blaöið í gær.
„Það er samstarf á milli okkar í'
lögreglunni og slökkviliðsins um að gefa
út leyfi fyrir brennunum og það þurfa að
vera ábyrgðarmenn fyrir hverri brennu
eins og listinn ber með sér. Þeir þurfa að
tilgreina staðinn þar sem þeir vilja hafa
sínar brennur og það síðan metið hvort
það sc of nálægt íbúðarhúsum eða öðru
húsnæði og hvort það geti valdið skaða,
t.d. á grónu landi. Leyfin eru svo gefin
út þegar þessir hlutir hafa verið kannaðir
og Reykjavíkurborg er raunar einnig í
samráði um það. Leyfin eru ekki gefin
nema sýnt þyki að engin hætta stafi af
brennunum og engin óþrif.
Við sendum svo brennulistann til allra
olíufélaganna og þau láta ábyrgðar-
mönnum í té úrgangsolíu til að kveikja
upp við og þá þjónustu fær enginn nema
hann gcti framvísað sínu leyfi. Reyndin
hefur líka verið sú að þetta hefur gengið
ánægjulega og slysalaust fyrir sig undan-
farin ár.”
Er mikið um það að þið þurfið að hafa
afskipti af brennunt sem stofnað er til í
óleyfi?
áNei, það er lítið um það. Ef við
verðum varir við að verið sé að hlaða
kesti sem leyfi hafa ekki verið veitt fyrir,
þá höfum við samband við viðkomandi
og semjum við hann og slík mál tekst
yfirleitt að leysa í bróðerni og góðu
samkomulagi. Þctta geta annars verið
viðkvæm mál og oft er samkeppni milli
hverfa um að hafa sem veglegastar
brennur."
Bjarki sagði að lokum að nú væri
Reykjavíkurborg hætt að vera með
brennur á eigin vegum svo sem tíðkast
hefur áður. Hins vegar aðstoðaði borgin
þá sem stæðu fyrir brennum með ýmsu
móti og legði þeim til verkfæri ef með
þyrfti endurgjaldslaust. -JGK
Knáir krakkar veifa sigri hrósandi til Ijósmyndarans, enda er brennan þeirra við Ægissíðu ein sú stærsta í borginni í ár.
Tímamyndir Ari
Leggja verður nýjar stofnæðar fyrir
hitaveitu í Fossvogi og Breiðholti I:
U mbúnadurinn
hentadi ekki
rökum jarðvegi
■ „Það er kannski ofsagt að lagnirnar
séu ónýtar, þetta gengur ennþá, en það
verður ekki undan því vikist að endur-
nýja stofnæðarnar á næstunni, þótt ekki
sé gert ráð fyrir að það verði gert á næsta
ári,“ sagði Gunnar Kristinsson verk-
fræðingur hjá Hitavcitu Reykjavíkur
aðspurður vegna frétta um bágt ástand
hitaveitulagna í Fossvogi og Breiðholti I.
„Umbúnaður stofnæðanna á þessum
stöðum var með sérstökum hætti þegar
þessar æðar voru lagðar og Itann hefur
ekki reynst vel þarna, það virðist sem
hann henti ekki jarðvegsaðstæðum í
Fossvogi og í Breiðholti I. Hins vegar
hefur hann gefist vel í Árbæjarhverfi og
á öðrum stöðum í Breiðholtinu,” sagði
Gunnar. Hann sagði að þessi umbúnað-
ur hefði verið notaður í Þýskalandi og á
hinum Norðurlöndunum og reynslan
hefði verið svipuð þar og hér, hann hónti
ekki rökum jarðvegi. .
Gunnar sagðist ckki geta sagt beint
um kostnað við endurnýjun lagnanna,
ncma hvað gerð hefði verið áætlun um
aðfærsluæð að Fossvogsstöðinni, sem
hljóðaði upp á 21.2 milljón. Hann sagði
að hér væri aðeins unt að ræða stofnæð-
arnar, en ekki heimæðar, þær væru í
eðlilegu ástandi. Þá sagði hann að reynt
yrði eftir megni að forðast jarðrask og
óþægindi við lagningu nýrra stofnæða,
þær yrðu ekki lagðar á sömu stöðum og
þær gömlu, heldur yrði forðast að fara
með þær inn á lóðir, en reynt að leggja
þær í götur og annars staðar á almenn-
ingslandi.
-JGK
■ Kór Flensborgarskóla söng við útskriftarathöfnina.
■ Þriðjudaginn 20. des. voru braut-
skráðir 36 stúdentar frá Flensborgarskól-
anum í Hafnarfirði og einn nemandi
með almennt verslunarpróf. Flestir luku
námi af viðskiptabraut, 10 talsins, 7 eru
nteð próf af eðlisfræðibraut. 6 af náttúru-
fræðibraut, 4 af félagsfræðibraut, 4 af
málabraut, 4 af uppeldisbraut og einn af
heilsugæslubraut. Bcstum árangri náði
Sjöfn Jónsdóttir af uppeldisbraut.
í ræðu Kristjáns Bersa Ólafssonar
skólameistara kont fram að nú hefur
Flensborgarskólinn alls brautskráð 625
stúdenta frá því að honum var breytt í
framhaldsskóla vorið 1975. Kór Flens-
borgarskóla undir stjórn Hrafnhildar
Blomsterberg söng við útskriftarathöfn-
ina. -BK
36 útskrifast
frá Flensborg
ÁRAMÓTA-
BRENNUR1983
1) Við Hólaberg og Hraun-
berg. Ábm. Björn Ólafs-
son, Neðstaberg 11.
2) Á móts við Bólstaðahlíð
52-56. Ábm. Kjartan
Norðdahl, Bólstaðahlíð
54.
3) Engjasel-Seljaskógar.
Ábm. Friðrik S. Kristins-
son, Engjaseli 52.
4) Ofan pg norðan við Jóru-
sel. Ábm. Ari Ólafsson,
Jóruseli 4.
5) Við Norðurfell. Ábm. Sig-
fús Bjarnason, Æsufelli 4.
6) Sólland v/ Reykjanes-
braut. Ábm. Ómar
Hallsson, Sóllandi v/
Reykjanesbraut.
7) Milli Hvassaleitis og Ofan-
leitis. Abm. (Juölaugur
Einarsson, Miðleiti 3.
8) Upp af Jörvabakka. Ábm.
Magni Steingrímsson,
Jörvabakka 14.
9) Við Suðurfell. Ábm.
Ágúst Ágústsson, Rjúpu-
felli 42.
10) Við Laugarásveg 14. Ábm.
Gunnar Már Hauksson,
Laugarásvegi 14.
11) Við Skildinganes. Abm.
Þorv'aldur Garðar Kristjáns-
son, Skildingarnesi 48.
12) Sunnan viö" Fylkisvöllinn
v/Elliðaár. Ábm. Jóhannes
G. Jóhannesson, Klappar-
ási 5.
13) Austan við Láland, Foss-
vogi. Ábm. Hildigunnur
Halldórsdóttir Logalandi
19.
14) Ofan Unufells. Ábm. Sæm-
undur Gunnarsson, Unu-
felli 3-
15) Gengt Ægissíðu 54. Ábm.
Aðalmundur Magnússon,
Suðurhlíð v/Starhaga.
16) Faxaskjól Ægissíða. Ábm.
Gunnar Pór Adólfsson.
Faxaskjóli 12. X)
17) Milli Krummahóla og
Norðurhóla. Ábm. Jóhanna
Stefánsdóttir, Krummahól-
um 4.
18) Upp af Ferjubakka. Ábm.
Sigurður Pálsson, Ferju-
bakka 16.
19) Við Safamýri. Ábm. Sölvi
Friðriksson, Safámýri 34. X). *
20) Milli Alfheima og Holta-
vegar. Ábm. Hjálmar
Guðmundsson, Dalbraut 1.
21) Við Heiðasel og Hólmasel.
Ábm. Gunnar Gunnars-
son, Hagaseli 21.
22) Sunnan Alaska Breiðholti.
Ábm. Júlíus Sigurðsson,
Ystaseli 25.
23) Við Höfðabakka og
Grænastekk. Ábm. Geir
Sigurðsson, Gilsárstekk 7.
24) Á auðu svæði við Jöklasel.
Ábm. Magnús Steingríms-
son Fjarðarseli 34.
25) Við Leirubakka. Ábm.
Hjálmar Fornason Leiru-
bakka 18.
26) Við írabakka. Ábm. Jón
Kjartansson, írabakka 6.
27) Við Möðrufell. Ábm. Sig-
urjón Guðmundsson,
Möðrufelli 11.
28) Á Skeiðvelli Fáks í Víði-
dal. (Prettánda brcnna).
Ábm. Katrín S. Briem,
Laugarásveg 54.
29) Sunnan við Bjarmaland 18.
Ábm. Jón Guðgeirsson,
Bjarmalandi 18.
30) Á móts við Sörlaskjól 44.
Ábm. Troels Bendtsen
Sörlaskjóli 52.
X) Stáírstu brennurnar.
Gleðilegt nýtt ár.
Bjarki Elíasson
yfirlögregluþjónn