Tíminn - 01.01.1984, Síða 11

Tíminn - 01.01.1984, Síða 11
SUNNUDAGUR 1. JANUAR 1984 11 fréttaannáll 1983 Foreldrar þríburanna, Guðmunda Brynjólfsdóttir og Reynir Arnórsson. ITímamvnd Árni) brýr með sér. Hentu ýmsir gaman að því að brýrnar sem brustu voru allar nýjar, - en þær gömlu stóðu eftir sem áður. Spratt af þessu ýmisleg kerskni í garð yngri verkfræðinga, sem vitanlega svör- uðu fullum hálsi og bentu á gildar og góðar orsakir fyrir örlögum brúnna. Þann 10. febrúar varsíðasti skiladagur skattframtala og var að vanda margt um manninn á skrifstofum skattstjóra. Einkennilegt ljósfyrirbæri sást á himni yfir Austfjörðum að kvöldi 12. febrúar, sem einnig varð vart við á hafinu sunnan Færeyja. Lagði af þessu mikla birtu og varð víða svo bjart sem um dag væri. Álitið var að hér hefði verið um svo- nefndan vígahnött að ræða. Um miðjan mánuðinn boðuðu að- standendur Kvennaframboðsins í Reykjavík að sérstakur kvennalisti mundi bjóða fram við væntanlegar al- þingiskosningar að vori. Vélbáturinn Akurey frá Höfn í Hornafirði strandaði austan við Horna- fjarðarós þann 18. febrúar, er vél hans stansaði. Var báturinn á heimleið úr netaróðri. Hann náðist skjótt af strandstað, en laskaðist talsvert. Eldur kom upp í svínabúi að Sveðju- stöðum í ytri Torfustaðahreppi í V- Hún., þann 2o. febrúar og drápust 24 svínanna. Skreiðarframleiðendur fylltust ugg, er Seðlabanki íslands ákvað að hætta kaup- um á skreið um sinn, vegna óvissu í sölumálum. Saksóknari höfðaði mál á hendur Video-son og var fyrirtækinu gefið að sök að hafa rekið sjónvarp um þráð á 15 kerfum í Reykjavík, KópavogTog Hafn- arfirði. Var krafist að ákærðu yrði dæmdir í fjársektir, auk þess sem tæki þau og búnaður sem til þessarar starf- semi var notaður skyldi gerður upp- tækur. Kauplagsnefnd úrskurðaði eftir 20. febrúar að hinn 1. mars skyldu verðbæt- ur á laun reiknast 14.7% og þar með mundu laun allra launþega á landinu nema 1.8-2 milljörðum. Margir hrukku við er opinbert var gert að hvert örkumlaslys kostar andvirði 3ja einbýlishúsa. Vonandi hafa þessi tíðindi hvatt menn til enn frekari gætni í um- ferðinni. Nýr flugmálastjóri var skipaður sem eftirmaður Agnars Kofoed Hansen þann 25. febrúar. Er hann Pétur Einarsson, sem áður gegndi starfi varaflugmála- stjóra. Ófagrar freftir bárust um umhirðu- laust fé á bænum Laugabóli í Auðkúlu- hreppi. Var féð sagt skjóllaust og að margt af því hefði horfallið. Oddviti Auðkúluhrepps kvað ástæðuna fyrir hrakningi fjárins þá að fjárhús á Lauga- bóli hefðu fokið og hefði verið talið að óhætt væri að láta féð ganga úti um hríð. STORBRUNAR 0G SKIPSSTRÖND Þann 1. mars varð Ijóst að Gunnar G. Schram hafði orðið hinn ótvíræði sigur- vegari í prófkjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi, en hann hreppti 2. sætið á listanum og vantaði aðeins 288 atkvæði til þess að ná fyrsta sæti. Ólafur Jóhannesson, utanríkisráð- herra varð sjötugur þann 1. mars og heimsótti ríkisstjórnin afmælisbarnið af því tilefni. Þar færði dr. Gunnar Thor- oddsen Ólafi fagran silfurbakka að gjöf og samherjar gáfu honum málverk eftir Jóhannes Geir úr Skagafirði. Hafrún ÍS 400 strandaði undir Stiga- hlíð við ísafjarðardjúp þann 2. mars. Áhöfninni, 11 mönnum. var bjargað með aðstoð þyrlu. Sænskur prófessor sótti um leyfi heil- brigðisyfirvalda á íslandi til þess að gera tilraunir með gæði tannkremstegunda á 800 íslenskum börnum í þrjú ár. Tvær franskar þyrlur voru við margs- konar björgunaræfingar hér á landi í febrúar og mars og hinn 5. mars var efnt til hópslysaæfingar við Helgafell, þar sem þyrlurnar þóttu gefa góða raun. Þær aðstoðuðu einnig við björgunina úr Hafrúnu ís., sem segir frá hér að ofan. Harðorð gagnrýni kom fram á Sædýra- safnið frá Sambandi dýraverndunarfé- laga í bréfi til menntamálaráðherra og var lagt til að dýrin yrðu flutt úr landi, eða þeim lógað ella, þar sem viðurgjörn- ingur væri alls ófullnægjandi í safninu. Var ákveðið síðast í mánuðinum að : veita safninu nokkurn frest til fram- kvæmda á ýmsum umbótum. Milljónatjón varð í Álafossverksmiðj- unum að morgni þriðjudagsins 15. mars. Eyðilögðust um 100 tonn af óunninni ull, vélar og litarefni og loks 450 fermetr- ar af verksmiðjuhúsunum. Þann 16. mars fréttist að hlutafé Flugleiða í Cargolux, 62 milljónir króna, hefði verið afskrifað með öllu. Var nokkur uggur ríkjandi um áhrif þessa á rekstur Flugleiða, en Cargolux hafði verið talið blómlegt fyrirtæki og ein meginstoð Flugleiða. Litlu munaði að árekstur yrði á milli ■ Knattspyrnugarpinum kunna, Ásgeiri Sigurvinssyni og Ástu konu hans fæddist dóttir þann 7. mars. (Tímamynd Róbert) Álafossbruninn olli tugmilljónatjóni. (Tímamynd G.E.) Sjóir ríða yfir Hafrúnu á strandstað (Tímamynd Arni) % • flugvélar frá Arnarflugi og herflugvélar af Keflavíkurflugvelli þann 15. mars. Forðaði það ósköpum að aðstoðarílug- maður Arnarflugsvélarinnar sá hervél- ina í tíma og gat sveigt af leið á síðustu stundu. Kona ól barn í sjúkrabíl frá Sauðár- króki þann 21. mars er bíllinn var á leið með hana frá bænum Bústöðum í Lýt- ingsstaðahreppi til Sauðárkróks. Gekk fræðingin vel og heilsaðist konunni og barninu, 13 marka dreng, vel á eftir. Urgur kom í stuðningsmenn Banda- lags jafnaðarmanna á Reykjanesi, þegar Vilmundur Gylfason hafnaði lista upp- stillingarnefndarinnar á staðnum. Kváð- ust stuðningsmennirnir, - Bandalag Suðurnesja, - hafa látið af stuðningi við Bandalag jafnaðarmanna þar með. Deilur stóðu á Norðurlandi - vestra um hvort svonefndum „göngumönnum“ undir forystu Ingólfs Guðnasonar al- þingismanns skyldi leyft að nota bókstaf- ina BB við komandi alþingiskosningar. Beitti kjördæmisráð Framsóknarflokks- ins sér gegn því að leyfi fengist, en yfirkjörstjórn kvað upp þann úrskurð 24. mars að þetta leyfi yrði veitt. Aðalfundur Flugleiða var haldinn þann 24. mars og kom þar fram að þótt tekjur félagsins hefðu tvöfaldast að raun- gildi, nam tap þá 100 milljónum króna. Dregið var í áskrifendagetraun Tím- ans þann 25. mars og kom lokavinning- urinn í getrauninni upp á nafn þeirra Sigríðar Sigurgeirsdóttur og Friðriks Kristjánssonar, rafveitustjóra, á Höfn í Hornafirði. Hæstaréttardómur gekk þann 27. mars í svonefndu „Þingvallastrætis- máli,“ á Akureyri. Hafði verið ærið agasamt meðal íbúa húss eins við götuna um langt skeið og var íbúum fyrstu hæðar gert að rýma íbúð sína og verða á brott úr húsinu. Skoðanakannanir hófust í lok mánað- arins á vinnustöðum um fylgi stjórnmála- flokkanna og kom í Ijós að Bandalag jafnaðarmanna mundi eiga miklu fylgi að fagna, - allt að 20%. Páskar gengu í garð. Víða var illfært á landinu um þetta leyti og snjóar miklir og þann 29. mars féll snjóflóð í Mánár- skriðum nærri Strákagöngum, og annað snjóflóð, skömmu síðar vestan við op ganganna. Þarna lokuðust inni veghefill frá Sauðárkróki og að auki bíll með farþega á leið að áætiunarvél Arnartlugs. Var fólkinu komið fyrir í Sólgarðsskóla uns vegurinn opnaðist að nýju. Aprll SIGUR „NYJU FRAMB0DANNA’ Um páskana tóku menn að óttast um afdrif 32ja ára gamals Frakka, sem lagt hafði upp í ferðalag yfir Vatnajökul á föstudaginn langa. Hafði hann vcrið varaður við að leggja á jökulinn, eri hann sinnti engum aðvörunum, enda vel til fcrðar búinn. Kom maðurinn fram á Breiðamerkursandi þann 6. apríl og hafði þá verið á ferðinni í lOdaga. Hann var nokkuð kalinn og sagði ferðalagið hafa verið hið skelfilegasta. Um páskana var gerð stórleit að tveimur skátadrengjum úr Reykjavík sem týndust á Bláfjallasvæðinu. Leituðu þeirra á þriðja hundrað manns og fund- ust þeir heilir á húfi. 1200 tonn af saltfiski voru endurscnd frá Portúgal í byrjun mánaðarins, þar sem hringormar höfðu fundist í fiskinum. Brá mönnum í fiskiðnaði illi- lega við þessi tíðindi og var ákveðið að allur fiskur skyldi gegnumlýstur fram- vegis, þótt því fylgdi tugmilljóna kostn- aður. í verðbólguspá VSÍ þann 7. apríl kom fram að framfærsluvísitala muni að öllu óbreyttu hækka um 110% á árinu. í tilefni af þessum útreikningi lýsti Stein- grímur Hermannsson, formaður Frani- sóknarflokksins því yfir, að lögbinda yrði aðgerðir til lengri tíma að kosning- um loknum þar sem atvinnuvegunum yrði ekki lengur bjargað með bráða- birgðaráðstöfunum. Perez De Cuellar aðalframkvæmda- stjóri SÞ. kom til íslands þann 8. apríl. Hitti hann að máli forseta íslands, en einnig forsætisráðherra og utanríkisráð- herra. Bar hann lof á þann stuðning sem þjóðir Norðurlanda hafa veitt samtök- unum. „Cliff Barnes“, öðru nafni Ken Ker- ceval hinn kunni leikari úr „Dallas" þáttunum kom til Islands á vegum SÁÁ í tilefni af söfnun til sjúkrastöðvar sam- takanna. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt- ir, heimsótti Frakkland í opinberri heim- sókn sem stóð dagana 12-15 apríl. Hitti forsetinn Claude Cheysson, utanríkis-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.