Tíminn - 01.01.1984, Side 17

Tíminn - 01.01.1984, Side 17
16 ®imm SUNNUDAGUR 1. JANUAR 1984 SUNNUDAGUR 1. JANUAR 1984 Bimhm 17 Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins: ■ Frá því ári sem nú er að líða er margs að minnast. Fað hefur verið viðburðaríkt. Tímabært er að meta þann árangur, sem náðst hefur á innlendum vettvangi, og mikilvægt að leggja þannig grundvöll að því, sem við viljum að verði á árinu 1984. STJORNAR- MYNDUNIN Eftir kosningarnar til Alþingis í apríl s.l. var staðan í íslenskum þjóðmálum alvarleg og að ýmsu leyti óvenjuleg. Ekki hafði náðst samstaða í ríkisstjórn um leiðir til þess að halda verðbólgunni í skefjum. Hún lék því lausum hala. Aðgerðum, sem nauðsyn- legar voru til þess að halda fullri atvinnu við minnkandi sjávarafla og erfiðleika í útgerð, hafði verið leyft að renna út í verðlagið. Alþýðubandalagið var ófáanlegt til þess að draga slíkar ráðstafan- ir út úr hringrás verðbólgunnar. Launin urðu að fá að hækka, þótt vita tilgangslaust væri og líklegast til tjóns fyrir launþega. Fjóðartekjur voru minnkandi og engin innistæða til þess að greiða hærri laun. Pví fór verðbólga úr böndum og varð meiri en áður hafði þekkst. Öllum var ljóst, og viður- kenndu reyndar, að við svo búið mátti ekki standa. Alþýðubanda- lagið birti neyðaráætlun og lagði m.a. til, að vísitöluhækkun launa I. júní s.l. yrði frestað um einn mánuð. Peim sem öðrum var ljóst, að grípa varð til róttækra aðgerða til þess að koma í veg fyrir stöðvun atvinnuvegaiina, en þorðu þó ekki að stíga skrefið til fulls. Eftir kosningarnar varð ríkis- stjórn ekki mynduð á vinstri kanti stjórnmálanna án þátttöku a.m.k. fjögurra flokka. í þeim miklu erfiðleikum, sem við var að stríða, var slík stjórnarmynd- un óraunhæf. Ekki var við því að búast, að nauðsynleg samstaða gæti náðst með svo mörgum aðilum um þær róttæku aðgerðir, sem óhjákvæmilegar voru. Því lá ljóst fyrir, að ríkisstjórn varð ekki mynduð án þátttöku Sjálf- stæðisflokksins. Innan Sjálfstæðisflokksins var vilji til þess að mynda ríkisstjórn með Alþýðubandalaginu, og ég efa ekki, að til þess voru einnig ýmsir fúsir innan Alþýðubanda- lagsins. Einnig hvöttu ýmsir sjálfstæðismenn til þess, að ríkis- stjórn yrði mynduð með Alþýðu- flokknum og stuðningi annars hvors nýju flokkanna. Þó mjög brynt væri, að traust ríkisstjórn yrði mynduð hið fyrsta, varð á þetta hvort tveggja að reyna. Það var gert, bæði með opinber- um og leynilegum viðræðum. Af hálfu Framsóknarflokksins var ekkert gert til þess að koma í veg fyrir slíka stjórnarmyndun. Framsóknarflokkurinn tapaði fylgi í kosningunum í apríl. Vafa- laust má að hluta rekja það til þess, að fylgismenn flokksins krefjast meira af honum en gert er af ýmsum öðrum flokkum, að því er virðist. Aðgerðarleysi í efnahagsmálum á árinu 1982 og á fyrri hluta þessa árs var Fram- sóknarflokknum erfitt, enda urðu kröfur um stjórnarslit ekki fátíðar, þegar hver tilraun eftir aðra til þess að ná samstöðu um raunhæfar aðgerðir í efnahags- málum, mistókst. Því máþóekki gleyma, að ríkisstjórnin lagði áherslu á að halda fullri atvinnu, og það tókst. Eftir kosningarnar taldi ég og ýmsir framsóknar- menn aðrir eðlilegt, að flokkur- inn yrði utan ríkisstjórnar enda' verið í stjórn nánast samfellt í meira en áratug. Sú varð þó ekki raunin. í ljós kom, að ríkisstjórn, sem vildi og þorði að taka á efnahagsmálum, varð ekki mynduð án Framsókn- arflokksins. Við Framsóknar- menn töldum ekki fært að skor- ast undan þeirri ábyrgð og gengum því til viðræðna við Sjálfstæðisflokkinn um stjórn- armyndun. Á milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins er sögu- legt djúp. Hugsjónir flokkanna eru í ýmsu ólíkar og verður svo eflaust áfram. Flokkarnir voru og eru hins vegar sammála um að kveða varð niður verðbólguna og það fljótt, ef koma ætti í veg fyrir stöðvun atvinnuveganna og atvinnuleysi. Ekki verða hér raktar þær ítarlegu viðræður. sem fram fóru á milli flokkanna, en ég vil þó nefna fáein atriði. Full samstaða var um, að óhjákvæmilegt væri að afnema vísitölubindingu launa. Við Framsóknarmenn höfum lengi haldið því fram, að vísitala tryggi ekki í óðaverðbólgu hagsmuni launþega, nema síður sé, en magni verðbólgu með víxlverkun verðlags og launa. Við höfum því ítrekað leitað eftir samkomu- lagi um a.m.k. verulegar breyt- ingar á útreikningi verðbótavísi- tölu, en því miður án umtals- verðs árangurs. Hins vegar voru nokkuð skiptar skoðanir á milli flokkanna um ýmis framkvæmdaratriði efna- hagsaðgerðanna. Sjálfstæðis- flokkurinn kaus að láta markað- inn ráða sem mestu, m.a. þróun launa, verðlags og vaxta, eins og reyndar hafði komið fram í leiftursókn þeirri, sem flokkur- inn boðaði fyrir kosningarnar 1979. Við Framsóknarmenn töldum hins vegar óhjákvæmi- legt, að ríkisstjórnin hefði sterka hönd í bagga þar til jafnvægi hefði náðst í efnahagsmálum. Við töldum ekki fært að steypa launþegum út í erfiða og líklega harðvítuga samninga við vinnu- veitendur um kaup og kjör, á sama tíma og verðbætur á laun voru afnumdar. Við lögðum einnig áherslu á lækkun vaxta og verðtryggingar fjármagns eins fljoft og hjaðnandi verðbólga frekast leyfði. í því samkomulagi, sem náðist, var, sem eðlilegt er, farið bil beggja. Efnahagsþróuninni var með lögum settur mjög fastur rammi í átta mánuði, en eftir það gert ráð fyrir, að launasamningar og verðlagsákvarðanir yrðu frjálsar. EFNAHAGSMALIN Árangurinn af þessum aðgerð- um hefur orðið mikill og náðst fyrr en menn þorðu að vona. í júní s.l. var ársverðbólga um eða yfir 130 af hundraði. Á grund- velli vísitölu þriggja síðustu mán- aða ársins má hins vegar fullyrða, að verðbólga sé nú aðeins um tuttugu af hundraði og á niður- leið. Ég er ekki í vafa um, að þennan mikla árangur má ekki síst þakka þeirri festu, sem sköpuð var með hinum ýmsu bráðabirgðalögum, sem sett voru í efnahagsmálum strax eftir valdatöku ríkisstjórnarinnar. Á sum atriði þeirra laga hefur verið deilt og þau talin ólýðræðisleg. Því mótmæli ég. Tímabundin, hörð stjórn var nauðsynleg við þær mjög alvarlegu aðstæður, sem voru um mitt árið, aðstæður sem ógnuðu efnahagslegu sjálf- stæði þjóðarinnar. Sá mikli árangur, sem þegar hefur náðst í hjöðnun verðbólgu, er staðfestur með þróun flestra annarra þátta efnahagslífsins. Verðlagsbreytingar urðu vissulega miklar um mitt árið og fram á haustið, enda varla við öðru að búast eftir mikla lækkun gengis fram til loka maímánaðar. Hins vegar hafa verðhækkanir nú stöðvast og jafnvel eru dæmi um verðlækkanir. Vextir hafa lækkað fjóra mán- uði í röð um samtals um og yfir 20 prósentustig, og eru nú allir vextir komnir vel niður fyrir 30 af hundraði, nema vanskilavext- ir. í því felst ekki lítill sparnaður fyrir atvinnuvegina og kjarabót fyrir þá einstaklinga sem skulda. Viðskiptahalli mun á þessu ári væntanlega aðeins verða um IVi af hundraði í stað 10 af hundraði 1982. Þennan árangur finnur í raun og veru hver maður í sínu dag- lega lífi. Nýlega hitti ég mann, sem stendur í byggingarfram- kvæmdum. Hann lýsti sérstakri ánægju sinni yfir því, að timbur hefði ekki hækkað nú í þrjá mánuði. Kvað hann ólíkt betra við að eiga en áður, þegar nauð- synlegt var að kaupa allt sem fyrst og löngu áður en þörf var á. Þetta veit ég að þjóðin finnur og metur. Því verður ekki neitað, að kjaraskerðing hefur orðið tölu- verð. Reyndar hafa allir stjórn- málaflokícar viðurkennt, að svo hlaut að verða. Alþýðubandalagsmenn fóru t.d. ekki leynt með það, að minnsta kosti á meðan þeir voru í ríkisstjórn, að kjaraskerðing hlaut að verða ekki minni en sem nemur samdrætti þjóðartekna. Því er þá hins vegar sleppt, að við íslendingar höfum nú um nokkurt skeið lifað í vaxandi mæli um efni fram. Við höfum eytt meiru en við höfum aflað. Segja má, að menn hafí tekið út lífskjörin fyrirfram. Á þessari braut varð ekki áfram haldið, enda erlendar skuldir þjóðarinn- ar orðnar hættulega miklar. Óhjákvæmilegt var að rifa seglin, einnig að þessu leyti. Því hlutu tekjur manna að dragast meira saman en þjóðartekjurnar. í þessu sambandi vill oft gleymast, að ýmislegt hefur verið gert til þess að létta stórum hópum þjóðfélagsþegna byrð- arnar. Meðal annars hefur mynd- arlegt átak verið gert í húsnæðis- málum, niðurgreiðsla á upphit- unarkostnaði stórlega aukin, persónuafsláttur og barnabætur i auknar og tekjutrygging og mæðralaun hækkuð. Þetta breytir hins vegar ekki því, að þeir, sem lægstar tekjur höfðu fyrir, eiga erfitt með að " þola samdráttinn. Svo mun einn- ig vera um ýmsa, sem í hærri launum eru, en reist hafa sér hurðarás um öxl með mikilli fjárfestingu. Fyrst og fremst er það þó fyrri hópurinn, sem ég hef áhyggjur af; þeir sem varla hafa fyrir nauðþurftúm. Ég tel því eitt mikilvægasta verkefnið framundan að létta undir með þeim þjóðfélagsþegn- um, sem við erfiðustu kjörin búa. ARIÐ 1984 Þótt mikill árangur hafi náðst, er björninn ekki unninn. Verð- bólgan hefur hjaðnað mjög mik- ið en er þó of mikil enn. Vextir og fjármagnskostnaður er enn of hár. Viðureignin við verðbólg- una heldur því áfram á næsta ári. Ætla má þó, að sú viðureign verði auðveldari en verið hefur undanfarna mánuði. Flestir áhrifavaldar verðbólgunnar eru að hverfa, og hún ætti því að hjaðna jafnt og þétt, ef ekki koma nýir hvatar. Meðal annars er ekki gert ráð fyrir hækkun á verði opinberrar þjónustu á næsta ári. Að vísu eru alvarleg hættu- merki. Erfiðleikar fara enn vax- andi í sjávarútvegi, og ljóst er því, að þjóðartekjur munu lækka þriðja árið í röð. Af þessari ástæðu hefur ríkisstjórnin ekki talið fært að gera ráð fyrir svo föstu gengi á næsta ári sem verið hefur undanfarna mánuði. Út- flutningsatvinnuvegirnir, eink- um fiskvinnslan, munu eiga erfitt með að þola slíkt við minni afla og lakari afkomu. Ríkisstjórnin hefur þó ákveðið, að gengi skuli ekki breytast á árinu um meira en 5 af hundraði hið mesta. Það er djörf ákvörðun og setur efna- hagslífinu fastan ramma. Ríkisstjórnin vill einnig í lengstu lög forðast að auka skuldirþjóðarinnarerlendis. Þær eru þegar orðnar yfir 60 af hundr- aði þjóðartekna og því hættulega miklar. Með þessu er efnahags- lífinu einnig sniðinn þröngur stakkur. Vera má, að erfitt reyn- ist að halda þetta markmið, eink- um ef atvinnuástand verður erfitt vegna erfiðleika í sjávarútvegi. Með tilliti tíl þess mikla árang- urs, sem þegar hefur náðst, telja stjórnarflokkarnir hins vegar rétt að létta af ýmsum þeim hömlum, sem settar voru með bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar. Jafnframt eru ekki lögboðnar frekari hækkanir launa, eins og var 1. júní og 1. október s.l. Samningar um kaup og kjör verða á ábyrgð launþega og vinnuveitenda. Ríkisstjórnin mun ekki hafa af þeim bein afskipti, nema þar sem hún er aðili að samningum. Með minnkandi þjóðartekjum er svigrúm á næsta ári til launa- hækkana ákaflega lítið, og reyndar ekkert til almennra kjarabóta. Miðað við það, að gengi breytist ekki um meira en 5 af hundraði, telur ríkisstjórnin þó unnt að gera ráð fyrir, að laun hækki að meðaltali um 4 af hundraði. Þannig yrðu verð- hækkanir, sem af gengissigi stafa, að mestu bættar. Eg hef jafnframt lýst þeirri skoðun minni, og vil ítreka hana nú, að þetta svigrúm verði notað til þess að bæta kjör þeirra, sem lægstu launin hafa. Það veldur von- brigðum, að svo virðist sem for- ystumenn bæði launþega og at- vinnurekenda hafi gefist upp við að leita leiða til þess að bæta lægstu launin án þess að almenn launahækkun fylgi. Mér er Ijóst, að þetta er allerfitt dæmi. Hins vegar eru fá dæmi svo erfið, að þau verði ekki leyst, ef vilji er fyrir hendi. Atvinnurekendur halda því fram, að svigrúm sé ekkert til launahækkana. Að sjálfsögðu verða þeir að meta það sjálfir. Það er þó ekki í samræmi við þær efnahagsforsendur, sem ríkis- stjórnin hefur sett og ég hef rakið hér að framan. Krafa um 30 til 40 af hundraði launahækk- un er hins vegar fullkomlega óraunhæf. Ef einn hópur nær fram slíkri launahækkun, er lík- legt að aðrir fái hana einnig. Þar sem gert er ráð fyrir því, að verðákvarðanir verði sem næst frjálsar á næsta ári, mundu mikl- ar launahækkanir að sjálfsögðu leiða til mikillar verðhækkunar á allri innlendri framleiðslu, sem yrði þá ósamkeppnisfær við inn- fluttan varning og á erlendum mörkuðum. Slíkt gæti aðeins leitt til stöðvunar innlendra at- vinnuvega, þ.e.a.s. ef gengi yrði ekki fellt, sem hleypti af stað nýrri verðbólguskriðu og enn auknum erlendum lántökum. Ég trúi því satt að segja ekki, að slíkar kröfur séu settar fram í alvöru. ATYINNUASTANDIÐ Spár þess efnis, að harðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum mundu leiða til atvinnuleysis, hafa ekki ræst. Hins vegar er veruleg hætta á að stórum minni þorskafli og erfið- leikar í sjávarútvegi verði hættu- legir atvinnuöryggi víða um land. Þetta hefur reyndar þegar komið fram á nokkrum stöðum. Gegn atvinnuleysi verður að sporna með öllum ráðum. Mikilvægast er vafalaust hvernig tekst að reka sjávarút- veginn. Þarf í því sambandi bæði að hafa í huga afkomu útgerðar- innar og atvinnu á sjó og í landi. Þegar hafa nokkrar áðgerðir verið ákveðnar í því skyni að létta skuldabyrði útgerðarinnar. Fyrir mörg hin nýrri og dýrari skip mun það þó varla reynast nægjanlegt. Lausn á þessum fjár- hagsvanda útgerðarinnar verður eitt meginverkefni ríkisstjórnar- innar á nýju ári. Einnig er mikilvægt að skipu- leggja veiðarnar þannig, að at- vinna geti orðið stöðug og jöfn í landi. Hún verður minni þegar á heildina ér litið vegna minni afla, en mikilvægt er að atvinnuleysi skapist þó ekki. Eg hef í þessu sambandi nefnt það við forystumenn atvinnurek-. enda og launþega, að skipuct- verði atvinnumálanefnd, sem fái það hlutverk að fjalla um at- vinnuástand á þeim stöðum, þar sem atvinnubrestur verður, og gera tillögur til úrbóta. Að vel athuguðu máli og í einstökum tilfellum getur að mínu mati komið til greina að heimila er- lendar lántökur til þess að bæta úr alvarlegu atvinnuleysi. Skipa- smíðaiðnaðinn vantar t.d. til- finnanlega verkefni, sem þó eru feykinóg í viðhaldi flotans, ef fjármagn fæst í því skyni. Þannig mun verða nauðsynlegt að taka á vandamálunum þegar þau koma upp, svo að þjóðin komist sem best yfir þá tíma- bundnu erfiðleika, sem við er að stríða nú. FRAMTIÐIN Stefnt er að því, aðverðbólga í lok næsta árs verði komin niður fyrir 10 af hundraði. Ég sé ekki ástæðu til að efast um, að það megi takast, ef skynsemi er látin ráða í launasamningum og verð- lagsmálum. Þá er jafnframt traustur grundvöllur fenginn að nýrri sókn til bættra lífskjara. Tímabært er því að huga að lengri framtíð, meta stöðu okkar vandlega, auðlindirnar og þá möguleika, sem framundan eru. Nýlega var hér á ferð amerísk- ur vísindamaður, Dr. Gerald O. Barney, sem veitti forstöðu um- fangsmiklu starfi. sem fram- kvæmt var í forsetatíð Jimmy Carters. Leitast var við að spá um þróun efnahagsmála í heim- inum fram til ársins 2000. Gott tækifæri gafst til að ræða við dr. Barney um slíkar spár. Reyndar hafa mörg slík verk verið unnin. Niðurstaðan hefur nánast alltaf orðið sú sama: Horfur hafa verið taldar alvarlegar, aðeins mis- munandi mikið. Ef ekki er á fjölmörgum sviðum snúið við blaði hið fyrsta og lifnaðarhátt- um breytt, er spáð, að fólksfjölg- un verði mjög mikil, mengun, gífurleg gróðureyðing, vatns- skortur, orkuskortur og vaxandi hungur hinna fátæku. Erfiðleikar undanfarinna ára hljóta einnig að vekja með okkur Islendingum ýmsar knýjandi spurningar um framtíðarhorfur. Þrátt fyrir mikla fjárfestingu á undanförnum árum, hefur ekki tekist að skapa þá fjölbreytni og festu í efnahagslífi, sem nauð- synleg er. Margt bendir til þess, að skammtíma sjónarmið hafi ráðið um of, en ekki verið hugao nægilega vel að breytingum tii lengri tíma litið á ýmsum grund- vallarþáttum þjóðlífsins, bæði hvað varðar innlendar aðstæður og þær, sem ráðast á alþjóðavett- .vangi. Framundan felast vafalaust ýmsar hættur fyrir okkur en einri- ig tækifæri til að bæta stöðu okkar, um leið og við getum lagt þekkingu og reynslu af mörkum til að aðstoða lakar settar þjóðir í erfiðleikum þeirra. Dr. Barney taldi stöðu okkar fslendinga óvenjugóða. Landrýmiermikið, umhverfi lítið mengað, g'róður- eyðingu má auðveldlega snúa við, mikilvægustu auðlindirnar eru endurnýjanlegar og sumar ennþá lítið nýttar. Menntun og þekking þjóðarinnar er á háu stigi og getur orðið undirstaða háþróaðs iðnaðar. Nauðsynlegt er að hefja hið fyrsta athugun á eigin framtíðar- horfum. Því hef ég lagt til við ríkisstjórnina, að það verði gert á næstu tveimur árum. Það er ekki vandalaust verk. Til þess verður að kveðja alla þá, sem gerst þekkja til mála á hverju sviði. Framtíðarþróun má ekki byggjast á tilviljun eða handa- hófi, heldur á vel athuguðu og undirbúnu máli. Á sumum svið- um kann að vera, að þekkingu skorti. Sérstaklega er mikilvægt að hún sé traust í grundvallar- þáttum eins og í sjávarútvegi, sem eflaust um langap aldur mun verða ein meginstoð efnahags- lífsins. Athyglisvert viðtal við ungan líffræðing, sem birtist í einu dagblaði bæjarins nýlega, vekur til umhugs’unar um, hvort í fiskifræðinni sé byggt á nógu haldgóðri þekkingu. Raunar á hið sama við um nýjar og álitleg- ar framleiðslugreinar eins og fiskeldi og loðdýrarækt, sem þeg- ar eru hafnar og lofa mjög góðu, en verða að byggjast á þekkingu og vandvirkni. Um leið og slík framtíðarathugun leiðir í Ijós kostina, sem við eigum, og þeir eru metnir, þarf að draga fram veikleikana ög vekja athygli á því, hvernig úr þeim verður bætt. LOKAORÐ Það er kaldhæðni örlaganna, að samfara gífurlegri tækniþróun stendur heimurinn nú.á alvar- legri tímamótum en oft áður. Næstu árin geta ráðið því, hvort tortíming eða farsæld er fra- mundan. Mennirnir hafa næga þekkingu til þess að snúa við blaðinu og tryggja mannkyni öllu farsæla framtíð. Til þess þarf að vísu framsýni og stórhug. Við íslendingar erum litlir í þessari heimsmynd, en við erum óumdeilanlega þátttakendur og okkur ber skylda til þess að leggja okkar af mörkum til að vel megi fara. Við skulum byrja í eigin garði -, uppræta illgresið og gróðursetja fyrir framtíðina. Góðir íslendingar, Ykkur öllum þakka ég liðið .. ár. Öllum Iandsmönnum óska ég þess, að nýtt ár megi verða friðsælt og farsælt, á því ári megi takast að leggja traustan grund- völl að nýrri sókn til bættra lífskjara og betra mannlífs. Framsóknarmönnum um land allt þakka ég samstarfið og árna heilla. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.