Tíminn - 01.01.1984, Qupperneq 26
26
SUNNUDAGUR 1. JANÚAR 1984
íþróttaannáll 1983 ...
■ Tryggvi Helgason sundmaður
vann mörg góð sundafrek á árinu.
Hann var tvímælalaust bestur
sundmanna, og keppti einn Islend-
inga á KM í Róm.
Tímaniynd Róbert
Gummersbach, v-þýska handboltalið-
ið, sigraði í þýsku bikarkeppninni og
vann því til allra titla á árinu sem eitt lið
getur.
Teitur Þórðarson atvinnuknattspyrnu-
maður í Lens gerði samning við annarr-
ardeildarfélagið Cannes, og flutti sig
þangað suður. Janus Guðlaugsson sem
hafði þjálfað FH fram í júní, fór aftur út
til Fortuna Köln, og hefur leikið þar
síðan.
Leið svo júní, áfram Atli.
JÚlí
HSI hætti við að senda unglingalands-
lið á úrslitakeppni HM í Finnlandi vegna
fjárskorts. Sambandið var mjög
skuldugt, og er enn.
Fjögur stig skildu efsta og neðsta lið í
fyrstu deild í byrjun júlí, og var jöfn
keppni einkennandi fyrir fyrstu deildina
út sumarið.
Islendingar sigruðu í Kalott keppninni
í frjálsum íþróttum í Alta í Lapplandi.
Kristján Hreinsson, ungur og efnilegur
bóndasonur úr Eyjafirði sló 18 ára
gamalt íslandsmet Jóns P. Ólafssonar í
hástökki á mótinu, stökk 2,11 metra
sjálfum sér og öðrum á óvart, hans
langbesti árangur. Bryndís Hólm setti
íslandsmet í langstökki, 6,20 metra, og
þessi tvö ásamt Kristjáni Harðarsyni
langstökkvara úr Ármanni höfðu tryggt
sér þátttökurétt á EM unglinga í Vín.
Guðrún Fema Ágústsdóttir sló 7 ára
gamalt met í 100 metra skriðsundi á
Meistaramóti íslands í sundi. Tryggvi
Helgason hlaut afreksbikarinn á mótinu
fyrir besta afrekið, en einnig slógu í gegn
Bryndís Ólafsdóttir, 14 ára mær frá
Þorlákshöfn, Hugi Harðarson, Selfossi
og Eðvarð Þ. Eðvarðsson, Njarðvík.
Vésteinn Hafsteinsson HSK setti nýtt
íslandsmet í kringlukasti, 65,60 metra í
1. deild bikarkeppni FRI 17. júlí, og
Sigurður T. Sigurðsson, KR setti nýtt
íslandsmet í stangarstökki, stökk 5,25
metra. IR sigraði í 12. sinn í deildinni,
og UMSK vann sig upp úr annarri deild
öllum að óvörum.
Skagamenn sigruðu Breiðablik í
viðureign tveggja efstu liða fyrstu deildar
í knattspyrnunni á Skaganum, og tóku
forystu í deildinni 24. júlí. Valsmenn
áttu í harðvítugri fallbaráttu, ráku þjálf-
ara sinn Klaus Peter, og réðu Sigurð
Dagsson í staðinn.
íslendingar sigruðu Færeyinga í
drengjalandsleik í knattspyrnu í Hafnar-
firði 4-1 25. júlí, og 3-0 daginn eftir.
Fremstur í flokki íslendinga var Sigurður
Jónsson frá Akranesi, sem 16 ára gamall
lék í fjórum landsliðum íslands á sumr-
inu, 15-16 ára, 16-18 ára, 21 árs og yngri
og A-landsliði, og varð yngsti leikmaður
sem leikið hefur í íslensku A-landsliði.
Einar Vilhjálmsson bætti sinni stærstu
skrautfjöður í hattinn til þessa, þegar
hann sigraði í keppninni Norðurlönd-
Bandaríkin í Stokkhólmi 26. júlí. Einar
kastaði 90.66 metra, setti nýtt íslands-
met og sigraði tvo af bestu spjótköstur-
um heims, þá Tom Petranoff Bandaríkj-
unum heimsmethafa, sem kastaði 99
metra rúma á árinu, og Per Erling Olsen
Noregi sem átti best 90,30 metra. Einar
vakti heimsathygli á mótinu, og árangur
hans var sá 10. besti á árinu þegar upp
var staðið, glæsilegt. Fjórir aðrir íslend-
ingar kepptu á mótinu, Óskar Jakobsson
varð fimmti í kúluvarpi langt frá sínu
besta, Þórdís Gísladóttir varð þriðja í
hástökki með „aðeins" 1,83 metra,
Vésteinn Hafsteinsson náði sér ekki á
strik, en Oddur Sigurðsson stóð sig vel í
4x400 metra boðhlaupi. Einar var
stjarna þessara leika, og fékk verðlaun
Norðurlandaráðs fyrir óvæntasta og/eða
besta afrek keppninnar.
Leið svo júlí, áfram Einar.
Ágúst
Gylfi Kristinsson, ungur kylfingur frá
■ Gylfi Kristinsson, íslandsmeist-
ari í golfi 1983. Ungur og geysiefni-
legur golfmaður. Tímamynd Róbert
Keflavík varð Islandsmeistari í golfi í
byrjun ágúst, á einu mesta rigningar-
landsmóti sem sögur fara af. Gylfi stakk
keppinauta sína af síðasta daginn, en
annar varð mjög óvænt Úlfar Jónsson
Keili, aðeins 14 ára táningur. Kvenna-
meistari varð Ásgerður Sverrisdóttir
GR.
ítaiir sigruðu Íslendinga í Kastlands-
keppni í tengslum við Reykjavíkurleika,
sem fóru í vaskinn í orðsins fyllstu
merkingu, keppendur og örfáir áhorf-
endur rigndu bókstaflega í kaf. Það voru
þó útlendingarnirsem slógu íslendingum
við á Reykjavíkurleikunum, virtust þola
kuldann betur.
Norskar sigruðu íslenskar í kvenna-
landsleik í knattspyrnu um mánaðamót
júlí-ágúst, 1-0. „Áugljós vítaspyrna á
Noreg ekki dæmd“, sagði Tíminn rétti-
lega.
íris Grönfeldt spjótkastari setti nýtt
íslandsmet í spjótkasti 7. ágúst, í ung-
lingalandskeppni Norðurlanda í Kaup-
mannahöfn. íris varð þriðja, en þrjár
íslenskar stúlkur sigruðu í sínum grein-
um á mótinu, Helga Halldórsdóttir KR
í 100 metra grindahlaupi, Bryndís Hólm
ÍR í langstökki og Ragnheiður Ólafs-
dóttir FH í 1500 metra hlaupi.
Heimsleikarnir í frjálsum íþróttum í
Helsinki, hinir fyrstu sinnar tegundar,
runnu upp. Þar komu fram margar
stjörnur, skærast skein þó Karl nokkur
Lewis frá Bandaríkjunum sem sigraði í
langstökki, 100 metra hlaupi og ásamt
félögum sínum úr USA-sveitinni í 4x100
metra boðhlaupi. Aðrir sem stóðu sig
sérlega vel voru til dæmis Edwin Moses
grindahlaupari og boðhlaupari USA,
Jarmila Kratoschwilowa hlaupakona frá
Tékkó, sem sigraði í 400 og 800, og
Marie Decker frá Bandaríkjunum sem
sigraði í 1500 og 3000 metra hlaupum
kvenna. Bretinn DalyThompson sigraði
í tugþraut, og heimsmetum rigndi á
leikunum.
Islendingarnir sem kepptu á heims-
leikunum komust hvergi framarlga á
blað. Óskar Jakobsson hætti við að
keppa á leikunum vegna meiðsla og tafa
þeirra vegna frá æfingum, Þráinn Haf-
steinsson var 15. í tugþraut, Þórdís
Gísladóttir varð í 24.-26. sæti í hástökki,
Vésteinn Hafsteinsson komst ekki í
úrslit í kringlukasti. Einar Vilhjálmsson
var verulega óheppinn, varð í 13 sæti í
spjótkastinu, munaði sentimetrum að
hann kæmist í úrslit, fékk tvö köst af
þremur ógild.
Breiðabliksstúlkumar urðu bikar-
meistarar í knattspyrnu, sigruðu Iþrótta-
bandalag Akraness 3-1 í úrslitum, Valur
tryggði sér sigur á fslandsmóti 5. flokks,
og FH-ingar sigruðu tvöfalt í sumarmóti
HSÍ, sem fór í fyrsta sinn fram innan-
húss.
Svíar fengu tvö „útsölumörk á silfur-
fati", er þeir sigruðu íslenskt áhuga-
mannalandslið 4-0 á Laugardalsvellin-
um, án sinna bestu manna.
„Mér fannst þessi leikur ekki góður",
sagði Sigurður Sigurðsson fyrrum
íþróttafréttamaður ríkisfjölmiðlanna í
samtali við Tímann um leikinn.
ísland varð í neðstu sætum í c-riðli
Evrópubikarkeppninnar í frjálsum
íþróttum í Dublin 20-21 ágúst, án allra
bestu keppendanna, Kristján Harðarson
stóð sig best, varð annar í langstökki
með 7,38 metra.
Finnar sigruðu íslendinga 2-0 í
kvennalandsleik í knattspyrnu á Kópa-
vogsvelli, „það sem aðallega háði ís-
lenska liðinu voru yfirþyrmandi þyngsli
varnarinnar“, sagði Tíminn, og hið sama
varð íslenska liðinu að falli í tveimur
leikjum sem í hönd fóru í Norðurlanda-
ferð, 0-5 tap fyrir Svíum í Svíþjóð, og
0-3 skellur fyrir Finnum í Finnlandi.
Skagamenn sigruðu í Bikarkeppni
KSÍ, unnu Vestmannaeyinga í tvísýnum
leik 2-1 eftir framlengingu, „við viljum
bikarinn heim Skagamenn“ söng fjöl-
mennt lið áhangenda Skagamenna á
Laugardalsvelli, og hem fór hann annað
árið í röð. Um sama leyti tryggðu
Framarar sér Islands bikarinn í öðrum
flokki.
Knattspyrnan í V-Þýskalandi hófst í
ágúst, og Ásgeir Sigurvinsson sló í gegn
hvað eftir annað. Góður stígandi hjá
honum og hann að verað heimsþekktur
leikmaður.
Leið svo ágúst, áfram Gylfi.
September
Bogdan Kowalczyk, nýráðinn lands-
liðsþjálfari í handknattleik kom til lands-
ins í ágúst, en margir höfðu óttast að
hann kæmi alls ekkert aftur frá Póllandi.
Hann sagði á blaðamannafundi í byrjun
september að „allt of fá verkefni væru
fyrir A-landsliðið“. .Viðar Símonarson
var um svipað leyti ráðinn kvennalands-
liðsþjálfari.
Skagamenn urðu tvöfaldir meistarar í
knattspyrnunni, gerðu jafntefli við ÍBV
í næst síðasta leik sínum í 1. deild og
urðu íslandsmeistarar, eins og búist var
við, vegna góðrar forystu þeirra.
Stuttgart var efst í V-Þýskalandi í
byrjun september, og „samstarf þeirra
Ásgeirs og Dan Corneliusson er
frábært", sagði Tíminn.
íslenska landsliðið undir 21 árs í
knattspyrnu gerði jafntefli við Hollend-
inga í Hollandi 6. september, og voru
Hollendingar heppnir. „Dómarinn
sleppti tveimur augljósum vítaspyrnum
á Holland", sagði Guðni Kjartansson,
unglingalandsliðsþjálfari.
Daginn eftir fékk ísland stóran skell í
A-landsleik þjóðanna, einnig í Hollandi,
með 8 atvinnumenn og bjartar vonir var
íslenska liðið burstað 3-0. „íslenska liðið
var varla með í fyrri hálfleik", sagði
Tíminn.
Sama dag tapaði íslenska drengja-
landsliðið í knattspyrnu fyrir Englend-
ingum 1-2 á Laugardalsvelli. •
Breiðablik varð íslandsmeistari í
kvennaknattspyrnu, vann KR stórt 4-0 í
síðasta leiknum 7. september, og sigraði
því tvöfalt.
Ingi Björn Albertsson varð marka-
kóngur 1. deildar íslandsmótsins með 14
mörk, Sigurður Grétarsson skoraði 12.
Laufey Sigurðardóttir varð marka-
drottning, með 18 mörk. Ingi Björn fékk
því gullskóinn fyrstur Islendinga.
Framarar unnu bikarkeppnina í 2.
flokki í knattspyrnu, og unnu því tvöfalt.
KA og Fram tryggðu sér fyrstu deild-
arsæti í knattspyrnunni, ísafjörður og
Vestmannaeyjar féllu í aðra deild. Vest-
mannaeyingar féllu sögulega, náðu jafn-
tefli við Breiðablik 2-2 í síðasta leiknum,
og allt leit út fyrir að Keflvíkingar væru
fallnir, en þá kom í ljós að Eyjamenn
höfðu notað leikmanninn Þórð Hall-
grímsson, sem átti að vera í leikbanni.
Eftir margskonar útskýringar á málinu
og umfjallanir, var þeim vísað snyrtilega
í aðra deild. Reynir Sandgerði og Fylkir
féllu í þriðju deild, en Tindastóll og
Skallagrímur fóru upp úr þriðju deild,
Borgnesingar eftir mikil málaferli. Ár-
mann og Sindri féllu í fjórðu deild, en
Leiftur og Stjarnan komust upp í þriðju.
Það vakti athygli í lokabaráttu fyrstu
deildar, að Valsmenn sem höfðu átt
mjög erfitt í 1. deild tryggðu áframhald-
andi veru þar með fjórum sigrum í röð.
Sigurður Dagsson þjálfari var endurráð-
inn.
Skagamenn stóðu sig með mikilli prýði
í Evrópukeppni bikarhafa töpuðu naum-
lega 1-2 heima fyrir Evrópumeisturunum
Aberdeen heima, og gerðu jafntefli úti,
1-1. í báðum leikjunum voru Skagamenn
mjög óheppnir, og hefðu ef heppnin
hefði fylgt þeim, getað slegið Evrópu-
meistarana út. Vestmannaeyingar
kepptu við Carl Zeiss Jena frá A-Þýska-
landi í Evrópukeppni UEFA, gerðu
markalaust jafntefli hér heima, og töp-
uðu 0-3 í Jena. Víkingar stóðu sig vel
gegn Raba ETO Györ í Ungverjalandi,
■ Einar Vilhjálmsson sigraði í spjótkasti í keppninni Norðurlöndin Bandaríkin,
sigraði þar m.a. heimsmethafann Tom Petranoff. Þrátt fyrir að Einari hafi ekki tekist
vel upp á HM í Helsinki, náði hann heimsmælikvarða í árangri, og nafn hans varð
þekkt í frjálsíþróttaheiminum um allan heiin. Tímamynd Tryggvi
■ Ásgeir Sigurvinsson er orðjnn stórt nafn í v-þýskri knattspyrnu, og reyndar á
alþjóðantælikvarða. Hann er kominn í hóp stærstu nafnanna í Þýskalandi, og talinn
meginástæðan fyrir velgengni Stuttgart. Hann átti marga stórleiki á árinu.
Tímamynd Róbert
fþróttaannáll 1983 ...