Tíminn - 12.01.1984, Qupperneq 2
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Jan ... 23/1
Jan . . . 6/2
Jan .. . 20/ 2
Rotterdam:
Jan .. . 12/1
Jan ... 24/1
Jan . .. 7/2
Jan .. . 21/ 2
Antwerpen:
Jan . . . 12/1
Jan . . . 25/1
Jan . . . 8/2
Jan . . . 22/2
Hamborg:
Jan . . . 13/1
Jan . . . 27/1
Jan . . . 10/2
Jan . . . 24/2
Helsinki:
Amarfell . . . 12/1
Arnarfell . . . 12/2
Larvik:
Hvassafell . . . 16/1
Hvassafell . . . 30/1
Hvassafell . . . 13/2
Hvassafell . . . 27/2
Gautaborg:
Hvassafell . . . 17/1
Hvassafell . . . 31/1
Hvassafell . . . 14/2
Hvassafell . . . 28/2
Kaupmannahöfn:
Hvassafell . . . 18/1
Hvassafell . . . 1/2
Hvassafell . . . 15/2
Hvassafell . . . 29/2
Svendborg:
Hvassafell . . . 19/1
Hvassafell . . . 2/2
Hvassafell . . . 16/2
Arnarfell.................20/2
Árhus:
Hvassafell................19/1
Hvassafell................ 2/2
Hvassafell................16/2
Arnarfell ................20/2
Falkenberg:
Arnarfell.................16/1
Mælifell....................17/1
Gloucester Mass.:
Skaftafell................17/1
Skaftafell ...............17/2
Halifax, Canada:
Skaftafell................18/1
Skaftafell................18/2
m.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Forkynning á nýju aðalskipulagi fyrir Kópavog:
Nýr miðbær við
Reykjanesbraut
— 90 ha iðnaðarsvæði — Þrju meginútivistarsvæði
með góðum tengslum við íbúðabyggðina
■ „Forkynning á þessu nýja aðalskipu-
lagi mun standa út næstu viku í felags-
heimili Kópavogs. Þar gefst öllum
bæjarbúum kostur á aö kynna sér það og
um leið að hafa áhrif á mútum þess á
vinnslustigi. Seint í næstu viku munum
við síöan hafa almennan borgarafund
þar sem fjallaö verður um skipulagiö,"
sagði Asmundur Ásmundsson formaður
skipulagsnefndar Kúpavogs í samtali við
blaöiö í gær, en tillögur að nýju aðal-
skipulagi fyrir Kópavogsbæ liggja nú
fyrir. „Við lítum ekki á þetta skipulag
sem einkamál skipulagsnefndar,“ bætti
hann við.
„í dag er að sjálfsögðu í gildi aðal-
skipulag í Kópavogi, sem nær inn undir
væntanlega Reykjanesbraut. Nýja
skipulagið er bæði endurskoðun á eldra
skipulagi og áætlun um nýjar byggðir
austan Reykjanesbrautar allt inn að
Elliðavatni, samtals 1400 ha landssvæði.
Við gerum ráð fyrir að í öllunt Kópavog
inn að Elliðavatni geti verið ui'þ.b. 42000
manna byggð, cn hvenær og hvort það
mark næst er óvíst á þessu stigi málsins."
sagði Ásmundur. Hann sagðist álíta að
skipulagsnefnd þyrfti m.a. vegna anna
við önnur verkefni að afgreiða þetta mál
frá sér fyrir lok febrúar.
Sinfóníu-
hljómsveit
fslandfe:
Vínar-
kvöld í
Háskóla-
bíói
■ Hið árlega Vínarkvöld
Sinfóníuhljómsveitar íslands verð-
ur í kvöld í Háskólabíói kl. 20.30.
Leikin verða lög úr ýmsunt Vínar-
óperettum eftir Strauss, Kalman,
Lehar, Stolz og fleiri.
Stjórnandi Vínarkvöldsins Her-
bert Mogg, er Vínarbúi í húð og
hár, aðalhljómsveitarstjóri og list-
rænn forstjóri Raimund leikhúss-
ins í Vínarborg. Hann hefur á
löngum ferli stjórnað ýmsum af
„Fyrst vil ég benda á mikilvægan hlut,
scm er sá að Fossvogshraðbraut er ekki
til á þessu skipulagi“ sagði Ásmundur.
„Hún er hins vegar til í samþykktu
aðalskipulagi Reykjavíkur þótt hún eigi
samkvæmt því að mestu að liggja í
bæjarlandi Kópavogs, en við teljum það
ekki samrýmast okkar hagsmunum. Það
samrýmist ckki hagsmunum Kópavogs
að leggja hraðbraut um dýrmætt útivist-
arsvæði. Þetta er einróma afstaða skipu-
lagsnefndar Kópavogs. Það er meðal
annars eitt einkenni skipulagsins að við
leggjum áherslu á rúmgóð útivistarsvæði
í góðum tengslum við íbúðabyggðir í
kring. Tillögur eru gerðar um svæði sem
rómuð eru fyrir gott veðurfar og náttúru-
fegurð, Fossvogsdalinn, Kópavogsdal-
inn eða umhverfi Hvammkotslækjar og
loks Leirdalinn.
Samkvæmt skipulaginu verður byggð-
ur nýr miðbær við Reykjanesbrautina,
þar kemur miðstöð verslunar og þjón-
ustu á landi sem er um 7 ha að stærð. Þá
er gert ráð fyrir ca 90 ha iðnaðarsvæði
beggja vegna Reykjanesbrautarinnar.
Svokallaður Suðurhlíðarvegur, sem
samkvæmt gamla skipulaginu átti að
skera sundur Suðurhlíðarnar verður
samkvæmt nýja skipulaginu færður að
þekktustu hljómsveitum Evrópu
svo sem Mozarteum hljómsveit-
inni í Salzburg, hljómsveit austur-
ríska útvarpsins þýsku ríkishljóm-
sveitinni og svo mætti áfram telja.
Einsöngvari verður Sieglinde
Kahman. en hana þarf ekki að
kynna með mörgurn orðum. hún
starfaði um árabil viðýmsaróperur
iðnaðarsvæðunum. Með því vinnst
tvcnnt. Suðurhlíðarvegurinn sem er
framhald Breiðholtsbrautarinnar fer
ekki í gegnum eldri byggð heldur
framhjá henni og íbúðahverfin losna
þannig við gegnumakstur utanaðkom-
andi umferðar. I öðru lagi greiðir þessi
ráðstöfun fyrirtengslum ibúðahverfanna
og útivistarsvæðanna í Kópavogsdal.
Ef við snúum okkur þá að skólamálum
þá er gert ráð fyrir að 500 nemendur
verði um hvern skóla, en það þýðir að
Uiþ.b. 3.400 íbúar verða í hverju skóla-
hverfi. í hverju skólahverfi er gert ráð
fyrir þrcm dagvistum, einu skóladag-
heimili og einum sparkvelli í tengslum
við hverja skólalóð. Eins og nú er ástatt
þá erum við heldur á undan áætlun hvað
uppbyggingu skólahúsnæðis varðar, en
á hinn bóginn á eftir, ef dagvistir eru
annars vegar.
Aðra þjónustu sækir fólk svo í nær-
liggjandi miðbæi þar sem opinber þjón-
usta verður til staðar og félags, lista og
menningarstárfsemi gerum við ráð fyrir
að fari fram í sérstökum félagsmiðstöðv-
um í þjónustukjörnum eða íþrótta- og
útivistarsvæðum.
erlendis, í Stuttgart, Kassel, Graz,
Vín og Múnchen. Hún fluttist til
íslands árið 1977 og hefur verið
mjög yirk í íslensku tónlistarlífi
sfðan. Hún er nú kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Karlakór Reykjavíkur aðstoðar
hljómsveit og einsöngvara við
flutning nokkurra iaga. -JGK
■ Davíð, 3ja úra dóttursonur Davíðs
Sch. Torsteinssonar, var á þrettándan-
um falið það ábyrgðarstarf að draga úr
ábyrgðarkortum SodaStream tækj-
anna hjá Sól h.f. Ábyrgðarkortið, sem
Davíð heldur hér á, reyndist vera með
nafni Björns H. Kinarssnnar 10 ára
gamals bóndasonar á bænum Neðri-
hreppi í Andakílshreppi í Borgarfirði.
Vinningur Björns er Flórídaferð sem
ætla má að ylji Borgfirðingnum unga
um hjartaræturnar nú í kuldanum og
skammdeginu.
Sóknarpresturinn í
Desjamyrar-
prestakalli:
Hlaut viður-
kenningu úr
Tonmennta-
sjóði kirkjunnar
■ Sr. Sverrir Haraidsson, sóknar-
prestur í Desjamýrarprestakalli hefur
nýverið hlotið viðurkenningu úr Tón-
menntasjóði Kirkjunnar, Sr. Sverrir'er
þriðja Ijóðskáldið, seijt hlýtur viður-
kenningu úrsjóðnum. Hiníreru skáld-
in Þorsteinn Valdimarsson og Kristján
frá Djúpalæk, samkvæmt frétt frá
Tónmenntasjóði Kirkjunnar, sem
stofnaður var árið 1975.
Eftir sr. Sverri hafa komið út 4
ljóðabækur: Við bakdyrnar J95U -
Ríntuð Ijóð á atómöld 1952 - Ljóð
1980 og A'ð lcikslokum 1982. Trúar-
skoðanir sr. Sverris eru sagðar komast
til skila í Ijóðum hans. Kjarninn í þeim
sé ákall um fegurra mannlíf og um
betri heim. Ljóðin hljóti að snerta
hvern þann cr les þau. fá hann til að
hugsa og ftnna til.
Sr. Sverrir er fæddur 1922 að Hof-
teigi á iökuldal, sonur Margrétar
Jakobsdóttur og sr. Haraldar Þórarins-
sonar prests í Mjóafirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá M.A. 1945 og kandí-
datsprófi í guðfræði við H.i. 1954. Sr.
Sverrir hcfur verið prestur í Desjamýr-
arprestakalli síðan 1963. Auk prests-
starfa hefur sr. Sverrir fengist við
kennslu í Borgarfjarðarskóla. Kona
sr. Sverris er Sigríður Ingibjörg
Eyjólfsdóttir. Þau búa í Bakkagerðis-
kauptúni. '*1^ -HFJ
Kynningar-
fundur um
husnæðismal
■ Kynningarfundur um húsnæðismái
verður haldinn n.k. laugardag, 14.
janúar, kl. 13.30 að Hótel Hofi, Rauð-
arárstíg 18 í Reykjavtk. Frummæl-
endur á fundunum, scm er öllum
opinn, verða þeir Alexander Stefáns-
son, félagsmálaráðhcrra. Pétur H.
Blöndal, formaður Húseigcndafélags
Rcykjavíkur. Bjarni Axelsson. stjórn-
arformaður Byggingasamvinnufélags-
ins Aðalbóls og Jón Rúnar Sveinsson,
formaður Húsnæðissamvinnufélagsins
Búseta.
- Að framsögurerindum loknum
verða panelumræður undir stjórn
Helga Péturssonar. fréttamanns.
Fundur þessi er haldinn á vegum
S.U.F. -HEI
■ Frá opnun forkynningarinnar á nýja aðalskipulaginu. Ásmundur Ásmundsson lengst til hægri. Tímamynd Ámi Sæberg
■ Frá æfingu Sinfónuhljómsveitarinnar í gær, Sieglinde Kahman og stjórnandinn
Hcrbert Mogg sýnast ekki hafa miklar áhyggjur af lífinu.