Tíminn - 12.01.1984, Side 4
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1984
í spegli tímans
OUVU NEWTON-JOHN OG JOfM
TRAVOLTA SAMAN í KVIKMYND Á NÝ
■ John Travolla og Olivia
Ncwton-John hlutu heimsfrægð
fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Grease á sínum tíma. Reyndar
voru skiptar skoðanir um leik-
og danshæfileika þeirra, en hvað
um það, myndin fór sigurför um
allan heim. Það þótti því kominn
tími til að endurtaka sigurinn og
hafa þau nýlokið við að leika
saman á ný í kvikmynd. Sú heitir
á frummálinu „Two of a Kind“.
Sýningar eru nýhafnar á
myndinni í Bandaríkjunum og
nú bregður svo við að gagnrýn-
endur eru á einu máli um, að
þvílíka hæTdeikasnauða vitleysu
hafi þeir aldrei áður séð. Taka
þeir skýrt fram, að hér með
hljóti dagar Johns Travolta sem
kvikmyndaleikara að vera taldir.
Reyndar hafi grunur leikið á því
alla tíð, að hann væri alls ódug-
andi sem leikari, en þessi mynd
taki af öll tvímæli. John sé og
verði alveg vonlaus sem leikarí.
Olivia hlýtur ekki öllu betri
meðferð hjá gagnrýnendum.
Þeir segja hana nánast laglausa
og hún hafi ekki hæfilcika til
■ Er John Travolta búinn að
vera sem leikari
Newton-John laglaus?
neins annars en að vera áströlsk
Ijósmyndafyrirsæta.
Samantekt gagnrýnendanna
er því sú, að best hefði farið á því
að brenna hreinlega filmuna eins
og hún lagði sig, strax að mynda-
tökum loknum, því að þar sé
ekkert af viti að finna. Sögu-
þráðurinn sé heimskulegri en
leyfilegt ætti að vera, textinn
eintómt píp og það sé hrein
tímasóun að horfa á myndina.
En hvað segja þau John Tra-
volta og Olivia Newton-John
sjálf? Þau láta sér fátt um gagn-
rýnina finnast og minna á, að
ekki séu almennir áhorfendur
alltaf sammála sérfróðu gagnrýn-
endunum, það sýni vinsældir
Grease. Þau hafi haft ákaflega
gaman af að vinna saman á ný,
enda séu þau alveg sérstaklega
samstæðir vinnufélagar.
Og nú er bara eftir að sjá,
hvaða undirtektir myndin fær
hjá almenningi, því að þegar allt
kemur til alls, eru það þær, sem
úrslitum ráða um framtíð þeirra
Johns Travolta og Oliviu New-
ton-John.
■ Elísabet Bretadrottn-
ing var fyrir jólin á ferð að
heilsa upp á þegna sína í
samveldislöndum. M.a. lá
leið hennar til Indlands,
þar sem hún náði fundum
Indiru Gandhi, forsætis-
ráðherra, en svo óvenju-
lega vildi til, að drottning-
in kom 5 mínútum seinna
til Nýju Delhi en áætlað
hafði verið.
Drottningin er þekkt
fyrir formfestu sína og því
lá í augum uppi, að meira
en lítiö hafði þurft að
koma til, svo að hún héldi
HBMSMETHAFINN, SEM
EKN VILDIVERA MEÐ í
HQMSMETABÓK GUINNES
■ Indira Gandhi tók vel á móti gesti sínum, þrátt fyrir
seinkunina.
Drottningin fór að
fyrirmælum gúrusins
- og allt fór vel
ekki tímaáætlun sína eins skýring, sem allir tóku
nákvæmlega og unnt var. góða og gilda.
enda fékkst skýring á þess- Áætlað hafði verið að
ari seinkun snarlega, flugvél drottningar færi á
loft á mínútunni 12 á hádegi
frá Bangladesh, en þar
hafði síðasti viðkomu-
staður hennar verið fyrir
▼ Cayetanna, núverandi
hertogaynja af Alba, er
margs konar heimsmeist-
ari. T.d. er hún handhafi
20 spænskra „stór“ aðals-
titla, auk 20 smærri. Þar
að auki er hún talin mesti
Indlandsheimsóknina. En
gúru einn, sem mikil trú er
á í því landi, Iagðist ein-
dregið gegn þessum brott-
farartíma og sagði hann
myndu leiða til mikillar
ógæfu, ef stíft yrði haldið
við hann. Þótti ekki stætt
á því að virða ekki spásögn
.gúrusins og því var það
dregið um 5 mínútur að
leggja af stað, enda gekk
ferðin prýðilega og áfaila-
laust í alla staði.
listaverkasafnari heims.
Það vpr því ekki ófyrir-
synju, að útgefendur
Heimsmetabókar Guinn-
es fóru þess á ieit við frúna
að fá að fjalla um hana í
bók sinni. En hún brást
ókvæða við og synjaði
þeim leyfisins.
Ástæðan? Jú, hertoga-
ynjan, sem orðin er 57
ára, sagðist ekki kæra sig
um að vera nefnd á nafn
innan um heimsmethafa í
maraþondansi og - kossa-
flensi. Hún væri vön virðu-
legri félagsskap.
Og þar við sat.
■ Vegtyllur hertoga-
ynjunnar af Alba virðast
heldur betur vera
íþyngjandi.
viðtal dagsins |
■ Hrafn Pálsson formaður Jassklúbbs Reykjavíkur við flygilinn og með honum á myndinni eru aðrir
stjómarmenn, f.v. Magnús T. Ólafsson, Þórhallur Halldórsson, Guðbjörg R. Jónsdóttir og Ágúst Elíasson.
„LBKGIEDW
ÍFYRRRÚMI"
rætt við Hrafn Pálsson formann
Jassklúbbs Reykjavíkur
■ „Við förum af stað 22.
janúar með fyrstu sessjón-
ina okkar og það hefur orðið
að ráði að nemendahljóm-
sveitir úr jassdeild Tónlist-
arskóla FÍH munu byrja
haría og allar sessjónir okk-
ar framvegis. Þannig ætlum
við að koma ungum og mið-
aldra nemendum þess skóla,
sem er raunar eini jassskóli
á íslandi, í gang og fá þá
með okkur strax í byrjun,“
sagði Hrafn Pálsson for-
maður nýstofnaðs Jass-
klúbbs Reykjavíkur þegar
við slógum á þráðinn til
hans og leituðum fregna af
klúbbnum.
„Eftir það munu hinar
ýmsu grúppur koma fram
hjá okkur, á fyrstu sessjón-
inni til dæmis koma fram
Kristján Magnússon og fé-
lagar hans, Sveinn Óli Jóns-
son á trommur, Árni Schev-
ing á bassa, Þorleifur Gísla-
son á tenór, og Kristján
sjálfur á píanó. Síðan kem-
ur fram swing sveit sem