Tíminn - 17.01.1984, Qupperneq 5

Tíminn - 17.01.1984, Qupperneq 5
V. > IMT^I ÞRIÐJUDAGUR 17. JANUAR 19W fréttir GENGIKRONUNNAR LÆKK AD SÍÐUSTU VIKURNAR? — Seðlabankinn hallar sér að viðskiptavoginni við gengisútreikning svo Evrópumyntin lækki ekki til samræmis við hækkun dollarans ■ Hin mikla hækkun á gengi Bandaríkjadollars miðað við Evrópumyntir undanfarna mán- uði veldur mönnum í útflutnings- iðnaði nokkrum áhyggjum og erflðleikum að því er fram kom á fundi ullarvöruframleiðenda. í máli Ólafs Davíðssonar, framkvæmdastj. FÍI kom fram að frá maílokum s.l. vor hefur gengi helstu Evrópumynta lækk- að um 4-5% en gengi dollara hækkað um tæp 9% gagnvart ísl. krónu. Miklu geti því munað hjá útflytjendum á hvorum markað- inum þeir eru að keppa. Vegna stöðugrar hækkunar dollarans kvað Ölafur það ekki hafa verið talið fært nú síðustu vikurnar að láta Evrópumyntirnar lækka til jafns við hækkun dollarans gagn- vart íslenskri krónu, þannig að í raun hafí gengi krónunnar verið að lækka síðustu vikurnar. Bjarni Bragi Jónsson. aðstoðar- bankastjóri Seðlabankans var spurður hvort gengi krónunnar væri farið að lækka. Varðandi útreikning á gengi sagði Bjarni unt tvær vogir að ræða, svonefnda myntvog þar sem Banda- ríkjadollar vegur unt 46% og svo- nefnda viðskiptavog þar sem dollar vegur um 29%. „Við höfum notað meðaltalið milli myntvogar og við- skiptavogar - haldið því í 100 lengst af - þar til þetta fór að skekkjast. Síðan höfum við verið að laga skekkjuna með því að nota viðskiptavogina sem nú er að nálgast 100, þ.e. 99,8. Heild- arvogin er þá um 102," sagði Bjarni. Hann kvaðst hins vegar telja að það hafi aldrei verið neitt nákvæmlcga ákveðið á hvaða mælikvarða stöðugt gengi eigi að byggjast til frambúðar, enda muni það aldrei meiru en 1-2 prósentum á heildarákvörðun gengis hvaða vog sé notuð. -HEI 108 kassar af vodka fundust í Hofsjökli: VERÐMÆTIÐ ER UM 710 ÞÚSUND KR — mesta smygl í f jölda ára. Sumir þeirra sem taldir eru eiga það hafa oft komið viö sögu áður í svipuðum málum. ■ Tollverðir fundu. við leit í Hofsjökli. í Hafnarfjarðarhöfn 108 kassa af banda-' rískum vodka og 30 karton af vind- lingum á laugardag en þetta mun vera mesta smygl sem upplýst er um fjölda ára og er vcrðmæti áfengisins um 710 þúsund krónur. Málið cr í rannsókn en talið er að 7 manns eigi varninginn. Að sögn Her- manns Guðmundssonar hjá Tollgæsl- unni hafa surnir þcirra oft komið við sögu áður í svipuöum málum. Hofsjökull var að koma frá Bandaríkj- unum og höfðu tollveröir eftirlit með skipinu cítir að það var komið í höfn. Sáu þeir livar menn voru að flytja varninginn í land og við frekari leit í skipinu fannst áfengið. Enginn mun vcra í varðhaldi vegna málsins en rannsókn þcss beinist m.a. að því hvort um vitorösmcnn í landi hafi verið aö ræöa. -FRI lceland Seafood: SOLUAUKNING 19 MILUÓNIR DOLLARA 1983 Salan hefur tvöfaldast á sex árum ■ Iceland Seafood Corporation seldi á liðnu ári frystar sjávarafurðir fyrir 120.4 milljónir dollara, á móti 101 milljón dollara árið 1982, þannig að aukning í dollurum varð 19.4 milljónir dollara, sem samsvarar um 485 milljónum ís- lenskra króna, miðað við meðalgengi dollarans s.l. ár. í verðmæti var sölu- aukningin liðlega 19% en í magni 20%. Aukningin varð nokkuð meiri fyrri hluta ársins í fyrra. I frett frá lceland Seafood kemur fram að þessi góði árangur er mjög í framhaldi af þróuninni hjá Iceland Seafood hin síðari ár, en þó er aukningin á s.l. ári sú mesta sem orðið hefur á einu ári. Á síðustu sex árunum hefur fyrirtækið nær tvöfaldað sölu sína í dollurum, úr 61.7 milljónum dollara 1977 í 120.4 milljónir dollara 1983. -AB ■ Gunnar Gunnarsson forseti Skáksambands íslands kynnir tilhögun Reykjavíkurskákmótsins fyrir blaðamönnum. rímamynd Arni Sæberg. 11. Reykjavíkurskákmótið hefst í næsta mánuði: FJÖLDI ÞÉKKTRA SKÁK- MANNA ÞÁTTTAKENDU R ■ Iceland Seáfood Corporation, sölufyrirtæki Sambands íslenskra samvinnufélagá í Bandaríkjunum. Aðalstöðvar fyrirtækisins eru nærri Harrisburg í Pennsilvaníu, þar sém fyrirtækið starfrækir stóra fiskréttaverksmiðu, með tilheyrandi rannsóknarstof- um, frystigeymslum og dreifingarmiðstöð. ■ „Undirbúningur fyrir þetta mót, bréfaskriftir til hugsanlegra þátttakenda, kynning og dreifing upplýsinga um það hefur staðið yfir í marga mánuði, en það eru aðcins nokkrir dagar síðan ákvörðun var tekin um að halda það,“ sagði Gunnar Gunnarsson forseti Skáksam- bandsins á Maðamannafundi i gær þar sem kynnt var 11. alþjóðlega Reykjavík- urskákmótið, sem hefst á Hótel Loft- leiðum 14. febrúar n.k. „Ástæðan var fjársknrtur sem raunar er ekki séð fyrir endann á ennþá. Við höfum fengið fé frá opinberum aðiium, og nú um þessar mundir er verið að herja á unkafyrir- tæki. Okkur telst til að það vanti milli 6 og 700 þúsund krónur til að ná endum saman." Reykjavíkurmótið verður að þessu sinni viðlíka'' fjöímertrit og síðasta Reykjavíkurmót sem haldið'var 1981 og : eirís og þá verður mótið opið og teflt eftir sVistnpska kerfinu, 11 umferðir. Um- hugsunartími verður 45 leikir á 21/2 klst. Og síðan 20 leikir á klst., en þetta er heldur knappari tími en venjulega cr í alþjóðlegum skákmótum. Vegleg verðlaun verða veitt, fyrstu verðlaun nema 5(XK) $, en alls verða veitt 10 verðlaun og nemur heildarupphæðin 15600$ eða 468000 krónum. Þettadregur að sjálfsögðu sterka skákmenn til leiks og hafa skákmenn sýnt mótinu mikinn áhuga. Tveim sovéskum meisturum verður sérstaklega boðið, og eru líkur til að það verði þeir Efim Geller og Yuri Balashov, sem þaðan koma. Lev Álburt, sigurvegaranum frá síðasta Rcykjavík- urmóti var sérstaklega boðið og ennfrem- ur dr. Nunn frá Englandi, en vafasamt er hvort hann sér sér/fært að mæta til leiks. En lengstan feril allra keppendæá Bandaríkjamaöurinn ■' Samuel Reshcv- Sky, en hann er 72 ára að aldri, og var farinn að tefla fyrir 1920, þá sem undra- barn og hálfgerður sýnihgargripur. Upp úr seinni heimsstyrjöldinni var Reshevsky í hópi allra fremstu skákmanna heims og fremstur skákmanna vesturlanda Aðrir þekktir mcistarar, sem mæta til leiks eru m.a. Georghiu lrá Rúmeníu, Jansa frá Tékkóslóvakíu, Robert Byrne frá Bandaríkjunum, Eric Lobron frá V-Þýskalandi og Pia Cramling trá Svíþjóð, eina konan sem keppir á mótinu, en hún er alþjóðlegur meistari í karlaflokki og stórmeistari í kvenna- tlokki, stigahæsta kona heims í skák þótt ung sé að árum og er gjarna eina konan í hópi keppenda á alþjóðlegum skák- mótum um þessar mundir. Þetta er í annað sinn scm kona keppir á Reykja- víkurmóti! á fyrsta mótinu sem haldið var tefldi Nona Gaphrindasvili frá So- vétríkjunum, þá héimsmeistari kvenna í skák-. / Állir ísiensku titilhafnrnir í skák verða meðal keppenda, ríéma hvað ekki er vitað 'hvort lngi 'R'. Johannssort tekur þátt. - JGK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.