Tíminn - 07.02.1984, Blaðsíða 12

Tíminn - 07.02.1984, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 Kvenfélagið Hringurinn í Reykjavík var stofnað 26. janúar 1904 og átti því nýverið 80 ára af- mæli. í tilefni af þessum tímamótum héldu Ríkis- spítalarnir, Hrings- konum veglega veislu, en þær hafa sem kunn- ugt er verið mikilvirkar við að styrkja ýmislegt starf Ríkisspítalanna, þó að einkum sé starf ■ Þessi litla hnáta segist vera orðin það hress, að hún þurfi í rauninni ekki lengur á sjúkrarúmi að halda. Öðru máli gegni með dúkkuna hennar, henni veiti ekkert af að leggja sig, a.m'.k. smástund. Hringurinn 80 ára: „Hringskonur hafa ekki fyrr náð einum áfanganum en þær leggja af stað í þann næsta þeirra við Barnaspítala Hringsins þekkt. í sam- sætinu tóku til máls Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítal- anna, Víkingur H. Arn- órsson, prófessor, yfir- læknir Barnaspítala Hringsins, Sigríður Johnson formaður Hringsins, Friðrik Soph- usson, formaður stjórn- arnefndar Ríkisspítal- anna, Páll Ásgeirsson, fyrilæknir Geðdeildar við Dalbraut og Hertha Jónsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri. Af mælisbarnið af hendir gjöf ■ Við þetta tækifæri afhentu Hrings- konur Banraspítala Hringsins ný tæki til að bæta aðstöðuna til umönnunar mjög veikra barna. Auk þess tilkynntu þær að væntanleg væri frá þeim fjárveiting til endurnýjunar á tækjum á nýburadeild, svokallaðri vökudeild. Alls nemur and- virði þessara gjafa kr. 1.5 millj. króna, en á síðastliðnu ári gáfu þær hringskonur 1.8 milljón krónur til tækja- og hús- gagnakaupa á Barnaspítalann og Geð- deildina á Dalbraut. Hringurinn upphaflega stofnaður til aðstoðar berklasjúklingum Víkingur H. Arnórsson yfirlæknir rakti afrekaskrá Hingskvenna í ræðu sinni í samsætinu. Við báðum hann að segja okkur örlítið nánar frá starfi félags- ins. Hannfræddiokkur um eftirfarandi: Kvenfélagið Hringurinn var stofnað 1904 og fóru konurnar strax að láta sig líknarmálefni varða. Fyrst beindu þær verkum sínum alfarið að berklasjúkl- ingum, t.d. að greiða sjúkrahúskostnað fyrir þá, því að á þeim tíma þurftu sjúklingarnir að greiða hann sjálfir. En þegar berklavarnarlögin voru sett 1921. tók ríkið að sér að greiða sjúkrahúsdvöl- ina. Þá fóru konurnar út í það að útvega þeim einhvern samastað á eftir, þar sem þeim var gefið tækifæri til að ná sér. Þá settu þær upp hæli í Kópavogi, Kópa- vogshæli, sem opnað var 1926. Kópavogshælið og búrekstur Það var ætlað berklasjúklingum í afturbata, en riðlaðist dálítið, af því að það var svo mikill skortur á rúmum fyrir berklaveika. Það fór því svo, að þegar ekki voru fyrir hendi sjúkrarúm á Vífilsstöðum fyrir berklaveika, var brugðið á það ráð, þar sem sami yfir- læknirinn var á báðum stofnunum. Helgi Ingvarsson, yfirlæknir, að sjúklingar voru lagðir inn á Kópavogshælið. Það fór því svo árið 1939, að konurnar gáfu ríkinu hælið með öllum innanstokks- munum. -■ Það leggst enginn inn á sjúkrahús sér til ánxgju, en ekki eru allar stundir þar daprar stundir. Hér er matmálstími á bamaspítalnum og mæðurnar em að aðstoða litlu { sjúklingana við borðhaldið. Mikil áhersla er lögð á að mxðurnar geti sem mest verið með bömum sínum á meðan á spítalavistinni stendur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.