Tíminn - 19.02.1984, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
5
Þegar SVARTHÖFÐARNIR
tveir taka völdin í geimnum
Bandaríkjamönnum, að kort þau sem
Sovétmenn lögðu að jafnaði fram voru
full af blekkingum. Skotmörkin voru
alltaf nokkra kílómetra frá hinum raun-
verulegu skotstöðum. Pað tók Banda-
■ Hnöttur, sem varið getur sig og
gert árás með laservopnum.
jörðu og ekki síður varðandi byggingu
eldflauga sem bera þá frá yfirborði
jarðar.
Hljóp á snærið
hjá Astralíumönnum
Það hljóp heldur betur á snærið hjá
ástralska sjóhernum 16. mars í fyrra,
þegar ljósmyndarar sjóhersins sáu sér til
furðu, að lítil geimskutla Sovétmanna
var að lenda í sjónum um 500 km utan
við Kókóseyjar. Hjörtu þeirra tóku
kipp, þegar geimskutlan skreið niður úr
skýjunum og þeir náðu fjölda mynda af
hcnni í sjónum. Geimflaugin gengur
undir nafninu Cosmos 1445, en nafngift-
in er ekki til annars en að blekkja
andstæðingana. Nánast allir hnettir og
geimför Sovétmanna ganga undir nafn-
inu Cosmos. Cosmos 1445 er miklu
minni en Colombía Bandaríkjanna, að-
eins fimmtán tonn að þyngd og gæti
tekið tvo farþega. Herfræðingar í Pent-
agon gera ráð fyrir því að Sovétmenn
fari úr skorðum neðanjarðar, þó að
kjarnorkusprengja verði sprengd yfir
fjallinu miðju.
Ef byggingarnar í Kólorado væru
sýnilegar á jörðu niðri má búast við, að
áhorfendum yrði starsýnt á þær. Bak við
dyrnar, sem vitanlega eru úr stáli og
vega hvorki meira né minna en 25 tonn
hver, hlusta fimmtán hundruð tækni-
menntaðir menn á hljóð utan úr geimn-
um, greina hljóð og myndir, og fylgjast
grannt með öllu því, sem gerist utan við
sjónsvið augans í geimnum. Parna hefur
NORAD aðsetur, North American Aer-
ospace Defence Command og frá 1.
september svokölluð Space Command,
eða geimstjórnstöð Bandaríkjanna.
Þaðan yrði gefin skipun um að svara
hugsanlegri árás annars kjarnorkuveldis
í framtíðinni, ef sú ógnarlega stund
rennur einhvern tímann upp.
Radartæki Bandaríkjamanna á jörðu
niðri og í Cheyennefjalli geta fylgst með
um 200 gervihnöttuin í einu og greint
hnött á stærð við venjulegan fótbolta í
36 þúsund kílómetra fjarlægð. Svo mikil-
geimnum og fellur kjarnorkusprengja
vissulega innan þess ramma
Gera má ráð fyrir að mikil átök verði
milli Bandaríkjamanna og Sovetmanna
um vopnabúnað í geimnum á næstu
árum. Á árunum 1978-79 meðan Jimmy
Carter var við völd í Bandaríkjunum,
fóru fram viðræður um hvernig væri
unnt að takmarka vopnabúnað gervi-
tungla og annarra fljúgandi hluta á
sporbaug um jörðu. En ekki tókst að
finna neinn (löt til samkomulags. Sovét-
menn reyndust ófáanlegir til samninga,
nema Bandaríkjamenn stöðvuðu geim-
skutluáætlunina, en þeir litu á hana scm
hreint hernaðartæki. Eflaust má gera
ráð fyrir að þeir telji sig einmitt standa
höllum fæti á þessu sviði geimíerða.
Bandaríkjamenn eru nú að reyna nýtt
kcrfi talsvert fullkomnara, sem byggist á
því að eldflaugum er skotið frá flugvél-
um F 15 á flugi og leita þær skotmörkin
uppi og hæfa þau.
Sovétmenn hafa árum saman gert
tilraunir með mjögólíkt kerfi. Þarerallt
byggt á gervihnöttum á sporbaug um
um jörð í 36 þúsund kílómetra fjarlægð
frá jörðu.
Laser-geislar til varnar
Bæði Bandaríkjamenn og Sovétmenn
gera ráð fyrir því í áætlunum sínum, að
i reynt verði að fremja skemmdarverk á
geimvopnum þeirra og eftirlitsstöðvum.
Þess vegna hefur ýmiss konar varnarbún-
aði verið komið fyrir á hnöttunum og
verður eflaust enn frekar í framtíðinni.
Unnt verður að setja hnettina á nýjá
sporbauga og leggja á flótta ef með þarf.
Þá cru efnablöndur notaðar í ytri veggi
hnattánna, sem herða þá sérstaklega
gegn höggum og geislun.
Bæði Sovétmenn og Bandaríkjamenn
hafa gert ráð fyrir þeim möguleika og
gervihnettir þeirra verði eyðilagðir í
skyndiárás, en þá eru til taks hnettir
bæði á jörðu niðri og í kjarnorkukafbát-
um, sem unnt er að skjóta á loft til að
taka við hlutverki hinna fyrrnefndu með
skömmum fyrirvara.
■ Geimskutla Bandaríkjamanna - Um þriðjungur af
verkefnum hennar til hernaðarþarfa
■ Stálgormarnir undir Cheyennefjalli eiga að vernda
byggingamar neðanjarðar ef dregur til karnorku-
striðs á jörðinni...
■ Göngin inn í „borgina" undir Cheyenne fjalli i Koloradó
fylki í Bandarikjunum. Þar verða hinar stóru ákvarðanir teknar
um árás og vöm i geimnum i framtiðinni ef þar að kemur.... {
■ Reagan forseti flytur „Star Wars“ ræðu sína 23. mars í fyrra... Hann
sagði það sem margir höfðu áður hugsað.
ríkjamenn nokkurn tíma að finna t.d.
Baikonour, Kennedyhöfða þeirra Sovét-
manna, sem er í rauninni í bænum
Tyuratam í Kazakhstan.
Frá skotstöðvum sínum í Sovétríkjun-
um hafa Rússar skotið meira en tvö
þúsund gervihnöttum frá 1957, sem er
meira en tvöfaldur fjöldi gervihnatta frá
Bandaríkjunum á sama tíma. Er þetta
sóun eða hvað? Sovétmenn senda gervi-
hnött á loft til sérverkefna, einn í hvert
skipti, sem þörf er á. Meðan á stríðinu
um Malvíneyjar stóð, sendu þeir hvorki
meira né minna en 16 hnetti á sporbraut.
Malvíneyjar voru sannarlega undir
smásjá þeirra meðan á átökum stóð.
En þessi aðferð er ekki aldeilis
ókeypis. Hún kostar mikið. Hins vegar
skilar hún mönnum mikilli reynslu og
tækni varðandi ferðir gervihnatta frá
verði komnir svo langt í uppbyggingu
vígvéla í geimnum eftir fimm til tíu ár,
að þá geti þeir byggt fyrstu geimstöðina
á sporbaug um jörðu með fullkomnum
vopnabúnaði og eftirlitstækjum. En
Bandaríkjamenn horfa alls ekki aðgerð-
arlausir á þessa þróun eins og þegar
hefur komið fram. Undir Cheyenne
fjöllum í Kóloradó er heil borg í
byggingu - neðanjarðar.
Geta fylgst með tvö
hundruð gervihnöttum
Þarna undir nærri þrjú þúsund metra
háu Cheyenne-fjalli hafa Bandaríkja-
menn grafið út- granítið, byggt vegi og
reist byggingar úr stáli, sem hvíla á
geysiöflugum gormum í undirstöðunum.
Gormar þessir eiga að tryggja, að ekkert
' gar eru stöðvar stórveldanna í geimn-
um orðnar, að eyðilegging þeirra myndi
samstundis þýða að fjarskiptakerfi og
hernaðarmáttur myndi lamast á sömu
stundu. Sem dæmi um þetta má nefna,
að 80% af fjarskiptum Bandaríkja-
manna á sviði hernaðar fara um gervi-
hnetti. Þessi fjarskipti fara einnig um
kjarnorkukafbáta, fylgst er með öllum
helstu hafsvæðum jarðar, herflugvélum,
herskipum en einnig með skriðdrekum
og hermönnum á jörðu niðri. Svo ótrúleg
er nákvæmni tækjabúnaðar Bandaríkja-
manna um þessar mundir, að gervi-
hnattastirni þeirra Navstar, sem saman-
stendur af átta gervihnöttum, getur stað-
sett sig eins og sjáandi auga í níu metra
fjarlægð frá þeim stað, sem skoða á.
Þegar Bandaríkjamenn freistuðu þess
að frelsa gíslana í Teheran á árinu 1980,
sem frægt varð á sínum tíma, þá var
stuðst við allar megin upplýsingar utan
úr geimnum. Þó að sú aðgerð mistækist
hrapalega var ekki við gervihnettina að
sakast. Þeir skiluðu sínu hlutverki full-
komlega.
Langöruggasta ráðið til að eyðileggja
þessar stjórnstöðvar í geimnum, væri að
koma af stað kjarnasprengingu utan
gufuhvolfsins. Geislunin sem stafaði frá
slíkri sprengingu myndi örugglega eyði-
leggja hin hárfínu rafeindakerfi, sem
gervihnettirnir eru búnir. En slík aðgerð
hefði augljóslega mikinn ókost í för rrieð
sér. Sá sem sendi slíkt gereyðingarvopn
út í geim, tæki ekki aðeins ákvörðun um
að eyðileggja stjórnstöðvar andstæðings-
ins heldur einnig sínar eigin. Þar að auki
er í samningi, sem Bandaríkjamenn og
Rússar gerðu með sér um bann við
kjarnorkuvopnum í geimnum, lagt bann
við „stórvirkum eyðingarvopnum" í
jörðu. Cosmos-hnetti er þá t.d. komið
fyrir á sporbaug nálægt skotmarki sínu
og með fjarskiptum má koma honum á
ógnarhraða, allt að 7 kílómetra hraöa á
sekúndu sem hann getur þá þotið í átt
að skotmarkinu. Hann getur síðan cytt
skotmarkinu með kúlnahríð eða með
því að springa um leið og að markinu er
komið.
Ýmsir ókostir fylgja hinu sovéska
kerfi, meðal annars þau að gervihnettir
• eru þungir hlutir og það þarf að skjóta
upp eldflaug með hvern hnött. Með
þessari aðferð er heldur ekki hægt að ná
til hæstu gervihnattanna. Sovétríkin geta
ekki skotið niður hluti, sem eru yfir eitt
þúsund kílómetra yfir jörðu.
Bandaríska kerfið
fullkomnara
Kerfi Bandaríkjamanna er miklu full-
komnara að sögn þeirra, sem til þekkja.
Þeir hafa árum saman þróað upp kerfi
með F 15 vélum sínum, sem sleppir
litlum eldflaugum aðeins fimm metrum
á lengd, er ná ógnarhraða á ótrúlega
skömmum tíma, tólf kílómetra hraða á
sekúndu eða nálægt 700 km hraða á
mínútu.
Þegar eldsneyti flaugarinnar er uppur-
ið, heldur kjarnaoddur hennar áfram að
skotmarkinu, sem hún finnur með hita-
leiðni frá skotmarkinu. Frá því að skeyt-
ið fer af stað frá F 15 vélinni og þar til
það hæfir skotmarkið eiga ekki að líða
nema í mesta lagi nokkrar mínútur og
kjarnaoddurinn á að geta hæft mark í
allt að 2000 kílómetra hæð. Þessar
flaugar ná því heldur ekki til þéirra
gervihnatta, sém lengst eru á sporbaug
Auk þcss er unnið að smíði og hönnun
ýmiss konar vopna í geimnum, lascr-
vopna, geisla og eldflaugavopna af nýj-
um gcrðum. Sem dæmi um þau ógnar-
vopn, sem nú er verið að reyna má
ncfna, að Bandaríkjamcnn gerðu í júlí
á síðasta ári tilraunir með laser frá Boing
KC 135, sem tókst að eyðileggja fintm
Siewinder-flaugar á 3500 km. hraða á
klukkustund. Þá eru Bandaríkjamenn
að gera tilraunir með laserbyssur, sem
nota á í návígi í hernaði. Hún getur
blindað fyrir fullt og allt hermenn úr liði
andstæðinganna og það sem meira er,
unnt er að gera þetta frá mjög öruggum
skotstað, skotheldum með aðstoð sjón-
pípu; þannig má blinda andstæðingana í
allt að tveggja kílómetra fjarlægð.
Gera má fastlega ráð fyrir því að þessi
ógnarvopn framtíðarinnar verði komin í
notkun eftir svo sem tuttugu ár í
geimnum. Og þarna uppi, þar sem
misjafnlega samsett loftlög gufuhvolfsins
vcrða ekki til að trufla miðun þeirra,
verði unnt að nota laservopnin með
öllum þeim möguleikum, sem þau bjóða
upp á. Þarna uppi munu þeir þá standa
andspænis hvor öðrum, Svarthöfðar
stórveldanna tveggja með hin fullkomnu
gereyðandi leikföng. Úr þeirri hæð er
hætt við að mennirnir virðist litlir og
smáir og léttvægir funtínir, þegar kerfin
Alfa, Darfa og önnur háþróuð vopna-
kerfi fylgjast með þeim úr hundruða og
þúsunda kílómetra fjarlægð, reiðubúin
til átaka hvenær sem óvinurinn sýnir
klærnar. Hvrlík framtfð.
ÞH tók saman/byggt á
L’Express.