Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 3
FOSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
— en slíkir samningar kæmust aðeins innan
ramma fjárlaga með því að skera niður útgjöld
og fresta framkvæmdum
■ „Þetta var stuttur fundur hjá samn-
inganefnd BSRB í morgun, og þeir bíða
eftir að heyra frá mér, en ég hef ekki haft
tíma til þess að kanna hvort hægt er að
bjóða BSRB hliðstæða samninga og
ASÍ samningana," sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra í samtali við
Tímann í gær, er hann var spurður um
gang viðræðna í BSRB samningunum,
en eins og kunnugt er lýsti fjármálaráð-
herra því yfir hér í Tímanum í gær, að
hann hefði ekki svigrúm til þess að bjóða
BSRB upp á hliðstæðan samning og ASÍ
samninginn, hann sagðist ekki einu sinni
vita hvort svigrúm væri til þess að bjóða
þeim 4% kauphækkun. Fjármálaráð-
herra sagði jafnframt: „Eg sé ekki að
það verði komist hjá því að bjóða BSRB
upp á hliðstæð kjör og ASI hefur náð
fram með sínum samningum, eins og
forsætisráðherra hefur reyndar sagt, því
þarna er búið að marka ákveðna stefnu,
og það væri ósanngjarnt að ganga
framhjá BSRB í því efni."
Fjármálaráðherra sagði að samningar
við BSRB yrðu að takast mjög fljótt, því
BSRB biði þess að sjálfsögðu að heyra
frá honum, og því væri hann nú að kanna
með hvaða hætti hægt væri að koma til
móts við BSRB og því yrðu ráðherrar
nú að leggja fram tillögur sínar um
niðurskurð á útgjöldum eða frestun á
framkvæmdum, til þess að hægt yrði að
koma þessum samningum við innan
ramma fjárlaganna.
„Ég tel eðliiegt að ASÍ samningurinn
hafi áhrif á kjarasamninga opinberra
starfsmanna, en að öðru leyti vil ég ekki
tjá mig um þetta mál að svo stöddu, því
ríkisstjórnin hefur ekki tekið afstöðu til
þess,“ sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í samtali við Tímann í
gær, er hann vat spurður hvaða stefnu
ætti að hans mati að taka í kjarasamning-
um við BSRB.
Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra var einnig spurður hvort afsögn
hans sem ráðherra væri ekki úr sögunni,
ef samningar yrðu með því móti sem
hann talaði um: „Ég segi ekki af mér fyrr
en rammi fjárlaganna springur og ef
hann springur. Ramminn erekki sprung-
inn núna, en ef ríkisstjórninni tekst ekki
að skera niður kostnað sem hækkun
launa fylgir, þá er hætt við því að hann
springi."
-AB
■ Bayernhljómsveitin, sem hingað er komin á vegum þýska ferðamálaráðsins og
Flugleiða, tróð upp á Gauk á Stöng nú fyrir og um helgina við góðar undirtektir gesta
staðarins en reynt var að skapa þýska kráarstemmningu á staðnum og þótti vel til
takast.
Forráðamenn Gauks á Stöng hafa hugsað sér að hafa lifandi tónlist þrjú kvöld
vikunnar í framtíðinni og verður reynt að hafa dagskrá hverrar viku sem fjölbrey ttasta.
Tímamynd Róbert
Stærsti skjálfti
sem komið hefur
undir Skjaldbreið
■ „Þetta svæði er það sem almennt
hefur verið kallað útdautt en það þarf
ekki að þýða það að jarðskjálftar geti
ekki komið fyrir á því" sagði Ragnar
Stefánsson jarðeðlisfræðingur í samtali
við Tímann er við spurðum hann um
orsakir jarðskjálftans sem átti upptök
sín undir Skjaldbreið á miðvikudag og
mældist tæp 4 stig á Richter kvarða en
honum fylgdu svo margir smáskjálftar.
Engin virkni var hinsvegar á svæðinu í
gær.
„Jarðskjálftar sem tengjast gömlum
eldfjöllum eru ekki óalgengir, að vísu
höfum við ekki fengið mikið af jarð-
skjálftum við Skjaldbreið fyrr en á
síðustu árum. Þá hafa verið þarna pínu-
litlar hræringar en við erum vanari að
skjálftarnir séu undir sunnanverðum
Langjökli" sagði Ragnar.
Ragnar sagði að skjálftinn nú væri sá
stærsti sem komið hefði undir Skjald-
breið, en ekki væri hægt að líta á hann
sem fyrirboða neins annars. -FRI
I dag opnar
Alþýðubankinn
útibú á Akureyri
í QJæjarins
AÐ RÁÐHÚSTORGI 5
Viðskiptavinir athugið að
afgreiðslutími okkar er,
kl. 9.15-16.00
auk þess er opið á fimmtudögum
milli kl. 17.00 og 18.00
Lokað milli 13.00 og 14.00
ATH!
OPIÐ í HÁDEGINU
fréttir
Albert Guðmundsson, fjármálarádherra:
„EKKI KOMIST HJÁ
ftÐ BJÓÐA BSRB HUÐ-
STÆÐ KJOR OG ASÍ”
Þríhliða viðræður íslendinga,
EBE og Norðmanna um loðnuveiði:
Engin niðurstaða á
Reykjavíkurfundinum
— næsti fundur í Bergen í maí
■ „Það var rætt ítarlega um hugsan-
lega heildarskiptingu loðnuaflans á því
hafsvæði sem hér um ræðir. Efnahags-
bandalagið hefur að vísu ekki sett fram
neinar kröfur um fast hlutfall eða fastan
kvóta sem hægt er að tala um. En það
kom greinilega fram, sem ekki kom á
óvart, að málið er mjög erfitt úrlausnar,"
sagði Olafur Egilsson, formaður íslensku
nefndarinnar sem fjallar um hugsanlega
Norræna húsið:
Kowald
í kvöld
■ Tónleikar hins þekkta bassaleikara
Peter Kowald eru í Norræna húsinu í
kvöld og hefjast þeir kl. 21. Kowald er
einn fremsti bassaleikari í Evrópu og
okkur að góðu kunnur því hann hélt hér
tónleika fyrir fjórum árum og þóttu þeir
frábærir.
skiptingu loðnuaflans við ísland, Græn-
land og Jan Mayen í viðræðum við
Efnahagsbandalag Evrópu og
Norðmenn, sem lauk í Reykjavík í gær
án þess að niðurstaða fengist.
- Nú hljóta EBE ríkin að þurfa
verulegan hlut í veiðunum til að það
borgi sig fyrir þau að gera út á þær?
„Það er erfitt að segja um. Þetta
hlýtur náttúrulega að velta mikið á því
hver heildarkvótinn er hverju sinni. Nú
er til dæmis talað um 645 þúsund lestir
en bráðabirgðakvótinn fyrir næsta
tímabil, sem verður frá næsta hausti og
fram yfir næstu vetrarvertíð, er áætlaður
300 þúsund tonn samkvæmt því sem
kemur fram í skýrslu vísindamanna.
Þess vegna sveiflast allar hlutfallstölur
mjög mikið til frá ári til árs og að þeir
vilji fá eitthvað lágmarks magn til að
veiðar þeirra geti staðið undir sér,“ sagði
Ólafur.
Næsti fundur í þessum þríhliða við-
ræðum hefur verið ákveðinn í Bergen í
Noregi í byrjun maí næst komandi.
-Sjó