Tíminn - 24.02.1984, Síða 6

Tíminn - 24.02.1984, Síða 6
6______________ T spegli tímans Margar öfunda forseta frúr Bandaríkjanna — en eru þær svo öfundsverðar í rauninni? ■ Þetta er staða, sem vekur öfund milljóna kvenna, staða æðstu konu Bandaríkjanna, konu forsetans, voldugasta manns hins vestræna heims. En þrátt fyrir öfundina, er mikið vafamál að margar konur vildu taka þetta vanþakkláta starf að sér. Við höfum fengið að fylgjast með hvernig það hefur leikið ýmsar þeirra, sem hafa nauðugar viljugar orðið að gegna því, hvernig Betty Ford og Pat Nixon leiddust út í óhóflega áfengis- drykkju, hvernig Jackie Kennedy varð slík eyðslukló, að engu var líkara en að hún væri hrædd um að peningarnir brynnu í höndunum á henni. Og nú eru vinir Nancy Reagan farnir að hafa áhyggjur af heilsufari hennar. Já, forsetafrúrnar hafa þurft að þola margt og hafa brugðist við mcð ýmsum hætti. Eleanor Roosevelt hellti sér út í félagsmál og varð að láta sér lynda að maður hennar væri henni ótrúr. Samt brást hann ókvæða við, þegar hann fékk þær upplýsingar frá alríkislögregluni, FBI, 1943, að hún liefði hlerað hótelher- bergi, þar sem gistu kona hans og liðþjálfi í bandaríska hernum, Joseph Lash. Viðbrögð Frankl- ins D. Roosevclt voru þau að fyrirskipa að liðþjálflnn yrði sendur í fremstu víglínu hið snar- asta, sennilcga í þeirri von, að hann yrði ekki langlífur þar. Reyndar sneri Joseph Lash á forseta sinn með því að koma heill á húfi úr stríðinu. Hann hefur mörg undanfarin ár verið stórvirkur og vel metinn rithöf- i undur í heimalandi sínu. Sumar gripu til flöskunnar Pat Nixon greip æ oftar til flöskunnar á meðan hún fylgdist með baráttu manns síns við að klóra sig út úr Watergate- hneykslinu. Að lokum brast heilsa hennar og hún fékk heila- blæðingu í tvígang 1976. Þegar Nixon neyddist til að segja af sér, varð varaforseti hans, Gerald Ford, að taka á sig ábyrgð þá, sem forsetaem- bættinu fylgir. Dagsins, sem það gerðist, 9. ágúst 1974, minnist kona hans, Betty Ford, með hryllingi. Þaðan í frá segir Betty Ford leyniþjónustuna hafa stjórnað lífi fjölskyldunnar, sem aldrei gat um frjálst höfuð strokið. Hún minnist þess, þegar leyni- þjónustumaður hringdi í hana á föstudegi og skipaði svo fyrir að dóttir hennar, Susan, héldi sig innan dyra alla helgina. Seinna komst hún að raun um, að það var vegna hótana öfgafullra hryðjuverkamanna um að ráða Susan af dögum. Smám saman fór svo að Betty, sem þá var komin undir sextugt, gafst upp undir því álagi, sem stöðu hennar fylgdi. Hún treysti sér ekki til að koma neins staðar fram nema í emhvers konar vímu, og það var ekki fyrr en hún losnaði úr Hvíta ■ FBI njósnaði um ástafundi Eleanor Roosevelt og Joseph Lash. Hann er nú metsölu- höfundur í Bandaríkjunum. ■ Jacqueline Kennedy varð að þola mörg hliðarspor manns síns. Hún fékk útrás fyrir innibyrgða gremju sína með því að eyða peningum eins og mest hún mátti. húsinu, sem henni tókst að koma heilsu sinni á réttan kjöl á ný. Og ekki átti Rosalynn Carter sjö dagana sæla í Hvíta húsinu. Hún var sífelldur skotspónn þeirra, sem þóttust hafa efni á að hæða hana fyrir kauðalegan klæðaburð og Suðurríkjahreim ■ málfari. Aðrar bruðluðu meðfé — eðaurðu mannafælur — en menn þeirra stunduðu fram. hjáhald Jacqueline Kennedy var ámælt fyrir óhemju bruðl með fé. Sagt er að þegar maður hennar hafi sett ofan í við hana fyrir fatareikningur hennar á árinu 1961, sem fór upp í 8 milljónir króna, hafi hún svarað því til, að hann gæti bara selt einhverjar af þeim gersemum, sem Hvíta húsinu er fullt af, til að standa straum af kostnaðin- um. Hann féllst ekki á þá lausn. Reyndar álíta menn nú, að með eyösluseminni hafi hún fengið útrás fyrir óánægju sína með lífið í Hvíta húsinu. Maður henn- ar var alræmdur kvennamaður og fór ekki dult með afrek sín á því sviði. Hún varð fyrir þeirri sorg að missa tveggja daga ganil- an dreng 1963 og komst seint yfir það. Og til að kóróna allt saman var hún þátttakandi í voða- atburðunum í Dallas 22. nóvem- ber 1963, þegar maður hennar féll fyrir morðingja hendi og hné örendur í kjöltu konu sinnar. Örlög Mamie Eisenhower hafa lengi runnið mönnum til rifja. Hún varð að þola þá auðmýkingu að allur heimurinn var vitni að ástarævintýri manns hennar og ensks bílstjóra hans af veikara kyninu á stríðsárunum, Kay Somersby. Þaðan í frá gerð- ist Mamie hálfgerð mannafæla og það þykir ekki hæfa forset- afrú Bandaríkjanna. Nei, það virðist sannarlega ekki vera eftirsóknarvert starf að vera æðsta kona Bandaríkjanna. 4- ■ Pat Nixon naut ekki trúnað- ar manns síns á meðan hann ■ barðist fyrir embætti sínu í kjöl- far Watergatehneykslisins. Það tók svo á taugarnar, að hún missti heilsuna. ■ Rosalynn og Jimmy Carter áttu hvort annað að, þegar þau urðu fyrir aðkasti fyrir að vera ekki alveg nógu veraldarvön í augum þeirra, sem betur höfðu kynnst heiminum, að eigin áliti. viðtal dagsins ,JU±R HAFA GOTTAFNUDDT' — rætt við Gunnar Júlíusson sjúkra nuddara sem nýlega opnaði eigin nuddstofu ■ „Það hafa allir gott af nuddi, jafnt háir sem lágir“ sagði Gunnar Júlíusson sjúkranuddari í samtali við Tímann en hann tók nýlega við rekstri nuddstofunnar að Laugarnesvegi 82, sem heit- ir Paradís. „Sjúkranudd er fyrst og fretmí vöðvabóloueyö -íi en almennt séð þá slakar það á öllum vöðvum líkam- ans, kemur blóðinu á hreyf- ingu og virkar auk þess á sogæðakerfíð“ sagði Gunnar. í máli hans kom fram að hann lærði sjúkranudd hjá einum þekktasta sjúkra- þjálfara landsins Edwald Hinrikssyni en þar var hann ■ Gunnar Júlíusson sjúkra- nuddarí við vinnu sína. Tímamynd Árni Sæberg

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.