Tíminn - 24.02.1984, Side 10

Tíminn - 24.02.1984, Side 10
11 10 iþróttir FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1984 FOSTUDAGUR 24. FEBRUAR 1984 uiílsjón: Samuel Örn Eriingsson ■ Kylfingar „púlta“ í frekar óvenjulegu um- hverfi. Golfhátíð á Broadway ■ Kylfingar úr Golfklúbbi Ness, munu halda uppá 20 ára afmæli klúbbsins á sunnudaginn kemur. Vcrður það gert á Veitingahúsinu Broadway, cn sérstök golthátíð verður þar á sunnudaginn. S'mislegt verður gert til skemmt- unar þar á meðal verður kcppt í mini-golf ú þar til gerðum brautum og eru góð verðlaun í boði, þ.á.m. utanlandsferð. Þá verða sýndar nýlegar golfmyndir og einnig verður kynning á golf- vörum í gangi í húsinu. Keppendum í pútt-mót- inu er bent á að hafa sínar eigin kylfur meðferðis þó citthvað muni vera hægt að fá leigt af slíkum verkfærum á staðnum. Golfhátíðin hefst kl. 15. -BL Þór vann Hauka ■ Tveir leikir voru um helgina í 2. deild kvenna í handknattieik. bór Ak. vann Hauka 10-13 cftir að staðan í hálflcik var 9-4 fyrir Hauka. I’á lck ÍBV við Þrótt og sigraði ÍBV 17-15. -BL Fimm lið berjast ■ Fimm lið berjast nú á toppi 3. deildar í handknattleik. hcssi lið eru Týr Ve„ Ármann, Afturelding, l’ór Ak., og Akrancs. Þrír leikir voru leiknir um helgina og urðu úrslit þeirra sem hér segir: ÍA-Afturelding...................17-14 Keflavík-Ármann .................22-30 Skallagrímur Selfoss..............14-16 Staðan í 3. deildinni er nú þessi: Týr Ve........... 14 10 2 2 338-232 22 Ármann 14 11 0 3 395-309 22 Aftureld......... 14 10 0 4 333-241 20 Þór Ak.......... 13 9 1 3 339-229 19 Akranes......... 13 9 1 3 330-239 19 Keflavik......... 13 6 0 7 324-287 12 Selfoss.......... 14 3 0 11 240-294 6 Skallagr......... 13 1 0 12 191-342 2 Ögri............. 14 0 0 14 195-512 0 -BL Fyrirtækja og hópakeppni KR ■ Önnur firma og félagshópakeppni KR í innanhúsknattspyrnu, hefst mánudaginn 5. mars. Úrslitakeppnin verður síðan 19. mars. Keppni lýkur í flestum riðlum samdægurs. Þátttökutilkynningar skulu berast eigi síðar en mánudaginn 27. febrúar. Þátttökugjaldið er 2.500 krónur og skal greiða það áður en dregið verður í riðla. Það verður síðan gert þriðjudag- inn 28. og mun tímásetning liggja fyrir fimmtu- daginn 1. tnars. Allar nánari upplýsingar veitir Steinþór Guð- bjartsson á skrifstofu KR í KR-heimilinu milli kl. 5 og 7. Síminn cr 27181. -BL Fram að ná titlinum ■ Fram-stúlkurnar í handknattleik fóru ævintýra- ferð uppá Akrancs í íyrrakvold, cn þar átlu þær að lcika við (A kl. 20.00 í 1. deildarkcppninni. Lcikur- inn hófst ckki fyrr cn kl. 21.15 vcgna þcss að Fram-stúlkurnar hrcpptu mjög slæmt veður á leiðinni * og urðu að ganga á undan bíl sínum langa lcið vcgna snjókomu. Þær komust þó að lokum alla lcið óg fóru meðtvöstigmeðsér heim. Lciknumlauk 18-14, cftir að staðan í hálflcik var 8-7 fyrir Fram. Mörk Fram: Guðríöur 9, Sigrún .3 Arna 2, Oddný 2, Margrcl I og Hanna 1. Mörk ÍA: Laufey 5, Hrefna 3, Karitas 2. Ragnhildur 2, Þórgunnur I og Ragnheiður 1. -BL A-LAN DSLIÐIÐ VAR STERKARA sigraði B-landsliðið f gærkvöld 35-27 ■ í gærkvöld léku A og B lið íslands í handknattleik innbyrðis í Laugardalshöll og lauk leiknum, sem var hálfgerð markadella, með sigri A-liðsins 35-27, en í hálfleik var staðan 18-10, fyrir A-liðið. Það var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra og eina spurningin var hvað einstakir leikmenn næðu að skora mörg mörk. Varnarleikur var af mjög skornum skammti eins og tölurnar bera með sér. En þeir fáu áhorfendur sem lögðu leið sína í Laugardalshöll í gærkvöld, fengu aftur á móti að sjá meira en mark á mínútu. Sennilega væri handknattleiksmönnum nær að leggja meira upp úr varnarleiknum, því ekki er víst að þeir geti treyst því að skora um og yfir 30 mörk þegar þeir fara að leika gegn sterkum erlendum landsliðum. Mörk A-liðsins: Atli Hilmarsson 7, Páll Ólafsson 6, Jakob Sigurðsson 6, Kristján Arason 5, Sigurður Gunnarsson 4, Þorbjörn Jensson 3, Steinar Birgisson 2, Guðmundur Guðmundsson 1 og Guðmundur Albertsson 1. Mörk B-liðsins: Gunnar Gíslason 8, Hans Guðmundsson 5, Viggó Sigurðsson 4, Pálmi Jónsson 3, Sveinn Bragason 2, Hilmar Sig- urgíslason 2 og Valdimar Grímsson 1. -BL Gróttan fyrst til að leggja Þórarana! vann toppliðið á Nesinu í gær ■ Þórarar frá Vestmannaeyjum töp- uðu sinum fyrsta leik í 2. deildinni í handknattleik í gærkvöld, er þeir biðu lægri hlut fyrir Gróttu á Seltjarnarnesi 22-21. Þórarar voru sterkari framan af. Þeir komust yfir 8-3 og skömmu síðar í 10-8. í hálfleik höfðu Þórarar fjögurra marka forskot 15-11. Gróttumenn jöfnuðu fljótlega í síðari hálfleiknum 16-16 og síðan var jafnt, 17-17, í heilar 10 mínút- ur. Þórarar skoruðu 18-17, en Grótta skoraði næstu þrjú mörk og breytti stöðunni í 20-18. Þetta forskot náðu Þórarar ekki að vinna upp þrátt fyrir að mikill darraðadans væri stiginn í lok leiks- ins, er knötturinn gekk mótherja á milli. Stadan ■ Lokastaðan í 2. deild varð þessi, eftir leik Gróttu og Þórs í gærkvöld. I.okastaöan: Bestu menn leiksins voru markverðir liðanna, þeir Sigmar Þröstur í marki Þórara og Ragnar Halldórsson í marki Gróttu. Gróttumenn beittu þeirri leikað- ferð að taka Þorberg Aðalsteinsson úr umferð allan leikinn og gafst það vel. Mörk Gróttu: Sverrir 7/2, Jóhannes 5, Gunnar 3, Hjörtur 2, Svavar 2/1, Jóhann 2 og Axel 1. Mörk Þórs: Gylfi 6, Ragnar 4, Þorbergur 4/4, Karl 2, Þór 2, Páll 2 og Óskar 1. -BL Kvennalands- liðið til Færeyja ■ Islenska kvennalandsliðið í blaki er nú á förum til Færeyja, en þar mun liðið dvcljast dagana 29. febróar til 5. mars og leika 2-3 leiki við Færeyinga. Þjálfari íslenska liðsins er Benedikt Höskulds- son. -BL. Leik Þórs og Fram frestað í 1. deildinni í körfu ■ Leik Þórs og Fram í 1. deild karla í körfuknattleik, sem vera átti á Akureyri í gærkvöld, var frestað, vegna þess að ekki var flogið til Akureyrar fyrr eftir kvöldmat. -BL UMFN-Haukar í Njarðvík í kvöid Norðurlandamót unglinga íbadminton: Þór Ve . Breiðabl Fram .. Grótta . HK .... ÍR...... Fylkir .. Reynir S 14 13 14 11 14 9 14 14 14 14 14 1 321-244 26 3 301-255 22 4 298-279 19 5 306-276 17 9 250-276 9 10 241-288 8 9 240-285 6 11 299-356 5 ■ Eitt af 62 mörkum sem skoruð voru í leik A og B landsliðsins, er hér í uppsiglingu. Leiknum lauk með sigri A-liðsins 35-27. Tímamynd Róbert — Færeyingar í fyrsta sinn með VALSMENNIBASLI MEÐ SKALLAGRÍM í Bikarkeppni KKÍ 89-63 ■ Dagana2.-4. mars n.k. verður hald- ið hér á landi Norðurlandamót unglinga í badminton. Er þetta í fyrsta skipti sem mótið fer Úrslit mjólkurbikarkeppninnar á Englandi: EVERTON - UVERPOOL leika á Wembley 25. mars ■ Everton tryggði sér í fyrrakvöld farscðilinn í úrslitalcik mjólkurbikar- keppninnar, á Wembley þann 25. mars. I síðari leik Everton og Aston Villa í undanúrslitum keppninnar í fyrrakvöid sigraði Aston Villa 1-0, en það var ekki nóg því Everton vann fyrri leikinn 2-0 og kemst þar með í úrslit. Um 42.000 manns voru á Villa Park, heimavelli Aston Villa í fyrrakvöld, þar af 14.000 Everton aðdáendur. Everton sem var betri aðilinn í leiknum áttu tvívegis í fyrri hálfleiknum skot í þverslá Villa marksins. Fyrst Adrean Heath á 9. mínútu og síðan skallaði Graeme Sharp í slána á 19. mínútu, eftir sendingu frá Kevin Sheedy. En knötturinn vildi ékki í markið og staðan í hálfleik var því 0-0. A 60. mínútu skoraði Paul Rideout eina mark leiksins, en hann var þá nýkominn inná í stað Mark Walters. Markvörður Villa, Nigel Spink átti langt útspark og Andy King í vörn Everton mistókst að bægja knettinum frá. Rideout notfærði sér það og skoraði með föstu skoti. Skömmu síðar varði Spink í marki Villa vel frá Alan Irvine. En fleiri urðu mörkin ekki og það nægði Everton í úrslit mjólkurbikarsins á Wembley 25. mars, þar sem þeir mæta nágrönnum sínum Liverpool. Það má því reikna með því að Liverpoolborg verði eins og yfirgefinn gullgrafarabær þann 25. þegar stórliðin tvö mætast í Lundúnum. Leikmenn Everton munu vafalaust: selja sig dýrt í leiknum því nú eru liðin 14 ár síðan Everton vann síðast meiri- háttar keppni. Það var 1970 er Everton varð enskur meistari. Liverpool liðið hefur aftur á móti unnið til flestra þeirra verðlauna. á síðustu árum, sem eitt lið getur unnið. Það verður því gaman að fylgjast með framvindu mála í leiknum, en eins og flestir vita þá verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu í íslenska sjónvarpinu. Þá munu íslenskir sjón- varpsáhorfendur einnig sjá þessi sömu lið í beinni útsendingu þann 3. mars, en þá mætast liðin í 1. deildarkeppninni. -BL fram hér á landi. Þátttakendur eru 45 frá Danmörku, Sviþjóð, Noregi, Finnlandi, íslandi og Færeyjum. Er þetta í fyrsta skipti sem Færeyingar taka þátt í mótinu og er það sérstaklega ánægjulegt að þeir skuli hafa bæst í hópinn. Mótið, sem háð verður í Laugardals- höll, mun standa yfir í 3 daga og hefst það með landsleikjum allra þjóðanna kl. 9 f.h., föstudaginn 2. mars. Laugardaginn 3. mars hefst síðan einstaklingskeppnin og sunnudaginn 4. mars fyrir hádegi verður leikið í undan- úrslitum. Kl. 2 e.h. verður síðan úrslita- keppnin. Landsliðsþjálfari Badmintonsam- bandsins, Hrólfur Jónsson, hefur valið íslensku keppendurna, sem taka munu þátt í mótinu og eru það eftirtaldir. Stúlkur: Þórdís Edwald TBR, Elísabet Þórðardóttir TBR, og Guðrún Júlíus- dóttir TBR. Piltar: Þórhallur Ingason ÍA, Árni Þór Hallgrímsson ÍA, Snorri Ingvarsson TBR, og Haukur P. Finnsson Val. Mótsstjóri á mótinu verður Magnús Elíasson. -BL ■ Leikmenn Skallagríms úr Borgarnesi komu verulega á óvart í gærkvöldi er þeir léku við íslands og bikarmeistara Vals í bikarkeppni KKÍ. Skallagríms- menn voru yfir í hálfleik 33-31, en Valsmenn tóku sig á í síðari hálfleiknum og sigruðu 89-63. Valsmenn hafa líklega haldið að þeir þyrftu ekkert að hafa fyrir sigrinum, þar sem lið Skallagríms er neðst í 1. deild- inni, án stiga. Sem dæmi um hve öruggir Valsmenn voru, léku tveir þeirra bestu manna ekki með að þessu sinni. Þjálfar- inn, Torfi Magnússon tók sér frí og Tómas Holton lék heldur ekki með. Aftur á móti dustaði gamli jaxlinn, Hafsteinn Hafsteinsson, liðsstjóri Valsmanna, rykið af körfuboltaskónum og lék með í leiknum. En Valsmenn fengu heldur betur mótspyrnu, því Skallagrímsmenn mættu ákveðnir til leiks, staðráðnir í að gefa hlut sinn hvergi. Þegar blásið var til leikhlés höfðu Borgnesingarnir tveggja stiga forskot 33-31. í síðari hálfleik hristu Valsmenn af sér slenið og sigu fram úr. Skallagrímsmenn náðu ekki að fylgja góðum fyrri hálfleik eftir og bikarmeist- arar Vals komust áfram í bikarkeppninni með 89-63 sigri, en Skallagrímsmenn eru úr leik. Stig Vals: Jón Steingrímsson 16, Jó- ■ Torfi Magnússon lék ekki með í gær. hannes Magnússon 16, Kristján Ágústs- son 12, Páll Arnar 12, Einar Ólafsson 8, Valdemar Guðlaugsson 8, Leifur Gúst- afsson 7, Björn Zoéga 4, Helgi Gústafs- son 4 og Hafsteinn Hafsteinsson 4. Stig Skallagríms: Guðmundur Kr. Guðmundsson 23, þar af 16 í fyrri hálfleik, Haísteinn Þórisson 13, Hans Egilsson 7, Björn Axelsson 5, Björn Jónsson 5, Þór Dan 4, og Stefán Dan 4. -BL ■ Einn leikur verður í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld, Njarðvík og Haukar leika í íþróttahúsinu í Njarðvík og hefst leikurinn kl. 20. Þessi leikur er mjög mikilyægur fyrir Hauka því þeir eru ekki enn búnir að tryggja sér rétt til að lcika í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. Með sigri í þessum leik eru þeir aftur á móti öruggir í úrslitin. Njarðvíkingar leika ekki undir neinni pressu í kvöld þar sem þeir hafa fyrir löngu tryggt sér sæti í úrslitunum og hafa nú 8 stiga forystu á toppi úrvalsdeildar- innar. - BL Almennur fundur um fíkniefnamál laugardag- inn 25.2.1984 kl. 13:30, í Norræna húsinu. Dagskrá Matthías Bjarnason, heilbrigöisráöherra. Sigmundur Sigfússon, læknir. Ásgeir Friöjónsson, dómari. Þórarinn Tyrfingsson, læknir. Halldór Gunnarsson, ráögjafi. Siguröur Gunnsteinsson, dagskrárstjóri. Kristín Waage, ráögjafi. Sigtryggur Jónsson, sálfræöingur. Árni Einarsson, fulltrúi. Ragnar Aöalsteinsson, lögmaöur. Kaffihlé Almennar umræöur. Stjórn: Magnús Bjarnfreösson. Þróun og horfur (yfirlit), Skúli Johnsen, borgarlæknir. Fundarstjóri: Guöjón Magnússon, aöstoöarlandlæknir. SÁÁ í samvinnu viö Landlæknisembætti og Áfengisvarnadeild Reykjavíkurborgar. Ávarp, Fíkniefnin og áhrif þeirra, Fíkniefnamarkaöurinn, Hverjir neyta fíkniefna? Heimur neytandans, Meðferö og endurhæfing, Fjölskyldan, Unglingarnir, Fræösla og forvarnir, Löggjöfin,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.