Tíminn - 24.02.1984, Side 18

Tíminn - 24.02.1984, Side 18
18 Wminmi' skák Texti: Jón Guðni Skýringar: Jóhann Örn Sigurjónsson 8. umferð REE TÓKST EKKI AD STÖDVA JÓHANN /xí\ REYKJAVIKUR /SKÁKMÓTIÐX ■ Þegar undirritaður kom í skáksal- inn á Hótel Loftleiðum rétt fyrir kl.i 19.00 í gærkvöldi var svartsýni ríkjandi meðal áhorfenda fyrir hönd íslensku skákmannanna. Jafnvel þeir sem undirritaður hefur hneigst til að taka mest mark á varðandi mat á stöðum voru á einu máli um að Jóhann Hjart- arson væri með miklu verra gegn hollenska stórmeistaranum Ree og Margeir væri með tapað gegn de Firimian. En þessir spádómar urðu sér til skammar og hvílíkar skákir. Það er annað tveggja að Jóhann Hjartarson sé einfaldlega orðinn svona góður skákmaður, eða þá hitt að erlendir andstæðingar hans hreinlega falli saman þegar þeir mæta honum nema hvort tveggja sé. Hann hefur jú ekki tapað skák til þessa á mótinu, tapaði reyndar ekki heldur skák á Búnaðarbankamótinu á dögunum og meira en það, hann hefur unnið skák eftir skák, jafnt með hvítu sem svörtu. Sannarlega virtist hollenski stórmeist- arinn vera kominn með vænlegt tafl í gærkvöldi, en þá sneri gæfan við hon- um bakinu. Hann kom gaffli á báða hróka Jóhanns, en tók í staðinn á sig opna kóngsstöðu. í fljótu bragði virtist honum ekki liggja lífið á að taka skiptamuninn, en hann féll fyrir þeirri freistingu. Hrókurinn reyndist baneitr- aður, Jóhann þurfti ekki einu sinni að hafa fyrir því að drepa til baka riddar- ann, sem smeygði í sér inn í herbúðir hans. í staðinn nýtti hann sér til hins ítrasta veika kóngsstöðu andstæðings síns, og náðí slíkri sókn að Ree varð að gefast upp nokkrum leikjum eftir hið mislukkaða hróksdráp, mát í næsta leik varð ekki umflúið. Þar með hefur Jóhann náð þeim ótrúlega árangri að ná 7 vinningum út úr 8 umferðum, hefur unnið sex skákir og gert tvö jafntefli og er þó margur kunnur kappinn meðal þátttakenda. Úrslitin í skák Helga og Jóns L. Árnasonar mætti helst kalla vináttu- jafntefli, þeir sömdu eftir nokkurra m/nútna taflmennsku. Þeim sem hneykslast á slíku framferði má benda á það að það er erfið staða fyrir þessa tvo félaga í skáklistinni að dragast saman hvor gegn öðrum í einni af síðustu umferðunum, því báðir keppa að sama markinu og skiljanlega hefur hvorugur áhuga á að bregða fæti fyrir hinn. En var hægt að koma málum öðru vísi fyrir? Ég bar þá spurningu upp við einn af skákstjórunum, Þor- stein Þorsteinsson. Þorsteinn sagði efnislega: „Við urðum að fara eftir þeim reglum sem gilt hafa á mótinu frá upphafi, og gátum ekki breytt til, nema ganga á rétt einhverra. Þegar menn dragast saman ræður annars vegar litaskiptingin og hins vegar stigin, sem keppendur hafa áunnið sér fyrir í mótinu. Nú var Jóhann efstur fyrir þessa umferð og það er regla að sá sem er efstur fái sterkasta keppand- ann sem hann hefur ekki mætt fyrr í mótinu. Sú regla gildir um mót sem þessi til að ná áfanga að stórmeistara- titli dugar ekki tiltekinn stigafjöldi, heldur verður kandidat að tefla við þrjá stórmeistara hið minnsta. Við unnum lengi að þessari niðurröðun og komumst að þeirri niðurstöðu að ekki yrði hjá því komist að raða niður á þann hátt sem var gert.Ef ekki. hefði verið gengið annað hvort á rétt Jóhanns, eða Svíanna í toppbaráttunni og slíkt hefði ekki verið gott afspurnarl' Nóg um það. Snúum okkur að skák Margeirs sem hafði svart gegn de Firmian. Margeir virtist vera með skelfilega stöðu en hanh sýndi viðlíka seiglu í vörninni og gegn Alburt sællar minningar á Búnaðarbankamótinu og í biðstöðinni hefur hann hrók og fimm peð gegn tveim biskupum og tveim peðum de Firmians. Margeir vildi lítið segja um möguleika sína í stöðunni, sagðist eiginlega aldrei hafa séð svona stöðu fyrr. Aðrir voru á því máli að staðan væri svo flókin að það væri meiningarlítið, að segja nokkuð um hana eftir fljóta skoðun, en hölluðust þó að því að væri til vinningur væri hann Margeirs. Af öðrum úrslitum má nefna að enn var Karl Þorsteins á ferðinni með fallega skák og vann nú Guðmund Sigurjónsson. Þá átti Pia Cramling í höggi við Geller og laut í lægra haldi eftir hetjulega baráttu. Friðrik Ólafs- son vann Braga Kristjánsson. Staðan á toppnum eftir 8 umferðir er þá þannig að efstur er Jóhann Hjartarson með 7 vinninga de Firmian hefur 6 vinninga og biðskák, þá kemur aldursforsetinn Reshevsky með 6 vinn- inga og Helgi Ólafsson, Jón L. Árna- son, Schneider, hafa 5!ó vinning og Margeir og Wedberg hafa 5 vinninga og biðskákir og síðan koma með 5 vinninga Zaltsman, Balashov, Geller, Karl Þorsteins, Shamkovic og McCam- bridge og Ree. 9 umferðin verður tefld í dag og hefst kl. 17.00 að venju. Margeir abcdefgh de Firmian Jóhann og Ree í upphafi skákar sinnar í gær. Tímamynd Róbert Úrslitin í gærkvöldi 01 Hans Ree—Jóhann Hjartarson O-l 02DeFirmian-MargeirPétursson bið 03 Jón L. Árnason—Helgi Ólaf sson V2-V2 04Tom Wedberg-LarryChristiansen bið 05 Axel Ornstein - Samuel Reshevsky 0-1 06 YuriBalashov-V.Saltzmann V2-V2 07LevGutman-EricLobron 0-1 08Lars A. Schneider-Murray Chandler 1-0 09EvfimGeller-PiaCramling 1-0 10 Robert Byrne—E. King V2-V2 HLeonidShamkovich-LevAlburt 1-0 12 Guðm. Sigurjónsson - Kari Þorsteins 0-1 13McCambridge-Johnny Hector 1-0 14 Bragi Kristjánssoh—Friðrik Ólafsson 0-1 15 P. Ostermeyer—Elvar Guðmundsson 1-0 16M.Knezevic-K.Tielemann 1-0 17HarrySchiissler-CarstenHöi 1-0 18 Haukur Angantýss - Magnús Sólmundarson bið 19G.Taylor—Larus Johannesson 1-0 20 Ásgeir Þór Árnason—Dan Hansson V2-V2 21 Hilmar Karlsson - Karl Burger V2-V2 22 Holger Meyer- Halldór G. Einarsson 1-0 23 Jan M. Nykopp—Guðm. Halldórsson 1-0 24 Róbert Harðarson - Pálmi R. Pétursson 1-0 25 Benóný Benediktsson - Benedikt Jónasson 0-1 26 Bragi Halldórsson -Ágúst Karlsson 1-0 27 Haraldur Haraldsson - Sævar Bjarnason 0-1 28 Leif ur Jósteinsson - Andri Áss Grétarsson bið 29 Þröstur Bergmann—Björgvin Jónasson bið 30 Arnór Björnsson - Gylfi Þórhallsson 0-1 Hvítur: Hans Ree Svartur: Jóhann Hjartarson Drottningarbragð 1. d4 Rfó 2. c4 eó 3. Rf3 d5 4. Bg5 Be7 5. Rc3 h6 6. Bh4 0-0 7. Dc2 b6 8. Bxf6 (Stríðshanskanum er kastað. Hvítur hyggst hróka langt, og sækja að svörtu kóngsstöðunni. Slíkri sókn getur verið allt annað en auðvelt að verjast, og varnaraðilinn má mjög gæta sín á því, að lenda ekki út í of dauðri stöðu sem ekki gefur neina gagnsóknarmögu- ieika.) 8. . Bxf6 9. e4 Rc6 10. 0-0-0 dxe4 11. Dxe4 Bb712. h4 Hb813. Bd3 (Framkallar veikingu á svörtu kóngs- stöðunni. í fljótu bragði virðist hvítur kominn með draumastöðu.) 13. . g6 14. Dg4 Bg7 15. Be2 (Þessi biskup var orðinn fyrir á d-Iínunni, og hvítur verður að eyða tíma í tilfærslu hans.) 15.. Re716. h5 g517. Re5 Rf518. Bf3 22. . Da5! (Nú er 23. Bxb7 Dxc3t 24. Kbl Hxb7 hreint mát, og því reynir hvíti kóngurinn að forða sér í dauðans angist.) 23. Kd2 Rd4! (Einn þrumu- leikurinn enn. Ef nú 24. Bxb7 f5 25. Dg3 Dxa2t 26. Kel De2 mát.) 24. Kel Rxf3t 25. Kfl (í skákskýringasalnum var Jón Þorsteinsson fljótur að sjá skemmtilega vendingu eftir 25. gxf3 Dxc3t 26. Kfl Bxf3 27. Dg3 Dd3t! 28. Hxd3 Hblt 29. Hdl Hxdl mát.) 25. . Da4! Hd6 f5 og hvítur gafst upp. Hvíta drottningin verður að gefa eftir vald sitt á c4, og verður þar með snyrtilega mát. abcdefgh (Allt hefur þetta gengið eðlilega fyrir sig, en næsti leikur svarts hleypir öllu upp í loft.) 18.. c5! (Fórnar skiftamun fyrir mótsókn.) 19. dxc5 Dc7 20. Rd7 Bxc3 21. bxc3 (Jóhann taldi hvítan hafa átt.að reyna 21. cxb6, í stað textaleiksins.) 21. . bxc5 22. Rxf8 (Trúlega veitti 22. Rxb8 meira viðnárn, en næsti leikur Jóhanns hlýtur að hafa komið Ree gjörsamlega á óvart.) Lokastaðan. FÓSTUDÁGUR 24. FEBRÚÁR 1984 Kvikmyndir Sími 78900 SALUR 1 Goldfinger Enginn jalnast á vift James Bond 007, sem er kominn aftur i heim- sókn. Hér á hann í höggi vift hinn kolbrjálafta Goldfinger, sem sér ekkert nema gull. Myndin er fram- leidd af Broccoli og Saltzman. JAMES BOND ER HÉR I TOPP FORMI.Aftalhlutverk: Sean Conn- ery, Gert Frobe, Honor Blackman, Shirley Eaton, Bern- ard Lee. Byggft á sögu eftir lan Fleming. Leikstjóri: Guy Hamilton Sýnd kl. 5,7.05, 9.10,11.15 SALUR2 CUJO Splunkuný og jafnframt stórkostleg mynd gerft eftir sögu Stephen King. Bókin um Cujo hefur verift gefin út í milljónum eintaka viðs vegar um heim og er mest selda bók Kings. Cujo er kjörin mynd fyrir þá sem una góftum og vel gerftum spennumyndum Aftahlutverk: Dee Wallace, Chrlstopher Stone, Daniel Hugh-Kelly, Danny Pinatauro Leikstjóri: Lewis Teague Bönnuft börnum innan 16 ára Sýndkl. 5,7, 9.10,11.15 , Hækkaft verð SALUR3 Daginn eftir (The Day After) Heimsfræg og margumtöluð stór- mynd sem sett hefur allt á annan endann þar sem hún hefur verift sýnd. Fáar myndir hafa fengift eins mikla umfjöllun i fjölmiðlum, og vakift eins mikla athygli eins og . THEDAYAFTER. Aðalhlutverk: Jason Robards, Jo- beth Williams, John Cullum, John Lithgow. Leikstjóri: Nicholas Meyer. Sýnd kl. 5,7.30 og10 SALUR4 Segðu aldrei aftur aldrei ’ Hinn raunverulegi James Bond er mættur aftur til leiks i hinni splunkunýju mynd Never say nev- er again. Spenna og grin i há- marki. , Aftalhlutverk: Sean Connery, Klaus Maria Brandauer, Barbara Carrera, Max Von Sydow, Kim Basinger, Edward Fox sem „M“. Byggft á sögu: Kevin McClory, lan Fleming. Framleiftandi: Jack Schwartzman. Leikstjóri: Irvin Kershner. Myndin er tekin i Dolby Sterio. Sýnd kl. 5,7.30 og 10

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.