Tíminn - 24.02.1984, Qupperneq 20
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
S.mar 191)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendurti um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
1^ \s*abriel
pHÖGGDEYFAR
y QJvarahlutir Sími 36510.
KitsttornBtttíOO- Auglysmgar i8300- Afgreiðsla as. ask-iff S«3Ó0 - Kv
V> . Og
Föstudagur 24. febrúar 1984
DAGSBRUN KOLFELLDI
ASÍ-KIARASAMNINGINN
— „með 700 og eitthvað atkvæðum gegn 17’%
sagði Guðmundur J. Guðmundsson
■ Dagsbrún kolfelldi nýgerða
kjarasamningu á fjölsóttum fc-
lagsfundi í gærkvöldi, með „700
og eitthvað atkvæðum gegn 17“,
eins og formaðurinn orðaði það.
Austurbæjarbíó var fullt út úr
dyrum og gífurleg stemmning á
fundinum.
Samkvæmt ályktun sem
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar lagði fyrir
fundinn var það ekki ætlun
stjörnarinnar að samningurinn
yrði felldur á fundinum, heldur
yrði ákvörðun um slíkt frestað til
annars fundar. Orðrétt segir svo
í ályktuninni: „... að fundurinn
feli stjórn Dagsbrúnar í samráði
við samninganefndir vinnustaða
að óska nú þegar eftir viðræðum
við samningsaðila Dagsbrúnar.
Þcgar niðurstöður liggja fyrir
skal boðað til nýs félagsfundar,
þar sem þær verða kynntar og
endanleg ákvörðun tekin um af-
stöðu félagsins til samninganna".
Það var Pétur Tyrfingsson sem
bar fram beina tillögu um að
samningurinn skyldi felldur,
Guðmundur reyndi að benda
honum á að ályktunin þýddi það
sama, þótt orðalagið væri öðru-
vísi. Pétur benti á móti á, að
frestun mundi VSÍ túlka sem svo
að Dagsbrúnarmenn væru
Blaðburðar
.börn
óskast
B0GAHLIÐ
HÁALEITISBRAUT
hræddir, en ekkert væri einfald-
ara en að samþykkja sína tillögu
og ályktunina einnig. Pétursagði
menn hinsvegar verða að gera
sér grein fyrir að erfið barátta
væri framundan ef samningurinn
yrði felldur, og þá yrði jafnframt
að koma til stökkbreyting á
samskiptum almennra félags-
manna og forystu félagsins.
„ekkert leynimakk", sagði
Pétur.
■ „Eg held að það sé vonlaust að
ganga fram hjá sérkröfum Dagsbrún-
ar“, sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son m.a. Tímamyndir G.E
■ „Við fellum samninginn - fellum samninginn" voru framíköllsem oft heyrðust á Dagsbrúnarfundinum í gærkvöldi. Hvertsætivarskipað
í Austurbæjarbíói og töluvert meira en það þegar leið á fundinn, sem stóð í um 3 klukkutíma, og mikil húrrahróp gullu við þegar
alkvæðagreiðsla hafði farið fram.
Mál Megasar gegn Steinum hf.:
LÖGBANNH) NÁÐIFRAM AD GANGA
■ Fógetarétturinn í
Reykjavík hefur sett lög-
bann við frekari dreifingu
og sölu á plötunum „Tvær í
takinu“, en þær eru tvær í
tvöföldu albúmi, að kröfu
Magnúsar Þórs Jónssonar,
Megasar. Steinar hf. gáfu
plöturnar út ekki alls fyrir
iöngu og á annarri þeirra er
að finna lagið Fatlafól eftir
Megas, en hann telur ekki,
heimild fyrir endurútgáfu
lagsins.
Megasi var gert að leggja fram
350 þúsund króna tryggingu fyrir
lögbanninu. Einnig þarf hann að
höfða staðfestingarmál fyrir
borgardómi Reykjavíkur innan
viku ella fellur lögbannið úr
gildi.
Pétur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Steina hf. sagði í
samtali við Tímann í gær, að
fyrirtækið væri búið að leggja
mikið fé í útgáfu þessarar plötu.
Hann vildi ekki nefna neinar
upphæðir í því sambandi. „Ég
hef þær ekki fyrir framan mig en
ég reikna með að kostnaðurinn
með öllu nemi einhverjum
hundruðum þúsunda," sagði
Pétur.
- Sjó
Vöruskiptajöfnudurmn íjanúar:
NEIKVÆDUR UM 576 MILUÓNIR
■ Vöruskiptajöfnuður lands-
manna varð neikvæður um tæpar
576 millj. króna fyrsta mánuð
ársins 1984. Inn voru fluttar
vörur fyrir rúmar 1.711 milljónir
króna, en út fyrir rúmar 1.135
millj. króna. Vantaði því rétt um
þriðjunginn upp á að útflutning-
urinn nægði til að greiða fyrir
innflutninginn.
Hlutfallslega var útflutningur-
inn nú 54,6% meiri en í janúar-
mánuði 1983, en innflutningur-
inn 53% meiri. Til samanburðar
skal tekið fram að meðalgengi
erlends gjaldeyris í janúar 1984
er talið vera 46,7% hærra en það
var í janúar 1983.
Af útfluttum vörum í janúar
voru 349 millj. króna ál og
kísiljárn. Innflutningur til verk-
smiðjanna nam um 278 millj. kr.
-HEI
Að lokinni atkvæðagreiðslu
sagði Guðmundur m.a.: „Látið
ekki góðir félagar þennan
ágreinin um orðalag, í tillögum
sem þýddu það sama, skipta
ykkur upp í,hópa.“
„Petta fór mjög svipað og ég
bjóst við“, sagði Guðmundur
spurður um úrslit fundarins. „Jú,
það verða örugglega erfiðleikar
framundan. En mér sýnist góður
hugur hér í mönnum að þeir
sigrist á þeim erfiðleikum.
- HEI
Lánskjara-
vísitalan:
HÆKKAR
UM 0.47%
■ Lánskjaravísitala mars-
mánaöar veröur 854 stig, sem
er 0,47% hækkun frá láns-
kjaravísitölu febrúarmánadar,
sem er 850 stig, samkvæml
útreikningnm Seðlabankans.
Láuskjaravísitala desember-
mánaöar var 836 stig, þannig
aö þriggja mánaða hækkun,
des.-mars er 2,15%.
Hagstofan hefur áætlað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi í fyrri hluta febrúar og
reyndist hún 155,58 stig miðað
við 155,22 stig við útreikning i
janúarbyrjun. Hækkunin er
því 0,23% milli janúar og fe-
brúarmánaðar. Hagstofan
tekur fram að yið uppgjör verð-
bóta á fjárskuldbindingar gildi
aðeins binar lögformlcgu vísi-
tölur sem reiknaðar eru á 3ja
mánaða fresti. Ársfjórðungs
hækkun byggingarvísitölunnar
- nóv.-febr. - er 1,03%.
-HEl
dropar
VR á Dall-
askvöldi
■ Sjónvarpið sctur sitt mark
á kjarabaráttuna með ýmsum
hætti. Þannig mættu „aðeins“
rúmlega hundrað manns á fé-
lagsfund Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur sem haldinn
var í fyrrakvöld um nýgerða
kjarasamninga. Auðvitað voru
samningarnir samþykktir með
miklum meirihiuta atkvæða.
Hins vegar vakti fjöldi fund-
argesta athygli með tilliti til
þess að hér er um stærsta
stéttarfélag landsins að ræða
sem mun telja um sex þúsund
félagsmenn. Það voru því á
milli 1-2% félagsmanna sem
tóku ákvörðun um samþykkt
samninganna.
Telja kunnugir að vel halí
mátt merkja það af fundar-
sókninni að frægur sjónvarps-
þáttur var þá til sýningar um
kvöldið, nefnilega Dallas, og
hafi hann átt meira í mörgum
en karpið um kaupið.
Þingmaður Morg-
unblaðsins?
Árni Jobnsen þingmaður
Morgunblaðsins á það sam-
merkt með kollega sínum Ell-
ert B. Schram að þykja flest
skcmmtilegra en sitja á þingi,
þó ástæðurnar séu af ólíkum
toga spunnar. Ellert vill ekki á
þing, því hann óttast að enda
sem messagutti, og heldur því
áfram sem fríþingmaður og
blaðamaður. Árni getur hins
, - - > - v
vegar ekki slitið sig frá sínu
gamla starfi, en náttúruham-
farir og stórslys voru hans sér-
grein. Þannig má ekkert koma
upp á, þá er þingmaðurinn
rokinn á dyr í þinghúsinu í leit
að ævintýrum. Ekki fór því
mikið fyrir þingmanninum í
sölum alþingis í gær þegar rætt
var um nýgerða kjarasamninga
utan dagskrár, enda dvaldi
hann lungann úr deginum á
Ólafsvík fyrir hönd Morgun-
blaðsins að taka upp fréttir af
afleiðingum snjóflóðsins í
fyrrinótt. Nú er að sjá hvað
aðrir þingmenn flokksins segja
við þessari innrás í Vestur-
landskjördæmi, og spurning
hvort Friðjón Þórðarson taki
ekki næst að sér hlutverkið
þegar færi gefst fyrir Morgun-
blaðið og Flokkinn, þegar
kjördæmi hans á annars vegar
í hlut, nema Árni sé landskjör-
inn!
Krummi..
...spyr hvort Ámi geti ekki
fengið frí eins og EUert