Tíminn - 04.03.1984, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
erlend hringekja
Hernaðarástand
í Karlskróna
■ Fréttir frá Svfþjóð hcrma að nú ríki
mínast licrnaðarásttnHl við hatinn
Karlskróna áSkáni. Ba'ði hcrog lögregla
leita nú bæði á sjó og landi að einhverju
sem gæti komið þeim á sporið í lcitinni
að „óþekktum óvini".
Bílar sem aka bæði til og frá bænum
eru skoðaðir og fólk sem í þeim er verður
aðsýnaskilríki sín. Úti í skerjagarðinum
fér fram áköf leit í öllum þeim mikla
fjölda sumarbústaða sem þar er að finna.
Allar þessar aðgerðir hafa þó enn sem
komið er engan árangur borið að sögn
yfirvalda.
Fvrir skömmu varð vart við eittbvað
sem verið gæti dvergkafbátur við eina
mikilvægustu flotastöð Svía í Karlskrona
og í þetta skiptið skal hinn óþekkti
óvinur ekki sleppa. Grunur leikur á að
„óvinurinn” njóti aðstoðarmanna í landi
en yfirvöld hafa þó ekki fengist til að
staðfesta það.
íbúar bæjarins vita varla hvaðan á sig
stendur veðrið og líkja ástandinu við
það sem var í seinni heimstyrjöldinni.
Lögreglan hefur ekki látið sitt eftir liggja
og til að aðstoða herinn hefur nú verið
dregið úr almennri löggæslu og liðsaflinn
settur í að aðstoða við leitina.
Enaðhverjueða hverjumerveriðað
leita?
Jan Ake Berg upplýsingafulltrúi
hersins segir að í rauninni sé ekki vitað
nákvæmlega Itvað um sé að ræða en
eitthvað sé það og því muni leitinni
haldið áfram.
■ Ertu með kafbát eða njósnara í farangursgeymslunni?
Sænskur hermaður að störfum skammt frá Karlskrona.
Samviskuf angar í
finnskum fangelsum?
■ Finnland hefur nú verið sett á lista
Amnesty International ásamt þeim
löndum sem hafa f haldi hina svo kölluðu
„samviskufanga". Þessi ákvörðun
Amnesty kemur í kjölfar ákvörðunar
finnsku dómstólanna að dæma menn í
fangelsi sem neita að gegna herþjónustu.
Reyndar er það svo að þessir menn hafa
farið fram á það að mega starfa í
almannaþágu í stað þess að gegna
herþjónustu.
Fvrir rúmum mátiuöi var ungur
háskólanemi frá Hclsinki dæmdur í
fangelsi af þessum sökurn og eftir að
hafa fjallað um mál hans komst Amnesty
að þeirri niðurstöðu að hér væri um
samviskufanga að ræða og lýsti um leið
Finnland í hópi þeirra ríkja sem héldu
slíka fanga. Hjá samtökunum eru nú til
athugunar mál 30 finnskra ungmenna
sem neitað hafa að bera vopn en vilja
þess í stað fá að taka út
herþjónustuskyldu sína á öðrum
vettvangi.
í síðustu viku skoruðu 166 námsmenn,
háskólakennarar og listamenn á þá sem
herþjónustu hafa neitað í Finnlandi að
halda fast við ákvörðun sína og berjast
á þennan hátt fyrir friði.
Jukka Viitnen, ritari samtaka þeirra
sem vilja ekki taka út herþjónustu sína
með vopnaburði, sagði nú nýverið að
réttarhöldin yfir þessum mönnum
minntu um margt á rannsóknarréttinn
og galdraofsóknir á miðöldum. Hann
taldi að þó svo að dómar þessir væru
miidaðir hefði þaðekki í för meðsér að
fjöldi þeirra sem neituðu að gcgna
herþjónustu ntundi aukast cn undanfarin
ár munu um tvö prósent þeirra sem
herkvaddir hafa verið neitað að bera
vopn. Jukka Viitnen benti á að í löndum
eins og í Danmörku og Frakklandi væri
yfirleitt undantekningalaust tekið tillit
til óska af þessu tagi. (Úr Politiken)
BEINT FLUG I SOLINA
,FERDA
AÆTLUN
1984
FERÐAMIOSTÖÐIN kynnirferöa-
áætlun 1984 til BENIDORM, Costa
Blanca strandarinnar á Suöausturströnd Spánar.
Eins og áöur er aðeins flogiö leiguflug í góöa veðriö.
GISTING í ÍBUÐUM EÐA HÓTELUM
Gististaöir eru allir fyrsta flokks: íbúöir meö 1-2 svefnherbergjum,
Studíó-íbúðir eða hótel meö fæöi. BENIDORM feröirnar eru 2ja-3ja
vikna og brottfarardagar eru: 18. apríl (2ja vikna páskaferö), 2. maí,
23. maí, 20. júní, 11. júlí, 1. ágúst, 22. ágúst, 12. sept. og 3. október.
Dæmi: Hjón meö 2 börn, 2ja til 11 ára í páskaferð, samtals kr. 61.100,
- eða kr. 15.400,- pr. farþega.
Verðfyrir hjón í stúdíógistingu kr. 20.300,-pr. mann.
FM-FERÐALÁNIN
Staöfestingargjald viö pöntun kr. 2.500. Síðan mánaöarlegar greiöslur
allt frá kr. 1.000 í 3-6 mánuöi fyrir brottför og lánar þá Ferðamiðstööin
allt að sömu upphæö í jafn langan tíma, sem greiöist meö mánaðar
legum afborgunum eftir heimkomu. Veröhækkanir sem veröa á
sparnaðartímanum af völdum gegnisbreytinga ná ekki til
þess hluta heildarverðsins sem greitt hefir veriö.
Dæmi: 4 mánaðarlegar greiöslur fyrir brottför kr. 2.000,
— samtals kr. 8.000, -, lánar þá Feröamiöstööin þér
allt aö sömu fjárhæö kr. 8.000, -, er greiðast til baka
meö jöfnum mánaðarlegum greiðslum, eftir heim-
komu á jafnlöngum tíma.
FM greiöslukjör
Staöfestingargjald kr. 2.500, - viö pöntun u.þ.b.
helmingur af heildarverði greiöist 30 dögum fyrir
brottför og eftirstöðvar meö jöfnum afborgunum á
3 mánuðum eftir heimkomu.
50% afsl. á innanlandsflugi.
Staögr. afsl. 5%.
Þeir, sem hafa dvaliö á BENIDORM ströndinni hrósa veörinu, verðlaginu,
matnum, skemmtistööunum, skoöunarferöunum og traustri þjónustu
FERÐAMIÐSTÖÐVARINNAR.
Verölisti fyrirliggjandi
BEINT FLUG
í SÓLINA
OG SJÓINN
lis! FERÐA..
IeIU MIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133