Tíminn - 14.03.1984, Page 1

Tíminn - 14.03.1984, Page 1
Islendingaþættir fylgja blaðinu í dag FJðLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 14. mars 1984 63. tölublað - 68. árgangur Sidumúla 15-Pósthólf 370 Reykjavík-Ritstjorn86300-Augtysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Dagsbrúnar: HUOÐAR AUS UPP A UM 50% LAUNAHÆKKUN ■ Menn eiga bágt með að átta sig á því hvert stefnir nú í kjaradeilu Dagsbrúnar og Vinnuveit- endasambandsins, þar sem sérkröfugerð Dags- brúnar mun, samkvæmt því sem Tíminn kemst næst hljóða alls upp á um 50% launahækkun, að flokkatilfærslum og öðru meðtöldu, en Dagsbrún mun gera kröfu um flokka- tilfærslur til samræmis við verslunarmenn. Kröfu- gerðin mun vera nálægt því 30 síður, og hafa marg- ir dregið í efa að þeim Dagsbrúnarmönnum væri full alvara með kröfum þessum, enda hafa fulltrú- ar Vinnuveitenda- sambandsins sagt að ef gengið yrði að þó ekki væri nema broti af þessum kröfum, þá yrði heildar- samkomulag ASÍ-VSÍ að takast upp. „f>að kemur náttúrlega ekki til nokkurra mála að samið verði á þá leið við Dagsbrún að heildarsam- komulagi ASÍ-VSÍ sé stefnt í voða,“ sagði Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra er Tíminn spurði hann álits á kröfugerð Dagsbrúnar í gær. Forsætisráðherra sagði jafnframt: „Ég fyrir hönd ríkisstjórnarinnar legg áherslu á að heildar- samningar í landinu við þessi félög verði þeir sömu, eða sem allra næst samkomulagi því sem ASÍ gerði. Éf það verður ekki, þá heldur ekki þessi markaði rammi.“ -AB Ránstilraun við Regnbogann: RÉÐIST Á MIDA- SÖLUSTÚLKU OG HEIMTAÐIPENINGA ■ Á sjöunda tímanum í gær var gerð tilraun til þess að ræna afgreiðslu- stúlku í kvikmyndahúsinu Regnboganum í Reykja- vík. Ungur maður sem kom að miðasölunni seild- ist inn fyrir og náði í handlegg afgreiðslustúlk- unnar, sneri upp á hann og heimtaði að hún afhenti sér peninga. Stúlkan brást við með því að æpa sem mest hún mátti og missti árásarmað- urinn þá kjarkinn og hljóp í burtu, þótt engir væru á ferli við miðasöluna þá stundina. Stúlkan fór á slysavarðstofuna, þar sem kannað var hvort um meiðsl hefði verið að ræða en von var á henni aftur til vinnu í gærkvöldi. Árás- armaðurinn var ófundinn, þegar síðast fréttist. -JGK Skrifstofustjóri Kaupfélags ísfirðinga: Úrskurðaður í gæsluvarðhald — vegna meints f járdráttar og skjalafals ■ Skrifstofustjóri hjá Kaupfé- lagi ísfirðinga var í gær úrskurð- aður í þriggja daga gæsluvarð- hald hjá bæjarfógetanum á ísa- firði vegna meints fjárdráttar og skjalafals. Játningar mannsins liggja fyrir í einhverjum atriðum málsins, en að sögn bæjarfóget- ans var afráðið að gripa til gæslu- varðhaldsúrskurðar, meðan ver- ið væri að komast að umfangi málsins. Maðurinn var ráðinn skrif- stofustjóri hjá Kaupfélagi ísfirð- inga fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári. Að sögn bæjarfógetans er. ekki ljóst hvort rannsóknin bein- ist að öllu starfstímabili hans. -JGK. „Snuffid” komið á markað aftur ■ „Okkur bárust skriflegar beiðnir frá fólki um að þetta tóbak yrði sett á markað. Menn bentu á að það væri fáanlegt í öllum nálægum löndum og að ekkert væri við því amast þótt fólk flytti það með sér heim. Við ákváðum að láta undan þessum þrýstingi og hefja söluna að nýju,“ sagði Jón Kjartansson, forstjóri Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins, þegar hann var spurður hvers vegna „ment- hol-neftóbak“ væri komið í verslanir aftur, en sem kunnugt er var það tekið af markaði fyrir nokkrum árum. Jón sagði að þessi vara hefði aldrei verið bönnuð í sjálfu sér. Heldur hefði ÁTVR ákveðið að hætta að flytja hana inn vegna þess að kvartanir bárust frá skólastjórum og fleiri aðilum um að börn notuðu tóbakið, og að í einstaka skólum hefði gripið um : sig einhvers konar æði. Vélskófla valt í vatnsf arveg ■ Vélskófla hvolfdi niður í vatnsfarveg við Hraun í Olfusi í gær. Ökumaðurslapp ómeiddur, en ekki mátti tæpara standa, því að hann lokaðist inni í tækinu og komst ekki út fyrr en því var lýft ofan af honum. Vatn komst inn í hús vélskófl- unnar en nægilega lítið til þess að ökumanni tókst að draga andann. Einhverjar skemmdir urðu á vélskóflunni. -JGK. ELDUR LAUS í BARNAHEIMIU ■ Talsvert tjón varð þegar eldur varð laus í einu herbergi í bamaheimilinu Holtaborg, á mótum Suðurhóla og Austur- hóla í Breiðhohi, í gær. Slökkvi- liðið í Rcykjavík var kvatt á staðinn laust fyrin klukkan 20 og þegar það kom á vettvang stóðu eldtungur út um glugga á austurhlið hússins, sem þá þegar var orðið fullt af reyk. Að sögn slökkviliðsins gekk vel að ráða niðurlögum cldsins þrátt fyrir að eldurinn hafði náð að festa sig í einangrun í lofti herbergisins og nauðsyn- legt hefði verið að gera á loftið stórt gat. Síðast var vitað til ntanna- ferða í húsinu um hálfum þriðja fima áður en eldsins varð1 vart. Eldsupptök eru ókunn. -Sjó. ■ ■ Slökkviliðsmönnum tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út fyrir herbergið sem hann kom upp í. Tímamynd Sverrir. Yfirvofandi yfirvinnubann í Eyjum: Heldur þokast í | samkomulagsátt Frá Guðmundi Hermanns- syni, fréttamanni Tímans í Vest- mannaeyjum. ■ Heldur virðist þokast í átt að samkomulagi í deilu verkalýðs- félaganna í Vestsmannaeyjum og vinnuveitenda þar. Sáttafund- ur stóð með hléum frá klukkan 10:30 til klukkan 19 í gær og hefur annar fundur verið ákveð- inn í dag klukkan 10.30. Yfirvinnubann hefur verið boðað af hálfu verkalýðsfélag- anna í Eyjum og tekur það gildi á miðnætti 15. mars næst kom- andi hafi ekki fundist lausn á deilunni áður. „Ég er hvorki svartsýnn né bjartsýnn en það er þó heldur hreyfing á málunum,“ sagði Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vestmanna- eyja, í samtali við Tímann í gærkvöldi. Arnar Sigmundsson, hjá Samfrost og einn fulltrúa vinnuveitenda, sagði að ágrein- ingsefnum hefði fækkað í gær. -Sjó. i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.