Tíminn - 18.04.1984, Síða 3
MIÐVIKUÐAGUR IX. APRIL 19X4
Þjónar Byggingarfélag verkamanna ekki hlutverki sínu?
r
MDAD VID GERDAR FRAMKVfllDP
segir Pétur Jónsson, einn forsvarsmanna undirskriftasöfnunar íbúðaeigenda
sem vilja leggja félagið niður. y
MS KSSAR IBUDHr
— segir Sigurður Kristinsson, framkvæmdastjóri
Byggingarfélags verkamanna
■ „Þess eru dæmi að mánaðarleg
útgjöld einstakra íbúða Byggingar-
félags verkamanna í Reykjavík séu
nálægt 1300 krónum og um 1100
krónur fyrir blokkaríbúðir. Þetta er
meira en nokkur einbýlishúsaeigandi
greiðir nokkurn tíma í utanhúsvið-
hald, en allt innanhússviðhald sjá
íbúarnir um sjálfir. Það væri gaman
að vita í hvað þessir peningar fara og
hvað maður þyrfti eiginlega stórt hús
til að ná svona brjálæðislegri upphæð
í viðhald. Reikningarnir hjá þessum
mönnum líta svo sem vel út en ef
bornar eru saman framkvæmdir sem
gerðar eru og síðan þær sem gefnar
eru upp að hafi verið kostnaður þá
stenst þetta bara alls ekki“ sagði
Pétur Jónsson í samtali við Tímann,
en Pétur er einn forsvarsmanna undir-
skriftarsöfnunar eigenda íbúða Bygg-
ingafélagsins þar sem farið er fram á
að Byggingarfélagið verði lagt niður
og leyfð verði frjáls sala á íbúðum 30
ára og eldri.
Alþingi hefur þegar borist undir-
skriftir tæplega 300 eigenda íbúða í
Byggingarfélaginu, en söfnun stendur
enn yfir. í greinargerð með undir-
skriftunum segir m.a. að félagið þjóni
ekki lengur þeim tilgangi sem stofnað
var til, viðhaldi sé illa sinnt, kvartanir
hunsaðar og viðhaldskostnaður sé allt
of hár. íbúðir byggingarfélagsins eru
525 talsins en alls eru undirskriftir
orðnar á fjórða hundrað.
Pétur sagði að Byggingarfélagið
stæði mjög slaklega að öllu viðhaldi,
sem dæmi um það hefði hann sjálfur
þurft að einangra glugga sinnar íbúð-
ar, 7 árum eftir að þeir voru dæmdir
ónýtir. Og þó svo að almennir félags-
menn vildu taka viðhaldið yfir á eigin
hendur er það ekki hægt nema með
lagabreytingum sem fælu í sér að
félagið væri lagt niður. Það er því von
þeirra sem standa að undirskrifta-
söfnuninni að á frumvarpi því sem nú
liggur fyrir Alþingi um húsnæðisstofn-
un ríkisins verði gerðar breytingar í
samræmi við óskir íbúanna. Vegna
umræðna um lögin var undirskriftun-
um skilað inn fyrir skemmstu án þess
að söfnuninni væri að fullu lokið.
-b.
■ „Þetta fólk vill leggja niður félagið
og fá að koma íbúðunum í frjálsa sölu
til þess að geta farið að braska með
þær. Það er einmitt okkar hlutverk að
koma í veg fyrir brask á þessum
íbúðum sem eru byggðar á félagslegum
grundvelli og að nokkru leyti fyrir
opinbert fé. Það er líka athyglisvert að
það eru ekki ellilífeyrisþegamir sem
eiga hvað erfiðast með að greiða sín
gjöld til félagsins sem standa fyrir
þessu heldur er það yngra fólk“, sagði
Sigurður Kristinsson framkvæmda-
stjóri Byggingarfélags verkamanna
þegar Tíminn bar undir hann undir-
skriftarsöfnun ibúa í íbúðum félagsins
sem sett er til höfuðs félaginu.
„Við erum þeirsem fáum síðastir að
vita um þetta. Það hefur hringt í okkur
gamalt fók sem býr í þessum íbúðum
og kvartað undan aðgangshörku þeirra
sem að þessarri söfnun standa og það
var það fyrsta sem við fréttum af
þessu," sagði Sigurður.
„Félagið cr ckkert annað en fólkið
sjálft og ef það er eitthvað að í rekstri
þess þá á það að koma fram á
aðalfundum. Rcikningar félagsins eru
lagðir fram á aðalfundi, endurskoðaðir
af endurskoðendum félagsins en annar
þeirra er löggiltur og ég hef ekki
nokkra trú á að þeir nienn færu að
skrifa upp á reikninga sem ekki stæðust
á einn eða annan hátt".
Aðspurður um óhóflegan viðhalds-
kostnað íbúðanna benti Kristinn á að
þær tölur scm forsvarsmenn undir-
skriftasöfnunarinnar hefðu hampað
hvaö mest væru lægri en eitt prósent af
fasteignarverði en eðlilegt áfskriftarfé
væri, 1,5 til 2,0% .
Knattspyrnuskólar í Englandi
verða í Birmingham 11.-25. apríl, 1.-15. júlí,
15. • 29. júlí, 5.-19. ágúst, 19. ágúst - 2. sept.
Flogið er með Flugleiðum Keflavík - London - Keflavík.
Nemendum verður ekið til og frá Birmingham. Gist verður
í heimahúsum í Great Barr hverfinu skammt frá leikvöllum
Aston Villa. 1 - 3 nemendur gista á hverju heimili, fullt fæði
og þjónusta innifalin. Æfingar daglega, fyrir og eftir há-
degi, einstaklings- og hópþjálfun. Sérstakir þjálfarar frá
enska knattspyrnusambandinu ásamt þekktum leik-
mönnum úr liðum Aston Villa, West Bromwich Albion.
Tony Godden, markmaður Luton, þjálfar markverði.
Leiknir æfingaleikir við heimalið, sýndar kennslukvik-
myndir, farið á leiki, skoðunarferðir um nágrennið, alls
konar aðstaða til leikja og íþrótta, sundlaug o.s.frv. Fjöldi
unglinga á aldrinum 12-25 ára frá helstu knattspyrnu-
löndum Evrópu og víðar sækir þessi námskeið, þannig
gefst íslensku þátttakendunum tækifæri til að leika með
jafnöldrum sínum og reyna getu sína. Skólar þessir eru
opnir piltum sem stúlkum, einstaklingum sem hópum.
Verð kr. 18.370 í 14 daga, hver aukavika kr. 4.830.
Feróaskritstota
KIARTANS
HELGASONAR
Gnoóavog 44 - 104 Fteykjavlk
sími 86255.
Einkaumbod á íslandi.
Aukagreiðsla fyrir enskunám, 1 tíma á
hverjum virkum degi: kr. 1.930 fyrir 14
daga en kr. 970 fyrir hverja aukaviku.
Auk knattspyrnunámskeiðanna í Birm-
ingham verða knattspyrnunámskeið í
Exmouth 24. júní - 8. júlí, 8. - 22. júlí, 22.
júlí - 5. ágúst, 5. -19. ágúst, 19. ágúst -
2. sept.
Auk knattspyrnu er hægt að stunda ein-
göngu nám í tennis og útreiðum í Birm-
ingham og Exmouth og eingongu
„windsurfing“ og köfun í Exmouth að
viðbættu enskunámi.
Sérstakir bæklingar á ensku, einnig
videóspólur um knattspyrnu.
Kynnið ykkur skóla okkar
Sandfield International.
IANDFIELD
INTERNATIONAL
BIRMINGH>4/M