Tíminn - 18.04.1984, Síða 4

Tíminn - 18.04.1984, Síða 4
4______ fréttir MIÐVIKUDAGUR 1S. APRÍI. 1984 Styrmir fróði skrifaði Harðar sögu 1243-44 ) SAMHMAHEMU) UM STURLU SKHVATSSON Þórhallur Vilmundarson sýnir fram á hvar? hvenær og hvernig íslendingasaga varð til ■ Þórhallur Vlilmundarson, prófessor ■ Styrmir fróði ábóti í Viðey skrifaði Harðar sögu Grímkelssonar og Holmverja a árunum 1243-1244. í raun fjallar sagan um samtímaatburði þegar hún er rituð og er „lykil-róman“ ef nota má það orðalag, því það var ekki fundið upp fyrr en nokkrum öldum síðar suður í álfu. Söguhetjan er Sturla Sighvatsson og koma atburðir í Harðarsögu heim og saman við frásagnir af umsvifum Sturlu eins og sagt er frá þeim í Sturlungu og lýsingar á mönnum þessum eru nánast samhljóða svo og mörgum öðrum persónum sem þeim eru nákomnar áeinnhátt eða annan.Samkvæmt þessu liefur Styrmir fróði skrifað um tiltekna Þórðarsyni. Þetta kom fram í fyrirlestri sem Þórhall- ur Vilmundarson prófessor flutti í Há- skólanum sl. mánudagskvöld. Hann færði rök að því að Styrmir fróði hafi ritað söguna um Hörð og á hvaða árabili hún er rituð. Hefur ritunartími fornra sagna aldrei áður verið eins nákvæmlega ákvarðaður áður. Fræðimenn hafa áður leitt getum að því að frásögn Sturlungu um vígi það sem Sturla Sighvatsson lét gera í Geir- hólma í Hvalfirði og skálinn sem hann lét reisa þar hafi verið nokkurs konar arfsögn tckin úr Harðar sögu. Sam- kvæmt kenningu Þórhalls er þessu öfugt farið. Harðar saga lýsir einmitt tilþrifum Sturluog hernaðarumsvifum. Styrmir og Sturla voru samtíðarmenn og var hinn fyrrnefndi undir verndar- væng Snorra Sturlusonar og stóð nærri þeim ógnaratburðum er leikurinn var hvað æstastur á Sturlungaöld. Hann bjó í nágrcnni Hvalfjarðar þegar Sturla lét gera vígið í Geirhólma og sendi þangað flokk undir forystu garpsins Svarthöfða Dufgusonar til að halda uppi njósn og landvörn. Fyrirlesari skaut því inn í framhjá- hlaupi að hin fyrsta herstöð í Hvalfirði hafi verið skrifuð á íslenskan reikning. - Þórhallur Vilmundarson taldi til 12 atriði úr Harðar sögu og frásögnum af Sturlu Sighvatssyni sem sagt er frá á svo nauðalíkan hátt að ekki getur verið unt tilviljun að ræða. Lýsingar á Herði Grímkelssyni og Sturlu Sighvatssyni eru nær samhljóða. Báðir áttu þeir hina vænstu kvenkosti af göfugum ættum og nauðalíkar hafa þær verið, Helgar Haraldsdóttir og Solveig Sæmundsdóttir í sjón og raun, og búnar sömu eðliskostunum. Viðbrögð þeirra við dauða bænda sinna eru hin sömu og eins eftirmálin. Frásagnir af dauða Harðar og Sturlu cru nær eins. Báðir vörðust þeir fræki- lega en áttu við ofurefli liða að eiga, sluppu úr hcrkví, annar í Hvalfirði hinn í Orlygsstöðum, er fjölmenni sótti að þeim er þeir voru sloppnir úr kvínni og unnið var á þeim á sama hátt, höggnir í hnakkann. Þorsteinn gullhnappur vó Hörð en Gissur Þorvaldsson, Sturlu og er lýsing á báðum vígunum hin saman, svo og á vegendum og eftirmálum. atburði Sturlungualdar í undan Sturlu Margar fleiri sannanir dró Þórhallur fram í dagsljósið og sýndi fram á að Styrmir ábóti var að lýsa herförum og afrekum Sturlu Sighvatssonar er hann reit Harðar sögu, og þar með er sannað að Hörður Grímkelsson hefur aldrei verið til nema sem skáldaleyfi til að fela hið raunsanna frásagnarefni. Tók fyrirlesarinn dæmi úr nútímanum og sýndi fram á nákvæmlega sömu vinnubrögð þegar Halldór Laxness skrif- aði Atómstöðina tveim árum eftir her- verndarsamninginn 1946. Þar þekkja allir að á bak við nafnið Óli fígúra leynist Ólafur Thors. í Harðar sögu á Kolgrím- ur gamli sér samsvörun í Kolbeini unga sem vel er kunnugur úr Sturlungu. Sturla Sighvatsson er einn mestur hermaður á Islandi fyrr og síðar. I Noregi var hann handgenginn konungi og fylgdist þar með virkjagerð og tiltók fyrirlesari dæmi þar um og sérstaklega dvaldi hann við er Sturla gekk með konungi í hamrinum í Túnsbergi þar sem virkisgerð stóð þá yfir. Þegar hann gekk suður til Róms hefur ekki hjá því farið að hinum herskáa höfðingja hefur orðið starsýnt á virki þau sem á leið hans urðu. Fleiri háttu tók Sturla eftir norskum konungum svo sem að lemstra mótstöðu- menn sína, eins og frásögnin af blindun og geldingu Órækju sýnir. Það er því engin tilviljun að Sturla lét gera virki í Geirhólma, eins og hólminn sem síðar var kenndur við Hörð, nefnist í elstu heimildum. Hann átti í útistöðum við höfðingja víða um land og var Hvalfjörður á mörkum yfirráðasvæðis hans og hólminn kjörinn staður til að hafa lið og halda uppi njósn og landvörn að hætti erlendra konunga. Þau voðaverk sem unnin voru á dögum Styrmis fróða, þ.e. á einhverjum mesta róstutíma Sturlungaaldar, hafa að vonum sótt á hug hans og vera óvinveittr- ar liðssveitar í virki úti í Hvalfirði, í nágrenni Viðeyjar, en Snorri Sturluson, sem hélt verndarhendi yfir 'Styrmi sat í þann tíð að Bessastöðum. Hefur þeim í Viðeyjarklaustri því staðið ógn af virk- inu. Þetta er kveikjan að því að hann skrifar Harðarsögu og Hólmverja og klæðir frásögnina af Sturlu Sighvatssyni Athugasemd: Vegna fréttar um hrossarækt ■ Vegna fréttar í Tímanum í gær þar sem segir að Landbúnaðarráðuneytið hafi lagt til með nýútkominni skýrslu að hrossum verði fækkað og afnám hrossa- beitar á afréttarlöndum skal eftirfarandi tekið fram : Umrædd skýrsla er unnin af framleiðsluráði landbúnaðarins og Landbúnaðarráðuneyti og í henni koma fram hugmyndir að umræðugrundvelli um framtíð hrossastofnsins. Það er því ekki rétt að kalla þetta tillögur ráðuneyt- is heldur umræðugrundvöll sem lagður er fram af Framleiðsluráði og ráðuneyti. Annars er frétt Tímans í fullu samræmi við efnisinnihald skýrslunnar og um- ræður á fundi hagsmunaaðila um hrossa- rækt á mánudag. Blaðamaður Tímans biðst velvirðing- ár á pessari ónákvæmni. -b í búning skáldsögunnar, eins og dæmi eru um fyrr og síðar. í Harðar sögu er ekki rakin ævisaga Sturlu Sighvatssonar, enda margt ólíkt með lífshlaupi sögupersónunnar og Sturlu. En tilteknir þættir í lífi þeirra og lýsingar á atgjörvi þeirra og ber svo nákvæmlega saman að þar ræður enginn tilviljun. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að Harðar saga er uppspuni að því marki að hún er hugarfóstur Styrmis fróða en sannleiksgildi hennar liggur í því að hún er að nokkru leyti sga Sturlu Sighvats- sonar. Rómantíkerar verða því að una því að Helga hin fagra synti aldrei úr hólmanum með börn sín og Hörður Grímkelsson og Hólmverjar hans hafa aldrei verið til. En sagan er ekki verri fyrir það og hið hárómantíska kvæði Davíðs Stefánsson- ar um hetjusögnina er jafnljúf lesning þeim sem slíkt kunna að meta. Rannsókn Þórhallar Vilmundarsonar á Harðar sögu mun vera upphaf náttúru- nafnakenningar hans. Þar kemur fram sú árátta að nefna örnefni eftir manna- nöfnum eins og svo miklu víðar. En upprunaleg örnefni voru nefnd upp, oft á ttðum eftir fólki sem sannanlega hefur aldrei verið til, og hafa slík örnefni síðar verið notuð til að staðfesta sannleiksgildi íslendingasagna og fleiri frásagna. En undirritaður hefur það fyrir satt að fyrirlesari hafi ekki komið auga á hið nána samband milli lýsinga á Herði Grímkelssyni og Sturlu Sighvatssyni fyrr en í næstliðnum mánuði og við nánari athugun hafi hvert sönnunaratriðið rekið annað. En honum verður varla láð að hafa ekki komið auga á þetta fyrr, því enginn hefur gert það á undan honum. Ekki er að efa að þessi rannsókn og þær niðurstöður sem Þórhallur Vilmund- arson prófessor hefur komist að muni vekja mikinn áhuga fræðimanna og allra þeirra sem láta sig varða söguritun og rannsókn á íslenskum bókmenntum og um þær fjallað á verðugan hátt. O.Ó Ath: Þessi umsögn er skrifuö af leik- manni eftir minni og sé um rangfærslur eða misskilning að ræða hlýtur það að skrifast á reikning hans en ekki fyrirles- ara. Glæsifleytan Gustur sjósett: „FRÍSTUNDA- OG FISKIBÁTIIR" — segir eigandinn Daði Hinriksson á ísafirði ■ „Það mætti bæði fara í langt og gott sumarfrí á þessum bát og einnig nota hann sem fiskibát þar sem hann getur hentað ágætlega m.a. til línu- og færa- veiða og þannig hef ég kannski í huga að nota hann i frístundunum þútt ekkert hafi verið ákveðið um það ennþá", sagði Daði Hinriksson á ísafirði sem nýbúinn er að sjósetja sína glænýju glæsifleytu Gust. En frístundir hans hafa síðasta hálft annað árið eða svo ilestar farið í smíð bátsins. Daði, sem sjóralláhugamenn muna sjálfsagt eftir úr sjóralli kringum landið 1980 og Djúpralli fyrir tveim árum, kvaðst hafa keypt bátsskelina af Flug- fiski hf. í ágúst 1982. Báturinn er steyptur úr trefjaplasti í tveim hlutum, þ.e. yfirbyggingin og bolurinn, sem síð- an eru boltuð saman. Þá sagði Daði þó eiginlega mesta verkið eftir, þ.e. að ganga frá gluggunum, vél, raflögn og öllum innréttingum. í bátnum sagði hann svefnaðstöðu fyrir 6 manns, sjósal- erni, ágætis eldunaraðstöðu og borðkrók og gott stýrishús með sætum fyrir 3, en alls séu sæti fyrir 12 manns. ■ Daði Hinriksson sestur við stýrið en með honum er tengdasonur hans HaUdór Jónatansson, rafvirki sem gekk frá raflögninni í farkostinn. Sjóralláhugann sagði Daði enn til staðar, en enginn hafi haldið slíkt síðan Sportbátafélagið í isafirði gekkst fyrir Djúprallinu fyrir tveim árum. Þótt það Myndir Finnbogi. hafi í sjálfu sér tekist vel hafi það hins vegar ekki komið vel út peningalega fyrir Sportbátafélagið, sem því hafi ekki lagt í annað rall enn a.m.k. -HEI H Mest af vinnunni við bátinn vann Daði heima við bílskúrinn sinn og þar sem hann býr niður við flæðarmálið þurfti aðeins að fá krana til að hífa bátinn yfir götuna og út á sjó.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.