Tíminn - 18.02.1986, Síða 3
Þriðjudagur 18. febrúar 1986
Tíminn 3
Gífurleg álagning á varahlutum:
Úr 6.700 kr. í Japan
í 36.000 í Reykjavík
- og þó undanskilinn tollum og söluskatti
„Ég hef lent í því að varahlutur,
sem ég vissi að kostaði um 160 doll-
ara (um 6.700 kr. ísl.) úti í Japan átti
að kosta um 36 þús. krónur hjá fyrir-
tæki sem ég ætlaði að kaupa hann hjá
hér heima. Og þó voru hvorki að-
flutningsgjöld né söluskattur á þess-
um hlut. Stærðin á honum var svona
á við 2-3 eldspýtustokka. Þó við
reiknum með um I þús. í flutnings-
kostnað og 100% álagningu hefði
verðið á þessum varahlut ekki átt að
fara yfir 14-15 þús. krónur," sagði
Páll Jónsson, framkvæmdastjóri
Meitilsins í Þorlákshöfn, sem þótti
framangreind álagning að vonum
nokkuð gróf.
„Bæði ég og fleiri höfum haldið
því fram - í sambandi við þessa
Flugleiðir og Air Algerie undir-
rituðu rammasamning á laugardag-
inn um að Flugleiðir sjái um
pílagrímaflug alsírska flugfélagsíns
og einnig að Flugleiðir taki að sér
áætlunarflug milli Alsír og Evrópu í
eitt ár. Þarna er um að ræða samning
að upphæð allt að 24 milljónir dala,
eða um milljarð íslenskra króna.
Að sögn Sæmundar Guðvinssonar
þurfa Flugleiðir fjórar flugvélar til
pílagrímaflugsins og a.m.k. tvær í
áætlunarflugið. Til greina kemur að
festa kaup á einni vél en leigja hinar.
frjálsu álagningu - að gengið sé bara
fast í annan endann. Okkur sem
framleiðum gjaldeyrinn er skammt-
að verð fyrir hann sem okkur hefur á
stundum þótt full lágt. Verslunin
kaupir síðan gjaldeyrinn á þessu
verði, en endurseiur hann síðan eftir
því sem henni finnst eðlilegt - sumir
jafnvel á verði eins og í dæminu hér
að framan, sem mér fannst vægast
sagt myndarleg hækkun. Þó það séu
tugir aðila sem versla með varahluti í
skipin og vélarnar okkar þá geturt*
við oft aðeins keypt varahlut á einum
stað í viðkomandi vél. - Og þá geta
menn haft verðlagninguna á þeini
eins og þeim sýnist og gera það sumir
hverjir a.m.k.,“ sagði Páll.
Þar sem hann vissi erlenda verðið í
Flugleiðir hafa flogið lengi með
pílagríma, eða frá 1975 en þá frá
Nigeríu. Flugleiðir hafa hinsvegar
séð um hluta af pílagrímaflugi Air
Algerie frá 1978 og hafa tvisvar áður
fengið allt pílagrímaflugið sem það
félag hcfur boðið út.
Að sögn Sæmundar voru Flugleið-
ir ekki með besta tilboðið í píla-
grímaflugið að þessu sinni, en það
hafi skipt mestu máli hvað félagið og
starfsfólk þess sé vel kynnt í Alsír
eftir starf undanfarinna ára.
því dæmi sem hér er tilgreint bað Páll
eðlilega um skýringu á 5-6 faldri
verðhækkun við flutninginn frá
Japan. Fékk hann það svar að þarna
hlyti að vera um einhvern misskiln-
ing að ræða í útreikningi og var
hluturinn lækkaður niður í um 20
þús. krónur.
„Maður varð var við að varahlutir
hækkuðu töluvert eftir að álagningin
var gefin frjáls," sagði Páll. sem
kvaðst vita um mörg dæmi gífurlegr-
ar álagningar miðað við verð vara-
hluta erlendis.
-HEl
Tveir piltar
létust í
umferðarslysi
Tveirpiltarfæddir 1967og 1968
létust í umferðarslysi á föstudags-
kvöld. Drengirnir voru á mótor-
hjóli á leið til Selfoss, þcgar þeir
lentu framan á lítilli rútubifreið
skammt vestan við Kögunarhól, á
þjóðveginum milli Selfoss og
Hveragerðis. Talið er að dreng-
irnir, sem voru saman á hjóli, hafi
látið lífið nær samstundis. Tveir
félagar þeirra sem voru skammt á
eftir þeim lentu í brakinu frá hjól-
inu og féllu á götuna. Þeir eru enn
á sjúkrahúsi.
Drengirnir sem létust heita
Geir Halldórsson fæddur 11/12
1967 til heimilis að Bláskógum
2A Hveragerði og Gísli J.
Hannesson fæddur 9/5 1968 til
heimilis að Þelamörk 42 Hvera-
gerði.
Flugleiðir
fá pílagrímaf lug
'iZTZ i i
»T titezc ...: ,v ’.SÍ
t fm ú * - H! ? !» —-i*
WT:mqk::' %: í 1 1 I. • a > í * /■ H - , * - -f-
Danski stórmeistarinn Curt Hansen er einn efstur á Reykjavíkurskákmótinu með 51/: vinning eftir 6 umferðir. í 6. um-
ferðinni í gær tapaði hann fyrstu stigunum þegar hann gerði „aðeins“ jafntefli við Júgóslavann Nicolic.
Tímamynd: Árni Hjarna
Reykjavíkurskákmótið:
Jóhann maður umferðarinnar
Jóhann Hjartarson varmaðuró. um-
ferðar Reykjavíkurskákmótsins
þegar hann vann bandaríska skák-
manninn Joel Benjamin á sannfær-
andi hátt. Við þennan sigur komst
Jóhann í 2. sæti mótsins ásamt 6 öðr-
um taflmönnum en danski stórmeist-
arinn Curt Hansen er einn efstur í 1.
sæti og tapaði raunar fyrstu stigum
sínum í gær.
Hansen er með 5'A vinning en með
4103 vinning koma Jóhann, Nicolic,
Byrne, Miles, Georghiu og Adianto.
Úrslit umferðarinnar urðu þessi:
6. umferð:
Hvítt Svart
Curt llanscn - I’rcdra}* Nikolic Vi-Vi
Nick DcFirmian - Robert Byrne V2-V2
Efim Gellcr - Anthony Milcs V2-V2
Yasser Scirawan - Valcry Salov bið
Margeir Pétursson - Mikhail Tal Xh-V2
Bent Larsen - Vitaly Zaltsman bið
Jóhann Hjartarson - Joel Benjamin 1-0
Guðmundur Sigurjónsson - Helgi Ólafsson Vi-Vi
John Fcdorovvich- Florin Ghcorghiu 0-1
Larry Christiansen - Utut Adianto 0-1
Anatoly Lein - John Donaldson bið
Lev Alburt - Michael Wilder 1-0
Harry Schiissler - Migucl Quinteros 0-1
Walther Brovvnc - Jens Kristiansen 0-1
Jón L. Arnason - Ásgeir Þór Árnason , V2-V2
Hannes H. Stefánsson - Sergey Kudrin 0-1
Maxim Dlugy - Carsten Höi bið
Karl Dehmclt - Boris Kogan 1-0
Samuel Reshevsky - Davíð Ólafsson 1-0
Bragi Halldórsson - Gert Ligtcrink V2-V2
Þorstcinn Þorstcinss. - van dcr Stcrrcn 0-1
Eric Schillcr - 'Hiomas Wclin 0-1
Hér á eftir fer skák Jóhanns og
Benjamins.
Jóhann hafði hvítt:
1. d4-Rf6; 2.c4-c5; 3. d5-b5; 4.
cxb5-a6; 5. bxa6-g6; 6. Rc3-Bxa6; 7.
e4-Bxfl; 8. Kxfl-d6; 9. Rf3-Bg7; 10.
h3-00; 11. Kgl-Rbd7; 12. Kh2-Db6;
13: Hel-HfbS; 14. Kgl-Re8; 15.
He2-Da6; 16. I)el-Rc7; 17. Bf4-
Bxc3; 18. bxc3-f6; 19. a4-Hb3; 20.
Hc2-Hb7; 21. a5-Dd3; 22. Hccl-
Hb2; 23. c4-He2; 24. Dfl-Dxe4; 25.
Rd2-Dd3; 26. Rbl-Ra6; 27. Re3-
Hd2; 28. Del-Hb2; 29. De6t... og
svartur gafst upp.
^BLAÐBERA VANÍar'
í eftirtalin hverfi:
Reykjavík: Langholtsveg, Grettisgötu/Njálsgötu,
Skerjafjörð, Nýja Miðbæinn, Álfhólsveg/Fögru-
brekku. Mosfellssveit: Vantar í Holtin
Svalahurðir
Utihurðir
Bílskúrshurðir
Gluggasmiðjan
Síðumúla 20
símar: 38220&81080
býður þér þjónustu sína viö ný-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum i steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæöi í vegg og gólf.
Ennfremur kjarnaborum við fyrir lögnum í veggi og gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarff að láta fjarlægja reykháfinn þá
tökum við það að okkur.
Hífir leitast við að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þú ert
búsettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Fífuseli 12
| 109Reykjavík
~ sími91-73747
Bílasími 002-2183
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
BILALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:....96-21715/23515
BORGARNES:.........93-7618
BLÖNDUÓS:.... 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: .95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.....96-71489
HÚSAVÍK:....96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..97-8303
interRerrt